Morgunblaðið - 09.03.2003, Blaðsíða 2
2 C SUNNUDAGUR 9. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
DIGRANESSKÓLI
kennarar
•Lausar eru kennarastöður við Digranes-
skóla næsta skólaár 2003-2004. Meðal
kennslugreina eru náttúrufræði á elsta stigi
svo og kennsla á elsta, mið og yngsta stigi.
Laun skv. kjarasamningum KÍ og Launanefndar
sveitarfélaga.
Hvetjum karla jafnt sem konur til að sækja um
stöðurnar.
Upplýsingar gefur skólastjóri Helgi á skrifstofu-
tíma. Sími 554 0290.
Starfsmannastjóri
Einnig má leggja inn umsókn á www.kopavogur.is
KÓPAVOGSBÆR
www.kopavogur.is
!
"
# $ % &
"
' ! (") !*
+
,
-&./0+12 34 5 678 49: ;<;;
+2=8 4>< ><>9
!!!"
# $ %
&
'
!
6
?"
()
*+
Mosfellsbær
Skrifstofa Mosfellsbæjar
Starf launafulltrúa
Starfsmaður óskast sem fyrst í 50% starf
launafulltrúa á fjármála- og stjórnsýslu-
sviði Mosfellsbæjar. Gert er ráð fyrir
auknu starfshlutfalli á sumrin, þar sem
aukið álag er í launadeild á sumrin
vegna sumarstarfsmanna.
Launafulltrúi annast launavinnslu og
framkvæmd kjarasamninga. Hann hefur
eftirlit með orlofs- og vinnutímamálum
starfsmanna, vinnur að undirbúningi
launaáætlana og annast úrvinnslu upp-
lýsinga úr launabókhaldi.
Nauðsynlegt er að starfsmaður sé ná-
kvæmur og samviskusamur og hafi góða
samskiptahæfileika. Stúdentspróf eða
sambærileg menntun og haldbær þekk-
ing á exel forritinu er nauðsynleg. Launa-
vinnsla bæjarins er unnin í H-launaforrit-
inu og er reynsla af því forriti æskileg en
ekki skilyrði.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi
Launanefndar sveitarfélaga og Starfs-
mannafélags Mosfellsbæjar.
Skriflegar upplýsingar, er greini frá
menntun, reynslu og fyrri störfum, skulu
berast skrifstofu Mosfellsbæjar, c/o
deildarstjóri launadeildar, Þverholti 2,
270 Mosfellsbæ, fyrir 18. mars nk.
Einnig er hægt að sækja um starfið á
heimasíðu Mosfellsbæjar www.mos.is. /
umsóknir / fjármála- og stjórnsýslusvið /
umsókn um starf hjá Mosfellsbæ.
Nánari upplýsingar veitir deildarstjóri
launadeildar í síma 525 6700 frá kl. 10-12
og 13-14 eða í gegnum netfangið
gth@mos.is
Mosfellsbæ, 5. mars 2003.
Bæjarritarinn í Mosfellsbæ.
FRÁ SNÆLANDSSKÓLA
• Deildarstjóra og smíðakennara vantar
vegna orlofs starfsmanna næsta skólaár,
þ.e. 2003 - 2004.
Laun skv. kjarasamningi KÍ og Launanefndar
sveitarfélaga.
Hvetjum konur jafnt sem karla til að sækja um
stöðurnar.
Upplýsingar gefa skólastjóri og aðstoðarskóla-
stjóri í símum 554 4911 og 863 4911.
Umsóknarfrestur er til 1. apríl n.k.
Starfsmannastjóri
Einnig má leggja inn umsókn á www.kopavogur.is
KÓPAVOGSBÆR
www.kopavogur.is
Hjálpaðu í baráttunni gegn eyðni í Afríku
Samfélagsstarf og fræðsluherferðir, skipulagsvinna meðal
íbúa. 4-6 mán. þjálfun í Bandaríkjunum eða í Karabíska hafinu.
6-12 mán. vinna í Afríku. Skólagjöld en skólastyrkir í boði.
kimmo@humana.org www.humanapeopletopeople.org
www.drh-movement.org
Hringið í síma 001 413 441 5126 (Bandaríkin)
Kynningarfundur í Reykjavík 8. mars.
Góð aðstaða
Vantar þig aðstöðu fyrir þína starfsemi tengt
snyrtistofu? Þá hef ég herbergi til leigu. Einnig
vantar mig nema. Uppl. í síma 899 2232.