Morgunblaðið - 31.03.2003, Side 1
STOFNAÐ 1913 88. TBL. 91. ÁRG. MÁNUDAGUR 31. MARS 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Stríð í Írak: Þúsundir araba sagðar vilja deyja
píslarvættisdauða „Rumsfeld ráðríkur“ 12/14
FYRIR stríðið í Írak dreifðu íraskir herfor-
ingjar meðal sinna manna eintökum af
bandarísku kvikmyndinni „Svarthauk-
urinn fallinn“ („Black Hawk Down“) sem
kennsluefni í því hvernig sigra ætti Banda-
ríkjamenn.
Kemur þetta fram í viðtölum við banda-
ríska leyniþjónustumenn í tímaritinu Time
en myndin segir frá dauða 18 bandarískra
hermanna, sem reyndu að bjarga félögum
sínum eftir að tvær þyrlur voru skotnar
niður í Mogadishu í Sómalíu 1993. Eftir
þessar ófarir hættu Bandaríkjamenn bein-
um afskiptum af óöldinni í landinu.
„Írakar vona augljóslega, að sams konar
blóðbað á strætum Bagdad-borgar leiði til
sömu niðurstöðu nú,“ sagði í Time.
Halliburton ekki með
Halliburton, fyrirtæki, sem Dick Chen-
ey, varaforseti Bandaríkjanna, stýrði í
fimm ár fram til 2000, er ekki annað
tveggja fyrirtækja, sem berjast um að fá að
stjórna uppbyggingunni í Írak að loknu
stríði. Kemur það fram á fréttavef News-
week.
Í Bandaríkjunum hefur það verið gagn-
rýnt, að Halliburton eða dótturfyrirtæki
þess, Kellogg Brown and Root, KBR, skyldi
valið eitt af fimm til að bjóða í uppbygg-
inguna en ekki er vitað hvort það dró sig
sjálft í hlé til að komast hjá ásökunum um
hagsmunaárekstur. KBR fékk hins vegar
samning um að slökkva olíuelda án útboðs
og hefur það verið harðlega gagnrýnt.
Kennsluefni
í Íraksher
New York. AFP.
Reuters
Atriði úr myndinni Svarthaukurinn fallinn.
„Svarthaukurinn fallinn“
SPRENGJUM og flugskeytum
rigndi í gær yfir Bagdad í látlaus-
um loftárásum bandamanna. Geisa
miklir eldar í borginni en engar
áreiðanlegar fréttir voru um
mannfall. Með árásunum í gær
vildu bandamenn meðal annars
leggja áherslu á, að ekkert væri
hæft í fréttum um, að til stæði að
gera hlé á hernaðinum.
Eitt flugskeytanna lenti á Karr-
ada-íbúðahverfinu í Bagdad og að
sögn Al-Jazeera-sjónvarpsstöðvar-
innar í Qatar týndu þar nokkrir
óbreyttir borgarar lífi. Fréttaritari
AFP segir hins vegar, að tjón hafi
orðið lítið og enginn látist eða
særst. Loftárásirnar hafa verið
mestar fyrir sunnan borgina á
varnarlínu Lýðveldisvarðarins.
Harðir stórskotaliðsbardagar voru
við Basra í Suður-Írak í gær en
sagt er, að þar séu breskir her-
menn að búa sig undir að ráðast
inn í borgina. Í Nasiriya hefur
bandarísku herliði tekist að ná
undir sig syðri bakka Efrat-fljóts
en liggur þar undir harðri skothríð.
Gagnrýni hafnað
Donald Rumsfeld, varnarmála-
ráðherra Bandaríkjanna, vísaði í
gær á bug vaxandi gagnrýni á
stríðsreksturinn og gang hans og
sagði, að áætlanir um hann hefðu
verið unnar af Tommy Franks,
hershöfðingja og yfirmanni banda-
ríska herliðsins í Írak, í náinni
samvinnu við bandaríska herfor-
ingjaráðið. Franks sagði í gær, að
hernaðurinn gengi vel og von væri
á 120.000 hermönnum til viðbótar
við þau 90.000, sem nú væru í Írak.
Fréttaritari AFP-fréttastofunnar
hafði það þó eftir bandarískum
hermönnum, sem hafa búið um sig
við bæinn al-Kut við Tígris-fljót, að
þeir byggjust við, að sóknin til
Bagdad drægist í nokkrar vikur.
Bandarískir hermenn við borg-
ina Najaf bjuggust í gær til að
berjast hús úr húsi og í N-Írak er
haldið uppi árásum á Íraka við
Mosul og Kirkuk. Ezzat Ibrahim,
yfirmaður íraska hersins þar, sagði
í gær, að mótspyrnan þar yrði ekki
minni en sunnar í landinu.
Látlausar árásir á víg-
línu Lýðveldisvarðar
Reuters
Íraskar konur á leið frá Basra. Um borgina hefur verið hart barist síðan herir bandamanna réðust inn í Írak.
