Morgunblaðið - 28.02.2003, Blaðsíða 1
F Ö S T U D A G U R 2 8 . F E B R Ú A R 2 0 0 3 B L A Ð B
GEGNUM ÞAGNARMÚRINN/2 ARMBÖND ÚR FISKROÐI/3 UNG-
LINGAMENNING, VINÁTTA OG FRELSI/4 LJÓS Í KRÓKUM OG KIMUM/4
STREITUVALDAR OG VINNUSÁLFRÆÐI/6 AUÐLESIÐ EFNI/8
ÞEGAR Gyða Hrund Þor-valdsdóttir var 15 áraflutti hún í nýtt herbergi áheimili sínu í Hafnarfirði.
Henni þóttu veggirnir helst til fölir
og þar sem flinkur teiknari var í
kunningjahópnum datt henni í hug
að fá hann til þess að skreyta vegg-
inn. Veggjalist, eða graffití, er sem
kunnugt er yfirleitt unnið á veggi
utanhúss, en öllu sjaldgæfara er að
fólk láti lífga upp á híbýli sín með
þessum hætti.
Ívan Guðmundsson tók hins vegar
vel í hugmyndina og mætti snarlega
með möppuna sína. Þar valdi Gyða
sól og fjólubláan bakgrunn og Ívan
bætti við frá eigin brjósti kærulausri
geimveru. Þar með var það ákveðið
– á pappírnum – en mikið fjör skap-
aðist þegar verkið hófst fyrir alvöru.
„Þetta tók tvo daga, ef ég man
rétt. Svona málningarúði er svo
sterkur að við gátum ekki verið inni
í herberginu nema í ákveðinn tíma í
einu, svo hlupum við út til þess að ná
okkur í súrefni. Foreldrar mínir
voru ekki beint hressir, þar sem
lyktin barst um allt hús, en við
reyndum að loka á milli og lofta út
um eina gluggann sem er á herberg-
inu, en það er í niðurgröfnum kjall-
ara,“ útskýrir Gyða Hrund bros-
andi. Þá gekk gjörningurinn
sjálfur brösuglega til þess að
byrja með, eftir fyrstu tilraun
þurfti Gyða að pússa útlínur
myndarinnar af áður en hægt
var að hefjast handa að nýju.
„Við þurftum líka að setja plast
yfir allt gólfið, loftið, hurðar-
karma og annað, því fjólublái úð-
inn frussaðist í allar átt-
ir. Ég ráðlegg engum
að gera þetta í svona
litlu rými. Þetta var
sem sagt talsvert
maus, en borgaði sig al-
veg því ég var mjög ánægð með
myndina og hef verið það síðan. Hún
gerir herbergið einhvern veginn
hlýlegra.“
Veggurinn hefur nú skartað
geimverunni góðu í fimm ár en nú er
komið að því að Gyða Hrund flytji að
heiman. „Litli bróðir minn, sem er
fimmtán ára, tekur við herberginu
og ég held að hann sé bara ánægður
með þessa mynd. Sem betur fer, því
mér skilst að erfitt sé að mála yfir
hana,“ segir Gyða Hrund og á við að
ekki þýði að mála beint yfir lakk-
úðann. Pússa verði allan vegginn
upp og spartla að nýju. „En í raun-
inni finnst mér dálítið leiðinlegt að
þurfa að skilja vegginn minn eftir.
Ég er að fara í leiguíbúð og þá getur
maður víst ekki látið gera neitt
svona fyrir sjálfan sig.“
Graffití inniá gafli
Morgunblaðið/Kristinn
Gyðu Hrund Þorvaldsdóttur
finnst synd að geta ekki tek-
ið vegginn góða með sér
þegar hún flytur.
Undirskrift Ívans var Daq,
en að sögn Gyðu hefur hann
lagt brúsann á hilluna.Veggjalist í
heimahúsum 6