Morgunblaðið - 29.03.2003, Page 30
LISTIR
30 LAUGARDAGUR 29. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
BELUGA Arts er nýstofnuð al-
þjóðleg umboðsskrifstofa myndlist-
armanna sem sérhæfir sig í að
koma myndlistarmönnum á fram-
færi víðsvegar um heim. Starfsemin
og þeir listamenn sem skrifstofan
hefur á sínum snærum verður
kynnt í Listasafni Reykjavíkur,
Hafnarhúsi, í dag milli kl. 16 og 19.
Hendrikka Waage er fram-
kvæmdastjóri og stofnandi fyr-
irtækisins, en hún hefur víðtæka
reynslu úr heimi almannatengsla.
„Beluga Arts er hluti af almanna-
tengslafyrirtækinu Beluga PR and
Marketing. Í Beluga Arts vinn ég
með listfræðingi að nafni Alix Bill-
am, sem starfað hefur í listheimi
Lundúnaborgar í mörg ár,“ segir
Hendrikka. „Við þekkjum svipaða
starfsemi úr tónlistarheiminum,
þar sem umboðsmenn sjá um að
koma sínu fólki á framfæri erlendis.
Það hefur hins vegar verið vöntun á
sambærilegri þjónustu fyrir mynd-
listarmenn og þess vegna ákváðum
við að fara út í þessa starfsemi.“
Beluga Arts er alþjóðleg umboðs-
skrifstofa, sem enn sem komið er
hefur níu íslenska myndlistarmenn
á sínum snærum. Þau eru Georg
Guðni, Guðrún Einarsdóttir, Gunn-
ella, Hallgrímur Helgason, Helgi
Þorgils Friðjónsson, Húbert Nói,
Kristín Gunnlaugsdóttir, Lína Rut
Wilberg og Steinunn Þórarins-
dóttir. „Við höfum trú á þessum
myndlistarmönnum og fengum þá
til liðs við okkur vegna þess. Þau
voru mjög jákvæð gagnvart því að
vera með. Með vorinu munu svo
Bretar og aðrir erlendir myndlist-
armenn bætast í hópinn,“ segir
Hendrikka. Hún segist telja það já-
kvætt fyrir myndlistarmennina að
vera hluti af slíku fyrirtæki. „Lista-
menn eiga nóg með að vinna að list-
inni og þeim finnst oft óþægilegt að
koma list sinni á framfæri. Ásamt
þessu sjá þeir líka tækifæri í starf-
semi okkar til að komast inn á nýja
markaði, en við munum fara inn á
markaði eins og London, New York
og Japan, sem hefur kannski ekki
verið mikið gert af hérlendis áður.
Íslenskir myndlistarmenn hafa
margir hverjir góð sambönd á
Norðurlöndunum, en Beluga Arts
gæti opnað fyrir þeim nýja vídd
með þessum hætti.“
Hendrikka segir starf Beluga
Arts bæði felast í milligöngu um
sölu verka sem og uppsetningu sýn-
inga víðsvegar um heim.
Á kynningunni í Listasafni
Reykjavíkur í dag verða sýnd verk
listamannanna níu, auk eins gesta-
listamanns, Karólínu Lárusdóttur.
Viðstaddir opnunina verða list-
gagnrýnendur frá Lundúnablöð-
unum The Times, The Financial
Times, Art Review og The Spect-
ator. Hendrikka segir það hafa
mikla þýðingu fyrir íslensku mynd-
listarmennina að hljóta kynningu í
þessum blöðum. „Eins og er ein-
blínum við á Lundúnamarkaðinn og
þess vegna er mikilvægt að fá
helstu blöðin til að kynna okkar
starfsemi. Það er margt spennandi
framundan á þeim vettvangi,“ segir
hún að lokum.
Nánar um Beluga Arts má sjá á
vefslóðinni: www.belugaarts.com.
Sérhæfir
sig í kynn-
ingu á
myndlist
Himinn og jörð eftir Steinunni Þórarinsdóttur, en hún er einn níu íslenskra
myndlistarmanna sem Beluga Arts hefur á sínum snærum.
ÞAÐ var næstum fullsetinn bekk-
urinn í listasafni Sigurjóns í Laug-
arnesinu þetta sunnudagskvöld
þrátt fyrir mikið tónleikaframboð
þessa helgi.
