Morgunblaðið - 31.03.2003, Blaðsíða 28
DAGBÓK
28 MÁNUDAGUR 31. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Green Snow kemur í
dag, Selfoss fer í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Selfoss kemur til
Straumsvíkur í dag,
Mánafoss, Ludvik
Andersen og Joching
koma í dag.
Mannamót
Aflagrandi 40. Vinnu-
stofa og leikfimi kl. 9,
boccia kl. 10, vinustofa
kl. 13, söngstund á
morgun kl. 14.
Árskógar 4. Kl. 9–12
opin handavinnustofa,
kl. 11 boccia, kl. 13–
16.30 opin smíðastofa/
útskurður, opin handa-
vinnustofa, kl. 13.30 fé-
lagsvist, kl. 16 mynd-
list.
Bólstaðarhlíð 43. Kl.
9–16 handavinna, kl. 9–
12 bútasaumur, kl. 9–
17 fótaaðgerð, kl. 10–
11 samverustund, kl.
13.30–14.30 söngur við
píanóið, kl. 13–16 búta-
saumur.
Félagsstarf eldri borg-
ara í Mosfellsbæ, Kjal-
arnesi og Kjós. Fé-
lagsstarfið opið mánu-
og fimmtudaga. Mánu-
dagur kl. 16 leikfimi.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist í
Gullsmára 13 kl. 20.30.
Fótaaðgerð frá kl. 10.
Skrifstofan Gullsmára
9 er opin kl. 16.30–18,
s. 554 1226.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 bað, kl. 9
fótaaðgerð og mynd-
list, kl. 10–12 verslunin
opin, kl. 13 föndur og
handavinna.
Félagsstarfið Dalbraut
18–20. Kl. 10 leikfimi,
kl. 13 brids.
Félagsstarfið Dalbraut
27. Kl. 9–16 opin
handavinnustofan, kl.
9–12 myndlist, kl. 13–
16 körfugerð, kl. 11–
11.30 leikfimi, kl. 13–16
spilað, kl. 10–13 versl-
unin opin.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Bað kl. 9–
12, handavinna kl. 9–
16.30, félagsvist kl. 14,
kl. 9–14 hárgreiðsla.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Pútt kl.
10, kóræfingar kl.
10.30, tréskurður kl.
13, félagsvist kl. 13.30.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Brids kl. 13,
línudanskennsla fyrir
byrjendur kl. 18. Dans-
kennsla í samkvæm-
isdönsum fyrir fram-
hald kl. 19 og
byrjendur kl. 20.30. S.
588 2111.
Gerðuberg, fé-
lagsstarf. Fjölbreytt
vetrardagskrá alla
virka daga frá kl. 9–
16.30. S. 575 7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Handavinnustofan op-
in, kl. 9.30 gler- og
postulínsmálun, kl.
10.50 leikfimi, kl. 13
skák og lomber, kl. 20
skapandi skrif.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9 vefnaður, kl.
9.05 leikfimi, kl. 9.55
stólaleikfimi, kl. 10
ganga, kl. 13 brids, kl.
20.30 félagsvist.
Hraunbær 105. Kl. 9
perlusaumur og fóta-
aðgerð, kl. 10 bæna-
stund, kl. 13.30 sögu-
stund og spjall, kl. 13
postulínsmálun og hár-
greiðsla.
Hvassaleiti 56–58. Kl.
9 föndur, kl. 9 og kl. 10
jóga, kl. 13 spilað, kl.
14.15 spænska og fóta-
aðgerð.
Norðurbrún 1. Kl. 10–
11 ganga, kl. 9–15 fóta-
aðgerð, kl. 9–12 mynd-
list, kl. 13–16.45 opin
handavinnustofa.
Vesturgata 7. Kl. 9–16
fótaaðgerð og hár-
greiðsla, kl. 9.15–12
postulínsmálun, kl.
9.15–15.30 handavinna,
kl. 9.30–10.30 boccia,
kl. 11–12 leikfimi, kl.
12.15–13.15 dans-
kennsla, kl. 13–16 kór-
æfing.
Vitatorg. Kl. 8.45
smíði, kl. 9 hárgreiðsla,
kl. 9.30 bókband, búta-
saumur og morg-
unstund, kl. 10 fótaað-
gerð og boccia, kl. 13
handmennt, gler-
bræðsla og spilað, kl.
15.30 jóga.
