Morgunblaðið - 17.03.2003, Síða 40
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MÁNUDAGUR 17. MARS 2003 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
Smáralind - Glæsibæ
ALAIN J.P. Belda, forstjóri og
stjórnarformaður Alcoa, sagðist í
samtali við Morgunblaðið ekki sjá
neitt í stöðunni sem stöðvaði úr
þessu þau áform fyrirtækisins að
reisa álver hér á landi, ekki einu
sinni stríð í Írak ef það skylli á, en
skrifað var undir samninga um ál-
verið á laugardag að viðstöddu
fjölmenni í íþróttahúsinu á Reyð-
arfirði.
„Við reisum álver yfirleitt með
því hugarfari að þau endist í allt
að 50 ár og við rekum nokkrar
verksmiðjur sem hafa verið starf-
andi í meira en 90 ár. Órói í
stjórnmálum og efnahagslífi kem-
ur og fer en við ætlum okkur að
vera hér á Íslandi,“ sagði Belda
og benti á að Alcoa hefði á sínum
tíma reist álver í Súrínam og
Brasilíu í miðjum byltingum og
stjórnmálaóreiðu í þeim löndum.
hnjúkavirkjun væru. Fyrirtækið
myndi leggja metnað sinn í að
mæta kröfum sem flestra í um-
hverfismálum en hann sagðist
finna fyrir miklum stuðningi
Austfirðinga og stjórnvalda.
Belda sagðist sem stjórnarmaður
í Citibank þekkja vel til þess
þrýstings sem umhverfisverndar-
samtök beittu fjármálastofnanir
vegna lánsbeiðna til margs konar
stóriðju, en eins og fram kemur
komið í Morgunblaðinu hefur slík-
um þrýstingi verið beitt vegna
Kárahnjúkavirkjunar. „Það er til
fólk sem er á móti framförum en
til allrar hamingju vex umheim-
urinn og fólk gerir kröfur um
betra líf. Okkar verkefni er að
finna gott jafnvægi þarna á milli,“
sagði Belda.
manna á Austfjörðum. Tólf mán-
aða samningaferli væri ekki svo
slæm útkoma í jafnstóru verkefni.
Höfðum lengi
augastað á Íslandi
Aðspurður hvort Alcoa hefði
fjárfest hér, hefði ekki legið fyrir
sá undirbúningur sem eigendur
Reyðaráls hefðu innt af hendi,
sagði Belda svo vera, með stað-
festu í röddinni. Fyrirtækið hefði
haft augastað á Íslandi um langan
tíma, m.a. vegna eignaraðildar
sinnar í Elkem, stærsta eiganda
Járnblendiverksmiðjunnar á
Grundartanga. Fyrir þá sök hefði
Alcoa verið reiðubúið til viðræðna
við stjórnvöld með jafnsnöggum
hætti og raun varð á.
Belda sagði það eðlilegt að
sumir væru andsnúnir jafnstórum
verkefnum og álver og Kára-
Álver Alcoa, Fjarðaál, verður
reist í einum áfanga með fram-
leiðslugetu upp á 322 þúsund tonn
á ári. Áætlaður kostnaður við
byggingu þess er um 90 milljarð-
ar króna, eða eins og Belda benti
á í ræðu sinni við undirskriftina
að kostnaður væri um milljón
dollarar á dag næstu fjögur árin.
Álverið mun fá raforku frá Kára-
hnjúkavirkjun og hefja fram-
leiðslu árið 2007. Um 450 manns
munu fá vinnu við álverið og 300
önnur störf skapast á Austur-
landi.
Tæpt ár er liðið síðan viðræður
hófust við Alcoa eftir að Norsk
Hydro hafði bakkað út úr áform-
um sínum um álver í Reyðarfirði.
Gengu viðræðurnar fljótt og vel
fyrir sig, enda sagðist Belda hafa
fundið strax góðan samstarfsvilja
íslenskra stjórnvalda og heima-
Forstjóri Alcoa í samtali við Morgunblaðið að lokinni undirskrift álsamninga
Stríð stöðvar ekki
áform Alcoa á Íslandi
Morgunblaðið/RAX
Þau tókust í hendur og mynduðu keðju sem undirrituðu álsamningana á Reyðarfirði á laugardag, f.v., Guðmundur Bjarnason, bæjarstjóri Fjarða-
byggðar, Michael Baltzell, framkvæmdastjóri hjá Alcoa, Alain Belda, forstjóri Alcoa, Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra, Geir H. Haarde
fjármálaráðherra, Jóhannes Geir Sigurgeirsson, stjórnarformaður Landsvirkjunar, og Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar. Að baki þeim
eru Max Laun, lögmaður frá Alcoa, Philip Vogler túlkur og lögmennirnir Hjörtur Torfason, Gunnar Jónsson og Jón Sveinsson.
Hér er fagnaðarfundur/6
Á FJÓRÐA hundrað nemendur sungu á
kóramóti framhaldsskólanna sem haldið
var í Menntaskólanum við Hamrahlíð í
gær. Kórarnir sungu Land míns föður
saman í upphafi dagskrár. Síðan voru
sungin ýmis lög eins og t.d. þættir úr
Carmina Burana ásamt slagverkssveit
Sinfóníuhljómsveitar Íslands og þáttur
úr Galdra-Lofti. Kórarnir sjö voru frá
Menntaskólanum við Hamrahlíð,
Menntaskólanum við Sund, Mennta-
skólanum í Reykjavík, Fjölbrautaskóla
Suðurlands, Flensborgarskóla, Verzl-
unarskóla Íslands og Fjölbrautaskól-
anum í Breiðholti.
