Morgunblaðið - 27.02.2003, Blaðsíða 38
UMRÆÐAN
38 FIMMTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Í DAG er kosið til Stúdentaráðs og
Háskólafundar í Háskóla Íslands.
Síðastliðna áratugi hefur Stúdenta-
ráð Háskóla Íslands verið í forystu í
hagsmunabaráttu stúdenta og verið
leiðandi afl í allri umræðu um kjara-
baráttu stúdenta og þeirri stöðu er
mikilvægt að halda. Stúdentar við
Háskóla Íslands eru rúmlega 7.000
og því ljóst að um mjög öflugan
þrýstihóp er að ræða. Þessi hópur er
fjölbreyttur en mörg brýn hags-
munamál eigum við sameiginleg.
Hver eru þá helstu baráttumál stúd-
enta? Þau eru krafan um betri lána-
sjóð, krafan um jafnt aðgengi allra
að háskólamenntun, leiðir að bættu
atvinnuástandi námsmanna og svo
mætti áfram telja. Í þessum mála-
flokkum greinir á milli þeirra fylk-
inga sem bjóða fram í Stúdentaráðs-
kosningunum og um þessi mál er
kosið. Á öðrum sviðum greinir okkur
ekki á. Við viljum öll sjá gömul próf á
Netinu, hafa byggingar lengur opn-
ar o.s.frv.
Það er kosið
um Lánasjóðsmál
Röskva hefur ætíð lagt mikla
áherslu á að Lánasjóður íslenskra
námsmanna sinni hlutverki sínu sem
félagslegur jöfnunarsjóður. Til þess
þarf að efla sjóðinn og á það þurfum
við stúdentar að þrýsta af öllum
krafti. Stúdenta eiga að geta stundað
sitt nám af krafti án þess að þurfa sí-
fellt að vera í vandræðum með að
láta enda ná saman. Röskva leggur
líkt og áður mesta áherslu á hækkun
grunnframfærslunnar þar sem sú
hækkun skilar sér til allra. Við get-
um ekki sett aðrar kröfur í forgang
líkt og lækkun skerðingarhlutfalls-
ins á meðan grunnframfærslan er
það lág að hún nægir ekki til fram-
færslu. Um þetta mál er kosið í dag.
Það er kosið um
jafnrétti til náms
Stúdentaráð þarf að beita sér fyrir
jafnrétti til náms. Samkeppnisstaða
HÍ er þannig í dag að ef fram fer sem
horfir og óbeytt kerfi verður við lýði
munu verða tekin upp skólagjöld við
Háskóla Íslands. Röskva vill að sam-
keppnisstaða HÍ verði leiðrétt gagn-
vart öðrum skólum á háskólastigi.
Um þetta mál er kosið í dag.
Það er kosið um
atvinnumál stúdenta
Ekki þarf að fjölyrða um ástandið
á atvinnumarkaðnum í dag. Mikill
fjöldi ungs háskólamenntaðs fólks er
nú á atvinnuleysisskrá. Sumarið
nálgast og námsmenn eru eðlilega
farnir að hafa miklar áhyggjur af því
hvort þeir fái nokkra sumarvinnu.
Röskva hefur kynnt fjölmargar leið-
ir í því að auka atvinnumöguleika há-
skólastúdenta. M.a. með eflingu Ný-
sköpunarsjóðs námsmanna,
verkefnamiðlun hjá Atvinnumiðstöð
námsmanna og samstarfi við Impru.
Um þetta mál er kosið í dag.
Það skiptir máli að kjósa
Röskva hefur kynnt stefnumál sín
fyrir þessar kosningar með skýrum
hætti. Nú er hins vegar komið að
stúdentum að gera upp hug sinn og
nýta kosningarétt sinn. Í fyrra
skildu aðeins fjögur atkvæði fylking-
arnar að. Mörg brýn verkefni liggja
fyrir Stúdentaráði og það skiptir
miklu máli hverjir taka slaginn.
Röskva hefur skýra stefnu í öllum
þessum málum og hefur sýnt það
hún er óhrædd að taka á þeim. Því
biðjum við um umboð til að leiða
hagsmunabaráttu stúdenta.
Helstu baráttumál stúdenta eru
krafan um betri lánasjóð, krafan um
jafnt aðgengi að háskólamenntun,
leiðir að bættu atvinnuástandi náms-
manna. Í þessum málaflokkum
greinir á milli þeirra fylkinga sem
bjóða fram í Stúdentaráðskosning-
unum og um þessi mál er kosið, segir
Valgerður B. Eggertsdóttir.
