Morgunblaðið - 27.03.2003, Blaðsíða 23
STRÍÐ Í ÍRAK
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. MARS 2003 23
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
SP
V
20
52
6
03
/2
00
3
hjá okkur.
Þú ert
Sérhverviðskiptavinur
og allt, sem tengist fjármálum hans, hefur meira
vægi hjá SPV en hjá stórum fjármálastofnunum.
Þjónusta SPV er alhliða og fagleg og byggir á
persónulegri þekkingu á óskum og þörfum hvers
viðskiptavinar.
Við stöndum þétt við bakið á viðskipta-
vinum okkar því velgengni þeirra
skiptir okkur öllu máli. Styrkur okkar
er traust og örugg fjármálaþjónusta
sem þú getur nýtt þér til vaxtar.
Verið velkomin í afgreiðslustaði okkar í
Borgartúni 18, Hraunbæ 119 og Síðumúla 1,
eða fáið upplýsingar í síma 5754100 og
á heimasíðu okkar, sem erwww.spv.is
ÍGOR Ívanov, utanríkisráðherra
Rússlands, hvatti í gær Bandaríkja-
menn til að stöðva stríðsreksturinn í
Írak „eins fljótt og unnt er og snúa
sér aftur að því að láta alþjóðalög
ráða og ná fram raunverulegri lausn
á Íraksmálinu á grundvelli ályktana
öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna.“
Interfax-fréttastofan rússneska
hafði eftir Ívanov að með hernaðin-
um í Írak væri ekki verið að frelsa
þjóðina. Stríð bandamanna væri
„ólöglegt og dæmt til að mistakast“,
sagði ráðherrann. „Þetta snýst ekki
um að koma á lýðræði í Írak heldur
er verið að leggja landið í rúst.“
Eftir sem áður náið
samstarf við Bandaríkin
Hann sagði að andstaða rússn-
eskra stjórnvalda við stríðið merkti
ekki að þeir væru að lýsa andstöðu
við Bandaríkin sem slík heldur
stefnu núverandi stjórnar í Wash-
ington og stríðsreksturinn. Eftir
sem áður ættu ríkin tvö náið sam-
starf og myndu gera það áfram.
Ívanov hefur áður sagt að ekki sé
hægt að koma á lýðræði „með Tom-
ahawk-stýriflaugum“. Skoðanakann-
anir í Rússlandi sýna að þorri lands-
manna er andvígur stríðinu, þrír af
hverjum fjórum sögðust í könnun,
sem birt var í gær, óska þess að
Írakar sigruðu. Aðeins 13% vona að
bandamenn sigri, 13% eru óákveðin.
Þrátt fyrir þetta hefur þátttaka í
mótmælafundum sem flokkar
kommúnista og ákafra þjóðernis-
sinna hafa staðið fyrir til að lýsa and-
úð á stríðinu og stuðningi við Íraka
verið afar lítil. Yfirleitt hafa aðeins
nokkur hundruð manns látið sjá sig.
Lítil hefð er fyrir því í Rússlandi að
koma saman af fúsum og frjálsum
vilja á útifundum til að lýsa skoðun
sinn á stjórnmálum og enn síður at-
burðum utan landsins.
Rússneski ráðherrann átti í gær
fund með sendiherra Bandaríkjanna
í Moskvu, Alexander Vershbow, og
fjölluðu þeir um tilraunir til að brúa
vaxandi, pólitíska gjá milli Rúss-
lands og Bandaríkjanna. Hafa
stjórnvöld í Washington m.a. sakað
Rússa um að útvega stjórn Saddams
Husseins mikilvægan hátæknibúnað
sem notaður sé gegn herjum banda-
manna í Írak. Vladímír Pútín Rúss-
landsforseti hefur lofað því að láta
rannsaka málið.
Reuters
Ígor Ívanov, utanríkisráðherra
Rússlands.
Ívanov vill að
hernaðinum
verði hætt
Moskvu. AFP.
Rússar segja
stríðið gegn
Írak „ólöglegt
og dæmt til að
mistakast“
ÖRUGGUR meirihluti virtist í gær
ætla að verða fyrir því í öldungadeild
Bandaríkjaþings að gera verulegar
breytingar á skattalækkunartillög-
um George W. Bush forseta, í því
skyni að draga úr hallarekstri rík-
issjóðs og auka svigrúmið til þess að
innistæða verði fyrir kostnaðinum af
stríðsrekstrinum í Írak og uppbygg-
ingarstarfi þar í framhaldinu.
Í atkvæðagreiðslum í öldunga-
deildinni, þar sem flokksmenn for-
setans í Repúblikanaflokknum eru í
meirihluta, leit út fyrir að áætluð
heildarupphæð skattalækkunar-
áætlunar Bush fyrir næsta áratug
yrði að gerðum breytingum nær 350
milljörðum dollara en þeim 726
milljörðum sem gert var ráð fyrir í
upprunalegu tillögunum.
51 þingmaður af þeim 100 sem
sæti eiga í öldungadeildinni greiddi
því atkvæði að skattalækkunaráætl-
un forsetans skyldi skorin niður.
„Ég held að við gerum okkur allir
grein fyrir að við erum að skuld-
binda okkur til langs tíma til að
stuðla að stöðugleika í þessum
heimshluta, og það mun kosta pen-
inga,“ sagði George Voinovich,
repúblikani frá Ohio. Atkvæði hans
og fleiri hófsamra repúblikana gerðu
útslagið með að breytingatillögurnar
voru samþykktar.
Bush lagði á þriðjudag fyrir full-
trúadeild þingsins beiðni um að
heimiluð yrðu viðbótarútgjöld á
þessu fjárlagaári upp á 74,7 millj-
arða dollara, andvirði um 5.830 millj-
arða króna, til að standa straum af
kostnaðinum við þau stórræði sem
bandaríski heraflinn stendur nú í.
Hluta fjárins er ætlað að renna til
uppbyggingarstarfs í Írak eftir
stríðið og í styrki til landa þar um
slóðir sem vinveitt eru Bandaríkj-
unum, auk átaksverkefna í hryðju-
verkavörnum.
Dregið verði
úr skatta-
lækkunum
Washington. AFP, AP.
Öldungadeild Bandaríkjaþings vill
svigrúm á fjárlögum vegna stríðs