Morgunblaðið - 02.03.2003, Blaðsíða 20
Blindur lögfræðingur
verður skúrkabani
með ofursjón.
Hasarævintýrið
Daredevil frum-
sýnt hérlendis
um helgina.
SAMSTARF þeirra Wes
Craven leikstjóra og Kev-
ins Williamson handrits-
höfundar í hrollvekjugerð
hefur skilað drjúgum ár-
angri, ekki síst ef mælt er
í peningum í kassann, og
er þar Scream-syrpan
fremst. Þeir félagar eru
nú að hefjast handa við
nýja hrollvekju sem heitir
Cursed og mun vera nú-
tímatilbrigði við gamla varúlfastefið. Enn hefur
aðeins einn leikari verið ráðinn að verkinu, en það
er Judy Greer sem er orðin afar eftirsótt vestra.
Hún leikur á móti Nicolas Cage í Adaptation og
mun samtímis Cursed leika í Providence með
Matthew Broderick og Adam Baldwin, sem
fjallar um inngrip alríkislögreglunnar, FBI, í kvik-
myndaheiminn. Jeff Nathanson, handritshöf-
undur Catch Me If You Can, leikstýrir Provi-
dence.
Craven og Williamson
á fullu tungli
Wes Craven:
Varúlfahrollur.
EINN helsti snillingur
bandarískra gamanmynda er
án vafa Blake Edwards, sem
þó hefur átt misjafna daga.
Einn helsti smellur hans
gegnum tíðina var 10 með
Dudley Moore og Bo Derek í
aðalhlutverkum. Nú hyggst
Edwards endurgera 10 undir
nafninu 10 Again og eiga
tökur að hefjast síðsumars.
Hann endursemur sjálfur
handritið en leikhópurinn hefur enn ekki verið
tilkynntur.
Blake Edwards endurtekur sig
Blake Edwards:
Aftur tíu.
UNDIRBÚNINGUR er hafinn
fyrir tökur á nýrri ævi-
sögumynd um tónskáldið ást-
sæla Cole Porter og mun
Kevin Kline leika aðal-
hlutverkið. Myndin heitir De-
Lovely og handrit Jays Cocks,
sem mest hefur unnið fyrir
Martin Scorsese, m.a. Gangs
Of New York, snýst um það
hvernig hið samkynhneigða
tónskáld fann innblástur, ekki
síst fyrir ástarsöngva sína, hjá eiginkonunni sem
hann átti hins vegar ekki í kynferðissambandi við.
Leikstjóri verður Irwin Winkler, gamalreyndur
framleiðandi sem í seinni tíð hefur snúið sér að
leikstjórn. Velgengni söng- og dansleiksins Chic-
ago hefur nú gefið þessu verkefni byr undir báða
vængi.
Kevin Kline leikur Cole Porter
Kevin Kline:
Tónskáld í felum.
Í KVIKMYNDINNI Drunkboat
mun John Malkovich leika
mann sem kynnist sjálfum sér
upp á nýtt eftir að hann hættir
að drekka og 12 ára gamall
frændi hans leggur allt í söl-
urnar til að kaupa handa hon-
um seglskútuna sem hann
dreymir um. Bob Meyer leik-
stjóri byggir handrit sitt á eigin
leikriti.
Malkovich hættir að drekka
John Malkovich:
Út úr vímunni.
SÚ GÓÐA leikkona Susan
Sarandon sást síðast sem
gömul grúppía í gamanmynd-
inni The Banger Sisters, en
næstu tvö verkefni eru af
sorglegra tagi. Hún leikur
syrgjandi móður í dramanu
Moonlight Mile og nú hefur
hún tekið að sér hlutverk
ekkju í öðru drama, A Whale
in Montana, sem George
Hickenlooper leikstýrir, en
hann vakti síðast athygli fyrir
The Man From Elysian
Fields. Ekkjan í nýju myndinni er lögfræðingur
sem er í erfiðu sambandi við fjölskyldu sína og
umhverfi en vegna óvænts atviks tekur líf hennar
nýja stefnu.
