Morgunblaðið - 10.03.2003, Blaðsíða 36
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MÁNUDAGUR 10. MARS 2003 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
Smáralind - Glæsibæ
FÆÐINGARORLOFSSJÓÐI ber
að greiða foreldrum orlofslaun vegna
þess tíma sem þeir eru í fæðingaror-
lofi og njóta greiðslna úr sjóðnum.
Þetta kemur fram í svari Páls Péturs-
sonar félagsmálaráðherra við fyrir-
spurn Jóhönnu Sigurðardóttur al-
þingismanns um framkvæmd laga um
fæðingar- og foreldraorlof.
Jóhanna segir á heimasíðu sinni að
samkvæmt úrskurði ráðherra sé lík-
legt að foreldrar sem rétt höfðu til
fæðingarorlofs frá árinu 2000 til dags-
ins í dag eigi kröfu á hendur sjóðnum
sem nemur 1.200 milljónum króna.
Ráðherra vildi í gærkvöldi ekki full-
yrða um hversu miklar fjárhæðir
væri að ræða né hvort greiðslurnar
yrðu afturvirkar.
Á heimasíðu Jóhönnu er á það bent
að einungis opinberir starfsmenn hafi
fengið umræddar orlofsgreiðslur úr
fjölskyldu- og styrktarsjóði sem
stofnaður var um leið og fæðingaror-
lofslögin tóku gildi.
Í svari félagsmálaráðherra við fyr-
irspurn Jóhönnu segir að í 14. gr. laga
um fæðingar- og foreldraorlof sé að
finna svohljóðandi ákvæði: „Fæðing-
arorlof reiknast til starfstíma við mat
á starfstengdum réttindum, svo sem
rétti til orlofstöku og lengingar orlofs
samkvæmt kjarasamningum, starfs-
aldurshækkana, veikindaréttar, upp-
sagnarfrests og réttar til atvinnuleys-
isbóta.“ Segir í svari ráðherra að ljóst
sé af orðalagi ákvæðisins að ekki sé
um tæmandi upptalningu að ræða og
það sé tekið fram í athugasemdum
með frumvarpinu.
Í svari félagsmálaráðherra segir
ennfremur að allt frá árinu 1943 hafi
lög um orlof gert ráð fyrir að vinnu-
veitandi, sem launamaður ávann sér
rétt til orlofstökunnar hjá, greiði or-
lofslaunin. Hins vegar verði að líta til
þess að Fæðingarorlofssjóður bæti
foreldrum upp launamissi í fæðingar-
orlofi með greiðslum sem nemi 80% af
launum þeirra. Ennfremur verði að
horfa til þess að sjóðurinn taki á sig
greiðslu mótframlags vinnuveitanda
til lífeyrissjóða meðan á fæðingaror-
lofi stendur. Þegar litið sé til þessara
atriða verði að telja að síðari atriðin
vegi þyngra og líta verði á Fæðing-
arorlofssjóðinn sem ígildi launagreið-
anda í tilvikum þar sem um lögbundin
starfstengd réttindi sé að ræða.
Réttindi haldist óbreytt
Um fyrirkomulag orlofsgreiðslna
segir í svari félagsmálaráðherra að
það verði jafnframt að teljast eðlilegt
að Fæðingarorlofssjóðurinn nýti sér
heimild 8. gr. laga um orlof til að
greiða orlofsgreiðslur með síðustu
greiðslu í fæðingarorlofi.
Páll Pétursson sagði í samtali við
Morgunblaðið að gengið hafi verið frá
því við samningu laganna að fólk
myndi ekki tapa réttindum þótt það
færi í fæðingarorlof, allur ávinningur
réttinda yrði óbreyttur og héldi áfram
á meðan fólk væri í fæðingarorlofi.
Fæðingarorlofssjóði
ber að greiða orlof
Jóhanna Sigurðardóttir segir foreldra eiga kröfur á hend-
ur Fæðingarorlofssjóði sem nemi hundruðum milljóna
SKÁKKONUR frá Noregi, Frakklandi og Íslandi og piltar úr Garðabæ og
Grindavík brugðu á leik í gær og settust að tafli í Bláa lóninu. Aðstæður
voru óvenjulegar; áhorfendur hvöttu sína menn óspart, sem ekki tíðkast
á skákmótum, og öldugangurinn gerði mönnum erfitt fyrir. Svo fóru leik-
ar að piltarnir sigruðu í þessu hraðskákmóti. Norðmenn voru hins vegar
sigursælir í tveimur skákmótum, sem einnig lauk í gærdag.
Morgunblaðið/Jim Smart
Gusugangur við skákborðið
GUÐJÓN A. Kristjánsson, nýkjör-
inn formaður Frjálslynda flokksins,
sagðist í samtali í gær sáttur við ný-
afstaðið landsþing flokksins og
bjartsýnn á að flokkurinn næði góð-
um árangri í kosningunum í vor. „Við
höfum sett okkur það að markmiði
að tvöfalda fylgi flokksins, þ.e. koma
því yfir átta prósent. Ég tel að það sé
verðugt markmið að stefna að.“
Spurður hvort frjálslyndir vildu
mynda ríkisstjórn með stjórnarand-
stöðuflokkunum sagði hann: „Hvorki
Sjálfstæðisflokkurinn né Framsókn-
arflokkurinn hafa lýst því yfir að þeir
vilji breytingar á fiskveiðistjórnun-
arkerfinu. Ef þeir hins vegar eru til-
búnir í þá vinnu munum við ekki úti-
loka samstarf. En eins og málið lítur
út núna teljum við að það sé einboðið
að stjórnarandstöðuflokkarnir verði
að fella ríkisstjórnina. Annars verða
engar breytingar í því sem við köll-
um mesta byggðamál Íslands.“
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Guðjón A. Kristjánsson, nýkjörinn formaður Frjálslynda flokksins, og Mar-
grét Sverrisdóttir, sem kjörin var ritari flokksins, takast í hendur.
