Morgunblaðið - 29.03.2003, Side 55
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. MARS 2003 55
Þau mistök urður í blaðinu í gær að birtist viku gömul vinningaskrá
DAS. Blaðið biður lesendur velvirðingar á þessum mistökum en vinn-
ingaskráin frá 27. mars birtist hér.
LOKAUMFERÐ í 1. deild karla í
handknattleik verður leikin á
morgun og þá ræðst hvaða lið
hampar deildarmeistaratitlinum
og hvaða átta lið leika í úrslita-
keppninni. Mesta athyglin kemur
til með að beinast að leik Hauka
og ÍR á Ásvöllum og leik Gróttu/
KR og FH á Seltjarnarnesi.
Fyrir lokaumferðina eiga þrjú
lið enn möguleika á deildarmeist-
aratitlinum, Haukar, ÍR og Valur.
Haukar standa best að vígi en
þeir hafa tveggja stiga forskot á
ÍR og Val. Möguleikarnir á deild-
armeistaratitlinum líta þannig út:
Haukar: Sigur eða jafntefli á ÍR
tryggir Haukum titilinn. Tapi þeir
leiknum með minna en þremur
mörkum á sama tíma og Valur
nær ekki að vinna Aftureldingu
verða Haukar deildarmeistarar.
ÍR: Vinni ÍR Hauka með fjórum
mörkum eða meira og Valur nær
ekki að vinna Aftureldingu verður
ÍR deildarmeistari.
Valur: Nái Valur að sigra Aftur-
eldingu á sama tíma og ÍR vinnur
Haukar verða Valur, ÍR og Hauk-
ar jöfn að stigum og þá hampa
Valsmenn titilinum vegna betri
árangurs í innbyrðisviðureignum.
Baráttan um 8. sætið stendur á
milli FH og Gróttu/KR og
skemmtilega vill til að þau eigast
við á Seltjarnarnesi.
FH dugar jafntefli til að komast
í úrslitakeppnina og með sigri
hafna þeir í 7. sæti. Tapi þeir
leiknum er von um sæti í úr-
slitakeppninni nánast úr sögunni
nema að Fram tapi fyrir Víkingi.
Þá sitja Framarar eftir.
Eini möguleiki Gróttu/KR á að
komast í úrslitakeppnina er að
vinna FH-inga. Endi leikurinn
jafntefli og Fram tapi fyrir Víking
verða Grótta/KR og Fram jöfn að
stigum en Framarar ná áttunda
sætinu þar sem liðið hefur betur í
innbyrðisviðureignum.
Spenna og barátta á
tvennum vígstöðvum
ÍSLANDSMEISTARAR KR í knatt-
spyrnu fengu liðsstyrk í gær en þá
skrifuðu tvíburabræðurnir Arnar og
Bjarki Gunnlaugssynir undir samn-
ing við Vesturbæjarliðið sem gildir
út leiktíðina. Þar með leika þeir
saman í fyrsta skipti í átta ár en
sumarið 1995 léku þeir með Skaga-
mönnum og urðu Íslandsmeistarar
með liðinu.
Arnar sagði skilið við atvinnu-
mennskuna fyrir skömmu, alltént í
bili, en hann lék með Feyenoord,
Nürnberg, Sochaux, Bolton, Stoke,
Leicester og síðast Dundee United
en sagði upp samningi sínum við
skoska liðið fyrir skömmu.
Bjarki sneri hins vegar heim úr
atvinnumennskunni fyrir tveimur
árum en hann varð að hætta hjá
Preston sökum þrálátra meiðsla.
Hann lék síðari hluta tímabilsins í
fyrra með ÍA og skoraði 7 mörk í
jafnmörgum leikjum í úrvalsdeild-
inni.
„Ég var orðinn hálfþreyttur á að
vera úti og ákvað að flytja heim. Ég
er kannski ekki alveg búinn að gefa
atvinnumennskuna upp á bátinn en
ég mundi segja að meiri líkur séu á
að ég sé alfluttur heim. Það var ögr-
andi að fara til KR enda leik-
mannahópurinn stór og sterkur og
góð umgjörð í kringum félagið. Þá
spilar liðið í Evrópukeppninni og
síðast en ekki síst verður sérlega
gaman að spila með Bjarka á nýjan
leik,“ sagði Arnar við Morgunblaðið.
Arnar og Bjarki
sömdu við KR
FÓLK
ÍSLENSKA landsliðið í snóker
varð efst í sínum riðli á Álfuleikun-
um á Möltu, gerði í gær 9:9-jafntefli
við Þjóðverja og er því komið áfram í
útsláttarkeppni. Þar mætir liðið
Möltu 2 og síðan Frakklandi eða
Belgíu, sem mætst einnig í dag, ann-
aðhvort í undanúrslitum eða for-
keppni um að leika um fimmta sætið.
CHARLIE Nicholas, fyrrum
markaskorari hjá Celtic, Arsenal og
skoska landsliðinu, tók þátt í lýsingu
á leik 21-árs landsliða Íslands og
Skotlands í gærkvöld. Hann fór
fögrum orðum um Guðmund Viðar
Mete, varnarmann Íslands og leik-
mann Norrköping, sagði hann lang-
besta leikmann íslenska liðsins og
frábæran varnarmann.
GUÐMUNDUR hélt Kevin Kyle,
leikmanni Sunderland sem hefur
spilað með skoska A-landsliðinu, al-
gerlega niðri í leiknum og tók að auki
virkan þátt í sóknarleik Íslands
seinni hluta leiksins.
BJARNI Ólafur Eiríksson úr Val
spilaði sinn fyrsta landsleik á ferl-
inum í gærkvöld, með 21-árs lands-
liðinu. Bjarni, sem stóð sig vel í stöðu
vinstri bakvarðar, hafði aldrei leikið
með yngri landsliðum Íslands, sá eini
í íslenska liðinu.
