Morgunblaðið - 17.03.2003, Síða 1
2003 MÁNUDAGUR 17. MARS BLAÐ C
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
JÓN ARNAR RÉTT MISSTI AF VERÐLAUNUM Á HM / C2
Öll mörkin voru skoruð í fyrrihálfleik. Sverrir Sverrisson
kom bikarmeisturum Fylkis yfir
strax á 8. mínútu. KR-ingar jöfnuðu
um miðjan hálfleikinn þegar einn
Árbæinganna sendi boltann í eigið
mark og Einar Þór Daníelsson skor-
aði sigurmark þeirra skömmu fyrir
leikhlé. Leikurinn var jafn og hraður
og lofaði góðu fyrir framhaldið hjá
liðunum.
„Ég er virkilega ánægður með
þennan sigur. Við KR-ingar lögðum
mikinn metnað í leikinn, enda um að
ræða bikar sem er á margan hátt eft-
irsóknarverður og það er erfiðara að
vinna sér rétt til að leika um hann en
nokkurn annan. Þetta var jafn leikur
og sigurinn gat lent hvorum megin
sem var og mér finnst hann sýna að
liðin eru mun nær því að vera komin í
góða leikæfingu fyrir sumarið en áð-
ur hefur þekkst á þessum árstíma.
Það getum við þakkað knattspyrnu-
húsunum, liðin hafa leikið mikið fleiri
leiki að vetrarlagi en áður og það
getur ekki annað en skilað sér þegar
fram í sækir,“ sagði Willum Þór
Þórsson, þjálfari KR, við Morgun-
blaðið eftir leikinn.
Morgunblaðið/Árni Torfason
Einar Þór Daníelsson, fyrirliði KR, lyftir meistarabikarnum í Egilshöllinni í gærkvöld en það var
einmitt hann sem skoraði sigurmark Íslandsmeistaranna gegn bikarmeisturunum.
Þriðji sigur KR-inga
í meistarakeppninni
KR-INGAR eru meistarar meistaranna í knattspyrnunni eftir sigur á
Fylki, 2:1, í Egilshöll í gærkvöld. Þeir tóku þar með við Sigurðarbik-
arnum, sem ekki hafði verið afhentur frá árinu 1998 þegar keppnin
fór síðast fram. Þetta er þriðji sigur KR í Meistarakeppni KSÍ en áð-
ur fögnuðu Vesturbæingar sigri í henni árin 1969 og 1996.
LANDSLIÐSMENNIRNIR í knatt-
spyrnu Jóhannes Karl Guðjónsson
hjá Aston Villa og Arnar Grétars-
son hjá Lokeren urðu báðir fyrir
meiðslum fyrir og um helgina.
Þeir telja þó báðir að þau komi
ekki til með að setja strik í reikn-
inginn hjá sér fyrir landsleikinn
gegn Skotum á Hampden Park 29.
mars.
Jóhannes Karl meiddist á æfingu
hjá Aston Villa á fimmtudag og
var því ekki í leikmannahópnum
gegn Manchester United í ensku
úrvalsdeildinni á laugardaginn.
„Ég sneri mig bæði á ökkla og
hné en sem betur fer er ekki um
alvarlega tognun að ræða,“ sagði
Jóhannes við Morgunblaðið í gær.
Arnar Grétarsson fór meiddur
af velli á laugardagskvöldið eftir
að hafa skorað tvívegis þegar
Lokeren sigraði Gent, 5:1, í belg-
ísku knattspyrnunni. „Ég fékk
spark aftan í hælinn og var aumur
þar fyrir vegna álagsmeiðsla.
Þetta tekur sennilega nokkra daga
að jafna sig, en þar sem hvorki er
um tognun né slit að ræða, er ég
viss um að ég geti spilað með
Lokeren næsta laugardag,“ sagði
Arnar.
Komast til
Glasgow
LEE Sharpe hefur ákveðið að
ganga að tilboði því sem Grindvík-
ingar gerðu honum og ætlar að
leika með þeim í sumar.
Sharpe kom hingað til lands fyr-
ir stuttu og leit á aðstæður og seg-
ir að sér hafi líkað vel það sem
hann sá og ákvað kappinn í kjöl-
farið að slá til. Sharpe hefur með-
al annars leikið með Manchester
United, Leeds United, Bradfrod,
Exeter og Sampdoria á Ítalíu.
Hann hefur ekkert leikið síðan
hann var á mála hjá Exeter í
þriðju deildinni ensku síðasta
haust.
Grindvíkingar eru ánægðir með
að fá kappann og segja að þó svo
hann hafi ekki leikið mikið að und-
anförnu muni hann styrkja liðið
mikið og telja hann verða mikla
lyftistöng fyrir íslenska knatt-
spyrnu.
Sharpe
með
Grindavík
í sumar