Morgunblaðið - 29.03.2003, Page 13
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. MARS 2003 13
„ÞRÓUNIN er nokkuð greinileg. Misnotuðu
börnin verða stöðugt yngri. Nýtt myndefni
færist í vöxt. Tæknilegu gæðin verða meiri og
sífellt algengara að myndirnar séu teknar í
heimahúsum – sem gefur okkur vissa vísbend-
ingu um að misnotkunin hafi staðið yfir lengi,“
segir Terry Jones rannsóknarlögreglumaður í
sérstakri deild innan lögreglunnar í Manchest-
er um misnotkun á börnum.
Terry og Cormac Callanan, framkvæmda-
stjóri regnhlífasamtaka neyðarlína gegn
barnaklámi, kynþáttafordómum og öðru
óæskilegu efni á Netinu „Inhope“, voru meðal
fyrirlesara á lokaðri námsstefnu Barnaheilla
og Ríkislögreglustjóra undir yfirskriftinni
„Stöðvum barnaklám á Netinu“ í Félagsheim-
ili lögreglumanna í gær.
Terry sagði að deild um misnotkun á börn-
um hefði verið til innan lögreglunnar í Man-
chester frá árinu 1978. „Með vaxandi aðgangi
almennings að Netinu varð algjör sprengja í
dreifingu á barnaklámi í Bretlandi árið 1995,“
sagði hann og tók fram að sama sprengja hefði
fallið í Bandaríkjunum 1992 til 1993. „Lengst
af vorum við að að jafnaði að gera 12 myndir/
kvikmyndir með barnaklámi upptækar á
hverju ári. Eftir að sprengjan féll margfald-
aðist sá fjöldi á ótrúlega stuttum tíma, t.d.
gerðum við 41.000 myndir/kvikmyndir með
barnaklámi upptækar árið 1999. Einn og sami
maðurinn var að jafnaði með um 50.000 myndir
og 3 gígabæt af hreyfimyndum með barna-
klámi undir höndum árið 2001. Núna – erum
við hætt að telja. Ég get þó sagt þér að ekki
alls fyrir löngu höfðum við hendur í hári
manns með 120.000 myndir með barnaklámi.“
Terry segir að með deildinni starfi hópur
sérhæfðra sálfræðinga. „Eftir að við höfum
komið höndum yfir barnaníðinga reyna sál-
fræðingarnir að grafast fyrir um hvaða ástæð-
ur liggja að baki glæpnum. Eins og gefur að
skilja gefa þessir menn – því að í yfirgnæfandi
tilfella erum við að tala um karla – upp ýmsar
ólíkar ástæður fyrir atferli sínu. Langflestir
viðurkenna þó að barnaklám veiti þeim kyn-
ferðislega örvun í þeim tilgangi að ná fram full-
nægingu við sjálfsfróun,“ segir hann og tekur
fram að slík hegðun verði ekki til á einum degi.
„Þessi þróun byrjar hægt og er löng. Menn-
irnir búa til alls konar fantasíur í tengslum við
börn, ná sér í barnaklám og eru búnir að velta
því lengi fyrir sér að eiga við börn áður en
sumir þeirra ganga svo langt að skapa sér að-
stæður fyrir glæpinn og oft innan veggja heim-
ila. Ég segi því við foreldra: „Ef þið hafði ein-
hverjar ástæður til að ætla að einhverjir í
ykkar nánasta umhverfi séu að velta sér upp
úr svona fantasíum látið þá aldrei passa börnin
ykkar – aldrei.“
Röng forgangsröðun
Terry segir að deildin hafi verið í góðum
samskiptum við íslensku lögregluna um árabil.