KR-INGAR töpuðu 1:0 fyrir Kilm-
arnock í Skotlandi í gær en þar voru
á ferðinni „öldungar“ félaganna.
Voru úrslitin ósanngjörn, að mati
vesturbæinga.
JÓHANNES Karl Guðjónsson er
ánægður með að enska knattspyrnu-
sambandið hafi kært Frakkann
Christoph Dugarry fyrir að hrækja
á sig í leik Aston Villa og Birming-
ham á dögunum. „Þetta var mjög
ógeðslegt hjá Dugarry og það var
slæmt fyrir hann að atvikið náðist á
myndband. Dugarry er stjórstjarna
og fyrirmynd margra ungra krakka
og því átt hann alls ekki að gera hlut
eins og þennan,“ segir Jóhannes
Karl við netmiðilinn Planet Football.
ROBERT Pires, miðjumaðurinn
snjalli hjá Arsenal, hefur boðað for-
föll í landslið Frakka sem mætir
Möltu og Ísrael í undankeppni EM á
morgun og á miðvikudag. Pires
meiddist í leiknum við Chelsea.
HARRY Kewell, leikmaður Leeds
United, segir Terry Venables vera
besta knattspyrnustjórann sem
hann hefur starfað með en Venables
var látinn taka pokann sinn hjá
Leeds í síðustu viku. Líklegt er að
Kewell framlengi samning við Leeds
einhvern næstu daga.
MICHELLE Barr, fyrirliði
kvennaliðs ÍBV í knattspyrnu, lék
með Skotum gegn Þjóðverjum í und-
ankeppni EM kvenna í fyrrakvöld.
Skoska liðið steinlá, 5:0, þar sem
Inga Grings skoraði þrennu fyrir hið
sterka lið Þjóðverja.
Morgunblaðið sló á þráðinn tilStefáns Arnarssonar, þjálf-
ara A-landsliðs kvenna og bað
hann að spá í spilin hvað 8 liða úr-
slitin varðar. Stefán er þeirrar
skoðunar eins og flestir að ÍBV og
Haukar séu með sterkustu liðin og
að leið þeirra í undanúrslitin verði
mjög greið.
ÍBV – Fylkir/ÍR 2:0
„Það er engin spurning í mínum
huga að ÍBV vinnur þetta einvígi
örugglega, 2:0. Mér finnst bara
gott hjá Fylki/ÍR að vera komið í
þessa stöðu því KA hefur und-
anfarin ár verið inni í úrslita-
keppninni. ÍBV-liðið er geysisterkt
og kemur til með að eiga auðvelt
verk að fara áfram.“
Haukar – Grótta/KR 2:0
„Haukarnir eru á mikilli sigl-
ingu og ég spái að þeir vinni, 2:0.
Haukaliðið hefur sótt mjög í sig
veðrið og er ásamt ÍBV með besta
liðið í deildinni. Lið Gróttu/KR er
ungt að árum. Unglingastarfið hef-
ur verið öflugt hjá félaginu en þær
stelpur sem eru að koma upp eru
ekki alveg tilbúnar strax.“
Stjarnan – FH 2:1
„Ég held að þetta sé galopið en
hallast þó að sigri Stjörnunnar,
2:1. FH vann Stjörnuna á dög-
unum sem hjálpar því sálfræðilega
og eins er Garðabæjarliðið í tals-
verðum meiðslum svo ég reikna
með hörkuleikjum. Jóna Margrét
hefur verið meidd en ég reikna
með að hún spili en hornamað-
urinn Kristín Klausen verður ekki
með. Ég held samt að vörnin og
markvarslan ásamt hefðinni fleyti
Stjörnunni áfram.“
Valur –
Víkingur 1:2
„Þetta einvígi fer í þrjá leiki og
ég held að Víkingur hafi betur, 2:1.
Rökin fyrir því að ég hallast að
sigri Víkings eru þau að Víkingur
hefur fengið næst fæst mörk á sig
í deildinni. Liðið leikur góða vörn,
er með góðan markvörð og er með
fljóta hornamenn sem skora mikið
af mörkum úr hraðaupphlaupum.
Valur er á móti ekki með sterka
vörn og skorar ekki mikið úr
hraðaupphlaupum. Þetta verða
hörkuleikir og vörnin og mark-
varslan kemur til með að skipta
sköpum.“
Reynist Stefán sannspár mætast
í undanúrslitunum ÍBV og Vík-
ingur annars vegar og Haukar og
Stjarnan hins vegar.
Stefán Arnarsson landsliðsþjálfari
spáir í 8 liða úrslitin í 1. deild kvenna
Létt hjá
ÍBV og
Haukum
ÁTTA liða úrslitin í 1. deild kvenna í handknattleik hefjast í dag.
Flautað verður til leiks í leikjunum fjórum klukkan 13 í dag og á
þriðjudaginn mætast liðin öðru sinni. Tvo sigurleiki þarf til að kom-
ast í undanúrslitin en þurfi að grípa til oddaleikja fara þeir fram á
fimmtudaginn.
Magnús til Hauka
MAGNÚS Ólafsson, sem lék með Íslandsmeisturum KR í knatt-
spyrnu á síðasta keppnistímabili, er genginn til liðs við 1. deildar lið
Hauka. Magnús er þrítugur framherji sem lék átta leiki með KR-
ingum í úrvalsdeildinni í á síðustu leiktíð. Magnús er vel kunnugur
Haukunum en hann lék með þeim þegar þeir unnu sigur í 2. deild-
inni sumarið 2001 og varð markakóngur deildarinnar með 24
mörk.