Morgunblaðið - 25.02.2003, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR 2003 53
6
22.02. 2003
8
7 1 9 8
9 6 4 0
22 25 29 33
10
19.02. 2003
16 21 42
43 44 46
29 38
Einfaldur 1. vinningur
í næstu viku
Fyrsti vinningur
fór til Noregs
1
VÁKORT
Eftirlýst kort nr.
4741-5200-0002-4854
4548-9000-0059-0291
4539-8500-0008-6066
Afgreiðslufólk, vinsamlegast takið
ofangreind kort úr umferð og
sendið VISA Íslandi sundurklippt.
VERÐLAUN kr. 5000
VISA ÍSLAND
Álfabakka 16,
109 Reykjavík.
Sími 525 2000.
!"#
$%&'()*&+,&*-%%-.*'/0)1--
2
3'"4%)),5
6
072 585&"&*-% 5
9 ,2
::;
KRINGLUNNI
Lokabaráttan er hafin!
ÁLFABAKKIKVIKMYNDIR.IS
/
ÁLFABAKKI / KRINGLAN / AKUREYRI / KEFLAVÍK
Sýnd kl. 8 og 10.10.
ÁLFABAKKI / AKUREYRI
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4. Ísl. tal.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 8 og 10.
Sýnd kl. 10.15.
Sýnd kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10. / Sýnd kl. 4.45, 6.50, 8, 9 og 10.15. / Sýnd kl. 8 og 10. / Sýnd kl. 8 og 10.
Sýnd kl. 4. Sýnd kl. 6.
HJ MBL
Sýnd kl. 4, 6 og 8.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 5. Ensk tal.
KRINGLUNNI
KRINGLUNNI
Sýnd kl. 6, 8 og 10.20. B. i. 14.
KEFLAVÍK
á
ÁLFABAKKI / KRINGLAN / AKUREYRI
Sýnd kl. 4 og 6. / Sýnd kl. 4 og 6. / Sýnd kl. 6 Ísl. tal.
Sýnd kl. 8 . B. i. 14.
Hann hafði
drauma-
stúlkuna við
hlið sér...
...en áttaði
sig á því
þegar hún
var farin
MENNTASKÓLINN við Sund, eða
öllu heldur leikfélag skólans, Thalia,
frumsýnir í kvöld kl. 20 leikritið
Hrein mey á leiðinni í Austurbæ.
Leikritið er byggt á kvikmynda-
handritinu við myndina Tíu hlutir í
fari þínu sem ég þoli ekki eða 10
things I hate about you (sem aftur er
byggt á leikriti Shakespeare’s.
Skassið tamið). Jóhanna Guðmunds-
dóttir, nemandi við skólann, formað-
ur leikfélagsins og aðstoðarleikstjóri
snaraði handritinu yfir á það ylhýra
síðastliðið haust og hafa síðan staðið
yfir þrotlausar æfingar.
Í samtali við Morgunblaðið sagði
Jóhanna að vel hefði gengið að
manna sýninguna og alls tækju um
50 manns þátt.
Leikstjóri Hreinnar meyjar á leið-
inni er Ingrid Jónsdóttir.
Gaman, gaman
Morgunblaðið/Árni Torfason
Þorbjörg Helga og
Páll Eiríkur í hlut-
verkum sínum.
TENGLAR
.....................................................
http://thalia.belja.is
Menntaskólinn við Sund setur upp Hreina mey á leiðinni
KVIKMYNDIN Píanistinn,
eftir Roman Polanski, var
valin besta kvikmyndin þeg-
ar Bresku kvikmyndaverð-
launin, BAFTA-verðlaunin,
voru veitt í London á sunnu-
dagskvöld. Myndin er sann-
söguleg og fjallar um píanó-
leikara af pólskum
gyðingaættum í seinni
heimsstyrjöldinni. Polanski,
sem er 69 ára gamall, var
einnig valinn leikstjóri árs-
ins. Hann var ekki við-
staddur og tók aðalleikari
myndarinnar, Adrien
Brody, við verðlaununum
fyrir hönd leikstjórans.
Velgengni Píanistans kom
nokkuð á óvart því talið var
að annaðhvort söngleik-
urinn Chicago eða stór-
myndin Gengi New York-
borgar (Gangs of New York)
myndu hreppa hnossið,
verðlaunin fyrir bestu
myndina
Píanistinn hefur víðar
notið velgengni og hlaut
myndin sex verðlaun þegar
frönsku kvikmyndaverð-
launin, Sesar-verðlaunin,
voru veitt á laugardag.
Myndin er ennfremur til-
nefnd til sjö óskars-
verðlauna.
Bandaríska leikkonan
Nicole Kidman var valin
besta leikkonan fyrir leik
sinn í hlutverki skáldkon-
unnar Virginiu Woolf í
mynd Stephens Daldrys,
Klukkustundunum (The
Hours). Myndin fékk líka
verðlaun fyrir bestu tónlist-
ina.
Daniel Day-Lewis var val-
inn besti leikarinn fyrir að
leika Bill slátrara í Gengjum
New York-borgar, stór-
mynd Martins Scorseses,
sem gerist á 19. öld.
Catherine Zeta-Jones var
valin besta leikkonan í auka-
hlutverki fyrir að leik sinn
sem Velma Kelly í myndinni
Chicago. Leikkonan, sem er
komin sjö mánuði á leið,
felldi tár þegar hún tók við
verðlaununum.
Christopher Walken var
valinn besti leikarinn í auka-
hlutverki fyrir leik sinn í
Spielberg-myndinni Gríptu
mig ef þú getur (Catch Me if
You Can). Walken leikur
föður ungs stórsvindlara,
sem leikinn er af Leonardo
DiCaprio.
Ræddu málin eftir Pedro
Almodovar var valin besta
erlenda myndin og fékk
leikstjórinn einnig verðlaun
fyrir besta handritið.
Stríðsmaðurinn (The
Warrior) eftir leikstjórann
Asif Kapadia var valin besta
myndin en hún er leikin á
hindí. Myndin Hringadrótt-
inssaga: Tveggja turna tal,
fékk áhorfendaverðlaun
sem besta myndin.
Meryl Streep, sem til-
nefnd var sem besta leik-
kona í aðalhlutverki og
aukahlutverki, sagði óvænt-
asta brandara kvöldsins
þegar hún tók við verðlaun-
um fyrir besta handritið.
Hún tók við verðlaununum
fyrir hönd Charlie Kauf-
man, sem gerði handrit
myndarinnar Aðlögun
(Adaptation). Hún las ávarp
Kaufmans á símbréfi og
sagði: „Mig langar til að
flengja Spike Jonze leik-
stjóra.“
Píanisti Romans
Polanskis sigursæll
Ástralska leikkonan Nicole
Kidman fékk verðlaun sem
besta leikkona í aðalhlut-
verki fyrir Klukkustund-
irnar. Fjöldi Hollywood-
stjarna sótti hátíðina.
Reuters
Breski leikarinn Daniel
Day-Lewis fékk verðlaun
fyrir besta leik í aðal-
hlutverki fyrir leik sinn í
Gengjum New York-
borgar.
Bandaríski leikstjórinn
Martin Scorsese afhenti
velsku leikkonunni Cather-
ine Zeta Jones verðlaun fyr-
ir besta leik í aukahlutverki
fyrir söngleikinn Chicago.
Bresku kvikmyndaverðlaunin veitt í London