Morgunblaðið - 25.03.2003, Blaðsíða 10
FRÉTTIR
10 ÞRIÐJUDAGUR 25. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
TILBOÐ í Héðinsfjarðargöng verða opnuð 30.
maí næstkomandi en nokkrir verktakar taka
þar þátt eftir forval. Í Framkvæmdafréttum
Vegagerðarinnar er birt meðfylgjandi kort
sem sýnir legu ganganna í gegnum Trölla-
skagann.
Alls eru þau 10,6 km löng í tveimur hlutum,
annars vegar 3,7 km milli Siglufjarðar og
Héðinsfjarðar og hins vegar 6,9 km milli Héð-
insfjarðar og Ólafsfjarðar. Reiknað er með að
framkvæmdum verði lokið síðla árs 2008 og
leiðin milli Siglufjarðar og Ólafsfjarðar verð-
ur þá 15 km löng.
Til samanburðar eru rúmir 60 km í dag
milli staðanna ef farið er um Lágheiði. Kostn-
aður er áætlaður á bilinu 6–7 milljarðar
króna.
Við alla gangaenda verða byggðir steyptir
vegskálar, byggja þarf nýjan veg í Siglufirði,
alls um 2 km, og 600 metra vegi í Héðinsfirði
og Ólafsfirði. Þá verða tvær brýr byggðar, yf-
ir Fjarðará í Siglufirði og Héðinsfjarðará, en
ný brú yfir Ólafsfjarðará er í sérstöku útboði.
Í Framkvæmdafréttum segir að vegna við-
kvæms umhverfis í Héðinsfirði, ásamt tak-
mörkunum á umferð þar, skal verktaki aðeins
halda úti lágmarksaðstöðu á verktíma.
%1&2
Héðinsfjarðargöng verða 10,6 km löng
ÁHRIF umbóta í rík-
isrekstri árin 1991 til
2000 er efni málþings
sem Félag forstöðu-
manna ríkisstofnana
og Stofnun stjórn-
sýslufræða og stjórn-
mála efna til sameig-
inlega að morgni
föstudags. Aðalfyrir-
lesturinn flytur Ómar
H. Kristmundsson
stjórnsýslufræðingur
en hann fjallar um
áhrif sem alþjóðleg
umbótahreyfing í rík-
isrekstri hafði á Ís-
landi, hverjar þær
voru og hverju þær
skiluðu og hvað læra má af því við
innleiðingu nýrra stjórnarhátta í
opinberum stofnunum.
Í fyrirlestri sínum mun Ómar
leita svara við ofangreindum spurn-
ingum og ýmsir sem stýrðu eða
komu við sögu er umbótum var
komið á munu fjalla um niðurstöð-
urnar, líta til baka og meta reynsl-
una.
Í þeim umræðum taka þátt þeir
Friðrik Sophusson, forstjóri Lands-
virkjunar, sem þá var fjármálaráð-
herra, Magnús Pétursson, forstjóri
Landspítala – háskólasjúkrahúss og
fyrrverandi ráðuneytisstjóri fjár-
málaráðuneytis, Sigurður Þórðar-
son ríkisendurskoðandi, Þorkell
Helgason, forstjóri
Orkustofnunar, og
Birgir Björn Sigur-
jónsson, forstöðumað-
ur hjá Reykjavíkur-
borg, sem kom að
mörgum þessara um-
bóta sem fram-
kvæmdastjóri Banda-
lags háskólamanna.
Umræðustjóri verður
Guðríður Sigurðar-
dóttir, forstöðumaður
Þjóðmenningarhúss.
Fram kemur í frétt
frá aðstandendum
málþingsins að breyt-
ingar hafi víða átt sér
stað í stjórnunarhátt-
um hins opinbera. Þær miði að því
að auka skilvirkni og gæði opin-
berrar þjónustu með því að taka
upp stjórnunaraðferðir einkageir-
ans.
Fyrsta stefna sinnar
tegundar í Stjórnarráðinu
Ómar H. Kristmundsson segir að
erindi sitt fjalli um umbótastefnu
fjármálaráðherra sem mótuð hafi
verið í upphafi tíunda áratugar 20.
aldar. Stefnan hafi verið sú fyrsta
sinnar tegundar í sögu Stjórnar-
ráðsins og hafi efnahagssamsdrátt-
ur, hallarekstur ríkissjóðs og
vandamál í stjórnsýslu ríkisins leitt
til þess að umbætur í ríkisrekstri
hafi verið settar á oddinn. Nýskip-
unarstefnan hafi m.a. falist í
breyttri fjárlagagerð, nýju lagaum-
hverfi í starfsmannamálum, nýju
launakerfi, árangursstjórnun,
einkavæðingu og nýrri útboðs-
stefnu. Í þessum kenningum end-
urspeglist þau viðhorf að markaðs-
væða þurfi opinberan rekstur og
segir Ómar að rætt verði um nið-
urstöður doktorsritgerðar hans um
hvernig tekist hafi að færa hingað
til lands þessar erlendu hugmyndir
og laga þær að íslenskri stjórn-
sýslu. Sérstaklega verður rætt
hvaða þættir hafa áhrif á hvort vel
eða illa tekst til við framkvæmd
slíkra umbótaverkefna.
