Morgunblaðið - 17.03.2003, Qupperneq 32
DAGBÓK
32 MÁNUDAGUR 17. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Þerney kemur í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Selfoss kemur í dag.
Mannamót
Aflagrandi 40. Vinnu-
stofa og leikfimi kl. 9,
boccia kl. 10, vinnu-
stofa kl. 13, söngstund
á morgun kl. 14.
Árskógar 4. Kl. 9–12
opin handavinnustofa,
kl. 11 boccia, kl. 13–
16.30 opin smíðastofa/
útskurður, opin handa-
vinnustofa, kl. 13.30 fé-
lagsvist, kl. 16 mynd-
list.
Bólstaðarhlíð 43. Kl.
9–16 handavinna, kl. 9–
12 bútasaumur, kl. 9–
17 fótaaðgerð, kl. 10–
11 samverustund, kl.
13.30–14.30 söngur við
píanóið, kl. 13–16 búta-
saumur.
Félagsstarf eldri borg-
ara í Mosfellsbæ, Kjal-
arnesi og Kjós. Mánu-
dagur kl. 16 leikfimi.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist í
Gullsmára 13 kl. 20.30.
Fótaaðgerð frá kl. 10.
Skrifstofan Gullsmára
9 er opin kl. 16.30–18,
s. 554 1226.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 bað, kl. 9
fótaaðgerð, og mynd-
list, kl. 10–12 verslunin
opin, kl. 13 föndur og
handavinna.
Félagsstarfið Dalbraut
18–20. Kl. 10, leikfimi,
kl. 13 brids.
Félagsstarfið Dalbraut
27. Kl. 9–16 opin
handavinnustofan, kl.
9–12 myndlist, kl. 13–
16 körfugerð, kl. 11–
11.30 leikfimi, kl. 13–16
spilað, kl. 10–13 versl-
unin opin.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Bað kl. 9–
12, handavinna kl. 9–
16.30, félagsvist kl. 14,
kl. 9–14 hárgreiðsla.
Félag eldri borgara
Garðabæ. Æfing hjá
Garðakórnum, kór
eldri borgara Garða-
bæ, alla mánudaga kl
17.30 í safnaðarheim-
ilinu Kirkjuhvoli.
Söngfólk er hvatt til að
koma og taka þátt í
starfi með kórnum.
Stjórnandi kórsins er
Kristín Pjetursdóttir.
Félagsstarf aldraðra
Garðabæ. Mánud. Kl.
9.30 stólaleikfimi, kl.
10.15 og 11.10 leikfimi,
kl. 12.15 leir, kl. 13
postulínsmálun.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Tréút-
skurður kl. 13 og fé-
lagsvist kl. 13.30.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Kaffistofan
lokuð um óákveðinn
tima. Brids kl. 13. S.
588 2111.
Gerðuberg, fé-
lagsstarf. Fjölbreytt
vetrardagskrá í boði
alla virka daga kl. 9–
16.30 .S. 575 7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Handavinnustofan op-
in, kl. 9. 30 gler og
postulínsmálun, kl.
10.50, leikfimi, kl. 13
skák og lomber, kl. 20
skapandi skrif.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9 vefnaður, kl.
9.05 leikfimi, kl. 9.55
stólaleikfimi, kl. 10
ganga, kl. 13 brids, kl.
20.30 félagsvist.
Hraunbær 105. Kl. 9
perlusaumur og fótaað-
gerð, kl. 10 bænastund,
kl. 13.30 sögustund og
spjall, kl. 13 postulíns-
málun og hárgreiðsla.
Hvassaleiti 56–58. Kl.
9 föndur, kl. 9 og kl. 10
jóga, kl. 13 spilað, kl.
14.15 spænska, fótaað-
gerðir.
Norðurbrún 1. Kl. 10–
11 ganga, kl. 9–15 fóta-
aðgerð, kl. 9–12 mynd-
list, kl. 13–16.45 opin
handavinnustofa.
Vesturgata 7. Kl. 9–16
fótaaðgerð og hár-
greiðsla, kl. 9.15–12
postulínsmálun. kl.
9.15–15.30 handavinna,
kl. 9.30–10.30 boccia,
kl.11–12 leikfimi, kl.
12.15–13.15 dans-
kennsla, kl. 13–16 kór-
æfing.
Vitatorg. Kl. 8.45
smíði, kl. 9 hárgreiðsla,
kl. 9.30 bókband, búta-
saumur og morg-
unstund, kl. 10 fótaað-
gerð og boccia, kl. 13
handmennt, gler-
bræðsla og spilað, kl.
