Morgunblaðið - 03.04.2003, Page 1
STOFNAÐ 1913 91. TBL. 91. ÁRG. FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Stríð í Írak: Íbúar Bagdad óttast að þjáningarnar
aukist enn Nýtt stig átakanna hafið 16/23
HAGÞRÓUN á Íslandi hefur verið
hagfelld á síðasta áratug og mikill
árangur náðst í efnahagsmálum.
Fram undan er hins vegar prófraun
fyrir efnahagsstefnu síðustu missera
og vandasöm hagstjórn vegna áhrifa
umfangsmikilla stóriðjufram-
kvæmda og er mikilvægt að beita
jafnt peningastefnunni og fjármálum
hins opinbera til mótvægis. Þetta er
mat sérfræðinga Efnahags- og fram-
farastofnunarinnar (OECD) í ítar-
legri skýrslu um íslenskt efnahagslíf,
sem birt var í gær.
Í skýrslunni segir að íslenska hag-
kerfið hafi sýnt mikla aðlögunar-
hæfni þegar ofþenslu og ójafnvægi
var afstýrt á skömmum tíma, án þess
að það kostaði djúpa niðursveiflu.
Davíð Oddsson forsætisráðherra
lýsti í gær ánægju sinni með umsögn
OECD um íslenskt efnahagslíf og
hagstjórn undanfarinna ára.
Í skýrslu OECD er lögð áhersla á
að þótt peningastefnan þurfi ekki að
bera allan þungann af áhrifum stór-
iðjuframkvæmda sé einnig nauðsyn-
legt að beita fjármálatækjum hins
opinbera. Draga þurfi úr útgjöldum
hins opinbera en einnig er lagt til að
dregið verði úr skattheimtu og jað-
arskatthlutföll í tekjuskatti einstak-
linga verði lækkuð, sem að mati
stofnunarinnar hefði góð áhrif á
framboð vinnuafls auk þess sem
skattalækkun myndi einnig setja út-
gjöldum ríkisins skorður.
Fjallað er um nýlegar ákvarðanir
um auknar framkvæmdir til að slá á
tímabundinn slaka í hagkerfinu í
skýrslunni og telja sérfræðingar
OECD þessar framkvæmdir réttlæt-
anlegar en svo virðist sem svigrúmið
hafi verið nýtt til fullnustu, sérstak-
lega þegar litið sé til þess að áhrif
þessara framkvæmda geti skarast
við stóriðjuframkvæmdirnar.
Tekið er fram að einkavæðing rík-
isstofnana og fyrirtækja hafi tekist
sérstaklega vel og stjórnvöld hvött
til að sofna ekki á verðinum varðandi
frekari einkavæðingu. Hvatt er til að
flýtt verði einkavæðingu í fjarskipta-
og raforkugeiranum. Davíð Oddsson
kvaðst í gær telja að skynsamlegt
væri að fara sér hægt í einkavæð-
ingu í orkugeiranum meðan á stór-
framkvæmdunum stæði. „Þetta eru
stærstu verkefni sem við höfum farið
í og tel ég ekki rétt að vera að rugga
bátnum á meðan, með einkavæðingu
í orkugeiranum,“ sagði hann.
OECD telur brýnt að beita mótvægisaðgerðum vegna stóriðjuframkvæmda
Prófraun fram undan fyrir
íslenska efnahagsstefnu
Leggja til/34
MYNDIR af blæðandi börnum og grátandi
mæðrum, sem sjónvarpað er til milljóna
heimila, hafa vakið mikla reiði meðal araba
yfir hernaðinum sem hófst í Írak fyrir hálf-
um mánuði.
„Þetta skelfir hjörtun, vekur hatur í garð
Bandaríkjamanna,“ sagði egypskur hag-
fræðinemi um stríðsmyndir sem Al-Jaz-
eera-sjónvarpið sýnir daglega. Fregnir
hermdu í gærkvöldi að stjórn Íraks hefði
bannað sjónvarpsstöðinni að senda út fleiri
fréttir frá landinu.
Óhugnanleg mynd af kistu með líki konu
og ungs barns hennar, sem er enn með snuð
í munninum, var á forsíðu egypska dag-
blaðsins Al-Akhbar. Við hlið hennar var
mynd af ungum dreng, sem lá á jörðinni
með höfuðið löðrandi í blóði.
„Þetta er sárgrætilegt, við skiptum í sí-
fellu um rás og alltaf blasa við sömu mynd-
irnar,“ sagði stjórnmálafræðinemi í Kaíró.
„Það ætti að sýna þessar myndir úti um all-
an heim til að vekja fólk til umhugsunar.“
Bandaríkjaher kvaðst í gær vera að
rannsaka fréttir um að fæðingarstofnun
Rauða hálfmánans í Bagdad hefði skemmst
í loftárás á borgina. Enginn var í bygging-
unni þegar sprengingin varð þar sem starf-
semin hafði verið flutt á brott en talsmaður
Rauða hálfmánans sagði að um 28 manns,
sem starfa eða búa á svæðinu, hefðu særst.