Gullsmárabrids. Brids
í Gullsmára. Skráning
kl. 12.45, spil hefst kl.
13.
Félag eldri borgara á
Suðurnesjum. Bingó í
Selinu, Vallarbraut 4,
Njarðvík, öll mánu-
dagskvöld kl. 20.
Sjálfsbjörg, félag fatl-
aðra á höfuðborg-
arsvæðinu, félagsheim-
ilið Hátúni 12. Kl. 19
brids.
Félag eldri borgara í
Garðabæ. Æfing hjá
Garðakórnum, kór
eldri borgara í Garða-
bæ, alla mánudaga kl.
17.30 í safnaðarheim-
ilinu Kirkjuhvoli.
Söngfólk er hvatt til að
koma og taka þátt í
starfi með kórnum.
Stjórnandi kórsins er
Kristín Pjetursdóttir.
Kvenfélag Seljasókn-
ar. Fundurinn 1. apríl
fellur niður vegna leik-
húsferðar. 1. apríl,
„Hin smyrjandi
jómfrú“.
Sýnt í Iðnó kl. 20, mæt-
ing við Seljakirkju kl.
19.15.
Í dag er mánudagur 31. mars,
90. dagur ársins 2003. Orð
dagsins: Heyr þú á grátbeiðni
mína, er ég hrópa til þín, er ég
lyfti höndum mínum til Hins
allrahelgasta í musteri þínu.
(Sálm. 27. 2.)
Í grein á lagmarks-riki.is 23. mars sl.
fjallar Haukur Örn
Birgisson um dóma hér
á landi: „Það var athygl-
isvert að skoða þá dóma
sem féllu í Hæstarétti í
gær. Það er vægt til
orða tekið þegar sagt er
að viss ósamræmis gæti
í þeim refsingum sem
dómurinn dæmdi sak-
borninga til.
Við hæfi er að notaorð dómsins sjálfs í
þessum pistli, því þau
lýsa ástandinu best
þannig að samanburð-
urinn komi skýrt fram.
Sýna eftirfarandi dómar
greinilega hvernig tekið
er á grófum ofbeld-
isbrotum annars vegar
og brotum þar sem ekk-
ert fórnarlamb er til
staðar, hins vegar. Við
skulum líta á þrjú mis-
munandi mál.
Í fyrsta lagi skal nefnd-ur dómur í máli nr. 4/
2002 þar sem maður var
dæmdur vegna tilraunar
til innflutnings á fíkni-
efnum. „Með hliðsjón af
skilorðsrofi ákærða á
eftirstöðvum tveggja
ára og þriggja mánaða
fangelsisrefsingar,
dómaframkvæmd og
hinu mikla magni
hættulegra fíkniefna,
sem ákærði flutti til
landsins í ágóðaskyni,
þykir refsing hans hæfi-
lega ákveðin 10 ára
fangelsi.“
Í öðru lagi skal nefnadóm í máli nr. 104/
2002 þar sem maður var
dæmdur fyrir nauðgun,
eignarspjöll og tilraun
til nauðgunar. „Með
hliðsjón af málsgögnum
og dómaframkvæmd
þykja miskabætur hæfi-
lega ákveðnar 500.000
krónur. Ákærði, […skal
sæta] fangelsi í tvö ár.“
Að lokum skal nefnadóm í máli nr. 83/
2002 þar sem maður var
dæmdur fyrir kynferð-
isbrot gegn 9 ára
stúlkubarni. „Brot það,
sem ákærði er sakfelld-
ur fyrir, er alvarlegt og
beinist að mikilvægum
hagsmunum. Þykja ekki
efni til að breyta refsi-
ákvörðun héraðsdóms,
þótt sýknað sé af hluta
ákæruefnis, og skal
ákærði sæta fangelsi í
18 mánuði.“
Skilaboðin til sam-félagsins eru skýr.
Fleiri útskýringa er
ekki þörf,“ segir Hauk-
ur Örn að lokum.
Samantekt Hauks Arn-ar er athyglisverð.
Þarna virðist ekki gæta
samræmis í dómafram-
kvæmd. Burtséð frá áliti
manna á fíkniefnabrot-
um, getur vart staðist,
að kynferðisbrot gegn
níu ára stúlkubarni
varði 18 mánaða fang-
elsi og nauðgun 24 mán-
aða fangelsi, á meðan
refsað er fyrir tilraun
til smygls á eiturlyfjum
með tíu ára fangelsis-
vist.