15.30 jóga.
Gullsmárabrids. Brids
í Gullsmára. Skráning
kl. 12.45, spil hefst kl.
13.
Félag eldri borgara
Suðurnesjum. Bingó í
Selinu Vallarbraut 4,
Njarðvík öll mánu-
dagskvöld kl. 20.
Sjálfsbjörg, félag fatl-
aðra á höfuðborg-
arsvæðinu, félagsheim-
ilið Hátúni 12. Kl. 19
brids.
Kvenfélagið Seltjörn
fundur verður miðviku-
daginn 19. mars kl.
20.30 í safnaðarheimili
Seltjarnarneskirkju.
Minningarkort
Minningarkort Hvíta-
bandsins fást í Kirkju-
húsinu, Laugavegi 31,
s. 562-1581 og hjá
Kristínu Gísladóttur, s.
551-7193 og Elínu
Snorradóttur, s. 561-
5622.
Í dag er mánudagur 17. mars,
76. dagur ársins 2003. Geirþrúð-
ardagur. Orð dagsins: Ég elska
þig, Drottinn, þú ert styrkur
minn. Drottinn, bjarg mitt og vígi
og frelsari minn.
(Sálm. 18, 1.-2.)
Snorri Stefánsson gerirfátækt að umfjöll-
unarefni í pistli á frelsi.-
is, vef Heimdallar. Hann
segir að þegar fátækt sé
mæld hér á landi sé mið-
að við að þeir séu fátækir
sem hafi minna en helm-
ing meðalráðstöf-
unartekna til umráða.
Gefum Snorra orðið:„„Fátæktarmörkin“
eru því síbreytileg. Þau
færast upp og niður í
takt við almenna velmeg-
un þjóðarinnar. Rétt er
að athuga að mælikvarð-
inn þarf ekki að taka til
allra sem eru fátækir og
mælir e.t.v. einhverja fá-
tæka sem hafa úr nógu
að spila. Augljóst er að
mælikvarðinn sem hér er
notaður myndi ekki mæla
fátækt í samfélagi 100
sjálfseignarbænda, hvers
með sitt hundrað fjár,“
segir Snorri.
Áfram heldur hann:„Annað sem vert er
að veita athygli er að
þegar mælt er hlutfall af
heild sem uppfyllir ein-
hver skilyrði á ein-
hverjum tíma þá segir
það okkur ekki endilega
hvað hefur gerst eða
hvað muni gerast. Er-
lendar rannsóknir benda
til þess að meirihluti
þeirra sem mælast fátæk-
ir á einhverjum til-
teknum tíma gerir það
ekki fyrir næsta tímabil.
Margt kemur þar til;
sumir veikjast og geta
ekki unnið, aðrir kjósa að
taka hlé frá vinnu og
læra meira, sumir verða
atvinnulausir tímabund-
ið, aðrir taka frí frá
vinnu vegna barneigna
og þannig mætti lengi
telja.“
Að sögn Snorra bendarannsóknir til þess að
sá tíundi hluti borgara
hvers ríkis sem minnst
efnaleg gæði hefur hafi
úr að spila um þremur
hundraðshlutum lands-
framleiðslunnar. „Hlut-
fallið er nokkurn veginn
hið sama í öllum löndum.
Fyrstu skrefin sem stíga
þarf til að bæta efnaleg
gæði þeirra sem minna
hafa af þeim hljóta því að
vera að auka efnaleg
gæði samfélagsins alls.
Að tryggja stöðuga at-
vinnu og blómlegt efna-
hagslíf svo þeir sem verði
fyrir skakkaföllum eigi
auðveldara með að kom-
ast á beinu brautina á ný.
Að því hefur sitjandi rík-
isstjórn unnið með góð-
um árangri.
Ljóst er að slag-
orðakennd umræða um
að bæta þurfi úr fátækt
gagnast lítið þekki menn
ekki ástæður fátækt-
arinnar. Mikilvægt er að
ná að afmarka þann hóp
manna sem lítið hefur af
efnislegum gæðum.
Þannig verða allar að-
gerðir til að hjálpa því
fólki sem þess þarf við
markvissari og líklegri til
að ná tilgangi sínum.
Hins vegar er það ekki
sannfærandi þegar menn
láta sem þeir ætli að sigr-
ast á fátækt en vita hins
vegar ekkert um eðli eða
orsakir hennar. Það er
að ráðast á vindmyllur.“
STAKSTEINAR
Fátæktarmörkin færast
með velferð þjóðarinnar
Víkverji skrifar...
