Morgunblaðið - 07.04.2003, Síða 2
FRÉTTIR
2 MÁNUDAGUR 7. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MANNFALL Í BAGDAD
Harðir bardagar geisuðu í gær
milli bandarískra og íraskra her-
sveita í úthverfum Bagdad og her-
stjórn bandamanna sagði að þús-
undir íraskra hermanna hefðu fallið
eða særst þar síðustu daga. Fregnir
hermdu að fjöldi óbreyttra borgara
hefði einnig látið lífið. Breskur her-
afli hélt inn í Basra, næst stærstu
borg Íraks, og fregnir hermdu að
400 íraskir hermenn hefðu fallið í
hörðum bardögum í borginni Karb-
ala síðustu tvo daga.
Fjöldamorð í Kongó
Rannsóknarmenn Sameinuðu
þjóðanna telja að nær þúsund
óbreyttir borgarar hafi verið myrtir
í árásum á um fimmtán þorp í norð-
austurhluta Lýðveldisins Kongó á
fimmtudag. Ekki var ljóst í gær
hverjir frömdu fjöldamorðin.
Samkomulag við Impregilo
Verktakafyrirtækið Arnarfell hef-
ur náð samkomulagi við ítalska
verktakafyrirtækið Impregilo um að
það annist undirbúningsfram-
kvæmdir við göng og stíflu við Kára-
hnjúkavirkjun. Fyrirtækið hefur
hafið vinnu við verkið en það snýst
um að grafa fyrir hjágöngum fyrir
Jöklu.
Beygjur yfir hættumörkum
Alls eru 30 beygjur á hringveg-
inum yfir hættumörkum, þar af sex
stórhættulegar, skv. mælingum sem
unnar voru með nýrri tækni með
stuðningi Rannsóknarráðs umferð-
aröryggismála. Í skýrslu um rann-
sóknina er vakin athygli á að hættu-
legar beygjur séu oft illa merktar
eða hreinlega ómerktar.
Hald lagt á fíkniefni
Lögreglan á Snæfellsnesi lagði
hald á nokkurt magn fíkniefna um
helgina í samstarfi við lögregluna í
Hafnarfirði. Málið telst að fullu upp-
lýst.
Fyrsta stjórnarskráin
Danski forsætisráðherrann, And-
ers Fogh Rasmussen, er vænt-
anlegur í opinbera heimsókn hingað
til lands á miðvikudag. Auk þess að
ræða við forsætisráðherra mun hann
afhenda Íslendingum fyrstu stjórn-
arskrá Íslands frá árinu 1874. Danir
samþykktu nýverið að hún skyldi
varðveitt hér á landi.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Bréf 26/27
Viðskipti 11/13 Dagbók 28/29
Erlent 12/13 Leikhús 30
Listir 15/16 Fólk 30/33
Umræðan 16/17 Bíó 30/33
Forystugrein 18 Ljósvakar 34
Minningar 20/24 Veður 35
* * *
ÓVÍST er hvort draga muni til tíðinda
á fundi í dag vegna viðræðna Evrópu-
sambandsins og Íslands, Noregs og
Liechtenstein um stækkun Evrópska
efnahagssvæðisins. Halldór Ásgríms-
son utanríkisráðherra segir að ef mál-
ið skýrist ekki í vikunni gætu viðræð-
urnar dregist fram eftir árinu.
„Það er verið að ná niðurstöðu í
málinu en það liggur ekkert nýtt fyrir
um það. Við höfum hreyft okkur í fjár-
framlögunum og boðist til að greiða
meira en við höfum greitt á grundvelli
samningsins um Evrópska efnahags-
svæðið. En það er síðan háð því að við
fáum viðunandi lausn í tollamálunum.
Enn sem komið er teljum við það sem
hefur komið fram ófullnægjandi.
Þannig stendur málið,“ sagði Halldór.
Reyna átti til þrautar með óform-
legum þreifingum að ná málamiðlun
yfir helgina. Halldór sagði í samtali í
gærkvöldi að á fundinum í dag gæti
málið skýrst eitthvað. „Ef það skýrist
ekki í vikunni, getur þetta dregist
fram eftir árinu. Ef þetta á að liggja
fyrir fyrir fundinn í Aþenu, þá þarf
þetta að skýrast núna í vikunni,“
sagði Halldór.
Fulltrúar EFTA-landanna munu
líklega hitta fulltrúa framkvæmda-
stjórnar ESB árdegis og gæti sá
fundur ráðið úrslitum um hvort fram-
kvæmdastjórnin leggur fram uppkast
að lausn málsins fyrir fund í svo-
nefndum EFTA-hópi aðildarþjóða
ESB. Haft er eftir Bjørn T. Gryde-
land, sem fer fyrir norsku viðræðu-
nefndinni, að helmingslíkur séu á að
málið leysist.