STAKSTEINAR
Gætir samræmis
í dómaframkvæmd?
Víkverji skrifar...
KJÚKLINGAVERÐ hefur lækk-að niður úr öllu valdi á Íslandi,
eins og flestum ætti að vera kunn-
ugt. Er þetta hið besta mál fyrir
neytendur, enda kjúklingakjöt af-
skaplega gott. Nú síðast varð Vík-
verji var við að auglýst var til sölu í
einhverjum stórmarkaðanna kíló af
kjúklingum á innan við þrjú hundruð
krónur.
Í ljósi þessa á Víkverji erfitt með
að skilja verðlagningu kjúklinga-
staðarins Kentucky Fried Chicken,
sem Víkverji heimsækir endrum og
eins. Hjá KFC (og Víkverji efast svo
sem ekki um að aðrir kjúklingastaðir
séu á svipuðu róli) kostar einn kjúk-
lingabiti 210 kr. Kjúklingamáltíð,
sem samanstendur af tveimur kjúk-
lingabitum og meðlæti (gosi, frönsk-
um og sósu), kostar 745 kr. Hefur
Víkverji ekki orðið var við að gerðar
hafi verið verðbreytingar þó að ljóst
megi vera að innkaupaverð á kjúkl-
ingum hafi lækkað.
x x x
VÍKVERJA rak í rogastans erhann las í Morgunblaðinu í gær
að aðeins 7.500 manns væru búin að
sjá íslensku kvikmyndina Nóa albín-
óa á þeim rúma mánuði sem liðinn er
síðan hún var frumsýnd. Það er
nefnilega bjargföst sannfæring Vík-
verja að hér sé um að ræða allra
bestu kvikmynd, sem gerð hefur
verið á Íslandi. Og Víkverji er ekki
einn um þessa skoðun; myndin hefur
sem kunnugt er rakað saman verð-
launum á kvikmyndahátíðum er-
lendis.
Víkverji getur ekki annað en lýst
óánægju sinni og furðu með sinnu-
leysi íslensku þjóðarinnar. Þessari
mynd mega menn ekki missa af –
ekki af því að það þurfi nauðsynlega
að styðja við bak íslenskrar kvik-
myndagerðar (sem er þó staðreynd)
heldur einfaldlega af því að hún
stenst fyllilega samanburð við það
besta sem frá útlöndum berst!
x x x
VÍKVERJI er orðinn býsna gam-all að árum (að minnsta kosti
eldri en hann kærir sig um að við-
urkenna) og er hættur að bera sig
eftir því allra nýjasta í tónlistinni.
Raunar er það nú svo að er hann
kveikir á útvarpi verður stöðin Létt
96,7 oft fyrir valinu, enda spila menn
þar auðmeltanlegt léttmeti; gjarnan
tónlist frá níunda áratugnum eða
þeim síðasta, þegar Víkverji var á
sínum sokkabandsárum. Víkverji
getur þó ekki annað en lýst því yfir
að honum finnst óþægilega mikið
spilað af konungi skallapopparanna,
Michael Bolton, á Létt 96,7. Er ekki
mál að þessum hörmungum linni?
Allir á Nóa albínóa!
Húðvandamál
og krem
UM árabil hef ég átt við
húðvandamál að stríða, þ.e.
húðsprungur sem ná niður í
hold myndast á milli fingr-
anna. Ég hef um árabil not-
að Cetavlex sótthreinsandi
krem á kaunin og hefur það
gagnast vel. Krem þetta
var ekki fáanlegt í lyfja-
verslunum frá því síðsum-
ars. Ég reyndi ýmis krem
sem ekkert gagn gerðu.
Svo var það að starfs-
stúlka í apóteki benti mér á
að prófa krem sem einnig
er sótthreinsandi og græð-
andi og heitir Helosan. Í
bláum, gamaldags túpum.
Það gagnaðist vel við mín-
um kvilla, og frúin komst
upp á að nota það á ýmis
„öldrunarsvæði“, s.s. oln-
boga, hné, bringu og háls.
Ástæðan fyrir þessum
skrifum mínum er sú að
þegar ég keypti Cetavlex
síðast, sem var sl. sumar,
kostaði 50 g túpa undir kr.
