Morgunblaðið - 29.03.2003, Blaðsíða 6
FRÉTTIR
6 LAUGARDAGUR 29. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MBA nám
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
EH
F/
SI
A
.I
S
H
IR
20
55
1
03
.2
00
3
Opinn kynningarfundur
þriðjudaginn 1. apríl kl. 17.15
í Háskólanum í Reykjavík.
22 mánaða MBA-nám við Háskólann í Reykjavík eflir
stjórnunar- og leiðtogahæfileika þína. Námið byggir á
sterkum tengslum við virta háskóla í Evrópu og gefur
nemendum kost á að sérhæfa sig í fjármálum,
mannauðsstjórnun og „Global eManagement“.
www.ru.is/mba
SEGJA má að Sunnlendingar hafi
upplifað allar árstíðir í gær á aðeins
fáeinum klukkustundum, eins og
meðfylgjandi myndaröð ber með
sér.
Í Fossvogsdalnum virtist sem
sumarið væri komið og litli snáðinn
sólaði sig í síðdegissólinni og heilsaði
upp á spakar borgargæsir. Aðeins
klukkustund og 55 mínútum síðar,
eða klukkan 18.45, voru skollin á
dimm él og varð jörð alhvít á
skammri stundu. Það hreif þó ekki á
vinkonurnar tvær sem fengu sér
göngutúr við Kringlumýrarbraut og
urðu á vegi ljósmyndara. Á meðan
borgarbúar snæddu kvöldmatinn
snjóaði án afláts en eins og hendi
væri veifað stytti síðan upp. Í gær-
kvöld mátti víða sjá börn að leik á
þotum þar sem brekkur var að finna
og varð Klambratúnið skyndilega
vinsæll vettvangur vetraríþrótta.
Strákarnir á myndinni tóku fram
stóra dekkjaslöngu og greinilegt að
það var hörkustuð hjá þeim.
En sumir hinna fullorðnu fylgdust
undrandi með veðrinu út um
gluggann og vissu bókstaflega ekki
hvaðan á sig stóð veðrið.
Um helgina mun vetur konungur
ríkja á landinu samkvæmt spám.
Morgunblaðið/Golli Morgunblaðið/Golli
Jörð alhvít á
skammri stundu
Morgunblaðið/Golli
Í GÆR var tæplega 941 milljónar
króna viðskipti með hlutabréf í Kaup-
þingi en verð bréfanna hélst óbreytt
og var 150 við lokun Kauphallar Ís-
lands. Viðskipti með Búnaðarbank-
ann námu 13 milljónum króna og
lækkaði verð bréfanna um 1,8%, úr
5,50 í 5,40. Ef litið er á verðþróun
hlutabréfa í bönkunum tveimur sést
að Búnaðarbankinn hefur hækkað um
tæp 18% frá áramótum og Kaupþing
um 16%. Á sama tíma hefur úrvals-
vísitala aðallista hækkað um 5,23%.
Í Morgunkorni Íslandsbanka í gær
kemur fram að verðþróun síðustu
mánaða hafi falið í sér auknar vænt-
ingar um samruna og hagræðingu í
íslensku fjármálakerfi. Þar segir að
samlegðaráhrif af samruna Búnaðar-
banka og Kaupþings felist fyrst og
fremst í hagræðingu og kostnaðar-
lækkun í sambærilegri starfsemi.
Ef af samruna verður má leiða lík-
um að því að sameinaður banki muni
njóta betri lánskjara en bankarnir
njóta nú á alþjóðlegum mörkuðum.
Búnaðarbankinn hefur lánshæfis-
mat frá matsfyrirtækinu Moody’s en
Kaupþing hefur ekki farið í slíkt mat.
Í Morgunkorni Íslandsbanka kemur
fram að erfitt sé að leggja mat á hver
áhrif sameiningar hefðu á lánshæfis-
mat Búnaðarbankans. Þegar Íslands-
banki og FBA sameinuðust árið 2000
var lánshæfismat sameinaðs banka
hækkað frá því lánshæfismati sem Ís-
landsbanki hafði áður.