Á fyrri hluta tónleikanna voru
tvær píanósónötur eftir Mozart. Í
A-dúr K. 331 og F-dúr K 332 en þær
eru önnur og þriðja af þeim fjórum
sónötum sem Mozart samdi í París
sumarið og haustið 1778, þá 22 ára
gamall. A-dúr-sónatan er sennilega
sú sónata Mozarts sem mest er spil-
uð, hún er óhefðbundin í uppsetn-
ingu. Fyrsti þáttur hefst með fallega
syngjandi stefi, inngangi sem er
jafnvel hægt að líkja við fallegt
vögguljóð og á eftir fylgja sex fjöl-
breytt tilbrigði. Annar þátturinn,
Menuetto-trio, leiðir síðan yfir í
fjórða þáttinn sem er hið vel þekkta
Rondo Alla Turca. Þessi glaðlega
sónata, sem ætluð var til að ganga í
augun á Parísarbúum sem voru frek-
ar duttlungafullir og vandlátir, var
hér snilldarlega flutt af Erni. F-dúr-
sónatan er öllu alvarlegri. Hún er
djörf og full af spennu. Fyrsti þátt-
urinn, Allegro, er fullur af andstæð-
um stefjum og annar þátturinn,
Adagio, minnir á fallega rómantíska
aríu sem söng fallega hjá Erni og
lokakaflinn, Allegro, var snilldarvel
leikinn.
Eftir hlé var Chopin á dagskránni.
Mozart og Chopin dóu báðir fyrir
fertugt, Mozart varð 34 ára og Chop-
in 39. Chopin vantaði nokkra daga
upp á að verða 22 ára þegar hann
hélt sína fyrstu tónleika í París. Ólíkt
Mozart, sem átti erfitt uppdráttar
hjá Parísarbúum, sló Chopin í gegn á
sínum fyrstu tónleikum. Öll verkin á
efnisskrá Arnar eru samin í París
eða nágrenni. Örn náði vel til áheyr-
enda, enda spjallaði hann við þá um
verkin áður en þau voru leikin og út-
skýrði þau, einnig var mjög góð um-
fjöllun um verkin í prógrammi tón-
leikanna. Í verkum Chopins útskýrði
hann út frá hvaða forsendum hann
túlkaði verkin og er óhætt að segja
að hann hafi verið sjálfum sér sam-
kvæmur í orði og verki.
Fyrst lék Örn glæsilega Im-
promtu í Fís-dúr Op. 36 (1839), á eft-
ir fylgdi Ballaða í F-dúr Op. 38
(1836-39) sem inniheldur annars
vegar fallegar ljúfar laglínur og hins
vegar átök sem túlka má sem fár-
viðri. Ballaða er einskonar frásögu-
kvæði eða frásögn og því hefur verið
haldið fram að hér sé verið að segja
sögu um hafmey sem tælir sjómenn í
djúpið til fylgilags við sig. Inngang-
urinn var sérlega fallega og seiðandi
leikinn og átakaþátturinn var magn-
aður í flutningi Arnar. Þá var komið
að Berceuse í Des-dúr Op. 57 (1843
eða 1844). Berceuse er vöggulag þar
sem móðir syngur barn sitt í svefn.
Hér notar Chopin tilbrigðaformið
þar sem vinstri höndin endurtekur
aftur og aftur sama róandi stefið
(ostinato) á meðan sú hægri leikur
sér við að spinna saman hendingar á
ýmsan hátt. Þetta verk var sérlega
vel og sannfærandi leikið. Síðasta
verkið var Scherzo í b-moll Op. 31
(1837). Því hefur verið haldið fram að
Chopin hafi viljað að maður skynjaði
upphaf verksins sem spurningu væri
kastað fram og svarið fylgdi á eftir
og haft var eftir Von Lenz að Chopin
hefði eitt sinn sagt að það ætti að
hljóma eins og í grafkapellu. Hvað
sem þessu líður þá gekk Örn út frá
þeirri kenningu að verkið lýsti
stríðsátökum og ótta tónskáldsins
við afleiðingar þeirra. Flutningur
Arnar á þessu mikla átakaverki var
stórglæsilegur.
Örn Magnússon: Stórglæsilegur flutningur.
TÓNLIST
Einleikstónleikar
Örn Magnússon, píanóleikari. Verk eftir
Wolfgang Amadeus Mozart og Fryderyk
(Frédéric) Chopin. Sunnudagurinn 23.
mars kl. 20.
LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR
Frábær píanóleikur
Jón Ólafur Sigurðsson
Listasalur Man, Skólavörðustíg
14 Sýning Þórs Magnúsar Kapor
er framlengd um eina viku og lýk-
ur 7. apríl. Opið 10–18 virka daga
og 11–18 um helgar.
Suzukitónlistarskólinn í Reykja-
vík kl. 14 heldur tónleika í Tjarn-
arsal Ráðhússins kl. 14.
Listasafn Borgarness kl. 14
Bútaklúbburinn Samansaumaðar
opnar sýningu á verkum sínum og
afhendir af tilefninu Björg-
unarsveitinni Brák verk eftir fé-
laga til eignar.