Utanríkisráðherra um ESB-viðræður
Gætu dregist mjög ef
ekki skýrist í vikunni
SIV Friðleifsdóttir umhverfisráð-
herra segir það augljóst að breyta
þurfi fuglaverndarlögum til að
vernda varp arnarins enda sé hann
friðaður og lögin verði að end-
urspegla það. Fuglaverndarfélag
Íslands hefur skorað á ráðherra að
grípa til tafarlausra ráðstafana til
að tryggja verndun varpstaða arn-
arins með útgáfu bráðabirgðalaga.
Áskorunin kemur í kjölfar þess
að maður var sýknaður í Hæsta-
rétti í síðustu viku fyrir að raska
hreiðurstað arna í Miðhúsaeyjum
2001 og 2001. Hann hafði áður ver-
ið sakfelldur fyrir sömu sakir í
Héraðsdómi Vestfjarða.
Ráðherra segir að dómur
Hæstaréttar hafi komið sér á
óvart og að Hæstiréttur skuli telja
lögin óljós. Hún segir það alger-
lega óviðunandi að fólk hefti og
eyðileggi varp arnarins og ráðu-
neytið muni ganga í það að und-
irbúa lagasetningu svo lögin haldi
eins og til var ætlast.
Maðurinn var sakfelldur í Hér-
aðsdómi Vestfjarða í fyrrasumar
fyrir að raska hreiðurstað arna í
hólmanum Arnarstapa í Miðhúsa-
eyjum á árunum 2000 og 2001. Í
dómi Hæstaréttar segir hins vegar
að ekki sé ljóst hvort sá staður
sem örn kynni að verpa á, gæti
fallið undir „lífsvæði dýra“ í
ákvæðinu sem maðurinn sætti
ákæru fyrir. Í ályktun Fugla-
verndarfélagsins segir að 80 ár séu
liðin frá því að Íslendingar friðuðu
örninn alveg, fyrstir þjóða. Félagið
treysti því að ráðherra sjái til þess
að ríkisvaldið geri verndun arn-
arins að forgangsverkefni í nátt-
úruvernd á afmælisárinu.
Skora á ráðherra að
vernda arnarvarpið
Ráðherra segir
ljóst að breyta
þurfi lögum TIL hópslagsmála kom áHornafirði aðfaranótt sunnu-
dags. Hópur ungmenna réðst að
fimm mönnum sem allir eru
skipverjar á aðkomubáti.
Að sögn lögreglu voru skip-
verjarnir á kaffihúsi í bænum
þegar ungmennin byrjuðu að
ónáða þá. Þeir ákváðu þá að yfir-
gefa staðinn og halda til skips.
Utan við kaffihúsið var nokkur
hópur ungmenna og virtist sem
múgæsing hefði gripið um sig.
Skipverjarnir hringdu á lög-
reglu sem kom og tvístraði
hópnum. Þegar skipverjarnir
komu niður á bryggju birtist
ungmennahópurinn aftur og
réðst á þá. Lögreglan kom þá
aftur á vettvang og þurfti hún að
hafa bein afskipti af slagsmálun-
um sem stóðu í um 25 mínútur.
Múgsefjun að sögn lögreglu
Lögreglan á Höfn segir að um
múgsefjun hafi verið að ræða og
hafi 20 til 25 manna hópur á
aldrinum 16 til 22 ára tekið virk-
an þátt í slagsmálunum. Mun
fleiri hafi þó verið viðstaddir og
það hafi æst óróaseggina til
muna og þeir hafi beitt grófum
fantabrögðum. Einn skipverj-
anna hlaut sjáanlega áverka í
slagsmálunum og íhugar að
leggja fram kæru.
Mikið annríki var alla helgina
hjá lögreglunni á Höfn og mikil
ölvun í bænum. Aðfaranótt laug-
ardags var brotist inn í sölu-
skála Olís og íþróttahúsið. Ekki
er vitað hvort sömu þjófarnir
voru á ferð. Nokkru af tóbaki og
12 þúsund krónum var stolið í
söluskálanum en engu úr
íþróttahúsinu. Þjófarnir reyndu
að komast inn í Heppuskóla sem
er sambyggður en komust ekki
gegn um öryggisgler.
Annasamt á Höfn
Ungmenni
réðust að
áhöfn að-
komubáts
Hornafirði. Morgunblaðið.
VEIÐIFERÐ Garðeyjar SF á laugardag var stutt
og aflinn óvenjulegur. Skipið kom að landi um há-
degisbil með hnúfubak sem flækst hafði í netunum.
Oftast er hægt að sleppa hvölum sem lenda í
veiðarfærum en þessi hnúfubakur var rækilega
flæktur í netunum og mjög af honum dregið. Því
var ákveðið að fara með hvalinn í land enda
skylda að koma með allan meðafla að landi, eins
og skipstjórinn orðaði það. Hvalurinn var ellefu
metra langur og því frekar smár, en hnúfubakar
eru að jafnaði 12–19 m á lengd og vega 25–48
tonn.
Morgunblaðið/Sigurður Mar
Fengu hnúfubak í nótina
NOKKRAR skemmdir urðu á fólks-
bíl sem fjórir piltar, 16–20 ára, tóku
traustataki á Húsavík í gærmorgun
og óku utan í kantsteina og grasbörð
innanbæjar.
