Morgunblaðið - 28.03.2003, Side 1
STOFNAÐ 1913 86 . TBL. 91. ÁRG. FÖSTUDAGUR 28. MARS 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Stríð í Írak: Blóði drifnar vikur fram undan
„Íraskir hermenn verjast dulbúnir“20/25
Írakar kváðust í gær búast við því
að bandamenn myndu umkringja
höfuðborgina á næstu fimm til tíu
dögum. En slíkt myndi duga
skammt. „Bagdad verður ekki unnin
á meðan íbúar hennar eru á lífi,“
sagði Sultan Hashem Ahmed, varn-
armálaráðherra Íraks.
Heiftarlegir bardagar geisuðu
víða í Írak í gær en einna harðastir
voru þeir við bæinn Nasiriya suður
af Bagdad sem gegnir lykilhlutverki
í áætlunum bandamanna varðandi
liðs- og birgðaflutninga í því skyni að
gera framrás í átt til höfuðborgar-
innar mögulega. Bandamenn sögð-
ust hafa grandað bryndrekum og
fellt fótgönguliða en þar var 12
bandarískra hermanna saknað í gær,
að sögn CNN.
Bandamenn unnu í gær að því að
treysta stöðu sína í norðurhluta
landsins en á miðvikudag svifu um
1.000 fallhlífarhermenn þar til jarðar
og tóku flugvöll án mótstöðu. Stefna
bandamenn nú að því að flytja þang-
að flugleiðis liðsafla og hergögn og
mynda nýja víglínu. Ljóst er að að-
gerð fallhlífarsveitanna er sú um-
fangsmesta á þessu sviði hernaðar
sem sögur fara af áratugum saman.
Hún var nauðsynleg sökum þess að
Tyrkir leyfðu bandamönnum ekki að
fara með herstyrk sinn um tyrk-
neskt land.
Bandaríkjamenn hafa ákveðið að
senda 120.000 hermenn til viðbótar
til Persaflóa. 20.000 fara til Íraks á
næstu dögum og 100.000 til viðbótar
í næsta mánuði.
Bandamenn freista þess að mynda nýja víglínu í norðurhluta Íraks
„Bagdad fellur
ekki á meðan
íbúarnir lifa“
Óbreyttir borgarar falla í Mosul
ÞUNGAR loftárásir voru enn gerðar í gærkvöldi á Bagdad, höf-
uðborg Íraks, á sama tíma og fréttir bárust af því að bandamenn
legðu drög að nýrri víglínu í norðurhluta landsins. Al-Jazeera-sjón-
varpsstöðin birti í gærkvöldi frétt um að 50 óbreyttir borgarar hefðu
fallið í loftárás á Mosul í norðri og Írakar kváðu 36 hafa fallið í Bagd-
ad síðasta sólarhringinn.
ÍBÚAR í borginni Basra í Suður-
Írak hópast að breskum brynvagni
og reyna að komast inn í borgina í
gær, en þúsundir íbúa höfðu yf-
irgefið borgina þá um daginn, í
leit að drykkjarvatni og skjóli fyr-
ir loftárásum. Alþjóðanefnd
Rauða krossins sagði í gær að
hreint drykkjarvatn í borginni
væri „af skornum skammti“, þótt
tekist hefði að koma aftur í gang
vatnsveitu í helmingi borgarinnar.
Vatn skort-
ir í Basra
PALESTÍNSKIR embættis-
menn hvöttu í gær George W.
Bush Bandaríkjaforseta til að
standa við gefin loforð um að
birta hinn svonefnda „vegvísi“
um frið milli
Ísraela og
Palestínu-
manna.
Bush sagði í
gær að veg-
vísirinn yrði
birtur „inn-
an tíðar“, en
tók ekki
fram hve-
nær nákvæmlega það yrði.
Saeb Erakat, aðalsamninga-
fulltrúi Palestínumanna, krafð-
ist þess að verkin yrðu látin
tala. „Við vonum að þessi loforð
séu ekki til þess eins gerð að róa
okkur…og að við megum vænta
aðgerða fremur en orða.“
Vegvísirinn svonefndi var bú-
inn til af Bandaríkjamönnum,
Rússum, Sameinuðu þjóðunum
og Evrópusambandinu, og
kveður á um hvernig bundinn
skuli endi á átök Palestínu-
manna og Ísraela og sjálfstætt,
palestínskt ríki stofnað 2005.
