Morgunblaðið - 23.03.2003, Blaðsíða 1
Sunnudagur
23.mars 2003
atvinnatilboðútboðfundirtilsölutilleigutilkynningarkennslahúsnæðiþjónustauppboð
mbl.is/atvinna Gestir í vikunni 8.799 Innlit 16.828 Flettingar 70.638 Heimild: Samræmd vefmæling
LOKSINS Á ÍSLANDI
Viltu verða hluti af öflugu MAC teymi
sem fer ótroðnar slóðir við sölu á snyrti-
vörum? MAC óskar eftir að ráða starfs-
mann í verslun sína í Debenhams,
Smáralind, sem verður opnuð í maí.
Í boði er spennandi starf fyrir metnaðar-
fullan og hugmyndaríkan einstakling.
Menntun og reynsla á sviði förðunar er
skilyrði.
Viðkomandi þarf að búa yfir miklum sölu-
hæfileikum, frumkvæði, eiga auðvelt
með mannleg samskipti og hafa líflega
framkomu. Enskukunnátta er æskileg.
Umsóknarfrestur er til 26. mars.
Umsækjendur eru vinsamlega beðnir að
senda umsókn sína með mynd ásamt
ferilskrá í pósthólf 293, 121 Reykjavík.
RÍKISLÖGREGLUSTJÓRINN
Sumarafleysingar
í lögreglu árið 2003
Eins og verið hefur undanfarin ár þarf í
sumar að ráða í nokkrar stöður lögreglu-
manna vegna sumarafleysinga. Afleys-
ingamenn verða ráðnir hjá flestum
embættum á landinu, þó ekki í Reykjavík,
þar sem nemar Lögregluskóla ríkisins
munu leysa afleysingaþörfina þar.
Nánari upplýsingar um þörf á afleysinga-
mönnum hjá einstaka embættum fást hjá
viðkomandi embættum.
Umsækjendur, sem ekki hafa próf frá Lögreglu-
skóla ríkisins, skulu fullnægja skilyrðum 2.
mgr. 38. gr. lögreglulaga nr. 90/1996 og þurfa
að standast inntökupróf, hafi þeir ekki ekki
starfað við afleysingar innan árs frá því að þeir
hefja störf að nýju. Áður en afleysingamenn,
sem ekki hafa lokið prófi frá Lögregluskóla rík-
isins, hefja störf, þurfa þeir að sitja undirbún-
ingsnámskeið, hafi þeir ekki starfað áður í lög-
reglu. Inntökupróf fyrir þá sem uppfylla almenn
skilyrði verða haldin hjá Lögregluskóla ríkisins,
Krókhálsi 5a, 110, Reykjavík, mánudaginn
5. maí 2003. (Inntökuprófin gilda jafnframt sem
inntökupróf í Lögregluskóla ríkisins í eitt ár frá
prófdegi, sæki viðkomandi um inngöngu í skól-
ann á því tímabili, en valnefnd Lögregluskólans
velur nema með hliðsjón af niðurstöðum prófa
og viðtölum við umsækjendur).
Námskeið fyrir sumarafleysingamenn og
héraðslögreglumenn verða haldin í Lög-
regluskólanum síðari hlutann í maí, nánari
tímasetning verður ákveðin síðar.
Umsóknum skal skilað til viðkomandi embættis
fyrir 1. apríl 2003 á sérstökum eyðublöðum
sem fást hjá öllum lögreglustjórum, annars
vegar fyrir þá, sem lokið hafa prófi frá Lög-
regluskólanum, og hins vegar fyrir þá, sem
ekki hafa próf frá Lögregluskólanum.
Einnig er hægt að nálgast eyðublöðin á lög-
regluvefnum, www.logreglan.is, undir liðnum
„Eyðublöð”.
Nánari upplýsingar um inntökupróf er hægt
að nálsgast á lögregluvefnum undir Lögreglu-
skóli ríkisins/Inntaka nýnema.
Konur jafnt sem karlar eru hvattar til að
sækja um.
Reykjavík, 17. mars 2003.
Ríkislögreglustjórinn.
Kennarar
Íþróttakennari
— æskulýðs- og tómstundafulltrúi
Vilt þú njóta þeirrar sérstöðu sem landsbyggð-
in hefur uppá að bjóða og kenna í einsetnum
grunnskóla í Vík í Mýrdal (85 nemendur í
1.—10. bekk)?
Hæfilegur fjöldi nemenda í námshópi.
Nýtt tölvuver, góða verkmenntaaðstaða.
Góður starfsandi og vinnuaðastaða.
Öflugt félagslíf.
Launauppbætur og húsnæðisfríðindi.
Gott úrval íbúða.
Fluttningsstyrkur.
Nýtt og glæsilegt íþróttahús.
Góður knattspyrnuvöllur.
Golfvöllur.
Annað sem gott er að vita:
Góður leikskóli, tónlistarskóli og örugg heilsu-
gæsla.
Stutt í höfuðstaðinn (2 klst. akstur).
Frábært náttúrufar og fegurð.
Fjölbreyttir möguleikar fyrir fólk með ferskar
hugmyndir.
Góðar samgöngur og öflug ferðaþjónusta.
Fjölbreytt úrval annarrar atvinnu.
Við leitum að áhugasömum kennara í kennslu
á yngsta og miðstigi, íþróttir, ensku, listgreinar
og sérkennslu. Ýmislegt annað kemur einnig
til greina.
Nánari upplýsingar gefa: Skólastjóri, Kolbrún
Hjörleifsdóttir, í síma 487 1242, netfang: kol-
brun@ismennt.is og sveitarstjóri, Sveinn Páls-
son, í síma 487 1210.
Umsóknarfrestur til 15.apríl. Yfirlit yfir nám
og störf auk meðmæla skulu fylgja umsókn.
Norræni
heilbrigðisháskólinn
í Gautaborg, Svíþjóð, óskar eftir
Skrifstofustjóra
Ráðning sem fyrst. Nánari upplýsingar á:
www.nhv.se
Umsóknarfrestur er til 4. apríl 2003.
Sölumaður fasteigna
Öflug og kraftmikil fasteignasala á höfuðborg-
arsvæðinu óskar að ráða duglegan og samn-
ingslipran sölumann til starfa sem fyrst.
Viðkomandi þarf að hafa óflekkað mannorð
og reynslu af sölu fasteigna.
Samviskusemi og hæfni í mannlegum sam-
skiptum eru skilyrði.
Starfið hentar jafnt körlum sem konum.
Áhugasamir leggi inn umsókn með helstu upp-
lýsingum á auglýsingadeild Mbl., merkta:
„Ó — 13476“.