Morgunblaðið - 17.03.2003, Blaðsíða 36
36 MÁNUDAGUR 17. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Sýnd kl. 8.
Sýnd kl. 6 og 10.30. B. i. 16
Óskarsverðlaunaleikarnir
Nicolas Cage og Meryl Streep
fara á kostum í myndinni. Frá höfundum
og leikstjóra „Being John Malkovich“.
1/2 H.L. Mbl.
H.K. DV
RadíóX
1/2 Kvikmyndir.com
1/2 Kvikmyndir.is
Aukasýningar vegn
a fjölda áskoranna
SV MBL HK DV
SG Rás 2
Radio X
ÞÞ Frétta-
blaðið
Sýnd kl. 6 og 9. B.i. 14.
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
2Tilnefningar til Óskarsverðlaunabesti leikari í aukahlutverki: Christopher WalkenBesta Tónlist - John Williams
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. B.i. 14.
7 Bestamyndársins BestileikstjóriRoman Planski Besti leikari íaðalhlutverki:Adrian Brody
TILNEFNINGAR TIL ÓSKARSVERÐLAUNA
1/2 H.L. Mbl.
1/2 H.K. DV
1/2 SK Radíó X
Kvikmyndir.com
Lækkað verð!
Miðaverð kr. 750.
Tilnefnd til Óskarsverðlauna sem BESTA ERLENDA MYNDIN
1/2 H.L. Mbl.
1/2 H.K. DV
Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Sýnd kl. 5.15, 8 og 10.10. / Sýnd kl. 6, 8 og 10. B. i. 12.
EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 5.15 OG 8. B. I. 16.
ÁLFABAKKI / KRINGLAN
Ögrandi mynd sem hefur fengið lof gagnrýnenda um
allan heim með þeim Edward Norton (Fight Club,
American HistoryX), BarryPepper (Saving Private R-
yan, GreenMile) og Philip Seymour Hoffman (Red
Dragon, Boogie Nights)
Ef þú ættir 1 dag eftir sem frjáls maður..
gætir þú gjörbreytt lífi þínu?
Lækkað verð! Miðaverð kr. 750.
1/2 H.L. Mbl.
1/2
ÞAÐ ER sem runnið hafi æði á
landsmenn vegna liðsmanna hinna
svokölluðu Kjánaprika sem vænt-
anlegir eru til landsins 11. og 12.
apríl, en þeir eru, sem kunnugt er,
stjörnur þáttanna „Jackass“ og hafa
skemmt á SkjáEinum með skrípalát-
um sínum sem oftar en ekki fela í sér
stórhættulegar (og ástæðulausar)
líkamsmeiðingar. Í tengslum við
komu þeirra verður haldinn gleð-
skapur á Astró, en 100 fyrstu sem
keyptu sér miða í gær fengu
einnig miða í teitina.
Einnig eru líkur á
að Kjánaprikin
muni taka
upp á því
að
spranga
um jökla og
fossa og taka
upp skrípalæti á
séríslenska vísu fyrir
sjónvarpsþátt sinn.
Í svefnpokum með kaffibrúsa
Miðasala hófst á hádegi í gær, og
höfðu margir eytt nóttinni fyrir utan
Háskólabíó, til að fá örugglega miða.
„Miðasalan var opnuð á hádegi í
dag, og þá voru örugglega komnir
yfir 200 manns í röðina,“ sagði Ísleif-
ur Þórhallsson sem flytur inn Kjá-
naprikin. „Þeir fyrstu mættu kl. 2 í
nótt í kuldagöllum, með svefnpoka
og kaffibrúsa, og voru þá búnir að
vera þarna í 10 klukkutíma þegar
miðasalan var opnuð. Svo bættist vel
í hópinn upp úr kl. 6 í morgun og
röðin hélt áfram að lengjast fram
eftir degi.“
Ísleifur segir að mikið æði hafi
ríkt þegar byrjað var að selja, og
leið vel á aðra klukkustund þar til
tók að róast í miðasölunni, en allar
líkur eru á að síðustu miðarnir selj-
ist í dag.
Haldnar verða tvær sýningar og
segir Ísleifur að á þeirri fyrri verði
allt leyft: „Föstudagssýningin er
bönnuð innan sextán, þá er allt leyfi-
legt og engar hömlur á hverju þeir
taka upp á í sýningunni. Seinni sýn-
ingin verður hins vegar öllum opin,
en þar reyna þeir að halda sig innan
skynsemismarka.“ Þeir sem sitja í
fremstu sætum á fyrri sýningunni
mega því, að sögn Ísleifs, alveg eiga
von á að fá einhverja líkamsvessa yf-
ir sig.
Einstök sýning
Aðspurður er Ísleifur ekki hissa á
viðbrögðunum: „Það vita auðvitað
allir hvað Jackass er. Það er gaman
að horfa á þá í bíó og í sjónvarpi, en
það er eitthvað alveg sér-
staklega spennandi
við það að sjá
þá gera
þessa
vit-
leysu
fyrir
augunum
á manni. Ég
held líka óhætt að
segja að Íslendingum
hafi aldrei nokkurntíma gefist tæki-
færi á að sjá aðra eins sýningu.“
Sýningin, sem ber nafn með rentu:
Ekki reyna þetta sjálf (Don’t try this
at home), spratt út frá fyrrnefndum
sjónvarpsþáttum Kjána-
prikahópsins. Það var fyrir hálf-
gerða tilviljun að nokkrir liðsmenn
þáttanna voru fengnir til að
skemmta á sviði fyrir hóp af æstum
áhorfendum, og tókst svo vel til að
úr varð sýning sem farið hefur um
gervöll Bandaríkin. Viðkoma Kjána-
prikanna á Íslandi er liður í Evr-
ópuför þeirra, en landið er meðal
fyrstu viðkomustaða þeirra í álfunni.