300. Þegar ég kom í apótek
nú nýverið spurði ég hvort
Cetavlex væri komið. Það
var komið, en nú kostaði 50
g túpan kr. 499! Ég gekk út
með Helosan 100 g túpu á
kr. 670.
Virðingarfyllst,
Gylfi Gunnarsson.
Ráðhúsið kalt og grátt
ÉG kom í Ráðhús Reykja-
víkur í gær í þriðja skiptið.
Það vakti athygli mína hvað
allt er kalt og grátt í þessu
húsi. Þetta er svo fínn stað-
ur og ef blóm væru höfð á
staðnum væri mikið hlý-
legra í þessu húsi.
Eins vil ég skila kveðju
til mannsins í bílageymsl-
unni í Ráðhúsinu sem að-
stoðaði mig við að koma
bílnum út aftur.
Borgari.
Litla Gunna, litli
Jón og vextirnir
LITLA Gunna og litli Jón
búa á ósköp venjulegri
eyju, þar sem búa mjög
margir ósköp venjulegir
einstaklingar. Þau lifa mjög
litlu lífi og eru sátt við það
af því að þau geta ekkert
annað. Þeirra helsta
skemmtun er að fara út að
ganga saman og þá ganga
þau í takt og eru í jogging-
göllum í stíl. Þau leita uppi
öll tilboð í stórmörkuðum á
ódýrum mat og hamstra
hann í frystinn sinn. Þau
fara bara á útsölurnar á
lokadegi útsalanna, því að
þá er enn meiri afsláttur á
útsöluvörunum. Litla
Gunna klippir litla Jón sjálf
og litlu börnin þeirra tvö.
Til að upplifa smálíf í lífinu
horfa þau á það í sjónvarp-
inu eða lesa um það í bók-
um. Þau taka enga áhættu
af því að það er hættulegt.
Innst inni langar þau í
meira en þá fara þau tíu
sinnum með æðruleysis-
bænina og vona að það líði
hjá. Litla Gunna og litli Jón
vita ástæðuna fyrir líf-
leysinu en þegja bara yfir
því. Ástæðan er að bank-
arnir hafa tekið stóran
hluta af þeirra launum í
vexti og enginn segir neitt.
Litla Gunna og litli Jón
velta því fyrir sér hvort það
sé eðlilegt að bankarnir
græði mörg þúsund millj-
ónir á ári á meðan heimilin
eru jafnskuldsett og þau
eru. Litla Gunna og litli Jón
hafa meira segja ekki efni á
því að vera áskrifendur að
Mogganum og neyðast því
til að þiggja Fréttablaðið
frítt.
Mörg þúsund ára gömul
speki indjánanna gengur út
á heildarmynd alheimsins.
Ef þú getur fundið sam-
svörun við sjálfan þig og
eitthvert dýr þá skilur þú
betur hvernig allt er ein
heild. Samsvörun litlu
Gunnu og litla Jóns á við líf
hamsturs.
Halldóra María
Steingrímsdóttir,
snyrtifræðingur.
Tapað/fundið
Gleraugu í óskilum
SVÖRT karlmannsgler-
augu, lesgleraugu, fundust
í Fossvogsdalnum nálægt
Víkingsheimilinu. Upplýs-
ingar í síma 892 5025.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn
LÁRÉTT
1 klækjótta, 8 hylja, 9
sjúkdómur, 10 skip, 11
landræma, 13 skára
breitt, 15 tæla, 18 hrísla,
21 guð, 22 veisla, 23
eyddur, 24 kvennabósi.
LÓÐRÉTT
2 diskagrind, 3 jarði, 4
ekki framkvæmt, 5
sveiflufjöldi, 6 baldin, 7
kunna, 12 hjóm, 14 málm-
ur, 15 útlima, 16 ökumað-
ur, 17 átökunum, 18
botnfall, 19 í vafa, 20
skylda.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 heift, 4 gúlpa, 7 aular, 8 liðug, 9 fyl, 11 læra, 13
þrír, 14 karpa, 15 hana, 17 Krít, 20 æða, 22 kotið, 23 get-
um, 24 arinn, 25 auðið.
Lóðrétt: 1 hrafl, 2 illar, 3 torf, 4 gull, 5 líður, 6 angur, 10
yfrið, 12 aka, 13 þak, 15 hokra, 16 nötri, 18 ritað, 19
tómið, 20 æðin, 21 agða.
Krossgáta 6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16