Morgunblaðið - 24.03.2003, Blaðsíða 1
2003 MÁNUDAGUR 24. MARS BLAÐ B
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
UNGT LIÐ BLIKA MEISTARAR MEISTARANNA / B12
Morgunblaðið/Sigfús Gunnar Guðmundssson
Íris Edda Heimsdóttir sló í gær 14 ára gamalt Íslandsmet
Ragnheiðar Runólfsdóttur í 200 metra bringusundi í Vest-
mannaeyjum – synti á 2.30,93 mín., gamla metið var 2.32,35.
MAGNÚS Gylfason, þjálfari úrvals-
deildarliðs ÍBV, sagði í gær að ekk-
ert væri hæft í frétt hollenska net-
miðilsins Voetbal International þess
efnis að félagið hefði samið við hinn
23 ára gamall Hollending, Jeroen
van Wetten, til tveggja ára.
„Ég hef ekki enn séð leikmanninn
en það rétta er að hann mun koma
til landsins næsta sunnudag til
reynslu. Það er langur vegur frá því
að búið sé að semja við leikmann-
inn,“ sagði Magnús en fjölmiðlar í
Hollandi og Þýskalandi höfðu haft
samband við hann í gær vegna
fréttar hollenska netmiðilsins.
Wetten er markahæsti leikmaður
varaliðs úrvalsdeildarfélagsins
Roosendaal, en hefur fengið fá
tækifæri með aðalliði félagsins og
aðeins spilað með því tvo deildaleiki
í vetur og tvo á síðasta tímabili.
ÍBV fær
Hollending
til reynslu
TRYGGVI Guðmundsson,
knattspyrnumaður hjá
norska liðinu Stabæk, segir
við Verdens Gang að hann
hafi hug á því að reyna fyrir
sér á öðrum vígstöðvum eft-
ir að samningur hans við fé-
lagið rennur út í lok ársins.
„Ef ég fæ tækifæri til
þess að leika í öðru landi þá
mun ég taka því,“ segir
Tryggvi en hann er launa-
hæsti leikmaður liðsins
ásamt fyrirliðanum Martin
Andresen. Tryggvi hefur
ekki rætt við Stabæk um
framhaldið og eru litlar lík-
ur á því að félagið geti boðið
honum sömu kjör og áður.
Gaute Larsen, þjálfari
liðsins, segir að hann eigi
von á góðu tímabili hjá
Tryggva sem skoraði sam-
tals 25 mörk á sl. leiktíð í
deild, bikar og Evr-
ópukeppni. „Gengi okkar er
háð því hvernig Tryggva
tekst til fyrir framan mark-
ið og við vonumst til þess að
hann skori þetta 10–15
mörk í deildinni og mark-
miðið er að liðið nái í 45 stig
í deildakeppninni. Það ætti
að duga til verðlauna að
þessu sinni og ég tel að
norska deildin verði mun
jafnari að þessu sinni en
undanfarin ár,“ segir Lar-
sen en telur samt sem áður
að Rosenborg muni fagna
titlinum, tólfta árið í röð.
Tryggvi vill
fara frá
Stabæk
Eftir því sem komist verður næstmeiddist Heiðmar á nára í leik
Bidasoa og Barcelona í spænsku 1.
deildinni á laugardaginn, sem
Bidasoa tapaði 31:19. Óttast er að
einhverjir vöðvar eða festingar hafi
slitnað, a.m.k. var útlitið ekki bjart
eftir því sem Morgunblaðið komst
næst í gærkvöldi, en þrátt fyrir
ítrekaðar tilraunir náðist ekki í
Heiðmar.
Heiðmar hefur leikið vel með
Bidasoa í vetur en liðið er rétt fyrir
neðan miðja deild og stefnir að því
að styrkja sig fyrir næstu leiktíð og
hefur m.a. gert samning við Patrek
Jóhannesson, landsliðsmann hjá
Tusem Essen.
Heiðmar kom á ný inn í íslenska
landsliðið í handknattleik í vetur eft-
ir að meiðsl í öxl héldu honum frá
landsliðinu tímabilið á undan þegar
hann lék hér heima og varð Íslands-
meistari með KA sl. vor. Hann lék
með landsliðinu á heimsmeistara-
mótinu í Portúgal, en fékk ekki frí til
þess að leika með því í vináttulands-
leiknum í Berlín á laugardaginn.
Heiðmar er
illa meiddur
HEIÐMAR Felixson, landsliðsmaður í handknattleik, meiddist
illa um helgina í leik með liði sínu Bidasoa á Spáni. Verður hann
frá keppni um nokkurn tíma og svo kann jafnvel að fara að hann
leiki ekki meira með Bidasoa það sem eftir er leiktíðar á Spáni
en henni lýkur síðari hlutann í maí.