Morgunblaðið - 17.03.2003, Blaðsíða 35
legu sem ríkti í fyrstu myndinni og
að sjálfsögðu er Grimmhildur Grá-
mann enn að reyna að næla sér í dal-
matíuhund til geta búið sér til kápu
og önnur listaverk úr.
Einnig seldist vel í sinni fyrstu
viku sérstök viðhafnarútgáfa af
þriðju Die Hard-myndinni þar sem
Bruce Willis nýtur aðstoðar Samuel
L. Jackson í glímunni við hinn
geggjaða glæpamann Simon, sem
Bretinn (en ekki hvað) Jeremy Irons
ofleikur af alkunnri snilld.
ÞAÐ þurfti þetta líka ferlíki til að
brjóta ísinn, rúsnesskan kjarn-
orkukafbát hvorki meira né minna.
Stærsta mynd sem Sigurjón Sig-
hvatsson hefur tengst, K-19: Ekkju-
skaparinn, er nýkomin út á mynd-
diski hérlendis, og gerir sér lítið
fyrir og slær við toppmynd síðustu
vikna Ísöld.
Auk myndarinnar, sem skartar
Ingvari okkar Sigurðssyni í einu að-
alhlutverkanna, er að finna á mynd-
diskaútgáfunni ýmislegt aukaefni.
Hægt er að hlýða á leikstjórann
Kathryn Bigelow skrafa um mynd-
ina og lýsa því sem fyrir ber á meðan
horft er á hana og nokkrar heimild-
armyndir fá einnig að fljóta með.
Tvær aðrar myndir koma nýjar
inn á mynddiskalistann þessa vik-
una. Hundalíf 2 er aldeilis kærkom-
inn fengur fyrir jafnt unga sem
aldna Disney-fylgjendur. Myndin er
sjálfstætt framhald teiknimynd-
arinnar sígildu frá 1961. Í framhald-
inu, sem er frumsýnt á myndbandi
og mynddiski, er leitast mjög við að
endurskapa stemmninguna þægi-
Söluhæstu mynddiskar landsins
Kafbátarnir brjóta ísinn
!"
# $%&
'()
*& +," $
+&-
.-# )--( $-/0+$
1 2.3( + - $
$ -43$-
*-&" $
5/1$+, +
6$ $-/4 2.3( + - $
.%- -5/
7&8
9:-9
++- *$+
)8$-7$
1 ;$8+9(
6$ $-/4
. &3 $. $
.--6 --+
<++-=/
$&
. >
. >
.)& 8?
. >
.)& 8?
. >
. >
. >
$&
. >
.)& 8?
.)& 8?
.)& 8?
.)& 8?
. >
$&
. >
. >
@ <+$ A- =
.?++ - & *$(/> & - < + 752 + . >$ + 1 3
Kafbátakarlarnir Ingvar, Ford og
Neeson eru komnir á mynddiska.
skarpi@mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. MARS 2003 35
Nýr og betriHverfisgötu 551 9000
SV. MBL
HK DV ÓHT Rás 2
Kvikmyndir.com
13
Tilnefningar
til Óskars-
verðlauna
þ. á. m.
besta mynd
kvikmyndir.com
Tilnefningar til
Óskarsverðlauna6
www.regnboginn.is
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. B.i 12.
Tilnefningar til Óskarsverðlauna
þ. á. m. besta mynd og aðalhlutverk kvenna
Nicole Kidman9
Margverðlaunuð stórmynd frá leikstjóra
Billy Elliot. Missið ekki af þessu
einstæða meistaraverki.
Ein rómaðasta mynd seinni ára
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 12Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i 12
HJ MBL HK DV
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.20. B.i. 16.
„Ein besta mynd ársins“
Fréttablaðið
www.laugarasbio.is
Frábær mynd frá leikstjóranum Martin Scorsese
HJ MBL
Sýnd kl. 5. B.i. 16 ára.
RADIO X
SV MBL
KVIKMYNDIR.COM
SG DV
ÓHT RÁS 2
Tilnefningar til Óskarsverðlauna:
Aðalhlutverk karla: Jack Nicholson.
Aukahlutverk kvenna: Kathy Bates.2
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.
Sýnd kl. 6, 8 og 10.10.
Eingöngu sýnd um helgar
www.icelandair.is
Alltaf ódýrast á Netinu
dramatíska tónlist kvikmyndarinnar
verður þó tæki sem miðlar tilfinn-
ingalegri upplifun hins annars lam-
aða Szpilmans, og í afdrifríku atriði
undir lok kvikmyndarinnar táknar
tónlistin þá von, mannúð og fegurð
sem lifað hefur andspænis ómann-
eskjulegri grimmd.