ÞANNIG vill til að Víkverji er al-veg hreint makalaus maður. Og
hann er ekki ýkja glaður í dag.
Ólundin stafar ekki (endilega) af
því að Víkverji sé einmana heldur
skýrist skap hans af frétt sem birtist
í Morgunblaðinu fyrir réttri viku, 8.
mars sl. Þar kom nefnilega fram að
giftir karlar hafa 94% hærri laun en
ógiftir, ef vitnað er beint í fyrirsögn
fréttarinnar.
Ef eitthvað er að marka fréttina,
sem byggðist á frásögn Ingólfs V.
Gíslasonar, starfsmanns Jafnrétt-
isskrifstofu, á ráðstefnu um launa-
jafnrétti, eru meðaltekjur gifts karls
3,3 milljónir króna á ári á meðan sá
ógifti hefur 1,7 milljónir í árstekjur.
Nú ber að gæta að því að Víkverji
er sjálfur með talsvert meira en 1,7
milljónir króna í árstekjur og þessir
útreikningar eiga því í reynd ekki
við hann. Hitt er annað mál að skv.
þessu blasir hreinlega við að bar-
áttan fyrir launajafnrétti á Íslandi
snýst alls ekki um það að jafna laun
kynjanna, karla og kvenna, heldur
um að bæta hag þeirra sem ein-
stæðir eru. Og þar er rétt að huga
sérstaklega að einstæðum körlum,
frekar en konum, því skv. útreikn-
ingum Ingólfs er ekki jafnmikill
munur á tekjum giftrar konu og
ógiftrar.
x x x
OG þó. Fram kom nefnilega hjáIngólfi að meðaltekjur konu í
sambúð er 1,5 milljónir króna á ári,
en meðaltekjur ógiftrar konu er 1,3
milljónir króna. Því er ljóst að karlar
sem ekki eru í sambúð hafa hærri
tekjur en konur í sambúð og er mun-
urinn um 13%.
Þetta eru athyglisverðar tölur,
svo ekki sé meira sagt. Sem fyrr
segir er Víkverji fyrir ofan áð-
urnefndar meðaltekjur ógifts karls
og það finnst honum auðvitað gleði-
legt. Spurningin sem vaknar er þó
sú hvort formúlan sé algild og hvort
sessunautur Víkverja, sem hugs-
anlega hefur svipaðan starfsaldur að
baki og ber álíka ábyrgð í starfi, hafi
94% hærri laun en hann – af þeirri
ástæðu einni að hann er giftur!
Víkverji leyfir sér að efast um að
svo sé. Augljóst er þó að eins gott er
fyrir hann – eins og alla aðra, konur
og karla – að halda vöku sinni í
launamálunum.
x x x
ÞAÐ vakti gleði Víkverja að heyraað búið væri að velja Guðna
Bergsson aftur í íslenska landsliðið í
knattspyrnu. Viðskilnaður Guðna
við landsliðið á sínum tíma var sorg-
legur og full ástæða til að slá striki
yfir þau mál nú, og þó fyrr hefði ver-
ið.
Morgunblaðið/Kristinn
Guðni Bergsson klæddist síðast
landsliðspeysu Íslands gegn Írum
haustið 1997.
Orlof – tungu-
málaskóli
SUMUM líkar allvel að
eyða sumarfríum sínum á
sólarströnd og láta sólina
verma sig. Það höfum við
hjónin einnig reynt marg-
sinnis en við erum einnig
nýbúin að komast að
ákveðnum sannleika um að
ýmislegt annað getur auð-
veldlega komið til greina,
sérstaklega þegar eyða
þarf auka sumar/vetrarfríi
sem safnast hefur upp og er
jafnvel á þeirri blátaums-
brún að lenda milli stafs og
hurðar og verða að engu ef
það er ekki tekið út í tæka
tíð eða fyrir 1. maí ár hvert.
