Morgunblaðið - 07.04.2003, Qupperneq 25
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. APRÍL 2003 25
TÚRBÍNU-
ÞJÓNUSTA
Vagnhöfði 21 • 110 Reykjavík
Sími: 577 4500 • www.velaland
velaland@velaland.is
d
es
ig
n.
is
2
00
3
Árvirkinn
Austurv.9/Eyrarvegi 29, Selfossi
Geisl i
Flötum 29, Vestm. eyjum
G.H.LJÓS
Garðatorgi 7, Garðabæ
Ljósgjafinn
Glerárgötu 34, Akureyri
Glitnir
Brákarbraut 7, Borgarnesi
Lónið
Vesturbraut 4, Höfn
Hljómsýn
Stillholti 23 Akranes
Rafbúð R.Ó.
Hafnargötu 52, Keflavík
Straumur
Silfurtorgi 5, Ísafirði
S.G. Raftækjaverslun
Kaupvangi 12, Egilsstöðum
PERUBÚÐIR
Rafbúð Skúla Þórs
Álfaskeiði , Hafnarfjörður
Dulux EL longlife
Endist í 15.000 klst
5 ára ábyrgð
Lukt með
sparperu og
fjarstýringu
Tilboð á 10 pakk frá
OSRAM 40W og 60W
Tilboð
490 kr.
Tilboð
990 kr.
Tilboð
4.290 kr.
Byggt & Búið
Kringlunni / Smáralind
Pfaff Borgarl jós
Grensásvegi 13, Reykjavík
Ti lboð í OSRAM perubúðum
Alþjóðleg ferðamarkaðsfræði
„Að geta sýnt fram á lokapróf í Alþjóðlegri ferða-
markaðsfræði frá jafn virtri stofnun sem IATA/UFTAA
er, hlýtur að teljast gulltrygging fyrir atvinnu innan
ferðaþjónustunnar hvar sem er í heiminum.“
Sigurlaug Valdís Jóhannsdóttir,
Allrahanda.
Námsefnið kemur frá IATA/UFTAA og tekin eru próf í mars nk. og
veitir því alþjóðlega viðurkenningu, en kennslan fer fram á íslensku.
Námið hentar öllum þeim, sem áhuga hafa
og vilja auka þekkingu sína á ferðaþjónustu.
www.menntun.is
Bíldshöfða 18 • Sími 567 1466 • Opið frá kl. 8—22
3 KYNNINGAR
Á morgun, þri. 8. apríl,
HYGEA Laugavegi
Miðvikud. 9. apríl
HYGEA Kringlunni
Fimmtud. 10. apríl
HYGEA Smáralind
Alla daga
frá kl. 12-17
10% kynningar-
afsláttur og
fallegur kaupauki
ERU HRUKKUR OG ÞREYTT
HÚÐ AÐ DRAGA ÞIG NIÐUR?
Kringlunni 8-12,
sími 533 4533
Laugavegi 23,
sími 511 4533
Smáralind,
sími 554 3960
NÝTT!
Cellular
Anti-Wrinkle
Firming Serum
www.laprairie.com
YFIR 1.000 manns sóttu opnun-
arhátíð kosningamiðstöðvar Fram-
sóknarflokksins á Suðurlandsbraut
34 í Reykjavík á laugardag sem
haldin var undir yfirskriftinni Fjöl-
skyldan í fyrirrúmi.
Opnunin hófst með ávarpi Hall-
dórs Ásgrímssonar, formanns
Framsóknarflokksins, en að því
búnu voru ýmis skemmtiatriði í
boði. Kosningamiðstöðin verður op-
in frá 10–22 alla daga fram að kosn-
ingum og er ráðgert að halda þar
ýmsa fundi um málefni sem eru of-
arlega á baugi í þjóðmálaumræð-
unni.
Morgunblaðið/Golli
Kosningamiðstöð Fram-
sóknarflokks opnuð
SAMKAUP – verslunarkeðja færði
Félagi aðstandenda alzheimer-
sjúklinga nýlega styrk að upphæð
kr. 500.000 til reksturs félagsins.
