Morgunblaðið - 03.04.2003, Blaðsíða 53
Kringlan 4-12, sími 568 6211.
Skóhöllin, Firði, Hf., sími 555 4420.
NÝJAR VÖRUR • MIKIÐ ÚRVAL
FRÁBÆRT VERÐ
3.990
Drappaðir
st. 36-42
1.990
Bláir
st. 23-34
5.990
Bláir, drappaðir
st. 36-41
1.990
Hvítir
st. 24-34
3.990
Drappaðir
st. 36-41
4.990
Hvítir, svartir
st. 36-41
4.990
Bláir, hvítir
st. 24-35
með blikkljósum
2.990
Ljósir, svartir, bláir
st. 36-41
BRÉF TIL BLAÐSINS
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 2003 53
SUMIR virðast eiga einkarétt á að
elska heimsfriðinn á sínum forsend-
um. Þótt þeir sömu menn mótmæltu
aldrei fjölda-
morðum einræð-
isherra eins og
Jaruselski í Pól-
landi, Cheschescu
í Rúmeníu, Mao í
Kína, að ótöldum
einræðisherrun-
um í gömlu Sovét-
ríkjunum. Þessir
menn reka sinn
eigin áróður og beina hatri sínu til
áhorfenda í gegnum fjölmiðla að
mestu og bestu vinaþjóð Íslendinga,
Bandaríkjunum.
Hugmyndir Bandaríkjanna um
lýðræði og stjórnun efnahagslífs hafa
fært Evrópu og stórum hluta af Asíu
mikla hagsæld. Bandaríkin hafa
kennt bæði Þjóðverjum og Japönum
að virða lýðræðishefðir eftir sigur
lýðræðisaflanna í heiminum á ofbeldi
þeirra. Líklega er slíkur munaður að-
eins ætlaður Evrópubúum? Evr-
ópubúar telja sig hafa einkarétt á
hjálp Bandaríkjanna eins og 1939-45.
Saddam margbraut öll vopnahléskil-
yrðin eins og Hitler gerði. Saddam
var þá nýbúinn að eiga í stríði við Ír-
an, fyrir utan Kuwait, þar sem hann
hafði slátrað á aðra milljón ung-
menna og unglinga. Engin mótmæli.
Sumir hafa aldrei heyrt talað um mat
fyrir olíu. Það er furðulegt hvílíku
ástfóstri einstaklingar og þjóðir
heims hafa stundum tekið við mestu
slátrurum samtímans eins og til
dæmis Maos, Stalíns, Hitlers og
Napoleons. Það væri gott að fá að
heyra frá þessum mönnum hvað
sósíalískir einræðisherrar megi
drepa marga þegna í sínu eigin ríki
án þess að alþjóðasamfélaginu komi
það við? Af hverju hefur stefnu norð-
ur-kóresku ráðamanna gegn þegnum
sínum aldrei verið mótmælt á Alþingi
Íslendinga, en þeir hafa verið valdir
að dauða milljóna manna. Þessir
sömu menn eru ennþá að mótmæla
Pinoche Chile einræðisherra fyrir að
drepið, „aðeins“ 50.000 manns. Sem
sagt algjör viðvaningur. Hann gerði
eina villu. Hann drap ekki í nafni
fólksins.
Eru það ekki Bandaríkin er brauð-
fæða nú Norður-Kóreu eins og Sov-
étríkin forðum sem þeir launa síðan
Bandaríkjunum með því að búa til
kjarnorkuvopn og eldflaugar sem
þeir geta sent til Bandaríkjanna. Er
ekki mál til komið að það fari fram al-
vöru umræða í fjölmiðlum Íslands um
utanríkismál, tilgang fjölþjóða sam-
félagsins og áhrif ýmissa þátta þess á
líf Íslendinga; um raunverulega stöðu
heimsmála; stöðu Íslands gagnvart
Bandaríkjunum og þeirra lífsgæða
sem þeir hafa fært okkur síðastliðin
50 ár. Hvað áhrif það myndi hafa á líf
hvers Íslendings ef við slitum sam-
bandi okkar við Bandaríkjamenn.