Markmiðið að tvöfalda
fylgi frjálslyndra
Sannfæring okkar/10
BANASLYS varð á Reykjanesbraut þegar
fólksbifreið og stór leigubifreið skullu sam-
an skammt vestan Vogaafleggjara um
klukkan 20 í gærkvöldi. Höfnuðu bílarnir
utan vegar hvor sínum megin brautar en
slæmt skyggni og mikil hálka var á þessum
slóðum er slysið varð.
Ökumaður í leigubifreiðinni, karlmaður,
var einn í bifreiðinni en ökumaður fólksbíls-
ins, 19 ára karlmaður, og farþegi, 13 ára
drengur, voru í fólksbílnum á leið til Kefla-
víkur.
Sjúkabifreiðar, lögreglan og tækjabifreið
slökkviliðisins fóru á vettvang. Beita varð
klippum til að ná fólkinu út úr bílunum.
Mennirnir voru allir fluttir undir lækn-
ishendur, tveir sem taldir voru alvarlega
slasaðir á slysadeild Landspítalans í Foss-
vogi í Reykjavík og ökumaður leigu-
bifreiðarinnar á Heilbrigðisstofnun Suður-
nesja í Reykjanesbæ. Farþegi í fólks-
bifreiðinni, 13 ára drengur, var úrskurðaður
látinn skömmu síðar. Ökumaður fólksbíls-
ins liggur á gjörgæsludeild og er líðan hans
stöðug. Ökumaður leigubifreiðarinnar hlaut
minniháttar áverka og fékk að fara heim að
lokinni skoðun.
Síðasta banaslys í
umferðinni í október
Að sögn Sigurðar Helgasonar, upplýs-
ingafulltrúa Umferðarráðs, voru 146 dagar
liðnir frá því síðast varð banaslys í umferð-
inni. Það var 13. október síðastliðinn þegar
móðir og tvær dætur létust í umferðarslysi í
Skutulsfirði.
Þrettán ára
drengur lét
lífið í bílslysi
Morgunblaðið/Júlíus
Frá vettvangi umferðarslyssins á Reykja-
nesbraut í gærkvöldi.
„ÞAÐ var svo brjálað veður að ég gat ekki mok-
að mig niður,“ sagði Bjarni Guðmundsson vél-
sleðamaður seint í gærkvöldi. Honum hafði þá
skömmu áður verið bjargað af Langjökli eftir
illa vist þar í aftakaveðri. Tveggja félaga hans
var enn leitað af fjölmennu liði björgunarmanna
skömmu eftir miðnætti er blaðið fór í prentun.
Bjarni var á leið með fjórum félögum sínum
suður yfir Langjökul þegar þrír þeirra týndust í
svartabyl. Hann hugðist grafa sig í fönn en gafst
upp á því þar sem jafnharðan skóf í holuna sem
honum tókst þó að grafa. „Ég komst því ekki í
skjól og lá utan í sleðanum. Ég varð frá að
hverfa með moksturinn eftir að hafa eytt mikilli
orku í hann. Önnur höndin á mér var orðin mjög
köld og ég komst ekki lengur í hanskann. Ég
hefði getað þraukað eitthvað lengur en hafði
áhyggjur af félögum mínum sem voru ekki eins
vel búnir og ég.“
Víðtæk leit björgunarsveitamanna að Bjarna
og tveimur félögum hans hófst kl. 15 og stóð
fram eftir nóttu. Vélsleðamennirnir voru fimm
saman í hópi á leið frá Hveravöllum suður eftir
Langjökli og urðu viðskila um kl. 12 í slæmu
veðri. Um 80 björgunarsveitamenn á jeppum,
vélsleðum og snjóbílum héldu til leitar og sóttist
þeim ferðin upp á jökulinn seint vegna færðar
og skyggnis. Fannst Bjarni kl. 23.15 en félagar
hans tveir voru ófundnir um miðnættið.
Tveimur úr hópnum tókst að komast niður í
skálann Tjaldafell norðan Skjaldbreiðar og
hringdu þaðan í Neyðarlínuna vegna félaga
sinna þriggja. Að sögn annars þeirra, Samúels
Magnússonar, héldu fimmmenningarnir hópinn
frá Hveravöllum og höfðu mjög stutt á milli sín.
Vegna blindu tókst þó ekki að halda hópnum
saman og því tvístraðist hann. „Við fórum sömu
leið til baka til að leita en það gekk ekki,“ sagði
Samúel. Fimmmenningarnir óku vel þekkta leið
suður jökulinn og hafa þeir margoft ekið þessa
slóð í misjöfnum veðrum. Samúel sagði þokka-
legt veður hafa verið á Hveravöllum þegar þeir
lögðu af stað kl. 11 suður á bóginn en á jöklinum
hafi byrjað að hvessa.
„Við vorum komnir niður af jökli kl. 14 og vor-
um svo heppnir að hitta hjálparsveitamenn á
æfingu í Tjaldafelli. Við ráðfærðum okkur við þá
og tilkynntum málið þar,“ sagði hann.
Tveggja leitað á Langjökli
!
" !
!
„Svo brjálað veður
að ég gat ekki
mokað mig niður“