Morgunblaðið - 09.03.2003, Blaðsíða 1
Sölustarf
Sölumaður óskast hjá innflutningsfyrirtæki.
Reynsla af sölu á matvöru og eða sælgæti æsk-
ileg, þó ekki nauðsynleg. Þarf að geta hafið
störf fljótlega. Umsóknir sendast til auglýsingd.
Mbl. merktar: „GD-03“ fyrir 17.mars 2003.
Sölustörf/
umboðsmenn
Öflugt innflutningsfyrirtæki á sviði hreinlætisv-
ara til heimila og fyrirtækja, auk umhverfis-
vænna hreinsiefna fyrir prentiðnaðinn, vill ráða
söluaðila sem fyrst. Jákvæðni og vilji til að ná
árangri nauðsynlegir eiginleikar.
Jafnframt leitum við að umboðsaðilum víðs-
vegar á landinu. Mjög góðir tekjumöguleikar
fyrir rétta aðila - sveigjanlegur vinnutími.
Umsóknir, merktar: „Gott tækifæri“, sendist
til augldeildar Mbl. fyrir 12. mars nk.
Störf í Korpuskóla
2003—2004
Kennarar til að kenna 8.—10. bekk, alls
33 nemendur. Við leitum að 2—3 kennurum
sem vilja koma og vinna saman við kennslu
þessa aldurshóps. Þetta er gott og áhugavert
tækifæri fyrir kennara eða kennarahóp sem
hafa áhuga á að vinna saman og efla þróunar-
og nýbreytnistarf í unglingadeild.
Umsjónarkennara í 5. bekk
Tónmenntakennara
Sérkennara
Námsráðgjafa
Korpuskóli er heildstæður grunnskóli fyrir
nemendur í 1.—10. bekk. Nemendur verða um
200 skólaárið 2003—2004. Skólinn er í bráða-
birgðahúsnæði á Korpúlfstöðum.
Einkunnarorð skólans eru: Sjálfstæði — ábyrgð
— samvinna.
Korpuskóli er móðurskóli í þróun kennsluhátta.
Stefna skólans er að leggja áherslu á að þróa
einstaklingsmiðað nám, sjálfstæði í vinnu-
brögðum, samvinnu og samkennd nemenda.
Hugmyndafræði sem lögð er til grundvallar
skólastarfinu er að kenna til skilnings og
greindarkenningar Gardners. Lögð er áhersla
á aukna tölvunotkun og upplýsingaleit við
vinnu verkefna, fjölbreyttar kennsluaðferðir
og þróunar- og nýbreytnistarf. Lögð er áhersla
á að kennarar vinni saman og beri sameigin-
lega ábyrgð á kennslu mismunandi blandaðra
hópa.
Reykjavíkurborg leggur áherslu á þróun skóla
í átt til einstaklingsmiðaðs náms, samvinnu
nemenda og skóla án aðgreiningar. Auk þess
er lögð áhersla á að styrkja tengsl skóla við
grenndarsamfélagið.
Umsóknarfrestur um stöðurnar er til 30. mars.
Frekari upplýsingar gefur Svanhildur María
Ólafsdóttir, skólastjóri Korpuskóla, sími
525 0600, tölvupóstfang svanh@ismennt.is .
Nánari upplýsingar um laus störf og grunn-
skóla Reykjavíkur er að finna á netinu undir
www.grunnskolar.is .
Starfsfólk óskast
Saga Heilsa og Spa er vaxandi fyrirtæki í heilsuvernd og heilsutengd-
ri ferðaþjónustu. Það býður upp á læknisfræðilega ráðgjöf, margs-
konar þjálfun og fjölbreyttar meðferðir sem stuðla að aukinni vellíð-
an. Hjá okkur starfar fólk sem býr yfir mikilli reynslu og þekkingu
og nú vantar okkur fleiri starfsmenn í nýja heilsumiðstöð að Nýbýla-
vegi 24, Kópavogi. Við leggjum áherslu á góða samvinnu starfs-
manna og viðskiptavinir okkar eiga að geta treyst á fyrsta flokks
þjónustu á öllum sviðum.
Starfsmaður í móttöku
Þarf að hafa reynslu af móttöku og sölustörf-
um. Góð framkoma er skilyrði sem og tungu-
málakunnátta, sérstaklega enska og norður-
landamál. Skilyrði er reynsla í sölu og móttöku
eða eða sambærlegu starfi innan ferða- eða
heilbrigðisþjónustu.
Sjúkraþjálfarar
Óskum eftir samstarfi við sjúkraþjálfara (einn
eða fleiri) sem geta rekið sjálfstæða
sjúkraþjálfunarþjónustu innan heilsumiðstöðv-
arinnar sem þó er hluti af þverfaglegri sam-
vinnu lækna, hjúkurnarfræðinga og annars
fagfólks á staðnum.
Húkrunarfræðingar
Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu í heilsu-
vernd fullorðinna, starfsmanna fyrirtækja og eða
lífstílsráðgjöf. Nauðsynlegt er að viðkomandi
geti starfað í þverfaglegu teymi fagfólks sem
sér um heilsuvernd og þjálfun og sé tilbúinn til
að starfa innan og utan heilsumiðstöðvarinnar.
SPA - fræðingar
Við leitum að þeim sem hafa lært eða fengið
sérstaka þjálfun í SPA meðferðum, sérstaklega
vatnsnuddi, heilsuböðum, víxlböðum og leir-
meðferð.
Nuddfræðingar/Sjúkranuddarar
Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu af starfi
við heilsumiðstöðvar og/eða heilsutengda
ferðaþjónustu.
Íþróttafræðingar/Íþróttakennarar
Leitað er eftir íþróttafræðingum sem hafa
reynslu í þjálfun leikfimishópa, í tækjasal og
sundlaug. Kostur er að viðkomandi hafi
reynslu af stjórn gönguhópa eða kraftgöngu.
Aðrir sérfræðingar
Leitað er eftir þeim sem hafa sérþekkingu í
slökun og þjálfun t.d. í Yoga.
Upplýsingar veita; Kristmann Hjálmarsson rek-
strarstjóri, Anna Dagný Smith hjúkrunarfræð-
ingur, Eva Ásrún Albertsdóttir sölu- og markað-
stjóri, Guðmundur Björnsson læknir.
„Því að hver dagur er dýrmætur!“
Saga Heilsa & Spa heilsumiðstöð,
Nýbýlavegur 24, 200 Kópavogur,
sími 5112111 — fax 5811171
mottaka@sagaheilsa.is — www.sagaheilsa.is .
Heilsustofnun NLFÍ
Hveragerði
Sjúkraþjálfari
óskast til starfa á Heilsustofnun NLFÍ í
Hveragerði frá 15. apríl nk.
Um er að ræða fullt starf en möguleiki er á
hlutastarfi sé þess óskað. Nánari upplýsingar
gefur Guðrún Guðmundsdóttir yfirsjúkraþjálf-
ari í síma 483 0300 eða 483 0333,
netfang: runa@hnlfi.is .
Sunnudagur
9.mars 2003
atvinnatilboðútboðfundirtilsölutilleigutilkynningarkennslahúsnæðiþjónustauppboð
mbl.is/atvinna Gestir í vikunni8.123 Innlit 15.604 Flettingar 65.566 Heimild: Samræmd vefmæling