Sarandon syrgir enn og aftur
Susan Sarandon:
Sorgleg.
HASARBLÖÐIN um Dare-devil eru uppspretta bíó-myndarinnar. Ben Affleck
og félagi hans og samstarfs-
maður úr óháða geiranum,
leikstjórinn og handritshöfund-
urinn Kevin Smith, eru báðir
miklir aðdáendur slíkra bók-
mennta, eins og þeir sýndu
framá með Chasing Amy
(1997), þar sem sá síðarnefndi
Girl, sem frumsýnd verður síð-
ar á árinu) segir að vinur sinn
sé óþekkjanlegur í Daredevil
og styðjist að þessu sinni ekki
við „Afflecktions“, eins og
hann kallar leiktakta hans.
„Hann fær ekki að vera þessi
sleipi, fituborni og sjarmerandi
Ben Affleck.“
Sá er vinur er til vamms
segir. Ben Affleck hefur sannað
að hann er hæfileikaríkur leik-
ari, m.a. í undirförlu gríni á
borð við myndir Smiths og hann
sýndi fleiri blæbrigði og dýpri,
sannari leik en áður í fyrr-
nefndri Changing Lanes. En
of oft er hann sviplítill, næst-
um eins og gína í búðarglugga
eða áhugalaus, vörpuleg fyr-
irsæta sem bíður þess að
vinnudegi ljúki svo komast
leikstýrði þeim fyrrnefnda í
hlutverki ungs myndasöguhöf-
undar. Sjálfur var Smith ein-
mitt einn af höfundum Dare-
devil-blaðanna um skeið seint
á 9. áratugnum. Smith kemur
hins vegar hvergi nærri gerð
bíómyndarinnar um Daredevil.
Leikstjórinn er Mark Steven
Johnson sem vakti athygli fyrir
gjörólíka mynd, vanmetna
perlu að nafni Simon Birch
(1998) og einnig hafði fatlaða
aðalpersónu innanborðs.
Daredevil er óvenjuleg has-
arblaðshetja að því leyti að
hann er blindur, starfar sem
lögfræðingur á daginn en er
harðsnúinn refsivöndur glæpa-
hyskis eftir að myrkrið skellur
á og nýtur þá ofursjónar. „Ein
ástæða þess að þessar tvær
hliðar á hasarhetju hafa heill-
að mig er að þær eru við-
kvæmar og ófullkomnar,“ segir
Affleck. Hann lagði töluvert á
sig fyrir túlkunina, kynnti sér
líf blindra jafnt sem kung fu
og fleiri slagsmálakúnstir.
„Fyrir mig er þetta öðruvísi
hlutverk og gott tilefni til að
komast í líkamlegt form,“ seg-
ir leikarinn. Kevin Smith sem
leikstýrt hefur Affleck í fimm
kvikmyndum (Mallrats, 1995,
Chasing Amy, 1997, Dogma,
1999, Jay and Silent Bob
Strike Back, 2001, og Jersey
Fötlun hins fullkomna
SANNARLEGA er Ben Affleck einn af
gulldrengjunum í Hollywood og liggja
þar eftir hann nokkur gullegg. Ferill
hans er þó umfram allt merkilegur
fyrir þær sakir að eftir að hafa skap-
að sér nafn í óháða kvikmyndageir-
anum tókst honum og vini hans Matt
Damon, að öðlast sérstöðu í drauma-
verksmiðjunni með því að semja Ósk-
arsverðlaunahandritið að Good Will
Hunting. Á tjaldinu á Affleck hins veg-
ar afar misjafna daga. Í fyrra t.d. var
hann einkar daufleg hasarhetja sem
Jack Ryan í The Sum Of All Fears en
framúrskarandi sem aðkrepptur uppi í
samfélagsádeilunni Changing Lanes.
