Morgunblaðið - 10.03.2003, Blaðsíða 28
DAGBÓK
28 MÁNUDAGUR 10. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Dettifoss, Örfirisey
og Richmond Park
koma í dag. Freri og
Brúarfoss fara í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Brúarfoss kemur frá
Reykjavík í dag.
Mannamót
Aflagrandi 40. Vinnu-
stofa og leikfimi kl. 9,
boccia kl. 10, vinnu-
stofa kl. 13, söng-
stund á morgun kl.
14.
Árskógar 4. Kl. 9–12
opin handavinnustofa,
kl. 11 boccia, kl.13–
16.30 opin smíðastofa/
útskurður, opin
handavinnustofa, kl.
13.30 félagsvist, kl. 16
myndlist.
Bólstaðarhlíð 43. Kl.
9–16 handavinna, kl.
9–12 bútasaumur, kl.
9–17 fótaaðgerð, kl.
10–11 samverustund,
kl. 13.30–14.30 söngur
við píanóið, kl. 13–16
bútasaumur.
Félagsstarf eldri
borgara í Mosfellsbæ,
Kjalarnesi og Kjós.
Félagsstarfið opið
mánu- og fimmtu-
daga. Mánudagur kl.
16 leikfimi.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist
í Gullsmára 13 kl.
20.30. Fótaaðgerð frá
kl. 10. Skrifstofan
Gullsmára 9 er opin
kl. 16.30–18, s.
554 1226.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 bað, kl. 9
fótaaðgerð, og mynd-
list, kl. 10–12 versl-
unin opin, kl. 13 fönd-
ur og handavinna, kl.
13.30 enska, fram-
haldsflokkur.
Félagsstarfið Dal-
braut 18–20. Kl. 10,
leikfimi, kl. 13 brids.
Félagsstarfið Dal-
braut 27. Kl. 9–16 op-
in handavinnustofan,
kl. 9–12 myndlist, kl.
13–16 körfugerð, kl.
11–11.30 leikfimi, kl.
13–16 spilað, kl. 10–
13 verslunin opin.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Bað kl. 9–
12, handavinna kl. 9–
16.30, félagsvist kl.
14, kl. 9–14 hár-
greiðsla.
Félagsstarf aldraðra
Garðabæ. Kl. 9.30
stólaleikfimi, kl. 10.15
og 11.10 leikfimi, kl.
12.15 leir-skúlptúr, kl.
13 postulínsmálun.
Félag eldri borgara
Garðabæ. Æfing hjá
Garðakórnum, kór
eldri borgara Garða-
bæ, alla mánudaga kl.
17.30 í safnaðar-
heimilinu Kirkjuhvoli.
Allt söngfólk er hvatt
til að koma og taka
þátt í starfi með
kórnum.
Stjórnandi kórsins er
Kristín Pjetursdóttir.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Mánudagur:
Brids kl. 13. S.
588 2111.
Gerðuberg, fé-
lagsstarf. Fjölbreytt
vetrardagskrá í boði
alla virka daga kl. 9–
16.30. S. 575 7720.
Gjábakki, Fannborg
8. Handavinnustofan
opin, kl. 9.30 gler- og
postulínsmálun, kl.
10.50, leikfimi, kl. 13
skák og lomber, kl. 20
skapandi skrif.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9 vefnaður, kl.
9.05 leikfimi, kl. 9.55
stólaleikfimi, kl. 10
ganga, kl. 13 brids,
kl. 20.30 félagsvist.
Hraunbær 105. Kl. 9
perlusaumur og fóta-
aðgerð, kl. 10 bæna-
stund, kl. 13.30 sögu-
stund og spjall, kl. 13
postulínsmálun og
hárgreiðsla.
Hvassaleiti 56–58. Kl.
9 föndur, kl. 9 og kl.
10 jóga, kl. 13 spilað,
kl. 14.15 spænska.
Fótaaðgerðir.
Norðurbrún 1. Kl.
10–11 ganga, kl. 9–15
fótaaðgerð, kl. 9–12
myndlist, kl. 13–16.45
opin handavinnustofa.
Vesturgata 7. Kl. 9–
16 fótaaðgerð og hár-
greiðsla, kl. 9.15–12
postulínsmálun. kl.
9.15–15.30 handa-
vinna, kl. 9.30–10.30
boccia, kl.11–12 leik-
fimi, kl. 12.15–13.15
danskennsla, kl. 13–
16 kóræfing.