Jón Ásgeirsson var heiðraður fyrir
framlag sitt til kórtónlistarinnar en
hann hefur samið og raddsett mikið af
tónlist fyrir kóra sem þessa. „Við erum
að reyna að endurvekja þessi kóramót,“
sagði Þorgerður Ingólfsdóttir, kórstjóri
kórs MH og sagði það hafa verið áhrifa-
mikið þegar þessi stóri hópur söng þjóð-
sönginn í fjórum röddum. Ákveðið var
að halda kóramótið á Selfossi næsta ár.
Jón Ásgeirs-
son heiðraður
á kóramóti
Morgunblaðið/Kristinn
Kórfélagar komu einn af öðrum og heiðruðu Jón Ásgeirsson með því að gefa honum rós. Að auki smelltu
stúlkurnar á hann kossi hver af annarri og var haft á orði að Jón hefði ekki tekið því illa.
LÖGREGLAN í Reykjavík handtók
á föstudagskvöld 35 ára gamla konu,
portúgalskan ríkisborgara, vegna
gruns um að hún hefði boðið vændi.
Hefur hún verið úrskurðuð í farbann.
Egill Stephenssen, saksóknari lög-
reglunnar í Reykjavík, segir að konan
sé grunuð um brot gegn 206. grein al-
mennra hegningarlaga sem m.a.
kveður á um að refsivert sé að stunda
vændi sér til framfærslu. Varðar það
allt að tveggja ára fangelsi. Egill vildi
lítið segja frá rannsókn málsins en
m.a. væri verið að kanna aðdraganda
þess að konan kom til landsins og
hvort hún hefði áður komið hingað.
Enginn annar hefur enn verið hand-
tekinn vegna málsins eða yfirheyrður
vegna þess.
Aðspurður segir Egill að lögregla
fylgist með því hvort íslenskar konur
leggi stund á vændi. Slík rannsókn
hafi ekki leitt til handtöku en hann
bendir á að í lögunum sé lagt bann við
vændi „sér til framfærslu“ en erfitt
geti reynst að sanna slíkt.
Í farbann
vegna gruns
um vændi
HÓPUR björgunarsveitarmanna á vélsleðum
og jeppum, alls á þriðja tug manna, svipaðist í
gær um eftir þýskum hjónum sem óttast var
að ættu í erfiðleikum á hálendinu norðan Mýr-
dalsjökuls. Er vitað að fólkið gisti í Álftavatni
aðfaranótt sunnudags og vonuðu björgunar-
menn í gærkvöld að fólkið hefði gist í Hrafn-
tinnuskeri í nótt.
Fólkið, sem er rúmlega þrítugt, lagði af stað
frá Hólsá í V-Skaftafellssýslu á þriðjudag.
Þaðan ætlaði það í Strútslaug, vestur Mæli-
fellssand í Hvannagil, Álftavatn, Hrafntinnu-
sker og Landmannalaugar. Fólkið ætlaði að
hafa símasamband við tengilið sinn hér á landi
á hverjum degi, en hafði aldrei látið vita af sér.
Hafði tengiliðurinn samband við lögreglu í
gær og var ákveðið undir kvöld að senda leit-
arflokk af stað eftir að í ljós kom að hópur
Rangæinga sem dvaldi á þessum slóðum um
helgina hafði ekki orðið var við Þjóðverjana.
Vant göngufólk og vel búið
„Það er ekki hægt að segja að fólkið sé týnt,
þetta er fyrst og fremst eftirgrennslan því
menn voru farnir að óttast um fólkið,“ segir
Gils Jóhannsson, varðstjóri hjá lögreglunni á
Hvolsvelli. Hann segir að það kunni að vera
eðlilegar skýringar á því að fólkið, sem hefur
NMT-handsíma meðferðis, hafi aldrei haft
samband. Símasamband sé lélegt á þessum
slóðum og eins virki símarnir ekki vel í kulda.
Gils segir að fólkið sé vant göngufólk, mjög vel
útbúið og með mat til margra daga þar sem
ferðalagið átti að standa til næstu helgar. Þeg-
ar Morgunblaðið fór í prentun ætluðu björg-
unarmenn að freista þess að fara í Hrafn-
tinnusker og athuga hvort fólkið væri þar að
finna.
Svipast um
eftir þýskum
göngumönnum
PILTUR á sautjánda ári fannst látinn í fjör-
unni fyrir neðan klettabelti rétt fyrir norð-
an Húsavík um miðjan dag í gær. Þá hafði
lögreglan á Húsavík og Björgunarsveitin
Garðar leitað hans í um klukkutíma.
Piltsins var saknað í gærmorgun, en síð-
ast sást til hans stuttu eftir miðnætti að-
faranótt sunnudags. Leit að honum hófst
um miðjan gærdaginn. Er talið að pilturinn
hafi látist af slysförum.
Piltur fannst
látinn á Húsavík
♦ ♦ ♦