Bagdad, Washington. AP, AFP.
DAVÍÐ Oddsson, forsætisráð-
herra og formaður Sjálfstæðis-
flokksins, sagði í samtali við Morg-
unblaðið á landsfundi flokksins í
gær að hann útilokaði þátttöku
Sjálfstæðisflokksins í þriggja
flokka ríkisstjórn. „Það eru eilíf
uppboð á milli flokka þannig að það
gengur ekki,“ sagði hann.
Davíð sagði að sjálfstæðismenn
hefðu ávallt verið mjög andsnúnir
því að taka þátt í þriggja flokka
stjórnum. Þeir hefðu einu sinni
tekið þátt í slíkri stjórn en þá hafi
þeir neyðst til þess í kjölfar þriggja
mánaða stjórnarkreppu. „Það var
eftir þriggja mánaða stjórnar-
myndunarþóf sem menn gerðu það
og það var stjórn sem ekki entist
vel.“ Davíð vísar þarna til ríkis-
stjórnar Sjálfstæðisflokks, Fram-
sóknarflokks og Alþýðuflokks und-
ir forystu Þorsteins Pálssonar, en
sú stjórn var mynduð sumarið 1987
en sprakk árið 1988.
Skv. skoðanakönnun Gallup á
fylgi stjórnmálaflokkanna í mars-
mánuði eru Sjálfstæðisflokkur og
Samfylkingin með um 35% fylgi
hvor um sig. Framsóknarflokkur-
inn mælist hins vegar með tæplega
fengið á landsfundi. Geir H.
Haarde var einnig endurkjörinn
varaformaður flokksins með 93%
gildra atkvæða.
Skýrir og ótvíræðir kostir
Í stjórnmálaályktun fundarins
segir m.a. að eðlilegt sé að Seðla-
banki Íslands beiti stjórntækjum
sínum til að stuðla að frekari vaxta-
lækkun. „Vaxtalækkun nú myndi
tvímælalaust stuðla að raungeng-
islækkun og efla atvinnulífið frek-
ar,“ segir þar. Þá er lýst yfir ein-
dregnum stuðningi við stefnu
ríkisstjórnarinnar í Íraksmálinu.
Í lokaávarpi sínu sagði Davíð
m.a. að á landsfundinum hefðu
sjálfstæðismenn mótað stefnu sína
til næstu ára „Yfirskrift okkar á
þessum fundi er áfram Ísland. Það
er vel til fundið því í vor verður
kosið um hvort við höldum áfram á
þeirri braut sem Sjálfstæðisflokk-
urinn hefur markað; braut aukins
kaupmáttar, braut lægri skatta,
braut jafnvægis í efnahagsmálum,
braut góðrar heilsugæslu og braut
öflugs menntakerfis.“
Útilokar þátttöku í
þriggja flokka stjórn
Morgunblaðið/Sverrir
Davíð Oddsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, og Geir H. Haarde vara-
formaður voru báðir endurkjörnir á landsfundi Sjálfstæðisflokksins í
gær. Hér fagna þeir eftir að úrslit kosninganna höfðu verið kunngjörð.
Davíð fékk 98% atkvæða
Landsfundi Sjálfstæðisflokksins
lauk á fimmta tímanum í gær en
þar var Davíð Oddsson endurkjör-
inn formaður flokksins með 98%
atkvæða. Halldór Blöndal, sem
stýrði fundinum, sagði að þetta
væri glæsilegasta kosning sem for-
maður Sjálfstæðisflokksins hefði
13% fylgi. Davíð segir þessar nið-
urstöður neikvæðar fyrir Sjálf-
stæðisflokkinn. „Þessi könnun er
að því leytinu til okkur neikvæð og
erfið að við sjáum ekki að það sé
nema einn möguleiki á tveggja
flokka stjórnarmyndun,“ segir
hann og bætir við: „En okkur hefur
liðið ágætlega í því stjórnarsam-
starfi sem við erum í.“ Landsfundur/10
HAFT er eftir bandarískum leyni-
þjónustumönnum, að Jemenar, Palest-
ínumenn og Tétsenar berjist með
Írökum í borginni Nasiriya en um
hana hafa staðið harðir bardagar frá
upphafi Íraksstríðsins fyrir 12 dögum.
Styðja þessar fréttir þær fullyrðing-
ar Íraka, sem fram komu í gær, að
þúsundir manna frá öllum arabaríkj-
unum og jafnvel víðar að séu komnar
til Íraks og tilbúnar að deyja píslar-
vættisdauða í sjálfsmorðsárásum á
breska og bandaríska hermenn. Í gær
bárust meðal annars fréttir af því, að
ótiltekinn fjöldi manna hefði komið frá
Sýrlandi til borgarinnar Mosul í Norð-
ur-Írak og nokkuð hefur verið um, að
Írakar, búsettir í Jórdaníu, hafi haldið
heim til að berjast.
Tétsenar í
liði Íraka
Washington. AP, AFP.