Reuters
Íraskur drengur sem særðist í bænum
Hilla. Í arabaríkjum birtast daglega
myndir af fórnarlömbum stríðsins, sem
ekki sjást á Vesturlöndum.
Stríðs-
myndirnar
vekja reiði
Kaíró. AFP.
BANDARÍSKAR hersveitir nálguðust í gær
Bagdad eftir átök við hermenn Lýðveldisvarð-
arins, úrvalssveita Írakshers, sem verja mik-
ilvægar leiðir að írösku höfuðborginni. Tals-
maður Bandaríkjahers sagði að innrásarliðið
hefði náð á sitt vald mikilvægri brú yfir Tígris-
fljót og „eytt“ einu af herfylkjum Lýðveld-
isvarðarins.
Stórfylkisforinginn Vincent Brooks sagði að
landgöngulið flotans væri nú um 65 km frá höf-
uðborginni eftir að hafa „eytt“ Bagdad-herfylki
Lýðveldisvarðarins og hertekið bæinn Kut og
brú yfir Tígris, um 150 km suðaustan við Bagd-
ad. Medina-herfylki Lýðveldisvarðarins og her-
menn úr Nebukadnesar-fylkinu hefðu einnig
orðið fyrir hörðum árásum. „Hnífi er nú beint
að hjarta ríkisstjórnarinnar,“ sagði Brooks.
Undirhershöfðinginn Stanley McChrystal
sagði að Bagdad- og Medina-deildin væri ekki
lengur „trúverðugur herafli“. Árásir land-
gönguliðsins virtust vera liður í tangarsókn í
áttina að Bagdad. Fregnir hermdu að þriðja
fylki fótgönguliðs Bandaríkjahers hefði sótt
hratt fram beggja vegna Efrat-fljóts, vestan
við Tígris, framhjá borgunum Karbala og Naj-
af. Fréttamaður CNN-sjónvarpsins, sem er
með einni sveita fótgönguliðsins, sagði að hún
væri um 40 km frá Bagdad. Fregnir hermdu að
fótgönguliðið hefði ráðist inn í Karbala í fyrri-
nótt og sigrað sveit Medina-herfylkisins „mjög
auðveldlega“.
„Þeir ljúga á hverjum degi“
Herfræðingar sögðu að svo virtist sem
fremstu varnir Íraka við Bagdad hefðu verið
rofnar á minnst tveimur stöðum. Búast mætti
við hörðum bardögum nærri höfuðborginni.
Upplýsingaráðherra Íraks, Mohammed
Saeed Sahaf, sagði fréttirnar um sókn innrás-
arliðsins rangar. „Þeir ljúga á hverjum degi,“
sagði hann. „Þess vegna er það sem þeir stað-
hæfa um góðan árangur og sókn í Najaf og
Karbala ekkert annað en tálvon.“
Í íraska ríkissjónvarpinu var lesin yfirlýsing,
sem sögð var frá Saddam Hussein, þar sem
Írakar voru hvattir til að verja bæi sína og sagt
að sigur væri í sjónmáli.
Brooks stórfylkisforingi viðurkenndi að
írösku hermennirnir hefðu mikinn hug á að
berjast við innrásarliðið í Bagdad fremur en á
bersvæði sunnan við borgina. Hann neitaði því
hins vegar að Írakarnir hefðu aðeins veitt mót-
spyrnu til málamynda og hindruðu þannig ekki
í raun framrásina að höfuðborginni.
CNN greindi seint í gærkvöldi frá bardögum
í Vestur-Írak. Sagt var að skotmarkið kynni að
tengjast meintri efnavopnaframleiðslu Íraka.
Fremstu varnir Íraka
rofnar nærri Bagdad
BRESKUR bryndreki fer framhjá
íröskum skriðdreka af gerðinni
T-55 nálægt Basra, stærstu borg
Suður-Íraks. Bandaríski und-
irhershöfðinginn Stanley
McChrystal sagði í gær að „erf-
iðustu orrusturnar“ kynnu að
vera fram undan nú þegar innrás-
arliðið nálgast Bagdad.
„Við stöndum nú frammi fyrir
hættunni á því að þeir beiti efna-
vopnum,“ sagði McChrystal. „Við
vanmetum ekki hversu erfitt það
getur verið að sækja fram.“
Fréttaritarar breska rík-
isútvarpsins, BBC, sögðu að ekki
hefði enn reynt fyllilega á hern-
aðarmátt Lýðveldisvarðarins, úr-
valssveita Írakshers.Reuters
Erfiðustu
orrusturnar
fram undan?