Morgunblaðið - 31.03.2003, Blaðsíða 35
VEÐUR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. MARS 2003 35
RAFVÉLA
VERKSTÆÐI
Vagnhöfði 21 • 110 Reykjavík
Sími: 577 4500 • www.velaland
velaland@velaland.is
d
es
ig
n.
is
2
00
3
")
!"
?@ A$
B$?@ A$
0 CB$
!"#$" %&"'( )! ' * '+
+D:&% ?( ,
,
%
-
-
?
;3
,
,
,
,
% ?( ,
,
,
,
% ?
;3
,
,
,
,
% ;
7<<8
;
&1W
. :
;
7
.
-
&1
3
,
,
,
,
,
,
,
,
,
,
,
,
,
,
,
,
?( %
,
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
- -
. /'' # "00 1' " # & '+ 2 #$"
# '3 2 4 , * 4 '' # "00 1' " # & '+-
" 1'" & "#$ ",
<8&
:&D,:EE&1&
!"#
$
% &
'
( ) *
&%.
&1&>
56 "00 1'" # /"&#" * '+ FG .3 FG .3 FG .3
.(61
-61
. !
( >(
:
-&
.-
I;#4)-
..-
;
<%--#:
7
7
7
1 3& 2 ''+
41 #1 1 '!4
1 1 3& 2 ''+
3 2, ,
1 #1 #;
%
*.
-
B
9
--
01
% . ?-) * .
1-
1-
6.
1 8&"!
1 1 41 41 41 1 1 41 41 41
&0
% J.
-
J
;%
?.-. K--<.
- .
*
.9&" G#J
C
-
1 #1 ''
''
' 8&"!
1 1 3 2, ,
''
#1 1
36&&)%%
" & 3 + + 2 ''- ' " 8" "'
'+, . ?4 &&
9" & 6++ ''
$# "- ' 4 & #& '&
"' '+
I3(&&:&' )- '
'+" ' '+, '!&
4 '&' & "' '+- '
41 "''' '+, ; 2+,. "" &
""$'+'- ' #& ''
,
++
#,,
++
STEINN Kárason er umsjón-
armaður þáttaraðarinnar Straum-
ar og stefnur í umhverfisstjórnun
og umhverfismálum en annar þátt-
ur af fjórum, Umhverfisstjórnun í
reynd, verður endurfluttur á Rás 1 í
kvöld.
„Ég er að nýta mér það sem ég
hef verið að læra undanfarin tvö til
fimm ár í meistaranámi í umhverf-
isstjórnun og hagfræði útum allan
heim,“ segir Steinn, sem heimsótti
13 lönd á tveimur árum, beint og
óbeint í tengslum við meist-
aranámið. Hann dvaldi m.a. í Dan-
mörku, Suður-Afríku og Finnlandi.
„Ég skrifaði meistaraverkefnið
mitt fyrir Norræna fjárfestinga-
bankann í Helsinki. Þar var fók-
usinn á umhverfisstjórnun fjár-
málafyrirtækja,“ segir Steinn og
útskýrir að hans aðkoma að um-
hverfismálum sé í raun við-
skiptalegs eðlis.
Umræða í öngstræti
Hann segir að þáttaröðin sé ekki
síst ætluð til þess að vekja fólk til
umhugsunar og skapa heilbrigða
og uppbyggilega umræðu um um-
hverfismál. „Að mörgu leyti er um-
ræða um umhverfismál komin í
öngstræti hér á landi. Menn hafa
eytt orku sinni í ákveðin verkefni
og heildarstefnumótun hefur setið
á hakanum,“ segir Steinn.
Fyrsti þátturinn fjallaði um
grunnatriði í viðskiptastjórnun þar
sem fléttað var saman siðfræði,
vistfræði og hagfræði.
Í þættinum í kvöld tekur Steinn
fyrir umhverfisstjórnun fyrirtækja.
„Það vita allir um aðsteðjandi um-
hverfisvanda, bæði staðbundið og
hnattrænt,“ segir Steinn en fjallað
verður um aðferðir til að lágmarka
umhverfisáhrif og hámarka hagn-
að.