„Íslenska lögreglan hefur verið afar áhugasöm
um að afla sér upplýsinga um starfsemi deild-
arinnar. Núna ætla ég að kynna sérstakan
hugbúnað til að rekja slóð barnakláms á Net-
inu. Sú aðferð á vonandi eftir að reynast ár-
angursrík á Íslandi,“ sagði hann og játti því að
ráðstefnugestir væru afar áhugasamir um efn-
ið. „Hins vegar verð ég að játa að almennt
finnst mér misnotkun á börnum ekki hafa
nægilegan forgang hjá lögregluembættum í
heiminum. Eins og hjá okkur í Bretlandi –
glæpir eins og dreifing eiturlyfja, innbrot og
þvíumlíkt hafa meiri forgang í starfi lögregl-
unnar heldur en misnotkun á börnum.“ Hann
var í framhaldi af því spurður að því hversu
margir lögreglumenn störfuðu að málaflokkn-
um í Manchester. „Sex manns frá því fyrir
1995,“ svaraði hann og hristi höfuðið.
Terry tók sérstaklega fram að því miður
gengi illa að ná til fórnarlamba barnaníðing-
anna í því skyni að veita þeim viðeigandi stuðn-
ing. „Hvað heldur þú að við höfum náð til
margra barna af – við skulum segja 100.000?
Aðeins 150. Þótt andlit barnanna séu ekki hul-
in getur verið erfitt að komast að því hvar í
heiminum myndirnar eru teknar. Ef vitað er
að myndirnar eru teknar í Manchester er
vandinn ekki eins mikill. Núna erum við farnir
að skoða slíkar myndir eins og hvern annan
glæpavettvang. Ég á við að við reynum að lesa
út úr myndunum vísbendingar um hvar at-
burðurinn hafi átt sér stað. Ekki alls fyrir
löngu fengum við arkitekt í lið með okkur til að
einangra slíkan glæpavettvang. Arkitektinn
var ekki nema 5 mínútur að rissa upp skipulag
íbúðarinnar með tveimur möguleikum á inn-
gangi. Hann sagði okkur hverrar gerðar húsið
væri og staðhæfði að byggingin væri frá því í
byrjun 20. aldarinnar. Þremur vikum síðar
fundum við barnaníðinginn í húsi frá árinu
1902. Þar hafði hann reglulega nauðgað 8 ára
stúlkubarni í 5 ár,“ sagði Terry og fram kom
að yngsta fórnalamb barnaníðings á Man-
chester-svæðinu hefði aðeins verið 3 mánaða.
Foreldrar haldi vöku sinni
Cormac Callanan, framkvæmdastjóri In-
hope, sagði að regnhlífasamtökin næðu orðið
til 17 neyðarlína út um allan heim, þ.á m. á veg-
um Barnaheilla á Íslandi. Almenningur getur
tilkynnt um barnaklám, kynþáttafordóma eða
annað ólöglegt efni á Netinu með því að fylla út
sérstök eyðublöð á heimasíðum neyðarlínanna.
Stjórnendur neyðarlínanna úrskurða síðan um
hvort efnið sé í raun ólöglegt og grípa í fram-
haldi af því til viðeigandi aðgerða.
Cormac sagði að foreldrar þyrftu alltaf að
vera á varðbergi gagnvart netnotkun barna
sinna.
Enskir sérfræðingar í baráttu gegn barnaklámi leiðbeina íslenskum starfsbræðrum sínum
Misnotuðu börnin
verða sífellt yngri
Morgunblaðið/RAX
Cormac Callanan og Terry Jones voru fyrirlesarar á námstefnunni í gær.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
T
O
Y
20
71
8
0
3/
20
03
S†NING
Nýbýlavegi 2 • 200 Kópavogi • S 570 5300
Opið frá kl. 12 til 16 laugardag og 13 til 16 sunnudag.
S U M A R 2 0 0 3
2 9 . - 3 0 . m a r s
Komdu á stærstu Yamaha mótorhjólasýningu sem
haldin hefur verið frá upphafi. 30 ný mótorhjól,
torfæruhjól, götuhjól, hippar og fjórhjól.
YAM
AHA
BLA
ÐIÐ
KOM
IÐ Ú
T