Um hvað er
kosið í Háskóla
Íslands?
Eftir Kolbrúnu
Benediktsdóttur
Höfundur leiðir lista Röskvu
til Stúdentaráðs.
„Við biðjum
um umboð til
að leiða hags-
munabaráttu
stúdenta.“
ÞÆR dapurlegu fréttir berast
að Íslenska óperan verði að hætta
sýningum á Macbeth eftir aðeins
átta sýningar vegna þess að ein
milljón króna tapist á hverri sýn-
ingu. Samkvæmt upplýsingum
framkvæmdastjóra óperunnar
þyrfti 750 sæti til að sýning stæði
undir kostnaði, en húsið tekur að-
eins 500 manns. Þetta merkir það,
að kostnaður við hverja sýningu er
um þrjár milljónir króna, en tekj-
urnar aðeins tvær. Meðaltekjur af
hverju sæti eru þá 4.000 krónur,
en meðalkostnaður 6.000.
Nú veit ég auðvitað ekki hvort
nokkrir möguleikar eru til sparn-
aðar, en reikna með að þeir hafi
þegar verið kannaðir. Hins vegar
fæ ég ekki séð að þetta vandamál
þurfi endilega að hefta frekari
sýningar á Macbeth. Verkið hefur
verið sýnt fyrir fullu húsi og upp-
selt er á allar þær sýningar sem
eftir eru. Þannig er ljóst, að eft-
irspurn er meiri en framboð og þá
er verðið líklega of lágt.
Ég legg því til við forráðamenn
óperunnar, að setja upp að
minnsta kosti eina aukasýningu
með þeirri breytingu, að miðaverð
verði þriðjungi hærra en á fyrri
sýningum. Þannig dygðu tekjur
fyrir kostnaði. Fróðir menn tjá
mér að uppsetning óperunnar sé
með eindæmum vönduð. Ég geri
ráð fyrir að fjöldi manns gripi feg-
ins hendi tækifærið til að sjá hana,
jafnvel þótt miðaverð yrði nokkru
hærra en venja er.
Tillaga
Eftir Þorstein
Siglaugsson
Höfundur er
hagfræðingur.
„Miðaverð
verði þriðj-
ungi hærra
en á fyrri
sýningum.“
ALMENNINGSSAMGÖNGUR á
Íslandi eru nú ekki til að hrópa húrra
fyrir, hvorki á landsvísu né í þéttbýli.
Ofuráhersla hefur verið lögð á einka-
bílinn og má segja að ef tíu Íslend-
ingar þurfi að komast milli húsa, þá
fari þeir á tíu fimm- eða sjömanna
bílum, helst upphækkuðum fjallabíl-
um.
Um áratugaskeið hefur því þótt
sjálfsagt að styrkja hreyfihamlaða til
bifreiðakaupa. Litið er á bifreiðina
sem almennt hjálpartæki, líkt og
hjólastól, staf eða hækjur. Lengi vel
voru tollar og aðflutningsgjöld felld
niður og má segja að það hafi að jafn-
aði verið nálægt helmingi bílverðs-
ins. Fyrir um hálfum öðrum áratug
var þessu breytt á þann veg að í stað
þess að fella niður opinber gjöld var
veittur styrkur að ákveðinni fjár-
hæð. Menn gátu endurnýjað bíla
sína á þriggja til fjögurra ára fresti
með hjálp styrksins og að því gefnu
að bifreiðin væri sæmilega með farin
var hægt að endurnýja í sams konar
eða sambærilegan bíl án verulegs
viðbótarfjármagns.
Svo var það fyrir fjórum árum að
„úthlutunarnefndin“ bjó sér til nýjar
úthlutunarreglur og miðaði við
tekjur og eignir. Skyldi enginn með
árstekjur yfir tveim milljónum fá
styrk. Nú var úr vöndu að ráða fyrir
okkur sem þurfum á þessum styrk
að halda. Stór hluti okkar er í sæmi-
lega launuðum störfum og virkur í
samfélaginu, en með töluverðan
rekstrarkostnað af bílnum. Við, sem
erum háð bílnum, getum ekki tekið
strætó eða hjólað og enn síður geng-
ið bæinn á enda þótt gott sé veður og
höfum auk þess yfirleitt nokkurn
kostnað af fötlun okkar, erum ekki í
standi til að leggja fram mikinn
aukakostnað í bílakaup. Við höfum
því flest orðið að eiga bílana of lengi,
þannig að þeir hafa verulega tapað
verðgildi sínu.
