Morgunblaðið - 20.03.2003, Page 1
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS FIMMTUDAGUR 20. MARS 2003 Á netinu mbl.is/vidskipti BLAÐ B
VIÐSKIPTABLAÐ MORGUNBLAÐSINS
S É R B L A Ð Á F I M M T U D Ö G U M U M V I Ð S K I P T I , S J Á V A R Ú T V E G & A T H A F N A L Í F
FYRIRTÆKI VIÐSKIPTI FISKVINNSLA
Samkeppni olíufélaga
á Íslandi er miklu
meiri en fólk gerir sér
almennt grein fyrir.
Fá fyrirtæki hafa vaxið eins hratt
hér á landi og lyfjafyrirtækin
Delta og Pharmaco.
Tæknivæddasta hausa-
þurrkun í heimi hefur
hafið störf hjá Lauga-
fiski á Akranesi.
ÆTLUM/4 ÆVINTÝRALEGAR/6 HÁTÆKNI/11
SAMRÆMD vísitala neysluverðs í EES-
ríkjum var 112,3 stig í febrúar sl. og hækk-
aði um 0,4% frá janúar. Á sama tíma var
samræmda vísitalan fyrir Ísland 124,0 stig
og lækkaði um 0,2% frá fyrra mánuði.
Frá febrúar 2002 til jafnlengdar árið
2003 var verðbólgan, mæld með sam-
ræmdri vísitölu neysluverðs, 2,3% að með-
altali í ríkjum EES, 2,4% á evrusvæðinu og
1,1% á Íslandi.
Mesta verðbólga á evrópska efnahags-
svæðinu á þessu tólf mánaða tímabili var á
Írlandi, 5,1%, og 4,2% í Grikklandi. Verð-
bólgan var minnst á Íslandi, 1,1%, og í
Þýskalandi, 1,3%.
V E R Ð L A G
Verðbólga á
Íslandi með
þeirri lægstu
í Evrópu
!"
#$%
&
$' ( ( )*
+$,$+
'
--%.//.-%.//0
1
2
2
2
&$3&
- ALLS voru flutt út 28 þúsund
tonn af óunnum fiski frá Íslandi á
síðasta fiskveiðiári eða tæp 6% af
heildarbotnfisksafla ársins. Mest
var flutt út af óunnum karfa á síð-
asta fiskveiðiári, alls um 9.600
tonn, sem bæði voru flutt út ísuð í
gámum og með veiðiskipum.
Hlutfallslega mest af óunnum
fiski er flutt utan frá Vestmanna-
eyjum.
Það eru tæp 15% af heildar-
karfaafla síðasta fiskveiðiárs. Þá
voru flutt út um 5.700 tonn af
óunnum þorski sem eru tæp 3%
af þorskafla tímabilsins. Eins
voru flutt út um 4.300 tonn af
óunninni ýsu eða rúm 10% heild-
araflans.
Þetta kom fram í svari sjávar-
útvegsráðherra við fyrirspurn
Einars Kristins Guðfinnssonar
alþingismanns um útflutning á
óunnum fiski.
40% af heildinni
Langmest var flutt út frá Vest-
mannaeyjum eða 11 þúsund tonn
sem eru um 40% af heildarút-
flutningnum. Alls voru flutt út
tæp 1.500 tonn af óunnum þorski
frá Vestmannaeyjum sem eru
tæp 16% þess þorskafla sem land-
að var í Eyjum á síðasta fiskveiði-
ári. Eins kemur fram í svari sjáv-
arútvegsráðherra að tæp 2.200
tonn af ýsu voru flutt út óunnin
frá Vestmannaeyjum á tímabilinu
eða nærri 70% þess ýsuafla sem
þar var landað, samkvæmt afla-
tölum Fiskistofu. Þess ber þó að
geta að í svari sjávarútvegsráð-
herra er miðað við heimahöfn við-
komandi skipa og fyrirtækja en
aflatölur Fiskistofu taka mið af
löndunarhöfn.
Næstmest var flutt út af óunn-
um fiski frá Reykjavík á síðasta
fiskveiðiári eða rúm 2.800 tonn.
Það sem af er yfirstandandi
fiskveiðiári er búið að flytja út um
15.000 tonn af óunnum fiski, þar
af um 4.500 tonn af karfa og tæp
2.700 tonn af þorski. Um 5.600
tonn hafa verið flutt út frá Vest-
mannaeyjum á fiskveiðiárinu en
um 1.700 tonn frá Grundarfirði.
Einar Kristinn segir tölurnar
sýna að íslensk fiskvinnsla eigi
þess ekki kost að bjóða í umtals-
verðan hluta þess botnfiskafla
sem sé til ráðstöfunar af Íslands-
miðum. Það skipti máli með hvaða
hætti þessi afli sé nýttur til sem
mestrar verðmætasköpunar fyrir
landið. Hann segir að búa þurfi
þannig um hnútana að fiskvinnsl-
an í landinu eigi sömu möguleika
á að kaupa þennan fisk en þó á
sambærilegu verði og fiskvinnsla
erlendis.
Selja hæstbjóðanda
Sjávarútvegsráðherra gaf nýver-
ið út reglugerð sem kvað á um að
tilkynna skuli fyrirhugaðan út-
flutning á óunnum og óvigtuðum
afla sem fluttur er á erlendan
uppboðsmarkað með 24 tíma fyr-
irvara. Fiskverkendur hafa sagt
að þessi tilkynningaskylda breyti
engu um aðgang þeirra að hráefn-
inu en Einar Kristinn segist
þeirrar skoðunar að þar sé um að
ræða skref í rétta átt. „Það er
fullkomlega eðlilegt að útgerðin
selji afla sinn hæstbjóðanda en ég
tel að það sé sömuleiðis eðlilegt að
íslensk fiskvinnsla fái þá tækifæri
til að greiða jafnhátt verð. Að
mínu mati ætti að vera hægt, án
mikilla vandkvæða, að bjóða
þennan afla upp hérlendis, í gegn-
um fjarskiptamarkaði. Erlendir
fiskkaupendur hefðu þá einnig
möguleika á að bjóða í fiskinn til
jafns við íslenska, og um leið væri
tryggt hæsta verð fyrir aflann.“
Tæp 70% af ýsu Eyja-
manna óunnin úr landi
9.600 tonn af óunnum karfa flutt utan til Þýzkalands á síðasta ári eða 15% karfaaflans
Morgunblaðið/Þorgeir
Alls voru flutt út 28 þúsund tonn af óunnum fiski frá Íslandi á síðasta fisk-
veiðiári eða tæp 6% af heildarbotnfisksafla ársins.
Miðopna: Ævintýralegar breytingar