Morgunblaðið - 26.02.2003, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 26.02.2003, Blaðsíða 14
14 B MIÐVIKUDAGUR 26. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ bílar BÍLAGENIN eru ríkjandi í fjöl- skyldunni í Heiðargerði 2 á Húsa- vík. Feðgarnir Karl Óskar Geirs- son og Sverrir Ingvi og Karl Hermann eru á kafi í bílum og heimilisfaðirinn er reyndar marg- faldur Íslandsmeistari í sand- spyrnu. Nýlega spurðist það út að Sverrir Ingvi hefði sprautað Chevrolet Malibu 1979, sem er í hans eigu, með viðarlakki. Þetta ku vera eini bíllinn á landinu sem hefur verið sprautaður með þess- ari aðgerð. Námskeið í Hollandi „Ég fór í endaðan nóvember til Hollands og var á námskeiði hjá Glassurite-fyrirtækinu í ýmsum „effect“-sprautunum, þar á meðal viðaráferð og einnig með klessu- pappír og bréfpokum. Þetta er ætl- að fyrir hvað sem er, svo sem inn- réttingar í húsum, mælaborð í bílum og, eins og í mínu tilfelli, ut- an á bíl. Það er reyndar ekki vitað til þess að það hafi nokkurn tíma verið gert áður. Ég byrja á því að mála allan bílinn gulan en síðan set ég á brúnan lit og venjulegt snýtu- bréf. Ég vöðla bréfinu saman og dýfi því ofan í litinn og doppa allan bílinn með bréfinu. Þetta er gert mjög skipulega og með réttum efn- um, ýmsum þynnum í réttri röð. Síðan glæra ég bílinn og millislípa aftur glæruna. Loks glæra ég hann aftur til að fá eggslétta áferð á hann,“ segir Sverrir Ingvi. Hann kveðst ekki vita betur en að leyfilegt sé að sprauta bíla með þessum hætti. Bíllinn er bara brúnn en með vissri áferð. Þetta er svokölluð mahóní-áferð, sem sjá má í innréttingum í stórum Merce- des-Benz og BMW-bílum. Sverrir Ingvi, sem er átján ára gamall, hefur unnið undanfarið eitt ár hjá Bílamálun Alla Berg á Húsavík. Margar fyrirspurnir hafa borist um nýja litinn en hann kveðst ekki upplýsa í smáatriðum hvernig staðið er að verki. „Við fórum tíu, frekar en átta, út til Hollands og vorum þar af leiðandi þetta margir sem lærðum þetta. En það liggur að baki fleiri hundr- uð klukkustunda vinna við þessa sprautun. Ég keypti bílinn vélar- lausan og sprautaði hann í fjórum pörtum. Það er svartur vinyltopp- ur á honum og hann sprautaði ég sérstaklega. Vélarsalurinn, öll föls, hurðir og skottlok að innan eru sprautuð í þessum lit.“ Sverrir Ingvi fékk í bílinn 305 kúbiktomma Chevrolet-vél sem skilar nálægt 200 hestöflum. Komnar eru í bílinn flækjur og fjögurra hólfa blöndungur. Hann á annan bíl sem hann segir að sé mun meiri keppnisbíll. „Þetta er sá eini sem eftir er í landinu af Ponti- ac Grand Prix árgerð 1977. Hann er glimmersprautaður. Ég fékk bílinn illa farinn frá bróður mínum. Hann stóð á búkkum og engin inn- rétting í honum. Ég smíðaði nýjan topp á hann og þurfti að ryðbæta hann mikið. Bróðir minn hafði far- ið í gólfið á honum þannig að það er nýtt. Pabbi hjálpaði mér síðan að mála hann. Ég var sextán ára þegar ég tók bílinn í gegn og kunni þá ekki að glimmersprauta. Bíllinn er kominn með miklu stærri vél og aðra skiptingu. Vélin er 455 kúbik- tomma Pontiac með nítrói og full- græjaðri vél.“ Lakk í viðarlíki á Malibu Pontiac Firebird í eigu föður Sverris Ingva. Sverrir Ingvi við Malibu-inn með viðarlakkinu. Sverrir Ingvi Karlsson er átján ára bílamálari á Húsavík. Hann kann að glimmersprauta og sprauta viðarlakki. Hann á líka tvo aflmikla ameríska bíla, þ. á m. eina Pontiac Grand Prix ’77 á landinu. Hyrjarhöfða 7, sími 567 8730 LAKKVÖRN Á BÍLINN Pústþjónusta BJB ehf. Flatahraun 7 - 220 HAFNARFIRÐI - Sími 565 1090 Sala, smíði og ísetning á pústkerfum VAL FAGMANNSINS • Sala • Varahlutir • Viðgerðir G.T. ÓSKARSSON Vörubílavarahlutir Vesturvör 23, 200 Kópavogi sími 554 6000. Gerðu betur í vetur Teflon húðun Fólksbíll 10 þús. Jeppi 13 þús. Pantaðu tíma og gerðu innkaupin í Kringlunni á meðan Kringlubón sími 568 0970 Varahlutir — hagstætt verð Gabriel höggdeyfar, drifliðir, drifliðshosur, vatnsdælur, vatnslásar, stýrisendar, spindilkúlur, tímareimar, sætaáklæði, ökuljós o.fl. Bíldshöfða 14 • sími 567 6744

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.