Adrien Brody fer mjög vel með
hlutverk hinnar hrjáðu söguper-
sónu, og umbreytist á áhrifaríkan
máta í þann skugga af manneskju
sem Szpilman er orðinn undir lokin,
eftir að hafa falið sig, flúið, hírst og
soltið. Þótt Szpilman sé kjölfesta
sögunnar, eru aðrar persónur jafn
sterkar og lifandi. Vegna þess hve
persónur eru dregnar sterkum
dráttum, verður fráfall þeirra ein-
hvern veginn raunverulegra og
skerpir þá mynd sem dregin er upp
af kúgunaraðferðum nasistanna, þar
sem tilviljunarkenndum morðum
var beitt samhliða skipulegri útrým-
ingu.
Þó svo að Píanóleikarinn sé löng
og erfið kvikmynd, hefur Polanski
og samstarfsfólki hans tekist að
skapa þar heildstætt og marghliða
kvikmyndaverk, sem vekur áhorf-
andann enn til umhugsunar um eitt
af hinum myrkustu skeiðum mann-
kynssögunnar.
Heiða Jóhannsdóttir
ÞAÐ hlaut að koma að því. Það hlaut að gerast að
einhver í Hollywood lýsti því yfir að fram á sjón-
arsviðið væri stiginn James Bond nýrrar aldar. Í
krafti velgengni Fljótir og fífldjarfir (Fast and
the Furious) beit Rob Cohen á agnið, tefldi
fram stjörnu þeirrar myndar, Vin Dies-
el, sem nýjustu ofurhetjunni, hinum
bandaríska Bond í stórmyndinni
xXx sem var ein af sumarmyndum
síðasta árs. Enginn smóking, enginn
Martini og ekkert hár heldur þeim
mun meira af vöðvum, brellum, has-
ar og allskyns fífldirfsku – sem er jú
þeirra fag, Cohens og Diesels.
Það kemur lítið á óvart að Cohen,
eins framsýnn náungi og markaðs-
sinnaður og hann nú er, skuli hafa
hugsað út í mynddiskaútgáfuna á
myndinni allt frá upphafi. Þannig lét
hann mynda alla gerð myndarinnar
í bak og fyrir, ítarlegar en nokkru
sinni hefur verið gert áður, vilja
sumir meina. „Kvikmyndagerð-
armaður á að nýta öll tækifæri sem
gefast til að veita áhorfendum betri
innsýn í myndir sínar og tilurð
þeirra.“ Myndatökumenn skrásettu
alla 82 tökudaga myndarinnar og
Cohen tók sig til og bjó til dagbók úr
myndefninu, sem er að finna á nýja
mynddisknum. Cohen hefur ofurtrú
á mynddiskatækninni og segist þegar hafa orðið var
við að allt ítarefnið sem fylgir myndum hafi aukið
skilning almennings á kvikmyndagerð. „Mynddisk-
urinn er einhver mesta bylting sem orðið hefur í heimi
afþreyingarinnar. Ekki einasta hafa þeir aukið áhuga
fólks og ánægju á kvikmyndum heldur hefur ekki kom-
ið fram betra tól til að kenna ungu fólki mynd-
lestur. Nú er maður farinn að heyra krakka
spjalla saman um klippingu og kvikmynda-
töku, eitthvað sem var algjörlega lokuð bók
hér áður fyrr fyrir almenningi.“
Spjallið hjá Cohen undir xXx, val-
kostur sem í boði er á mynddiskaútgáf-
unni, er líka eftir þessu. Hann er grein-
lega afar spenntur yfir þeirri
tæknibyltingu sem á sér nú stað í
kvikmyndagerðinni og vill óður og
uppvægur fræða unga áhorfendur
og svipta hulunni af því hvernig í
ósköpunum er hægt að fram-
kvæma allar þessar ótrúlegu
tæknibrellur sem myndin er upp-
full af. Af því leytinu er þessi
diskur náttúrlega ekkert minna
en himnasending fyrir unnendur
brellum hlaðinna hasarmynda.
Auk bunka af heimild-
armyndum sem fjalla um gerð
xXx þá má nefna 10 atriði sem
ekki náðu inn í 124 mínútna end-
anlegu útgáfuna og gerir Cohen
nokkra grein fyrir hvers vegna.
Ýmislegt annað er þarna líka,
misjafnlega áhugavert eins og
gengur og gerist.
Hvað svo sem mönnum finnst
um myndina sem slíka þá verður
vart um það deilt að mynddiskaformið er sem sniðið
fyrir hana. Þeir sem ekki fengu nóg af myndinni í bíó,
ættu því að kynna sér mynddiskinn, sem býður upp á
meira – svo miklu, miklu meira.
Hasarmyndin xXx kemur út á mynddiski í vikunni
Svo miklu, miklu meira!
Hvernig fer hann að þessu? Mynddisk-
urinn með xXx svarar því.
Skarphéðinn Guðmundsson
ATVINNA mbl.is