Morgunblaðið - 29.03.2003, Blaðsíða 21
STRÍÐ Í ÍRAK
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. MARS 2003 21
TUGIR þúsunda Írana gengu í gær
um götur Teheran til að mótmæla
stríðinu í Írak og nokkrir þeirra
brutu rúður í breska sendiráðinu í
borginni með grjótkasti. Mótmæl-
endur kveikja hér í fána Bretlands.
Írönsk stjórnvöld skipulögðu
mótmælin sem voru ekki haldin til
stuðnings stjórn Íraks. Mótmæl-
endurnir hrópuðu vígorð gegn
Saddam Hussein og Bandaríkjun-
um.
Lítið hefur verið um slík mót-
mæli í Íran til þessa. Íran og Írak
háðu mjög blóðugt stríð í átta ár á
níunda áratugnum, alls féll um
milljón manna og er halla tók á
Íraka í stríðinu beittu þeir m.a.
efnavopnum gegn írönsku her-
mönnunum.
George W. Bush Bandaríkjafor-
seti hefur sagt að Íran myndi „öxul
hins illa“ í heiminum ásamt Írak og
Norður-Kóreu. „Ég óttast Banda-
ríkin vegna þess að hugsanlega
verðum við næst á eftir Írak,“ sagði
einn mótmælendanna í Teheran.
Stríðinu mótmælt í Íran
AP
BANDARÍKJAHER segir að nýj-
ar vísbendingar hafi borist um að
Saddam Hussein forseti Íraks hafi
gefið „fyrstu skipanir“ um notkun
efnavopna. „Við höfum fengið vís-
bendingar úr ýmsum áttum sem
benda til þess að fyrstu fyrirskip-
anirnar hafi verið gefnar um að
efnavopnum skuli beitt á
ákveðnum tímapunkti,“ sagði Vinc-
ent Brooks hershöfðingi á blaða-
mannafundi í höfuðstöðvum
Bandaríkjahers í Katar. „Við höf-
um fundið efnavopnabúninga á
mörgum stöðum á svæði sunnan
þess sem við héldum að markalín-
an væri,“ sagði Brooks.
Hann sagðist ekki vita til þess
að skipun um að beita efnavopnum
gegn innrásarhernum hefði verið
gefin. En vísbendingar og upp-
lýsingar sem safnað hafi verið áð-
ur bentu til þess að íraski herinn
væri reiðubúinn að beita slíkum
vopnum ef sókn Bandaríkjamanna
og Breta næði ákveðnum mörkum.
„Og það sem við höfum séð á
vígvellinum leiðir til þess að við
tökum þessar vísbendingar mjög
alvarlega,“ sagði Brooks.
Bandaríkjamenn og Bretar hafa
fundið miklar birgðir af eiturefna-
búningum og gasgrímum í birgða-
geymslum Íraka. Mohammed Said
al-Sahhaf upplýsingamálaráðherra
Íraks vísaði í gær á bug getgátum
um að þessi búnaður benti til þess
að Írakar ætluðu að beita efna-
vopnum og sagði að um væri að
ræða hefðbundinn viðbúnað fyrir
stríð. „Í stríði er gert ráð fyrir að
óvinurinn beiti öllum ráðum,“
sagði hann og bætti við að Írakar
útilokuðu ekki að innrásarherinn
gripi til „heimskulegra ráða í ör-
væntingu“ vegna fyrirsjáanlegs
ósigurs.
Vísbendingar um
að notkun efna-
vopna sé ráðgerð
As-Saliyah. AFP.
’ Það sem við höf-um séð á vígvellinum
leiðir til þess að við
tökum þessar vís-
bendingar mjög al-
varlega. ‘
TALSMAÐUR sjúkrahúss í Bagd-
ad sagði í gærkvöldi að þrjátíu
óbreyttir borgarar hefðu fallið og 47
særst í loftárás Bandaríkjamanna á
markaðstorgið An-Nasser í Shula-
hverfi í borginni síðdegis. Sjón-
varpsstöðvar í arabaríkjunum
sýndu myndir af blóðugum líkum og
grátandi syrgjendum. Sumir hinna
særðu veinuðu af kvölum er þeir
biðu eftir aðhlynningu. „Flest fórn-
arlambanna eru konur, börn og
aldrað fólk,“ sagði dr. Harqi Razz-
uqi, yfirmaður An Nur-spítalans í
borginni. Í fréttum BBC sagði að
allt að 50 manns hefðu látið lífið í
árásinni.