Ljósaperur og heftibyssa
Ísleifur segir Kjánaprikin vilja
sem minnst gefa upp um hvað þeir
hyggjast sýna Íslendingum: „Þeir
segja sjálfir að sýningin sé um þriðj-
ungur uppistand, þriðjungur
áhættuatriði, og svo þriðjungur ein-
hver geðveiki, þar sem hvað sem er
getur gerst. Ég er með mjög fyndinn
lista af hlutum sem á að útvega:
fimm latexhanskar, slökkvitæki, eld-
fimt hársprey, átta ljósaperur, steik-
arhnífur, tólf metra stigi, barnareið-
hjól, kaðall og heftibyssa, svo
nokkuð sé nefnt.“
Þrír liðsmenn þáttanna munu
mæta hingað, og fer þar fremstur
Steve-O, erkibjáni, en honum til lið-
sinnis verða Preston Lacy og Ryan
Dunn.
Flón eða snillingar?
Af þeim fer misjafnt orðspor, en
Steve-O var kallaður „fífl fram í
fingurgóma“, asni og kjáni í viðtali
Arnars Eggerts Thoroddsen sem
birtist í blaðinu í gær. En þrátt fyrir
að vera alræmdir fyrir að hoppa og
skoppa á húsgögnum og bílum, beita
heftibyssu á líkama sinn og sprellast
klæðalausir á almannafæri, þekkir
Ísleifur þá Steve-O og félaga ekki af
öðru en góðu: „Mín reynsla af þeim
er sú að þetta séu voðalega ljúfir
drengir – ótrúlegt en satt – og til-
tölulega mikið í lagi þegar ekki er
kveikt á upptökuvélunum. En þeir
eru alltaf til í hvað sem er þegar
byrjað er að taka upp. Baksviðs eru
þeir afskaplega ljúfir drengir og
góðir, en fyrir framan linsuna og
fyrir framan áhorfendur fara þeir í
stuð og eru til í að gera allt sem þeir
geta til að ganga fram af fólki.“
En af hverju? Er ekki í lagi með
þessa menn? Ísleifur segir að
Steve-O hafi svarað þessu í sjón-
varpsþætti sem sýndur var á Skjá-
Einum á föstudag: „Hann vill ekki
vinna venjulega vinnu, og getur ekki
enst í skóla, en vill að það verði mun-
að eftir honum. Þessir menn eru líka
örugglega vel stæðir í dag, lifa mjög
fjörugu lífi og ferðast um allan heim
til að stunda þessa vitleysu sína. Þeir
skemmta sér örugglega meira og
betur en flestir aðrir.“
Steve-O og margir aðrir í hópnum
eiga að baki feril í áhættuleik og
fjölleikahúsum. Getur kannski verið
að hér séu í raun á ferð snillingar
sem láta fólk bara halda að þeir séu
vitgrannir spjátrungar sem teknir
eru af götunni og hafa gaman af að
meiða sig? Getur verið að Steve-O
og félagar séu í raun ofboðslega
greindir og klókir piltar, en ekki
dæmalausir asnar?
Beðið eftir Kjánaprikunum
Fólk eyddi nóttinni fyrir utan Háskólabíó til að krækja sér í miða á sýningu Kjánaprikanna
Morgunblaðið/Kristinn
Baldur, Pétur og Ármann biðu eftir miðum á Kjánaprikin og lofuðu félögun-
um í kuldagöllunum, sem sváfu vært, að vekja þá þegar miðasalan yrði opnuð.
Söngfuglinn
Britney
Spears á í
útistöðum
við skófram-
leiðandann
Skechers,
en svo virð-
ist sem kær-
ur gangi á
milli lög-
fræðinga
beggja.
Britney,
sem auglýsti
hjólaskauta og ýmsan aukabúnað
fyrir skófyrirtækið sakar það um að
hafa ekki greitt henni sem skyldi fyr-
ir auglýsingaherferðina og fer fram á
eina og hálfa milljón dala í skaðabæt-
ur, eða vel yfir hundrað milljónir
króna.
Skechers hafa á móti kært Britney
fyrir að hafa ekki staðið við samning-
inn sem gerður var, en Britney ku
hafa verið ósamvinnuþýð við hönnuði
og markaðssetningarmenn. Fara
þeir fram á heilar tíu milljónir dala í
skaðabætur, sem skagar vel yfir sjö-
unda hundrað milljóna króna.
…
Ástralinn reffilegi Russel Crowe
mun senn ganga að eiga hina þokka-
fullu Danielle Spencer, en þau upp-
lýstu á dögunum að brúðkaupið
myndi fara fram á afmælisdegi leik-
arans 7. apríl næstkomandi. Fjöl-
miðlafulltrúi Crowe sagði að athöfnin
myndi fara fram í fjölskyldukapell-
unni á óðali leikarans. Þau Crowe og
Danielle hyggjast ekki hafa mikinn
stjörnufans við athöfnina, heldur
verður hún aðallega helguð ætt-
ingjum og vinum, en um áttatíu nöfn
verða á gestalistanum.
FÓLK Ífréttum