Morgunblaðið - 29.03.2003, Blaðsíða 1
Stríð í Írak: Flóttafólk frá Basra verður fyrir
skothríð Verður stríð næstu mánuði? 20/24
STOFNAÐ 1913 86. TBL. 91. ÁRG. LAUGARDAGUR 29. MARS 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
ÖRYGGISRÁÐ Sameinuðu þjóð-
anna samþykkti í gær einróma nýja
ályktun sem heimilar Írökum að
selja olíu til að
kaupa matvæli og
aðrar lífs-
nauðsynjar. Sam-
einuðu þjóðirnar
óskuðu enn-
fremur eftir
framlögum að
andvirði 2,2 millj-
arða dollara, 170
milljarða króna,
til að kaupa hjálpargögn handa Írök-
um og er þetta mesta fjárhæð sem
óskað hefur verið eftir til hjálp-
arstarfs í sögu samtakanna.
Samkvæmt svokallaðri olíu- og
mataráætlun Sameinuðu þjóðanna
mega Írakar selja olíu gegn því að
tekjurnar renni óskertar til kaupa á
matvælum, lyfjum og öðrum lífs-
nauðsynjum fyrir írösku þjóðina,
undir eftirliti samtakanna. Um 60%
af 22 milljónum íbúa Íraks reiða sig
á áætlunina til lífsviðurværis, en hún
var numin úr gildi 18. þessa mán-
aðar, skömmu áður en stríðið í Írak
hófst.
Samkvæmt nýju ályktuninni á
áætlunin að gilda í einn og hálfan
mánuð. Samningaviðræðurnar um
hana voru erfiðar vegna ágreinings-
ins í öryggisráðinu um stríðið í Írak.
Kofi Annan, framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna, fagnaði nið-
urstöðunni og kvaðst vona að þjóðir
heims leystu aðsteðjandi vandamál
vegna stríðsins „í sama anda“.
Hörmungar næsta misserið?
Embættismenn Sameinuðu þjóð-
anna sögðu að fjárframlögin, sem
óskað var eftir í gær, væru nauðsyn-
leg til að afstýra miklum hörm-
ungum í Írak næsta hálfa árið.
Gert er ráð fyrir því að senda
þurfi 480.000 tonn af matvælum til
Íraks á mánuði að minnsta kosti
næstu þrjá mánuðina.
Ný ályktun
um mat
fyrir olíu
samþykkt
Kofi Annan
Sameinuðu þjóðunum. AFP.
ÞESS sáust merki í gær að Banda-
ríkjamenn væru teknir að búa sig
undir að herförin í Írak drægist á
langinn. George Bush Bandaríkja-
forseti sagði í gær að sveitir banda-
manna hefðu náð „miklum árangri“ í
Írak en seinna um kvöldið bárust
þær fréttir frá Bagdad að meira en
50 óbreyttir borgarar hefðu fallið
þar í sprengjuárás.
Arabískar sjónvarpsstöðvar
sýndu í gærkvöld myndir frá mark-
aði í Bagdad þar sem sagt var að
fjöldi fólks hefði fallið í sprengju-
árás. Læknir sem AFP-fréttastofan
ræddi við sagði 30 óbreytta borgara
hafa fallið, flesta þeirra konur, börn
og gamalmenni. Upplýsingaráð-
herra Íraks kvað 51 hafa fallið og 50
særst. Fullyrt var að fólkið hefði týnt
lífi í loftárás en ógerlegt var með öllu
að staðfesta hvers eðlis árásin var og
hver hefði verið þar að verki.
Mikil mótspyrna
William Wallace, hershöfðingi og
næstæðsti yfirmaður heraflans í
Írak, sagði í viðtali sem birtist í gær í
The Washington Post að því væri
ekki að neita að mikil mótspyrna
Íraka hefði hægt á framrás herfar-
arinnar gegn stjórn Saddams Huss-
eins. Langar aðflutningsleiðir og
skæruhernaður Íraka gerðu að verk-
um að þess væri ekki að vænta að
snöggur sigur ynnist í stríðinu í Írak.
„Óvinurinn sem við berjumst gegn
er ekki sá sem við bjuggum okkur
undir,“ sagði hershöfðinginn.
Hafði breska útvarpið BBC heim-
ildir fyrir því að þessi ummæli hers-
höfðingjans hefðu komið nokkru róti
á huga manna í varnarmálaráðuneyti
Bandaríkjanna.
Annar háttsettur bandarískur
herforingi, Vincent Brooks, ítrekaði
hins vegar í gær að innrásin gengi
samkvæmt áætlun og að mótspyrna
Íraka hefði ekki verið vanmetin.
Tony Blair, forsætisráðherra Bret-
lands, sagði og í gær að búist hefði
verið við því að Írakar verðust af
hörku. Talsmenn Bandaríkjastjórn-
ar sögðu að því hefði aldrei verið
haldið fram áður en innrásin hófst að
þetta stríð yrði stutt.
George Bush Bandaríkjaforseti
hefur ítrekað lýst yfir því að Írakar
verði sigraðir og barist verði „svo
lengi sem nauðsynlegt reynist“.
Írakar hafa fyrir sitt leyti sagt að
bandamenn verði að ráðast inn í höf-
uðborgina Bagdad og að „þar [bíði]
þeirra gröfin“. Þetta ítrekaði upplýs-
ingaráðherra Íraka í gær og kvaðst
viss um sigur í stríðinu.
