Morgunblaðið - 19.03.2003, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. MARS 2003 B 11
bílar
Fólks- og vörulyfta til sölu
Fólks- og vörulyfta fyrir 2 hæðir.
Burðargeta lyftu: 8 manns eða 1000 kg.
Hraði: 0,3 m/sek.
Stærð lyftuhólfs: Breidd 150 sm, dýpt 180 sm, lofthæð 215 sm.
Sveifluhurðir: Hurðaopnun, br. 100 sm og hæð 200 sm.
Lyftihæð: Hámark 320 sm.
Lyftan er smíðuð af HM-lyftum 1996.
HM-lyftur eru tilbúnar að setja upp lyftuna hvar á landi sem er
samkvæmt tilboði.
Allar nánari upplýsingar í síma 892 2175.
TÓMSTUNDAHÚSIÐ
Tilboð á völdum
stýrum
Nethyl 2 Reykjavík, sími 587 0600
www.glaciar.is
Glaciar Motorsport Varahlutir — hagstætt verð
Gabriel höggdeyfar, drifliðir,
drifliðshosur, vatnsdælur, vatnslásar,
stýrisendar, spindilkúlur, tímareimar,
sætaáklæði, ökuljós o.fl.
Bíldshöfða 14 • sími 567 6744
HJÓLASTILLUM JEPPA Á STÓRUM DEKKJUM
G.T. ÓSKARSSON
Vörubílavarahlutir
Vesturvör 23, 200 Kópavogi
sími 554 6000.
Bónstöð Reykjavíkur
Tilboð
Fólksbílar í alþrif
frá kr. 3.600
Smiðjuvegi 5,
Kóp. - grá gata
Sími 551 7740
Gallerý Bón
Grensásvegi 11 (Skeifumegin) sími 577 5000
Alþrif • innanþrif • hraðþvottur • teflon
mössun og djúphreinsun
Tökum breytta bíla allt að 44“
Allt handunnið
Bílaleigan Berg ehf.,
Bíldshöfða 10, 110 Reykjavík
Sími 577 6050
Fax 567 9195
Netf: berg@carrental-berg.com
www. carrental-berg.com
Frábær 3 daga tilboð, verð frá kr. 8.700*
Hafðu samband og kynntu þér málið
*Bíll í S-flokki, 300 km, vsk + tryggingar
Öryggi alla leið !
Sími 535 9000
YFIRVOFANDI hætta á stríðs-
átökum í Írak ógnar ekki kapp-
akstrinum í Sepang í Malasíu um
helgina, að sögn Alþjóðaaksturs-
íþróttasambandsins (FIA).
Kappaksturinn í Sepang verður
haldinn um helgina þótt hernaðar-
átök hafi brotist út í Írak. Hefur
FIA engar vararáðstafanir gert,
eins og að halda mótið annars stað-
ar, segir enga ástæðu til þess og
mótið fari fram eins og ekkert hafi í
skorist.
Hryðjuverkaárásirnar á Banda-
ríkin í september 2001 urðu ekki til
þess að koma í veg fyrir að banda-
ríski kappaksturinn í Indianapolis
yrði haldinn hálfum mánuði seinna.
Reuters
Ferrari-menn við Formúlu 1-bíl liðsins á brautinni í Sepang í Malasíu þar sem
önnur keppni ársins fer fram um næstu helgi.
Stríðshætta ógnar ekki
keppninni í Malasíu
DAMON Hill, fyrrverandi heimsmeistari í
Formúlu-1, telur Ferrariliðið ekki lengur
njóta yfirburða eins og í fyrra og telur að
kappaksturinn í Sepang í Malasíu um komandi
helgi geti orðið enn tvísýnni en Ástralíukapp-
aksturinn fyrir 10 dögum.
„Ljóst var að hin afburða góða röð sigra og
verðlaunapallsæta Michaels [Schumacher]
tæki einhvern tíma enda og það er fyrirtak að
það skyldi eiga sér stað í fyrsta móti ársins því
með því vinnur íþróttin áhangendur aftur á
sitt band.
Ég þykist vita að Michael fór frá mótinu viss
um að sigurinn hefði átt að falla honum í skaut
en mér sýndist Ferrari ekki svo sterkt. Þeir
voru með mun minni bensínhleðslu en
McLaren-þórarnir og því ætti að verða mun
minni munur á liðunum í næsta móti,“ segir
Hill við breska blaðið The Sun um helgina.
„Í seinni tíð hefur ökuþórinn sem unnið hef-
ur fyrsta mótið orðið heimsmeistari,“ bætir
Hill við og vísar með því til tölfræðinnar sem
er hliðholl David Coulthard, sigurvegaranum í
Melbourne, sakir þess að þeir sem hafa unnið
fyrsta mót allt frá 1990 hafa orðið heimsmeist-
arar ökuþórar það árið.
„Sigur Davids var ekki fyrirtak bara vegna
þess að hann fær fullt hús stiga í fyrsta móti,
heldur hvernig hann vann. Hann hóf keppni á
11. rásstað, fór inn í bílskúr eftir aðeins tvo
hringi til að skipta um dekk, kom aftur út í síð-
asta sæti og ók síðan til sigurs. Það er hrikaleg
andleg uppörvun að hefja baráttuna með slík-
um hætti,“ segir Hill í samtalinu við The Sun.
„Það má vera að vertíðin sé bara að byrja og
við þekkjum öll að Michael [Schumacher] og
Ferrari-liðið verða ekki auðveld viðureignar.
En ég hef trú á því að David hafi nú þroskast í
raunverulegan titilkeppinaut. Akstur hans og
ögun í Melbourne voru táknmerki upprenn-
andi heimsmeistara.
Hann hélt haus meðan allir hinir, sem gátu
unnið, gerðu mistök.
Hið eina sem við vitum ekki um David er
hvernig hann kemur til með að rísa undir álagi
komi til tvísýnnar titilbaráttu. Pressan á mér í
lokamótunum er ég vann titilinn var gríðarleg
en ég lifði hana af. Ég held að það sé mun
meira gefandi að verða meistari þar sem mað-
ur þarf að berjast alla leið, tommu fyrir
tommu, en vinna auðveldlega sigur á sigur of-
an. Ekki síst þegar keppnin er frá liðsfélaga,“
segir Hill, sem varð heimsmeistari ökuþóra
1996 á Williamsbíl.
Damon Hill spáir jafn-
ari keppni í Malasíu
! "# $% &
' ( ##&
)*+$!(!(,##
-./,
0%%.#
122* %
122* !&.(
'!!&.(
'$!3$%*4
'$!3$5!&
!(,##
!(,## !"
##$.!&$%6 #"
7*4&6.8.$%* !$%68.$%!!#!"
$$
%$
& ' & ( )
& & * + &
' ( ) , ( - * + &
# $%
*$.
/ $ 0 $
.
1
'&
1 2
3 45 6 $
7 $89: ; ! !! " #$% "& '
<=8%>