Morgunblaðið - 02.04.2003, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. APRÍL 2003 51
Nýr og betriHverfisgötu 551 9000
www.regnboginn.is
Sýnd kl. 6, 8 og 10.30. B.i 16.
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. B.i 12 Sýnd kl. 5.30 og 8. B.i. 12.
HK DV
ÓHT Rás 2
Kvikmyndir.com
6
ÓSKARSVERÐLAUN M.A.
BESTA MYNDIN
SV MBL
Þegar röðin er komin að þér þá
flýrðu ekki dauðann!
NICOLE KIDMAN BESTA LEIKKONA Í
AÐALHLUTVERKI 2 ÓSKARSVERÐLAUN
Sýnd kl. 10. B.i. 16.
HOURS
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.20. B.i 12 .
Tvö sóltjöld
fylgja öllum
bílstólum
til páska.
www.laugarasbio.is
RADIO X
SV MBL
KVIKMYNDIR.COM
SG DV
ÓHT RÁS 2
Sýnd kl. 5.30.
Sýnd kl. 8 og 10. B.i.16.
Þegar röðin er komin að þér
þá flýrðu ekki dauðann!
Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i.12.
Þeir líta bara út
eins og löggur!
Grínið er farið í
gang með
tveimur
geggjuðum -
Steve Zahn
og Martin
Lawrence!
ÍSLENSKT tónlistarfólk fékk veitt-
an í gær tveggja milljóna króna
styrk frá Valgerði Sverrisdóttur
iðnaðar- og viðskiptaráðherra en
styrkurinn skiptist í sjö hluta. „Frá
árinu 1999 hefur á vegum iðnaðar-
og viðskiptaráðuneytis og sjóða
þess verið veitt á fimmta tug millj-
óna króna til útrásar íslenskrar
tónlistar,“ að því er fram kemur í
tilkynningu frá ráðuneytinu.
Smekkleysa með
stærsta styrkinn
Stærsta styrkinn hlaut Smekk-
leysa, 500.000 krónur, en útgáfan
vinnur nú að kynningarátaki undir
yfirskriftinni „Humar eða frægð?
Smekkleysa í 16 ár“. „Verkefnið
fellur undir almenna markaðs-
setningu fyrirtækisins í Bretlandi
en er jafnframt sjálfstætt verkefni
og fellur undir menningartengda
ferðaþjónustu,“ segir í tilkynningu.
Singapore Sling og Ensími
Hljómsveitirnar Singapore Sling
og Ensími fengu báðar 250.000
króna styrk til þátttöku á tónlistar-
hátíðinni SXSW – South by South-
west í Austin í Texas. Um er að
ræða eina stærstu söluráðstefnu í
heiminum, að því er segir í tilkynn-
ingu. Sveitirnar fá styrkinn til að
kynna sig fyrir erlendum útgef-
endum en báðar gáfu þær út breið-
skífu á síðasta ári, Singapore Sling
gaf út plötuna The Curse of Singa-
pore Sling og Ensími gaf út Ensími.
Orgelkvartettinn Apparat
Orgelkvartettinn Apparat fær
300.000 króna styrk til markaðs-
sóknar erlendis og nær fyrsti
áfangi þeirrar sóknar til útgáfu og
kynningar á smáskífunni Rom-
antika í Bandaríkjunum og Bret-
landi. „Markmið með markaðs-
sókninni er að tryggja fyrstu plötu
sveitarinnar sem mesta dreifingu
með svokölluðum „license“-
samningum, sem felst í framsali á
útgáfurétti til alþjóðlegs útgáfu-
fyrirtækis,“ segir í tilkynningu en
sveitin gaf út sína fyrstu plötu í
haust.
Umfangsmikill Mínus
Hljómsveitin Mínus fær 200.000
króna styrk til að kynna vænt-
anlega breiðskífu sína, Halldór
Laxness, með umfangsmesta kynn-
ingarstarfi sem hljómsveitin hefur
farið í til þessa í Evrópu. „Fylgt
verður eftir þeim góða árangri sem
náðist með útgáfu breiðskífunnar
Jesus Christ Bobby sem gefin var
út árið 2001,“ segir í tilkynningu.