Samkvæmt kaupsamningi S-hóps-
ins við íslenska ríkið, sem undirritað-
ur var 16. janúar, skulu 27,48% hluta-
fjár í bankanum afhent í kjölfar
undirritunar kaupsamnings, að
fengnu samþykki Fjármálaeftirlits-
ins, og var það gert í síðustu viku.
18,32% skulu afhent eigi síðar en 20.
desember nk. Alls er um 45,8% hlut í
Búnaðarbankanum að ræða og er
miðað við meðalgengið 4,81 í viðskipt-
unum. Kaupverðið er því rúmir 11,9
milljarðar króna. Sé miðað við loka-
verð Búnaðarbankans í gær er mark-
aðsvirði hlutarins 13,4 milljarðar, hef-
ur hækkað um tæplega 1,5 milljarða
króna. Hins vegar kemur fram í kaup-
samningnum að „hlutabréf, sem
nema þriðjungi heildarhlutafjár í
Búnaðarbanka Íslands hf., eru bund-
in þeim kvöðum að kaupendum er
óheimilt að selja þau í 21 mánuð frá
undirritun kaupsamningsins nema að
fengnu skriflegu samþykki seljanda“.
Því er S-hópurinn bundinn af
hlutnum a.m.k. næstu 19 mánuði.
Gengi Búnaðarbank-
ans lækkar um 1,8%
!
" #$%#
&$'('
%''$)%*
#(%$&+
''$&#%
#*,- . ',%-
($*
/ 0
. 123
0 4
5
0
##$&
'$%+
'#$'(+
*&$*+
$)(%
#*,-
%%$'
#'$)#(
$*
++$*%
#*$'(
#($')
#',&-
*$#
ÁÆTLAÐ er að fimm sinnum meira
fjármagn verði sett í textun innlends
sjónvarpsefnis á þessu ári en í fyrra. Í
ár mun fara um 2,5 milljónir króna til
textunar íslensks sjónvarpsefnis á
síðu 888 í Textavarpinu sem nægir til
textunar á um 5.000 mínútum. Árið
2002 fóru 500 þúsund krónur til mála-
flokksins sem dugði til textunar á
rúmlega 1.000 mínútum.
Er ætlunin að fjármagnið veðri
notað til textunar á fyrirfram fram-
leiddu íslensku efni, eins og leikritun,
heimildarmyndum og kvikmyndum,
sem eru á dagskrá á sunnudgöum,
þáttum sem eru á dagskrá vegna
komandi Alþingiskosninga o.fl.
Segir Bjarni Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Sjónvarpsins, að með
núverandi tæknibúnaði Sjónvarpsins
sé ekki hægt að texta efni meðan á
beinum útsendingum stendur, eins og
t.d. fréttir, íþróttir, Gettu betur og
Kastljósið. Ástæðan er að tæknibún-
aður sem notaður er í Bretlandi og
Noregi hefur ekki verið aðlagaður að
íslenskri tungu og þar sem ekkert
bendi til að svo verði í bráð verði bein-
ar útsendingar þar af leiðandi ekki
textaðar á árinu.
Fjármagn
til textunar
á sjónvarps-
efni fimm-
faldað
♦ ♦ ♦
ÞRJÁR bílveltur urðu í umdæmi
Selfosslögreglunnar í gær án þess þó
að teljandi slys hlytust af. Klukkan
13.30 valt bifreið á Suðurlandsvegi
við Þrengslaveg og síðar um daginn
valt jeppi við Hvítárholt í Hruna-
mannahreppi. Fimm voru í jeppan-
um og sluppu allir ómeiddir. Þá varð
bílvelta ofan við Litlu kaffistofuna í
gærkvöld. Tveir voru í bílnum og
sluppu ómeiddir.
Að auki varð umferðarslys á Eyr-
arvegi á Selfossi klukkan 13.40 þeg-
ar bifhjól og bifreið lentu saman.
Ökumaður hjólsins var fluttur á
slysadeild með minniháttar meiðsli.
Þrjár bílveltur
á Suðurlandi