Varar Sýrlendinga og Írana við
Donald Rumsfeld, varnarmálaráð-
herra Bandaríkjanna, sakaði í gær
Sýrlendinga um að heimila smygl á
vopnum yfir landamærin til Íraks.
Sagði hann Bandaríkjamenn telja
það „óvinveitta aðgerð“. Hann var-
aði einnig Írana við því að senda lið
inn í Írak með þeim orðum að þeir
menn yrðu taldir „vígamenn“.
Sprenging í Kúveitborg
Öflug sprenging varð í Kúveit-
borg í gærkvöld. Talið var að flug-
skeyti hafi verið skotið á borgina og
það hafnað skammt frá hóteli og
verslunarmiðstöð sem er rétt við
ströndina.
Ekki var skýrt frá manntjóni í
sprengingunni en sprengingin varð
rétt fyrir klukkan tvö um nóttina að
þarlendum tíma.
Eldur sást í gærkvöld loga í Souk
Sharq, einni af stærstu verslunar-
miðstöðvum Kúveits en hún er
skammt frá utanríkisráðuneytinu og
höll furstans. Loftvarnarflautur létu
ekki í sér heyra fyrir sprenginguna.
Írakar hafa skotið alls 15 flugskeyt-
um á Kúveit frá því innrás Banda-
ríkjamanna og Breta hófst í Írak fyr-
ir rúmri viku.
Viðbúnir því að átökin
geti dregist á langinn
Reuters
Kona flýr með börn sín frá írösku borginni Basra. Hundruð fjölskyldna flúðu úr borginni vegna matvælaskorts og
a.m.k. átta flóttamenn særðust þegar írösku sveitirnar skutu sprengikúlum á brú sem þeir fóru yfir.
Skýrt frá miklu
mannfalli í Bagd-
ad í gærkvöld
TYRKNESKRI farþegaþotu,
sem rænt var 20 mínútum eftir
flugtak frá Istanbúl, var lent í
Aþenu í gærkvöld og síðustu
fregnir hermdu að flugræning-
inn hefði gefist upp átakalaust.
Í farþegaþotunni voru yfir
200 manns, þeirra á meðal fjór-
ir tyrkneskir þingmenn og
fyrrverandi ráðherra.
Farþegaþotan var á leiðinni
til Ankara þegar henni var
rænt og flugræninginn krafðist
þess að henni yrði flogið til
Berlínar. Fregnir tyrkneskra
fjölmiðla hermdu að hann væri
arabi og með sprengju innan
klæða.
Farþega-
þotu rænt
Aþenu. AFP.
FRAMLAG Íslendinga í Þróunarsjóð
EFTA þrefaldast og verður um 300
milljónir króna á ári samþykki fram-
kvæmdastjórn Evrópusambandsins
óformlegar tillögur EFTA-ríkjanna
um auknar greiðslur í sjóðinn.
Í frétt norsku fréttastofunnar NTB
í gær kemur fram að Noregur, Ísland
og Liechtenstein hafi boðist til að
greiða samtals 72 milljónir evra, tæp-
lega sex milljarða króna, í sjóðinn á
ári og Norðmenn þar af um 95% auk
þess sem Norðmenn séu tilbúnir að
leggja fram jafnháa upphæð til við-
bótar, þ.e. 72 milljónir evra. Samtals
hljóðar því tilboðið upp á 144 milljónir
evra. Framlag Norðmanna nú er 175
milljónir norskra króna en verður 1,1
milljarður norskra króna, samkvæmt
því sem segir í frétt NTB.
Þreifingar hafa átt sér stað þar sem
hugmyndir í þessa veru hafa verið
ræddar, en engar beinar tillögur um
framlög hafa verið lagðar fram og
ekkert skriflegt liggur fyrir í þá veru,
samkvæmt heimildum Morgunblaðs-
ins. Í óformlegum viðræðum að und-
anförnu hafa EFTA-ríkin rætt um að
þrefalda núverandi framlag innan
EFTA-rammans auk þess sem Norð-
menn hafa talað um að borga tvöfalda
þá heildarupphæð utan rammans.
Íslendingar borga um 5% heildar-
framlaga EFTA-ríkjanna og Liecht-
enstein um 1%, en hlutur Íslands nú
er um 100 milljónir króna á ári. Fram-
kvæmdastjórn ESB fór mest fram á
38-földun framlaga EFTA-ríkjanna,
en samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins vildi hún á samningafundi
fyrir um tveimur vikum fá 24-föld
framlög frá Norðmönnum, 18-föld
framlög frá Íslandi og svipað frá
Liechtenstein. Hins vegar viður-
kenndu fulltrúar ESB öll sjónarmið
Íslands, samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins, og sögðu að munur-
inn á framlögunum ætti að vera tals-
vert meiri vegna sérstöðu Íslands,
fjarlægðar frá mörkuðum, fámennis
og annarra þátta.
Engin niðurstaða liggur enn fyrir,
en næsti formlegi samningafundur
verður á mánudag. Í fréttum NTB
kemur fram að ESB telji EFTA-ríkin
enn ekki hafa teygt sig nógu langt.
Ísland býður þreföldun fram-
laga í þróunarsjóð EFTA