Morgunblaðið - 28.03.2003, Qupperneq 1
FEMÍNISTI er sú eða sá sem telur aðvið búum við kynjamisrétti af ein-hverju tagi og hefur vilja til að
breyta því. Þetta er skilgreiningin sem
notuð er á tölvupóstlistanum feminist-
inn@hi.is. Þar hafa umræður blómstrað
hátt í tvo mánuði og m.a. orðið til þess að
Femínistafélag Íslands var stofnað fyrir
tveimur vikum. Nú er femínistavor, eins
og Þorgerður Einarsdóttir, lektor í kynja-
fræðum við Háskóla Íslands, hefur komist
að orði.
Þetta er hluti af þriðju bylgju femínism-
ans, en m.a. var fjallað um hana í grein
um femínisma í Veru á síðasta ári. Fyrsta
bylgjan var þegar barist var fyrir kosn-
ingarétti kvenna um og eftir aldamótin
1900, önnur bylgjan á rætur sínar að
rekja til kvennahreyfinga á 7. og 8. ára-
tugnum og þriðja bylgjan átti upptök sín í
háskólum en hefur nú náð út fyrir þá líka.
Sigurður Harðarson hjúkrunarfræð-
ingur, öðru nafni Siggi pönk, hefur dreift
bæklingi og barmmerkjum með fullyrðing-
unni „Sannir karlmenn eru femínistar“.
Þessi fullyrðing var meðal þess sem rætt
var um þegar fjórir femínistar, sem Dag-
legt líf kallaði saman, hittust. Það voru
þær Gerður G. Óskarsdóttir, fræðslustjóri
í Reykjavík, Ragnhildur Vigfúsdóttir,
starfsþróunarstjóri Landsvirkjunar, Katr-
ín Anna Guðmundsdóttir, verkefnisstjóri
hjá Landsteinum, og Valgerður Pálma-
dóttir, nemi í Menntaskólanum við Hamra-
hlíð.
Katrín: Mér finnst mikið vit í þessari
setningu. Mér finnst til dæmis ekkert karl-
M
or
gu
nb
la
ði
ð/
Á
rn
i S
æ
be
rg
Þriðja
femínista-
bylgjan
2003
Sannir
karlmenn eru
femínistar
Kynjamisréttið
í daglegu lífi
mannlegt við það að níðast á öðrum eða
sýna ekki tilfinningar en karlmenn eru oft
aldir upp við að þetta sé flott. Þessar fyr-
irmyndir fá þeir til dæmis í Disney-
myndum eða frá leikföngum. Ég held ein-
mitt að það þurfi að gefa körlunum leyfi
til að vera svolítið mýkri.
Valgerður: Þeir karlar sem hafa nógu
mikið sjálfstraust eru alveg vissir um karl-
mennsku sína. Þeim er alveg sama hvað
öðrum finnst og þora að segja að þeir séu
femínistar. Þeir karlar sem eru á móti
femínisma virðast oft vera hræddir við að
konur ætli sér að taka öll völd.
Katrín: Þeir eru sannir sem þora að
standa upp og segjast vera femínistar
þrátt fyrir að fá á sig stimpla. Mér finnst
það virðingarvert. Þetta er flottur frasi
sem er vert að halda á lofti.
Gerður: Það er alltaf einn og einn karl-
maður sem er sannur í þessum málum og
tilbúinn að leggja sitt af mörkum.
Katrín: Ef þeir eru ekki aldir upp sem
femínistar og hafa tekið þátt í þjóðfélag-
inu eins og það er í dag, verða þeir líka
að horfast í augu við það að þeir hafi ekki
verið með réttu gildin. Þeir þurfa þá allt í
einu að kúvenda og viðurkenna að það
sem þeir gerðu var rangt.
Gerður: Það er þroskamerki, en til þess
þarf kjark.
Ragnhildur: Ergo, við erum allar sam-
mála Sigga pönk: Sannir karlmenn eru
femínistar.
Flott að vera femínisti
1900
Fyrsta
femínista-
bylgjan 4
F Ö S T U D A G U R 2 8 . M A R S 2 0 0 3 B L A Ð B
TÓTA ER MEÐ TÖFRAFINGUR/2 HUGARFLUG Í FANGELSI/2
ÞJÓÐLEGT OG ÞÆGILEGT/6 TÁLGAÐ Í TRÉ/7 AUÐLESIÐ EFNI/8