„Skoðað verður hvort stærð ís-
lenskra ríkisstofnana, í ársverkum
talið, hafi áhrif á möguleika þeirra
til að taka upp nýjar stjórnunar-
aðferðir, hvort fylgni sé milli
stefnufestu stjórnmála- og embætt-
ismanna og framvindu verkefna og
hversu miklu máli aðlögun nýrra
stjórnunaraðferða að aðstæðum
hverju sinni skiptir varðandi árang-
ur þeirra,“ segir Ómar. „Einnig
verður rætt um mikilvægi þjónustu-
mats við undirbúning og fram-
kvæmd nýrra verkefna af þessu
tagi.“
Málþingið verður sem fyrr segir
næstkomandi föstudag á Grand-
hóteli í Reykjavík og stendur frá kl.
8 til 10.30.
Málþing um umbætur
í ríkisrekstri á Íslandi
Ómar H.
Kristmundsson
LANDSFUNDUR Sjálfstæðis-
flokksins, sá 35. í röðinni, fer fram í
Laugardalshöll um næstu helgi.
Fundurinn hefst síðdegis fimmtu-
daginn 27. mars með ræðu Davíðs
Oddssonar, formanns Sjálfstæðis-
flokksins og forsætisráðherra, og
honum lýkur einnig með ávarpi for-
manns flokksins að loknum kosning-
um og afgreiðslu ályktana síðdegis
sunnudaginn 30. mars. Slagorð
landsfundar að þessu sinni er
„Áfram Ísland“.
Að sögn Kjartans Gunnarssonar,
framkvæmdastjóra Sjálfstæðis-
flokksins, er von á ríflega 1.100
flokksmönnum á landsfundinn, sem
löngum hefur verið með fjölmenn-
ustu samkomum af þessu tagi hér á
landi. Er þetta svipaður fjöldi og á
síðasta landsfundi fyrir tveimur ár-
um. Kjartan segir undirbúninginn
hafa gengið mjög vel, sem hefur ver-
ið í höndum starfsfólks flokksins í
Valhöll og sjálfstæðisfélaganna um
land allt. Að meðtöldu starfi mál-
efnanefnda, sem unnið hafa að drög-
um að ályktunum frá því fyrir ára-
mót, eru þetta nokkur hundruð
manna. Drögin og ýmsar aðrar upp-
lýsingar um landsfundinn er að finna
á vefsíðu Sjálfstæðisflokksins,
www.xd.is.
Aðspurður hvernig sjálfstæðis-
menn gangi stemmdir til landsfund-
ar segir Kjartan mikinn hug vera í
fólki. Fylgiskannanir að undanförnu,
sem mælt hafa flokkinn undir kjör-
fylgi, geri ekki annað en að brýna
menn til að standa sig vel í komandi
kosningabaráttu. „Menn einhenda
sér í það að vinna ennþá betur og
meira,“ segir Kjartan.
Dagskrá landsfundar er að flestu
leyti með hefðbundnu sniði. Auk
starfshópa, sem munu afgreiða
ályktanir frá fundinum á laugardag
og sunnudag, verða ráðherrar
flokksins með fyrirspurnartíma að
morgni föstudags og eftir hádegi
sama dag flytur Kjartan skýrslu um
starfsemi Sjálfstæðisflokksins. Síð-
degis á föstudag verður það nýmæli
á landsfundi að ungir háskólanemar
munu halda framsöguerindi um
framtíð Íslands.
Þetta eru þau Áslaug Hulda Jóns-
dóttir frá Kennaraháskóla Íslands,
Birgir Stefánsson úr Viðskiptahá-
skólanum í Bifröst, Heiðrún Lind
Marteinsdóttir, Háskólanum í
Reykjavík, Steinunn Vala Sigfús-
dóttir, Háskóla Íslands, og Sverrir
Haraldsson, sem nemur við Háskól-
ann á Akureyri. Kosning á ellefu
manns í miðstjórn fer fram á sunnu-
dag auk kosninga á formanni og
varaformanni flokksins.