Á síðasta ári var ráðamönnum
bent á að ekki væri nein lagastoð fyr-
ir þessum reglum, þ.e. tekjutenging-
unni, og var farið að ræða lögsókn.
Brá þá svo við að ráðherra greip inn í
málin og nú voru settar nýjar reglur
án tekjutenginga og skyldi úthlutað
tvisvar á ári í stað einu sinni. En nýju
reglurnar tóku ekki gildi fyrr en um
áramótin 2002/2003.
Í vikunni sem leið fékk ég bréf um
að mér væri veittur milljón króna
styrkur, en það er sú upphæð sem
veitt hefur verið þeim sem teljast
verulega hreyfihamlaðir, t.d. verða
að notast við hjólastól. Þessi upphæð
hefur verið óbreytt um langan tíma
og ekki fylgt öðru verðlagi. Gleði mín
varð þó mikil enda farinn að vera
talsverður viðhaldskostnaður af sjö
ára gömlum bíl. Ég hef verið ánægð-
ur með minn bíl og þá þjónustu sem
ég hef þurft á að halda hjá umboðinu
svo ég fór að kanna hvort ég gæti
ekki fengið sambærilegan bíl.
En nú bregður svo við að minn
gamli bíll er orðinn það verðlítill að
ég verð að leggja til aðra milljón ef
ég á að geta skipt yfir á sambæri-
legan bíl. En er það mér að kenna?
Þar sem það er ljóst að sá dráttur
sem orðið hefur á því að mér yrði út-
hlutað umræddum styrk hefur kost-
að mig þessa upphæð og sú staða
sem upp er komin í raun handvömm
eða lagaleysa af hálfu úthlutunar-
nefndarinnar og reglugerðarsmiða
ráðherra. Því spyr ég hvort ekki
væri rétt að nefndin greiddi mismun-
inn? Eða ráðherra, sem hlýtur að
bera ábyrgð á sínum reglugerðum?
Mér þætti gaman að fá viðbrögð
ráðherra við þessum vangaveltum.
Hvort honum þyki þetta ekki rétt-
lætismál, eða verða öryrkjar alltaf að
sækja sinn rétt til þessarar ríkis-
stjórnar með hörku?
Uppbót á bílastyrk
Eftir Guðmund
Magnússon
„Væri því
ekki rétt að
nefndin
greiddi mis-
muninn?“
Höfundur er leikari.
Flugfreyjupart
í ársins:
NR. 9 - 2003
• Verð kr. 599
Besta
dags
kráin
!
27. feb-
5. mars.
Ótrúleg
auðævi
Jóhanns
Óla í S
ecuritas
:
Sjáið
herra
-
garði
nn í
Engla
ndi!
LIFIR EINS O
G
LÁVARÐUR!
FLOTTAR Í
GALAKJÓLUM!
Kílóin h
rynja
af Önnu
:
9
7
7
1
0
2
5
9
5
6
0
0
9 ÉG ER SKÍT-
HRÆDDUR!
Bagdad-farinn
Dagur Grímur:
SKILIN
VIÐ
SÚKKUL
AÐIÐ!
Dorrit lifir
hinu ljúfa lífi:
Sól og
skíði!
FYRST TIL BAH
AMAS
- SVO TIL ASPE
N MEÐ ÓLAFI!
00 S&H FORSÍ
‹A 0903 TBL-
2 24.2.2003
14:56 Pag
e 2
ALLTAF SKEMMTILEGT!
Askrift sími: 515 5552
NÝTT BLAÐ Á NÆSTA BLAÐSÖLUSTAÐ
BANDALAG ÍSLENSKRA LEIKFÉLAGA
Vantar þig gervi
fyrir grímuballið?
Hárkollur • Trúðanef • Gervinef • Tannlakk
Gerviskegg • Gerviaugnhár • Lithársprey
Leikhúsfarði • Gervitennur • Gervieyru
Gerviskallar • Gerviblóð • Gervihor
Sendum í póstkröfu!
Laugavegi 96 • www.leiklist.is • 551 6974
Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500.
www.flis.is netfang: flis@flis.is
lím og fúguefni
Sendum grænmetismat
í hádeginu
til fyrirtækja
Sími 552 2028 fyrir hádegi