Erlendir fréttaritarar í Bagdad
sögðu í gærkvöldi óljóst hvað hefði
valdið blóðbaðinu á An-Nasser-torg-
inu. Írakar segja að Bandaríkja-
menn miði stýriflaugum á hverfi
óbreyttra borgara en Bandaríkja-
menn og Bretar segja á móti að
írösk flugskeyti og sprengikúlur úr
loftvarnabyssum Íraka falli stund-
um til jarðar og valdi þá usla. Einn-
ig segja þeir hugsanlegt að stjórn-
völd í Bagdad skjóti af ásettu ráði á
íbúðarhverfi til að sverta málstað
bandamanna og afla samúðar er-
lendis í stríðinu. Talsmenn yfir-
stjórnar Bandaríkjahers sögðu í
gær að ekki væri vitað til þess að
bandarísk stýriflaug hefði lent á
torginu og giskuðu á að íraskt
skeyti hefði lent á því vegna bilunar.
Mohammed Said al-Sahhaf, upp-
lýsingamálaráðherra Íraks, fór
hörðum orðum um hersveitir Breta
og Bandaríkjamanna í gær og sagði
þær hafa gert árásir á óbreytta
borgara í Írak daginn áður. Sagði
hann að ákæra ætti leiðtoga
ríkjanna fyrir stríðsglæpi vegna
ítrekaðra árása herja bandamanna
á opinberar byggingar í Írak, því
allir vissu að þar væri að finna
óbreytta borgara.
Al-Sahhaf sagði á fréttamanna-
fundi í Bagdad að bandamenn hefðu
drepið næstum 100 Íraka í árásum
sínum á Bagdad, Karbala, Babýlon
og Kirkuk daginn áður. Sagði hann
að 290 hefðu særst. Á móti sagði
hann að Írakar hefðu fellt fjóra
bandaríska hermenn nærri bænum
Najaf í suðurhluta Íraks.
Sagði hann að Írakar hefðu eyði-
lagt þrjátíu og þrjá skriðdreka og
brynvagna hersveita bandamanna í
bardögum á fimmtudag. Þá hefði
bóndi nokkur skotið niður herþotu
bandamanna í Suður-Írak og öðrum
tekist að eyðileggja skriðdreka.
Ennfremur sagði ráðherrann að
síðan stríðið í Írak hófst 20. mars sl.
hefðu 116 Írakar fallið og 695 særst
í Basra og nágrenni og að 230 hefðu
fallið og 800 særst í Dhiqar-héraði,
sem liggur að Basra. Á fimmtudag
hafði komið fram hjá Umid Medhat
Mubarak heilbrigðisráðherra að 350
Írakar væru fallnir og um 3.650
hefðu særst, einkum konur, börn og
gamalmenni.
„Bagdad verður aldrei tekin“
Sultan Hashem Ahmed, varnar-
málaráðherra Íraks, sagði að
bandamenn myndu mæta harðri
mótspyrnu á leið sinni til Bagdad.
Sagði hann að lofthernaður myndi
ekki duga; óhjákvæmilegt væri fyrir
bandamenn að senda landher til
Bagdad ef þeir vildu ná borginni á
sitt vald. Við þær aðstæður myndi
hins vegar fara illa fyrir þeim, enda
hygðust Írakar beita skæruhernaði.
„Óvinurinn verður að ná til Bagdad
og þar mun hann verða sendur í
gröf sína,“ sagði Ahmed. „Bagdad
verður aldrei tekin svo lengi sem
nokkur íbúa hennar er á lífi.“
Sagt að allt að
50 hafi fallið í
árás á markað
Bandaríkjamenn neita að stýriflaug
hafi valdið manntjóninu meðal
óbreyttra borgara í Bagdad, en Írakar
saka bandamenn um stríðsglæpi
Bagdad. AFP, AP.