Styrkurinn var afhentur á stjórn-
arfundi félagsins 1. apríl sl.
Félagið mun verja styrknum til að
auka tengsl og efla starfsemina um
allt land, segir í fréttatilkynningu.
Á myndinni afhendir Skúli Skúla-
son frá Samkaupum Maríu Th. Jóns-
dóttur, formanni samtaka alzheim-
ersjúklinga, gjöfina. Með þeim á
myndinni eru f.v. Guðríður Otta-
dóttir, Jóhanna Ólafsdóttir, Mar-
grét Gísladóttir og Haukur Helga-
son, framkvæmdastjóri
samtakanna.
Morgunblaðið/Jim Smart
Félag aðstandenda
alzheimersjúklinga fær styrk
Fyrirlestur um þjóðfélags-
ástandið í Argentínu Enrique del
Acebo prófessor í félagsfræði við del
Salvador háskólann í Buenos Aires
flytur opinn fyrirlestur, þriðjudaginn
8. apríl kl. 16, í Lögbergi, í stofu 101 í
Háskóla Íslands. Heiti fyrirlesturs
hans er: „Þjóðfélagsástandið í Arg-
entínu: Félagssálfræðilegt sjón-
arhorn“. Fjallað verður um ástandið
í félags- og menningarlegu ljósi og
greint frá þeirri upplausn sem ríkt
hefur í stjórnkerfi landsins og í sam-
félaginu öllu. Fyrirlesturinn verður á
ensku og er haldinn á vegum fé-
lagsfræðiskorar HÍ og stofnunar
Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum
málum. Öllum er heimill aðgangur.
Á MORGUN
Röng dagsetning
Í formála minningargreinar um
Gísla Ólaf Jakobsson á blaðsíðu 46
í Morgunblaðinu í gær, sunnudag-
inn 6. apríl, var ranglega sagt að
útförin færi fram þann sama dag.
Hið rétta er að útför hans var gerð
frá Kildevældskirke í Österbro í
Kaupmannahöfn fimmtudaginn 3.
apríl. Eru hlutaðeigendur beðnir
að afsaka þessi mistök.
LEIÐRÉTT
ÚTSKRIFT í Starfsnámi í jarðlagna-
tækni fór fram fyrir nokkru og í
fyrsta sinn gegnum fjarfundarbúnað.
Útskrifaðir voru 30 jarðlagnatæknar,
þar af 12 frá Akureyri, 10 úr Reykja-
vík, 4 frá Sauðárkróki og 4 frá Egils-
stöðum. Þátttakendur fengu afhent
skírteini við hátíðlega athöfn í Dælu-
stöð Orkuveitu Reykjavíkur við
Gvendarbrunna.
Starfsnám í jarðlagnatækni er 300
kennslustundir. Umtalsverður hluti
kennslunnar var að þessu sinni send-
ur frá húsakynnum Mímis – símennt-
unar um myndfundabrú Símans til
Farskóla Norðurlands vestra, Sí-
menntunarmiðstöðvar Eyjafjarðar og
Fræðslunets Austurlands. Annað var
kennt í heimabyggðum þátttakenda.
Samorka, Efling stéttarfélag,
Orkuveita Reykjavíkur, Landssím-
inn, Gatnamálastofa og Mímir – sí-
menntun standa að þessu námi.
Kostnaður er greiddur af fyrirtækj-
um sem senda þátttakendur. Þegar
svo ber undir niðurgreiða starfs-
menntasjóðir Eflingar – stéttarfélags
við Reykjavíkurborg og atvinnurek-
endur á almennum markaði og
Starfsafl verulegan hluta þátttöku-
gjaldanna. Starfsmenntasjóður fé-
lagsmálaráðuneytisins veitti einnig
styrk til námskeiðsins. Námið er opið
öllum þeim, sem starfa við jarðlagnir
hjá opinberum aðilum og fyrirtækjum
á almennum markaði.
Starfsnám
í jarðlagnatækni
Kennt í gegn-
um mynd-
fundabrú
♦ ♦ ♦