Það getur vel verið að Bandaríkin
hagi sér ekki alltaf eins og við kjósum
okkur en ef ég mætti kjósa mér
bandamann meðal stórþjóða heims,
fyrr og síðar, þá myndi ég kjósa að
það væru Bandaríkin og England þar
á eftir. Öðrum Evrópuþjóðum eða
öðrum þjóðum heims myndi ég ekki
treysta. Lengsta friðartímabil í Evr-
ópu rann upp með stofnun NATO og
veru bandarískra hermanna á meg-
inlandi Evrópu. Bandaríkin færðu
okkur siðmenninguna aftur 1945 og
við erum búin að gleyma því 2003.
Þurfa ekki einhverjir að hugsa sig um
og jafnvel skoða hug sinn örlítið betur
áður en þeir beita stóru orðunum.
KRISTÓFER MAGNÚSSON,
Miðvangi 41, Hafnarfirði.
Til varnar
Bandaríkjunum
Frá Kristófer Magnússyni
RÍKISSTJÓRNIN stendur nú í
varnarbaráttu fyrir þeim óréttlátu
skattabreytingum sem hún hefur
staðið fyrir. Geir Haarde hefur
bakkað frá staðhæfingum sínum
um skattalækkanir til handa öllum
og er kominn í kaupmáttaraukn-
ingu fólksins. Vissulega hefur orðið
kaupmáttaraukning en henni er
bara misskipt. Þeir sem fengið
hafa skattalækkanir þessarar rík-
isstjórnar eru ekki þeir sem þurfa
þess, það eru þeir sem síst þurfa
þess. Sem dæmi um skattbreyting-
ar þessarar ríkistjórnar má nefna
að hjón með 2,5 milljónir í sam-
anlagðar árstekjur hafa fengið 10%
hækkun á sköttunum meðan hjón
með 18 milljónir í samanlagðar árs-
tekjur hafa fengið 8% lækkun á
sköttunum. Þetta þýðir að hjá
hjónum sem hafa um 203 þúsund á
mánuði í samanlagðar tekjur hefur
skattbyrgðin aukist um 10% á með-
an hjón með mánaðartekjur upp á
um 1,5 milljónir á mánuði hafa
fengið 8% afslátt af sínum skatt-
byrðum.
Þegar hjón með 203 þúsund
króna launin sín berjast í bökkum
til að ná endum saman megum við
gera ráð fyrir því að 1,5 milljónir á
mánuði geri það ögn einfaldara.
Hvaða glóra er í þessu? Hvar er
réttlætið? Hvar er skattalækkunin
mín?
INGIMAR INGIMARSSON,
varabæjarfulltrúi í Hafnarfirði,
Strandgötu 19.
Hvar er
skatta-
lækkunin
mín?
Frá Ingimari Ingimarssyni
Árvirkinn
Austurv.9/Eyrarvegi 29, Selfossi
Geisl i
Flötum 29, Vestm. eyjum
G.H.LJÓS
Garðatorgi 7, Garðabæ
Ljósgjafinn
Glerárgötu 34, Akureyri
Glitnir
Brákarbraut 7, Borgarnesi
Lónið
Vesturbraut 4, Höfn
Hljómsýn
Stillholti 23 Akranes
Rafbúð R.Ó.
Hafnargötu 52, Keflavík
Straumur
Silfurtorgi 5, Ísafirði
S.G. Raftækjaverslun
Kaupvangi 12, Egilsstöðum
PERUBÚÐIR
Rafbúð Skúla Þórs
Álfaskeiði , Hafnarfjörður
Dulux EL longlife
Endist í 15.000 klst
5 ára ábyrgð
Lukt með
sparperu og
fjarstýringu
Tilboð á 10 pakk frá
OSRAM 40W og 60W
Tilboð
490 kr.
Tilboð
990 kr.
Tilboð
4.290 kr.
Byggt & Búið
Kringlunni / Smáralind
Pfaff Borgarl jós
Grensásvegi 13, Reykjavík
Ti lboð í OSRAM perubúðum