Að sögn lögreglunnar á Húsavík
voru það eftirtektarsamir nágrannar
sem létu lögreglu vita af skringilegu
aksturlagi þeirra. Skemmdir urðu
einkum á hjólabúnaði bílsins sem er
óökufær.
Stálu bíl og
skemmdu
2003 MÁNUDAGUR 7. APRÍL BLAÐ B
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
ÞRÓTTUR MEISTARI Í BLAKI FJÓRÐA ÁRIÐ Í RÖÐ / B12
Morgunblaðið/Golli
Broddi Kristjánsson bætti enn einum Íslandsmeistaratitli í safn sitt í gær og eru titlarnir nú alls 41 á 25 ára ferli hans í íþróttinni.
BRODDI Kristjánsson landaði enn
einum Íslandsmeistaratitli sínum í
badminton er hann sigraði í tvíliða-
leik ásamt Helga Jóhannessyni.
Þeir félagar eru í TBR og lögðu
þeir Svein Sölvason og Tryggva
Nielsen 15/7, 10/15, 15/3. Sveinn
og Tryggvi áttu titil að verja en sáu
á eftir honum í hendur Brodda og
Helga.
Broddi sem jafnframt er lands-
liðsþjálfari sagði að mótið hefði
verið jafnt og spennandi. „Ég er
löngu hættur að telja hve oft ég hef
fagnað Íslandsmeistaratitli en því
var hvíslað að mér að þessi titill
væri númer 41 og að ég hefði unnið
tvíliðaleikinn í 18 skipti,“ sagði
Broddi og var ekki viss um hvort
hann myndi mæta til leiks á næsta
ári. „Maður veit aldrei og ég hef
verið spurður svo oft að þessu und-
anfarin ár að það er best að segja
sem minnst,“ sagði Broddi sem
verður 43 ára gamall seint á þessu
ári. Þess má geta að Broddi ákvað
að verja ekki titil sinn í einliða-
leiknum sem hann landaði fyrir ári.
„Ég fer kannski út að borða í tilefni
dagsins,“ sagði Broddi sem tók þátt
í fyrsta Íslandsmóti sínu árið 1978.
„Ég man vel eftir þeim leik þar
sem ég tapaði gegn Herði Ragn-
arssyni frá Akranesi og líkast til
hefur það hert mig í framhaldinu,“
bætti Broddi við en þess má geta að
dóttir Harðar er Drífa sem lét mik-
ið að sér kveða á Íslandsmótinu.
„Er hættur að telja“
Árni var nýkominnheim frá Stavanger
en þar þreyttu norsku
meistararnir lokapróf sitt
fyrir deildakeppnina sem
hefst um næstu helgi og
sigruðu Viking, 5:0. Árni
Gautur sat sem fastast á
bekknum og sá Espen
Johnsen standa sig ágæt-
lega á milli stanganna
hjá Rosenborg sem á í
höggi við Vålerenga í
fyrstu umferðinni næstkomandi
laugardag.
„Það er lítið sem ég gert gert
nema að reyna að vinna mig inn í
liðið sem allra fyrst,“ sagði Árni
Gautur en eins og fram hefur kom-
ið er líklegt að hann yfirgefi Rosen-
borg á þessu ári en Árni
hefur ekki viljað skrifa
undir nýjan samning við
liðið. „Það er verið að
vinna í því að ég rói á
önnur mið og vonandi
kemur eitthvað spenn-
andi upp á borðið í sum-
ar. Mig langar að reyna
fyrir mér annars staðar
og umboðsmaður minn
er með allar klær úti og
er að þreifa fyrir sér um
hvaða félög eru að leita að mark-
vörðum.“
Árni Gautur hefur orðið meistari
með Rosenborg síðustu fimm árin
og undanfarin þrjú tímabil hefur
hann verið einn albesti leikmaður
liðsins.
Árni Gautur
úti í kuldanum
„ÞAÐ lítur allt út fyrir það að ég sitji á tréverkinu og það verði mitt
nýja hlutskipti hjá liðinu í upphafi mótsins,“ sagði landsliðs-
markvörðurinn Árni Gautur Arason hjá Rosenborg í samtali við
Morgunblaðið í gær.
BÍLDSHÖFÐI 510 8020
SMÁRALIND 510 8030
SELFOSS 480 7000
WWW.INTERSPORT.IS
MARGRÉT Ólafsdóttir, fyrrum
fyrirliði Breiðabliks, hafnaði tilboði
frá norska úrvalsdeildarliðinu Kol-
botn á dögunum en eins og Morg-
unblaðið greindi frá í síðustu viku
þá gerði KR-ingurinn Ásthildur
Helgadóttir slíkt hið sama.
Margrét var reyndar með fleiri
tilboð uppi á borðinu því kínverska
liðið Bejing sóttist eftir kröftum
hennar en Margrét svaraði tilboð-
inu neitandi en hún ákvað í vetur
að leggja knattspyrnuskóna á hill-
una.
Margrét hafnaði boði frá Kína