Nú leikur hann fatlað „ofurmenni“ í
Daredevil, sem frumsýnd er hérlendis
um helgina.
Árni Þórarinsson
SVIPMYND
segist hafa heillast af Dare-
devil snemma á táningsaldri.
„Hann speglaði tilfinningu
mína fyrir heiminum sem óp-
erukenndum vettvangi for-
dæmdra ásta, þungbærra
ákvarðana og endlausra bar-
daga. Ég var að hugsa um for-
dæmdar ástir á þessum tíma
vegna þess að ég átti þá engar
slíkar. Eða, þá sjaldan ég naut
þeirra stóðu þær yfir í viku og
ég fékk miða sem á stóð: Ég er
hætt með þér.“ Ben Affleck er nú sagður njóta ásta Jennifer Lopez
og gangi honum allt í haginn.
Ben
Affleck
„ÉG get ekki annað en verið afar ánægður
með tökurnar,“ segir Hilmar Oddsson leik-
stjóri sem nú hefur lokið upptöku á kvik-
myndinni Kaldaljós sem hann samdi handrit
að ásamt Frey Þormóðssyni eftir samnefndri
skáldsögu Vigdísar Grímsdóttur. Tökur mynd-
arinnar fóru einkum fram á Seyðisfirði, en
einnig í Reykjavík, og stóð snjóleysi þeim dá-
lítið fyrir þrifum um tíma fyrir austan, en
snjór er dramatískur örlagavaldur fólksins í
sögunni. „Meiningin var að sýna hvernig vet-
urinn tekur smám saman völdin í náttúrunni
en svo snjóaði af þvílíku offorsi að það hálfa
hefði verið nóg,“ segir Hilmar. „Við þurftum
að gefa frí í tvo daga vegna óveðurs. Þetta
var því annaðhvort í ökkla eða eyra, en að
lokum fengum við það sem við þurftum.“
Sigvaldi J. Kárason er nú að vinna að klipp-
ingu Kaldaljóss og Hjálmar H. Ragnarsson að
tónlistinni en frumsýning er ráðgerð í haust.
Kaldaljós gerist á tveimur tímum, á æsku-
komið sér þægilega á óvart hversu tökurnar í
nútímanum hafi komið vel út, því gamli tíminn
hafi verið sér nákominn mun lengur. Einnig
hafi verið sérlega skemmtilegt að leikstýra
Ingvari E. Sigurðssyni í hlutverki Gríms full-
orðins og síðan syni Ingvars, Ásláki Ingv-
arssyni, sem Grími ungum og dóttur hans,
Snæfríði Ingvarsdóttur, í hlutverki Gottínu,
systur Gríms.
Í öðrum aðalhlutverkum eru Kristbjörg
Kjeld sem leikur hina dularfullu Álfrúnu, Þórey
Sigþórsdóttir og Valdimar Örn Flygering leika
foreldra Gríms, Sara Dögg Ásgeirsdóttir,
Helga Braga Jónsdóttir, og Ruth Ólafsdóttir
leikur þýskan kennara Gríms og síðar ást-
konu, en Ruth, sem starfar og býr í Los Ang-
eles, lék einmitt eitt aðalhlutverkanna í mynd
Hilmars Tár úr steini. Sigurður Sverrir Páls-
son stýrði kvikmyndatökunni, Sigurjón Jó-
hannsson sá um leikmynd og Helga I. Stef-
ánsdóttir um búninga.
dögum aðalpersónunnar Gríms í afskekktu
þorpi, og þegar hann er orðinn fullorðinn mað-
ur í Reykjavík en glímir enn við erfiða
bernskureynslu. Hilmar segir að það hafi
Kaldaljós kviknar á tjaldinu í haust
Grímur ungur: Áslákur Ingvarsson.
Ástir í skugga erfiðrar æskureynslu: Ingvar E.
Sigurðsson og Ruth Ólafsdóttir.
Kennari gerist ástkona: Ruth Ólafsdóttir og Ingvar E. Sigurðsson.