Sýningin stendur til 9. apríl. Opið
kl. 13–18 virka daga og til kl. 20 á
þriðjudags- og fimmtudags-
kvöldum. Egilsstaðaflugvöllur
kl. 16 Ólöf Björk Bragadóttir
opnar málverkasýninguna Lóan er
komin og Sigurður Ingólfsson les
úr ljóðabók sinni, Þrjár sólir.
Dagskráin er styrkt af Menning-
arráði Austurlands.
Í DAG
Sjá einnig Staður og stund á mbl.is
NORSKA ríkissjón-
varpið, NRK, vinnur
nú að gerð þáttar um
Einar Má Guðmunds-
son rithöfund sem
nefnist „Þrír sjón-
varpsmenn til fundar
við rithöfund“. Tveir
hlutar þáttarins hafa
þegar verið teknir
upp hér á landi, í
Reykjavík annars
vegar og Reykholti
og nágrenni hins veg-
ar. Þriðji hlutinn
verður tekinn upp í
Kaupmannahöfn, á
Kristjánshöfn, þar
sem Einar Már bjó
þegar hann gaf út sínar fyrstu
bækur.
Að loknum upptökum á Krist-
jánshöfn heldur Einar Már í upp-
lestrarferð um Danmörku og tek-
ur m.a. þátt í
ráðstefnu um höfund-
arverk sitt á Fjóni.
Þá mun hann halda til
fundar við rithöfund-
inn, prestinn og al-
þýðufræðarann Jo-
hannes Möllehave og
flytja þeir sameigin-
lega dagskrá víða um
Danmörku, m.a. í
tónlistarhúsi Árósa-
borgar þar sem
kjarneðlisfræðingur-
inn Holger Bech
Nielsen bætist í hóp-
inn en hann er pró-
fessor við Niels Bohr-
stofnunina. Ferð
þeirra Einars Más og Johannes
Möllehave lýkur með dagskrá í
tónleikasal Tívolísins í Kaup-
mannahöfn sunnudaginn 6. apríl
en nú þegar er uppselt hana.
Þáttur um Einar
Má í Noregi
Einar Már
Guðmundsson
Á TÍBRÁRTÓNLEIKUM í Salnum,
í dag, laugardag, kl. 16, syngur sópr-
ansöngkonan Xu Wen við undirleik
Önnu Rúnar Atladóttur píanóleik-
ara. Á efnisskránni eru ljóð og aríur,
allt frá Mozart til Bernstein, þjóðlög
frá Kína og Spáni auk laga eftir Pál
Ísólfsson.
Xu Wen, nam ung að árum kín-
verskan óperusöng, leiklist, dans og
skylmingar við Huangmei-óperu-
skólann í Anhui fylki í Kína. Hún var
fastráðin við Huangmei-óperuna
1986–1988 og hefur sungið aðalhlut-
verk í fjölmörgum kínverskum óp-
erum. Xu Wen fluttist til Íslands árið
1989 og hóf nám í vestrænum söng
hjá Elísabetu Erlingsdóttur við
söngdeild Tónlistarskólans í Reykja-
vík og lauk þaðan einsöngvaraprófi
með ágætiseinkunn vorið 1997. Hún
stundaði framhaldsnám í London.
Sem söngvari hefur hún tekið þátt í
óperuuppfærslum og komið fram í
sjónvarpi hér heima og í Kína.
Anna Rún Atladóttir útskrifaðist
vorið 1994 með fiðlukennarapróf frá
Tónlistarskólanum í Reykjavík og
lauk píanókennaraprófi frá sama
skóla. Hún stundaði framhaldsnám í
London frá 1994, við Trinity College
of Music og The London College of
Music, þaðan sem hún lauk einleik-
araprófi á píanó og MMus gráðu í pí-
anóundirleik (Piano Accompani-
ment).
Ljóð, aríur og þjóðlög
frá Kína flutt í Salnum
Morgunblaðið/Jim SmartXu Wen og Anna Rún Atladóttir.
LJÓÐADAGUR verður í Nýlista-
safninu í dag, laugardag kl. 15, í
tengslum við sýninguna Hlutabréf
í sólarlaginu: Dagur Sigurðarson í
Nýlistasafninu. Áhugasömum gefst
kostur á að lesa upp ljóð eftir Dag,
eða önnur ljóð tileinkuð skáldinu.
Hópur áhugamanna, skálda og vina
stíga á stokk en leyfilegt er að láta
atvikssögu fylgja ljóði eða umsögn.
Kl. 14 verður leiðsögn um sýn-
inguna, einnig á morgun, sunnu-
dag. Sýningin stendur til 6. apríl.
Safnið opið kl. 14–18 miðviku-
daga–sunnudaga.
Ljóðadagur
í Nýló
Dagur Sigurðarson skáld.
♦ ♦ ♦