Meðal annars verður rætt um
hreina framleiðslutækni, vistvæna
vöruþróun, innleiðingu á umhverf-
isstjórnunarkerfum. „Ég ræði við
fulltrúa frá þeim þremur íslensku
fyrirtækjum sem hafa hlotið 14001-
vottun, sem eru Alcan, Borgarplast
og Morgunblaðið,“ segir Steinn og
bendir á að fyrirtæki græði yfirleitt
á því að innleiða slíka alþjóðlega
staðla.
Þriðji þátturinn, sem er á dag-
skrá næstu helgi, fjallar síðan um
sjálfbæra borg. „Þá rek ég þróun
borgarmyndunar og þann vanda
sem kominn er upp í borgum.“
Peningar sem afl hins góða
Síðasti þátturinn fjallar um um-
hverfisstjórnun fjármálafyrirtækja.
„Þar er rætt hvernig fjármálafyr-
irtækin beina fjármagni til að lág-
marka sína útlánaáhættu, græða
meira, en jafnframt að bæta um-
hverfið. Fjármálafyrirtæki og
bankar geta gegnt lykilhlutverki í
því að gera veröldina betri. Pening-
arnir geta verið afl hins góða,“ seg-
ir Steinn.
Hann segir að á Íslandi ætti að
vera hægt að koma á vistvænu sam-
félgi.
„Að mörgu leyti eru hlutirnir í
góðu lagi hérna en við erum svo rík
að Íslendingar ættu að geta búið til
vistvænt samfélag, miklu frekar
heldur en fátæk ríki með stórar
efnaverksmiðjur og kolanotkun.
Víða í stórborgum erlendis er við
ramman reip að draga. Hér er hægt
að snúa sér meira að fyrir-
byggjandi aðgerðum. Helstu málin
hér eru sorpmál og frárennslismál
hjá sveitarfélögum og eyðing á hin-
um ýmsu eiturefnum, passa það að
eiturefni eins og þungmálmar kom-
ist ekki útí náttúruna en það getur
skert lífsafkomu þjóðarinnar til
lengri tíma litið með því að hafa
áhrif á fiskinn. Mengunin hefur
engin landamæri.“
Straumar og stefnur í umhverfismálum
Mengunin hefur
engin landamæri
Morgunblaðið/Golli
Steinn Kárason er umsjónarmaður
þátta um umhverfismál á Rás 1.
Straumar og stefnur í umhverfis-
stjórnun og umhverfismálum er á
dagskrá Rásar 1 á sunnudögum kl.
16.10 og er þátturinn endurfluttur
kl. 22.21 á mánudagskvöldum.
ÚTVARP/SJÓNVARP
HÚN Joyce Meyer er ein af helstu
stjörnum kristilegu sjónvarps-
stöðvarinnar Omega. Það verður
ekki annað sagt en að hér sé á ferð
mjög svo greindur og ákveðinn kven-
maður, þó menn kunni eflaust að
deila um trúarlega afstöðu hennar.
Joyce er óþreytandi að pré-
dika fólki um gott líferni,
og sker sig frá öðrum
sjónvarpsprédik-
urum (á
borð
við
hinn
skraut- lega Benny Hinn),
að því leyti að Joyce er töluvert al-
vörugefnari og fjallar um vandamál
fólks í daglega lífinu í stað þess að
stunda kraftaverkalækningar og
hópsöngva.
Þannig á Joyce í raun meira sam-
eiginlegt með Opruh Winfrey, nema
hvað Joyce er, eins og við er að bú-
ast, með nokkuð sterkan trúarlegan
undirtón í skoðunum sínum á
hinum ýmsu málefnum.
Að slepptri
trúarsannfær-
ingu hvers og
eins getur ver-
ið sérlega áhuga-
vert að hlýða á Joyce
Meyer og hún er tví-
mælalaust einn af
áhugaverðari pré-
dikurum sjón-
varpsstöðvarinnar
Omega. En fyrir þá sem fá brenn-
andi áhuga á boðskap Joyce er vita-
skuld til mikið úrval bóka, mynd-
banda og hljóðsnælda en hún hefur
látið frá sér fjölda slíkra verka, og nú
síðast bókina Hurðinni skellt á
Skolla („Closing the Door to Satanic
Attack“), sem hjálpar fólki að loka á
leiðir kölska inn í líf þeirra.
EKKI missa af…
…kvenskörungn-
um Joyce Meyer
Joyce Meyer er á dagskrá Omega kl.
21.30 og 22.30 öll kvöld vikunnar.