Fyrr í mánuðinum hét Bush því
að birta vegvísinn um leið og
Palestínumenn hefðu staðfest
skipan nýs forsætisráðherra
síns. Bandarískir embættis-
menn hafa lýst ánægju sinni
með umbótatilraunir Palestínu-
manna, einkum útnefningu
Mahmuds Abbas í embætti for-
sætisráðherra.
Bush
standi við
gefin
fyrirheit
Gazaborg. AFP.
George W. Bush
DAVÍÐ Oddsson, forsætisráðherra og formaður
Sjálfstæðisflokksins, sagði í setningarræðu sinni á
landsfundi Sjálfstæðisflokksins í gær, að sjálf-
stæðismenn vildu hrinda í framkvæmd umfangs-
miklum skattalækkunum á næsta kjörtímabili,
m.a. með lækkun tekjuskatts um 4%, lækkun virð-
isaukaskatts af vörum og þjónustu, sem nú til-
heyra lægra virðisaukaskattsþrepi, úr 14% í 7%,
helmingun allra skattþrepa erfðaskatts og afnámi
eignarskatts, auk hækkunar barnabóta.
Kostnaður 16 milljarðar nettó
Davíð sagði í samtali við Morgunblaðið að í heild
megi gera ráð fyrir að lækkanirnar nemi um 21 til
22 milljörðum króna. „Síðan gerum við ráð fyrir að
vegna aukinna umsvifa geti komið til baka fimm til
sex milljarðar, þannig að af þeim ástæðum erum
við kannski að tala um 16 milljarða nettó,“ sagði
Davíð spurður um áætlaðan kostnað ríkissjóðs á
kjörtímabilinu, verði þessar tillögur lögfestar.
Í ræðunni sagði Davíð: „Við viljum lækka tekju-
skatt um 4% á kjörtímabilinu. Við viljum afnema
eignarskatt algerlega. Við viljum lækka um helm-
ing virðisaukaskatt á matvæli, bækur, húshitun,
rafmagnskostnað og annað sem tilheyrir lægri
virðisaukaskattsþrepinu. Við viljum hækka barna-
bætur um 2.000 milljónir króna. Við viljum helm-
inga öll skattþrep erfðafjárskatts, þannig að al-
mennt þrep verði aðeins 5% og að fyrstu tvær
milljónirnar verði erfðaskattslausar. Og við viljum
auka skattfrelsi vegna viðbótarframlaga í lífeyr-
issparnað. Hingað til höfum við ekki lofað beinum
skattalækkunum fyrir kosningar en höfum lækk-
að þá samt. Það þýðir að hér er um bein loforð
okkar að ræða, sem við efnum fáum við til þess
styrk í þetta sinn. Það vita allir sem fylgst hafa
með verkum okkar, að þessu má treysta. Við erum
nefnilega ekki aðeins umræðustjórnmálamenn
heldur fyrst og síðast athafnastjórnmálamenn.“
Davíð sagðist í samtali við Morgunblaðið ekki
kannast við að Sjálfstæðisflokkurinn hafi nokkru
sinni áður gengið svona langt með loforð um
skattalækkanir. „Við höfum yfirleitt farið mjög
varlega og við viljum gera það. Ég tel reyndar að
þótt þetta sé umfangsmikið, þá sé varlega farið og
þess vegna megi treysta því,“ sagði hann.
Lækkanir lögfestar á fyrsta haustþingi
Davíð sagði að gert væri ráð fyrir að skatta-
lækkunartillögurnar yrðu lögfestar í einu lagi á
fyrsta haustþingi eftir alþingiskosningarnar í vor,
þar sem ákveðnar dagsetningar yrðu tilgreindar
um hvenær breytingarnar tækju gildi á kjörtíma-
bilinu. „Nú er lag,“ sagði Davíð Oddsson.
Davíð Oddsson hét 21 til 22 milljarða skattalækkunum við upphaf landsfundar
Tekju-, virðisauka- og
erfðaskattur lækki
Boðaði að eignarskattur yrði afnuminn og barnabætur hækkaðar
Morgunblaðið/RAX
Landsfundur Sjálfstæðisflokksins/10–11
Davíð Oddsson forsætisráðherra.
RICHARD Perle, einn nánasti ráð-
gjafi varnarmálaráðherra Banda-
ríkjanna og ákafur talsmaður her-
fararinnar í Írak, sagði í gærkvöldi
af sér sökum umdeildra hagsmuna-
tengsla við fjarskiptafyrirtæki.
Sagði Perle að hann gerði þetta til að
auka ekki það álag sem ráðherrann
væri undir.
Perle seg-
ir af sér
Reuters