Slagorð landsfundar Sjálfstæðisflokksins um næstu helgi verður „Áfram Ísland“
Von á 1.100 manns
í Laugardalshöll
TENGLAR
.....................................................
www.xd.is
ALLS 45 manns hafa greitt at-
kvæði utan kjörfundar hjá
Sýslumanninum í Reykjavík en
mun færri víða annars staðar á
landinu. Utankjörfundarat-
kvæðagreiðsla vegna komandi
alþingiskosninga hófst 15. mars
sl. Adólf Adólfsson, hjá sýslu-
mannsembættinu í Reykjavík,
segir að fleiri hafi greitt at-
kvæði utan kjörfundar í
Reykjavík nú en á svipuðum
tíma fyrir síðustu alþingiskosn-
ingar. „Þetta fer því óvenju
hratt af stað núna,“ segir hann.
Samkvæmt upplýsingum frá
Hagstofu Íslands voru 9,5%
greiddra atkvæða utankjör-
fundaratkvæði í alþingiskosn-
ingunum 1999. Hlutfallið var
8,6 árið 1995 og 8,8 árið 1991.
Kjósendur sem ekki geta
kosið á kjördag geta kosið utan
kjörfundar fram til kjördags,
10. maí. Atkvæðagreiðslan fer
fram hjá sýslumönnum um allt
land, en einnig getur hún farið
fram um borð í íslenskum skip-
um, á sjúkrahúsum og á dvalar-
og vistheimilum svo dæmi séu
nefnd. Þá fer hún fram hjá
sendiráðum Íslands erlendis,
hjá fastanefnd Íslands hjá Evr-
ópuráðinu og hjá aðalræðis-
skrifstofum í New York og
Winnipeg. Nánari upplýsingar
má finna á vefsetrinu
www.kosning2003.is.
„Fer hratt
af stað“
Utankjörfundar-
atkvæðagreiðsla
FRAMBOÐSLISTI Frjálslynda
flokksins í Suðvesturkjördæmi í al-
þingiskosningunum hefur verið birt-
ur. Eftirtaldir skipa 10 efstu sæti og
heiðurssæti:
1. sæti Gunnar Örlygsson (31),
sölumaður, Kjalarnesi, 2. sæti Sig-
urlín Margrét Sigurðardóttir (38),
táknmálskennari, Garðabæ, 3. sæti
Guðmundur Örn Jónsson (33), verk-
fræðingur MBA, Kópavogi, 4. sæti
Guðrún María Óskarsdóttir (43),
skólaliði, Hafnarfirði, 5. sæti Stein-
þór Ólafsson (52), leiðsögumaður,
Kópavogi, 6. sæti Kristín S. Helga-
dóttir (34), kennari, Hafnarfirði, 7.
sæti Trausti Hólm Jónasson (56),
rafvirki, Hafnarfirði, 8. sæti Pétur
Guðmundsson (58), form. Samtaka
selabænda, Kópavogi, 9. sæti Ást-
hildur Sveinsdóttir (55), þýðandi,
Hafnarfirði, 10. sæti Árelíus Þórð-
arson (40), stýrimaður, Hafnarfirði.
Heiðurssæti Helgi G. Þórðarson
(74), verkfræðingur, Hafnarfirði.
Listi Frjáls-
lynda flokksins
í Suðvestur-
kjördæmi
LÖGREGLAN í Reykjavík rannsak-
ar nú kæru um tilraun til nauðgunar
sem kona á áttræðisaldri lagði fram
gegn karlmanni á sjötugsaldri. Karl-
maðurinn starfar sem n.k. húsvörður
í fjölbýlishúsinu þar sem konan er
búsett.
Hörður Jóhannesson, yfirlög-
regluþjónn í Reykjavík, segir að
kæran hafi verið lögð fram um síð-
ustu mánaðamót. Maðurinn var
handtekinn og yfirheyrður en sleppt
að því loknu.
Kærði húsvörð
fyrir tilraun
til nauðgunar
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
TVEIR lögreglumenn í Reykjavík
hafa nú verið leystir undan vinnu-
skyldu í kjölfar þess að ungur maður
og par kærðu framgöngu lögregl-
unnar þegar þau voru handtekin í
miðborg Reykjavíkur 8. og 9. mars
sl. Sá fyrri var leystur undan vinnu-
skyldu 18. mars en sá seinni síðast-
liðinn föstudag.
Geir Jón Þórisson, yfirlögreglu-
þjónn í Reykjavík, segir að tilkynn-
ing hafi borist frá ríkislögreglustjóra
að til athugunar væri að leysa mann-
inn tímabundið frá störfum meðan
ríkissaksóknari rannsakaði mál
hans. Maðurinn fær greidd laun en
mætir ekki til vinnu. Kærurnar lúta
annars vegar að því að ungur maður
var handtekinn á skyndibitastað fyr-
ir að taka mynd af lögreglumanni og
hins vegar að því að varnarúða var
m.a. beitt þegar par var handtekið.
Lögreglu-
maður leystur
undan vinnu-
skyldu