Við hjónin tókum þá
ákvörðun nýverið, eftir að
flugfargjöld lækkuðu til
muna, að reyna hvort
tungumálaskóli í Bretlandi
gæti gefið okkur viðunandi
ánægju og jafnframt ein-
hver skref fram á við í
þeirri viðleitni okkar að ná
betur valdi á og að skilja
enska tungu, tala hana og
skrifa. Það má jafnframt
koma hér fram að við erum
komin af léttasta skeiði og
því búin að reyna ýmislegt
áður, m.a. aðra tungumála-
skóla. Eftir að hafa notið
svo yndislegrar dvalar sem
raun ber vitni undanfarna
daga, hjá afbragðsfólki
(inni á heimili) sem kom
jafnvel enn betur út en
fjögurra stjörnu hótel og
góðrar viðbótarmenntunar
í skólanum, þá er það okkur
mjög ljúft að láta þess getið
við áskrifendur Morgun-
blaðsins og aðra Íslendinga
að nám eins og þetta er
mjög áhugavert og þess
virði að skoða nánar.
Okkur kemur m.a. í hug
að margir hafa á undan-
förnum árum tekist á við
það skemmtilega verkefni
að selja ferðamönnum ým-
iskonar þjónustu yfir sum-
armánuðina. Fyrir þá, sem
vildu auðga sinn þekking-
arbrunn á fljótvirkan hátt,
þá er þessi leið alveg kjör-
in. Þá er og við hæfi að geta
þess að tveggja til þriggja
vikna upprifjun í ensku á
jafnskilvirkan hátt er
kannski ekki alveg fram-
kvæmanleg eða í boði á Ís-
landi, nema með sérstöku
fyrirkomulagi eða þá með
töluvert meiri kostnað í
huga en það sem hér er um
rætt. Skólinn sem við vilj-
um koma á framfæri, heitir
St. George’s Clubclass og
er í Worthing sem er til-
tölulega yfirvegaður og ró-
legur bær nokkuð sunnan
við Brighton. Allar upplýs-
ingar um skólann má lesa á
heimasíðu hans sem er
http://www.sg-cc.com
Víðförli.
Útvarp Saga góð stöð
ÉG hlusta mikið á Útvarp
Sögu. Það er mikið af góðu
efni þar og einnig fær fólk
að hringja inn og tjá skoð-
anir sínar. Þessi útvarps-
stöð er löngu tímabær. Í
morgun, 13. mars, hlustaði
ég á þátt Arnþrúðar Karls-
dóttur þar sem hún ræddi
við aðstoðarlandlækni um
afleiðingar fátæktar á
heilsuna. Það var mjög gott
að fá umfjöllun um þetta
málefni sem svo marga
varðar í nútímanum. Af við-
bögðum fólks, sem ég hef
heyrt í, eru allir sammála
um að þessi þáttur var
mjög góður.
Ég vil að lokum þakka
öllu því góða fólki sem vinn-
ur á Útvarpi Sögu og sendi
því mínar bestu kveðjur.
Sigrún Á. Reynisdóttir.
Tapað/fundið
Barnastóll í óskilum
BARNASTÓLL á reiðhjól
er í óskilum á Karlagötu.
Upplýsingar í síma
551 9831.
Kápa og veski
týndust
DRAPPLIT rúskinnskápa
og grænt leðurveski týnd-
ust á Kaffi Reykjavík laug-
ardaginn 8. mars. Skilvís
finnandi skili mununum á
Kaffi Reykjavík.
Frakki tekinn
í misgripum
DÖKKGRÁR frakki var
tekinn í misgripum föstu-
dagskvöldið 7. mars í Skip-
holti 70. Skilvís finnandi
hafi samband í síma
555 3730 og 897 2969.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
Morgunblaðið/RAX
LÁRÉTT
1 mjög grannur, 8 málm-
þráðum, 9 tekur, 10
elska, 11 óhreinindi, 13
peningar, 15 máttar, 18
viða að sér, 21 skarð, 22
minnka, 23 ákveð, 24
ónauðsynlegt.
LÓÐRÉTT
2 eiga sér stað, 3 auðlind-
in, 4 ops, 5 stór, 6 dæld, 7
ósoðinn, 12 gyðja, 14
dveljast, 15 lofa, 16
öskra, 17 sáldur, 18 fisk-
ur, 19 þungrar byrði, 20
tóma.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 aðild, 4 sakka, 7 fæddi, 8 rófan, 9 grá, 11 roða,
13 ásum, 14 Krist, 15 hema, 17 tjón, 20 und, 22 mótun,
23 urðar, 24 arinn, 25 dýrin.
Lóðrétt: 1 aðför, 2 ildið, 3 deig, 4 skrá, 5 kufls, 6 afnám,
10 reisn, 12 aka, 13 átt, 15 hemja, 16 metti, 18 jaðar, 19
nýrun, 20 unun, 21 dund.
Krossgáta
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16