Tónskáldafélag Íslands
Tónskáldafélag Íslands hlaut
300.000 króna styrk. „Félagið
sendi íslensk tónskáld, sem áttu
verk á Norrænum músíkdögum í
Berlín, til að kynna íslenska tónlist.
Alls fóru sjö íslensk tónskáld á há-
tíðina. Norrænir músíkdagar hafa
verið haldnir reglulega frá lokum
18. aldar. Þangað er boðið fjölda
gesta, kynningarfulltrúum og
fréttamönnum víðsvegar að úr
heiminum. Þar gefst því einstakt
tækifæri til að kynna íslenska tón-
list og tónlistarmenn,“ segir í til-
kynningu.
Framsækið Tilraunaeldhús
Tilraunaeldhúsið fékk 200.000 til
New York-ferðar. „Fimm ungir
listamenn komu fram á marg-
listrænum viðburði á The Tonic í
New York í síðasta mánuði á veg-
um Tilraunaeldhússins,“ segir í til-
kynningunni en markmið ferðar-
innar var að kynna framsækna
íslenska tónlist.
Tveggja milljóna króna styrkur frá iðnaðar- og viðskiptaráðuneytinu
Útrás
íslenskrar
tónlistar
styrkt
Apparat fékk 300.000 króna styrk til markaðssóknar erlendis.
Singapore Sling fékk 250.000 króna styrk til þátttöku á tónlistarhátíð.HERRA Karl Sigurbjörnsson bisk-
up, kona hans, frú Kristín Guðjóns-
dóttir, og séra Sigurður Arnarson,
settur prestur í London, Lúxemborg
og Brussel, heimsóttu Lúxemborg á
dögunum. Þetta er í fyrsta sinn sem
biskup vísiterar í Lúxemborg.
Sunnudaginn 23. mars var hátíð-
armessa í kirkju mótmælenda í Lúx-
emborg, var hún vel sótt og um 150
manns í kirkjunni. Í upphafi messu
bauð forseti mótmælendakirkna í
Lúxemborg, Klaus Loetsch, biskup
og Íslendinga velkomna.
Herra Karl skírði tvö börn og pre-
dikaði og séra Sigurður þjónaði fyrir
altari. Kór íslenskra barna í Lúxem-
borg söng í messunni, sem og kvart-
ett íslenskra söngnema frá London
sem var í för með biskupi. Að lokinni
messu var haldið í kirkjukaffi, þar
sem borð svignuðu undan þeim krás-
um sem fólk úr söfnuðinum lagði
með sér.
Herra Karl heimsótti biskup Lúx-
emborgar, Fernard Franck.
Biskup, séra Sigurður og sóknar-
nefndarmenn íslenska safnaðarins
hittu einnig stjórnendur kirkju mót-
mælenda í Lúxemborg og ræddu um
framtíð íslenska safnaðarins og inn-
göngu hans í samband mótmælenda.
Í heimsókn sinni skoðaði biskup
klaustrið Saint Maurice de Clervaux
þar sem Halldór Kiljan Laxness
dvaldi um hríð fyrir um 80 árum.
Halldór er einn af tveimur Íslend-
ingum sem vitað er að dvalið hafa í
klaustrinu í Clervaux, hinn var Lár-
us Ingólfsson. Ábóti þess, Michel
Jorrot, tók á móti biskupi og föru-
neyti, sýndi þeim ýmsar gamlar
bækur í eigu klaustursins, meðal
annars íslenska biblíu og Kirkjusögu
Finns Jónssonar, sem rituð var á lat-
ínu og kom út í Kaupmannahöfn
1772–1778.
Töluvert hefur fækkað í klaustr-
inu í Clervaux, nú eru þar 26 munkar
en voru um 100 þegar mest var, siðir
þess og venjur hafa samt lítið breyst
síðustu fimmtíu árin og þar syngja
munkarnir tíðasöng á hverjum degi.
Frá Lúxemborg hélt biskup, með
presti og tónlistarfólki til Brussel,
þar sem messað var í liðinni viku.
Vel sótt hátíðarmessa var haldin í kirkju mótmælenda í Lúxemborg.
Herra Karl Sigurbjörnsson biskup skírði tvö íslensk börn í Lúxemborg.
Biskup vísiterar
í Lúxemborg