Vitatorg. Kl. 8.45
smíði, kl. 9 hár-
greiðsla, kl. 9.30 bók-
band, bútasaumur og
morgunstund, kl. 10
fótaaðgerð og boccia,
kl. 13 handmennt,
glerbræðsla og spilað.
Gullsmárabrids.
Brids að Gullsmára.
Skráning kl. 12.45,
spil hefst kl. 13.
Félag eldri borgara
Suðurnesjum. Bingó í
Selinu Vallarbraut 4,
Njarðvík öll mánu-
dagkvöld kl. 20.
Sjálfsbjörg, félag fatl-
aðra á höfuðborg-
arsvæðinu, félags-
heimilið Hátúni 12.
Kl. 19 brids.
Karlakór Reykjavík-
ur aðalfundurinn sem
frestað var 28. janúar
sl. verður haldinn í
Ými mánudaginn 17.
mars, kl 20. Dagskrá:
Venjuleg aðalfund-
arstörf.
Líknarsjóður Dóm-
kirkjunnar, minning-
arspjöld seld hjá
kirkjuverði.
Í dag er mánudagur 10. mars,
69. dagur ársins 2003. Orð dags-
ins: Gjörið því iðrun og snúið yð-
ur, að syndir yðar verði afmáðar.
(Post. 3, 19.)
Sagt var frá því ábbc.co.uk á fimmtu-
daginn, að fjármálaráð-
herra Kína hefði lagt
fram fjárlög kínverska
ríkisins, þar sem met
væri sett í fjárlagahalla
þriðja árið í röð. Sam-
kvæmt þeim verða út-
gjöld hins opinbera í
Kína 38 milljörðum doll-
ara, eða sem nemur tæp-
lega 3.000 milljörðum ís-
lenskra króna, hærri en
tekjur.
Ráðherrann, sem heitirXiang Huaicheng,
segir að þrátt fyrir vax-
andi halla á rekstri rík-
isins sé aukinna fjár-
veitinga þörf. Fjár-
mununum verður varið í
sveitum landsins, til end-
urskipulagningar í land-
búnaði og almannatrygg-
ingum.
Í ávarpi sínu til flokks-félaga á miðvikudag-
inn sagði hann að „bæði
fjárlagahallinn og heild-
arskuldir á árinu 2003
verða innan þolmarka“.
Ríkisstjórn Kína hefurlagt áherslu á það
síðan á síðasta áratug að
auka ríkisútgjöld til að
auka hagvöxt. Síðustu
fimm ár hafa útgjöld til
velferðarmála nífaldast
og útgjöld til landbún-
aðar og menntamála tvö-
faldast, að sögn ráð-
herrans.
Kínverska ríkisstjórninhefur ekki viljað
hækka skatta til að fjár-
magna þessi auknu út-
gjöld. Því hafa þau að
mestu leyti verið fjár-
mögnuð með lánsfé. Fjár-
málaráðherrann hefur
sætt gagnrýni vegna
þessa, en hefur nú lofað
að „bæta“ þar úr. Hann
sagði líka að lögð yrði
áhersla á, að koma í veg
fyrir skattsvik í Alþýðu-
lýðveldinu.
Því má kannski segja, íhálfkæringi, að þrátt
fyrir fjarlægðina sé
ástandið í Kína ekki svo
ólíkt okkar. Auðvitað er
stjórn ríkisfjármála mun
styrkari hér, en kast-
ljósið beinist í auknum
mæli að þeim sem kunna
að fara á svig við lög og
reglur, meðal annars
með því að skjóta undan
skatti.
Þeir sem vonast til þessað skattar verði
hækkaðir í Kína eru efins
um að svo fari. Þeir segja
að Xiang hafi margoft
gefið loforð í þessa veru,
en þrátt fyrir það aukist
fjárlagahallinn ár frá ári.
Því má búast við því aðþessir óþreyjufullu
fylgjendur aukinnar
skattlagningar í Kína
þurfi að bíða þolinmóðir í
einhvern tíma. Að öllum
líkindum verður fjár-
lagahallinn viðvarandi
áfram, því stjórnvöld
virðast staðráðin í að
auka útgjöld í sveitum
landsins.
STAKSTEINAR
Kínverjar kynda undir
fjárlagahallann
Launalaus sorptæknir
segir upp störfum
NÚ ER mér nóg boðið og
segi hér með upp starfi
mínu, sem ég reyndar sótti
aldrei um, sem sorptæknir
við húseign mína og konu
minnar við Stigahlíð.
Þannig er að í nágrenni
við hús okkar er strætóskýli
fyrir farþega á leið í Kópa-
vog, Garðabæ, Hafnarfjörð
o.s.frv. og eðlilega neyta
þeir sem bíða eftir strætó
alls konar matvæla sem eru
með umbúðum sem ofan-
greindir farþegar þurfa að
losa sig við, en við áður-
nefnt strætóskýli er ekkert
sorpílát/ruslakassi; hefur
kannski ekki passað við
arkitektúr þessa glæsilega
glerhýsis. Því henda flestir
þessum umbúðum á götuna
og þær lenda síðan inni í
garði hjá okkur hjónunum.
Reyndar héldum við
hjónin að við borguðum
sorphirðugjald í fasteigna-
gjöldum okkar en kannski
höfum við ekki réttan skiln-
ing á þessu.
Við höfum bæði reynt að
hafa samband símleiðis við
hinar ýmsu deildir Reykja-
víkurborgar, þ.e.a.s óskað
eftir ruslakassa við strætó-
skýlið og okkur alltaf verið
lofað því en ekkert gerist.
Mig grunar reyndar að
þessu verði svarað á þann
veg að við höfum ekki talað
við rétta aðila, en þannig er
það ekki því okkur hefur
alltaf verið vinsamlega vís-
að á réttan aðila innan kerf-
isins.
Nú, úr því ég sé mig
tilneyddan í þessi skrif má
einnig nefna gleymd og
grafin loforð um styrk fyrir
hljóðeinangrandi gler fyrir
byggingar við götuna okk-
ar, verðum víst að bíða eftir
því þangað til búið er að
skipuleggja gatnamót
Kringlumýrarbrautar og
Miklubrautar.
Þess má geta að lokum
að nær allir íbúar í mínu
hverfi við Kringlumýrar-
braut skrifuðu undir lista
þar sem óskað var eftir því
við borgaryfirvöld að at-
hugað verði, að koma fyrir
svokallaðri hljóðmön aust-
an megin við húseignir
okkar; já, meira segja
tvisvar með nokkurra ára
millibili.
Við hjónin eigum reynd-
ar fallegt bréf þar sem seg-
ir að ekkert verði gert á
næstunni vegna hugsan-
legra/mögulegra fram-
kvæmda við ofangreind
gatnamót.
Íbúi við Stigahlíð.
Dýrahald
Gerpla er týnd
GERPLA hvarf frá Grett-
isgötu 75 aðfaranótt 16.
febrúar. Hún er til heimilis
á Skólavörðustíg og gæti
því hafa haldið á þær slóðir.
Hún er tæplega ársgömul,
smávaxin og grábröndótt
að lit. Hún er óvön að vera
úti og gæti því hafa stungið
sér inn í íbúð, geymslu eða
skúr. Íbúar í nágrenninu
eru vinsamlega beðnir um
að kíkja eftir henni því hún
getur verið lokuð inni. Þeir
sem hafa séð til hennar eða
hafa hana hjá sér eru vin-
samlega beðnir að hringja í
síma 896 0086 eða í Katt-
holt.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
ÉG skrifa frá Danmörku,
er í heimsókn þar en er
flutt til Íslands (eftir 21 ár
í Danmörku) ásamt eig-
inmanni mínum, Snorra
Gunnarssyni. Ég bjó fyrst
á Sæbólsbraut 21 í Kópa-
vogi, en flutti sl. haust í
Blásali 22, Kópavogi, sem
er blokk með um 40 íbúð-
um.
Við höfum verið í vand-
ræðum með póst frá op-
inberum stofnunum eins
og sýslumanni og bönkum.
Þeir geta ekki sett íbúðar-
númer á póstinn til okkar
vegna þess að það er þjóð-
skrá sem stýrir heim-
ilisfangi alls pósts sem
sendur er út af opinberum
eða hálfopinberum stofn-
unum. Ég hringdi í Hag-
stofu Íslands og þar var
mér sagt að þar væri aldr-
ei skrifað íbúðarnúmer,
„það væri póstþjónustan
sem ætti að sjá um það“.
Getur það verið að hver
vísi frá sér, án þess að
nokkuð sé gert í málinu?
Þetta er mál sem mér
finnst að þurfi athugunar
við, það getur ekki verið
að það sé svo erfitt að
setja íbúðarnúmer við
heimilisföng í þjóðskrá.
Get ég fengið skýringu á
þessu öllu?
Virðingarfyllst,
Ingibjörg Krist-
insdóttir,
Blásölum 22, íb. 1104,
Kópavogi.
Vandræði með póstinn
LÁRÉTT
1 skyggnist til veðurs, 4
farmur, 7 lagvopns, 8 loð-
skinns, 9 tónn, 11 skelin,
13 friða, 14 gubbaðir, 15
durgur, 17 dimmviðrið,
20 bölvættur, 22 sund-
fuglinn, 23 málms, 24
fiskar, 25 ræktuð lönd.
LÓÐRÉTT
1 fen, 2 handa, 3 glufa, 4
sjávar, 5 kjánar, 6 púði,
10 fuglar, 12 þegar,
13 leyfi, 15 rifja, 16 um-
ræða, 18 molar, 19 þefar,
20 aular, 21 blóðsuga.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 spjátrung, 8 laxar, 9 fruma, 10 afl, 11 tórum,
13 attir, 15 basla, 18 smári, 21 fót, 22 gjall, 23 árann, 24
slóðaskap.
Lórétt: 2 pexar, 3 áfram, 4 ræfla, 5 naumt, 6 flot, 7 saur,
12 uml, 14 tóm, 15 bága, 16 skafl, 17 aflið, 18 stáss, 19
ábata, 20 inna.
Krossgáta
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI átti afmæli á laugar-daginn. Þetta var ekki stór-
afmæli, Víkverji nennti ekkert að
halda upp á það. Óvæntar afmælis-
kveðjur eru þó alltaf skemmtilegar;
til að mynda fékk Víkverji bréf í síð-
ustu viku frá Sævari Karli Ólasyni
þar sem hann óskaði Víkverja til
hamingju með afmælið. Með fylgdi
skemmtileg teikning barns – Vík-
verji gat ekki betur séð en að hún
hefði verið teiknuð sérstaklega fyrir
hann!
Víkverji þekkir Sævar Karl ekki
neitt en hefur einu sinni keypt flík í
fataverslun hans í Bankastræti.
Sævar Karl má eiga það að hann fer
aðrar leiðir í kynningu á verslun
sinni og vörum; hann reynir að hafa
samskiptin á persónulegri nótum en
almennt gerist, sendir reglulega frá
sér skemmtilegan póst og skapar
þannig jákvæða mynd af fyrirtæki
sínu. Víkverji kann vel að meta þetta
og myndi gjarnan vilja geta beint
meiri viðskiptum til Sævars Karls –
því miður leyfa fjárráðin það þó
ekki!
x x x
VÍKVERJI fór til útlanda um dag-inn. Þetta telst ekki til tíðinda en
er rifjað hér upp vegna þess að þeg-
ar lent var í Kaupmannahöfn brut-
ust út mikil fagnaðarlæti meðal far-
þeganna. Víkverji hefur áður orðið
var við að farþegar eiga það til að
byrja að klappa um leið og flugvélin
hefur snert jörðina. Eftir að hafa
sótt námskeið hjá fyrirtækinu
Atlanta fyrir langa löngu veit Vík-
verji hins vegar að fullsnemmt er að
fagna, þegar hjólin snerta jörðina.
Ýmislegt getur farið úrskeiðis á
þeim augnablikum, sem fylgja í kjöl-
farið.
Hitt vita væntanlega flestir, að
mest hætta steðjar að í flugtaki og í
lendingu. Ekki er óeðlilegt að menn
fagni því, að lendingin hafi tekist
klakklaust. Víkverji leggur hins veg-
ar til að menn byrji ekki að klappa
fyrr en endanlega er öruggt að lend-
ingin hefur tekist.
x x x
TALANDI um ferðalög til útlanda.Víkverji er alltaf jafn undrandi á
því, er hann mætir í flugstöð Leifs
Eiríkssonar, að þar skuli ekki vera
hægt að fá almennilegt kaffi.
Evrópuflug er jafnan eldsnemma
á morgnana og Víkverji sleppir
stundum morgunkaffinu, áður en
haldið er í flug, til að geta sofið
nokkrum mínútum lengur. Hefur
hann þá hugsað með sér, að hægt
verði að fá sér kaffibolla úti í flug-
stöð. Alltaf tekst honum að gleyma
því að í flugstöðinni er aðeins selt
versta skólp; hvers vegna er ekki bú-
ið til almennilegt kaffi í Leifsstöð?
Það er hægt að fá ýmislegt í Leifs-
stöð – en ekki almennilegt kaffi!