Morgunblaðið - 07.04.2003, Side 28
DAGBÓK
28 MÁNUDAGUR 7. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Dettifoss kemur í dag
Brúarfoss fer í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Brúarfoss kemur í
dag, Arklow Day fer
í dag.
Mannamót
Aflagrandi 40. Vinnu-
stofa og leikfimi kl. 9,
boccia kl. 10, vinnu-
stofa kl. 13, söng-
stund á morgun kl.
14.
Árskógar 4. Kl. 9-12
opin handavinnustofa,
kl. 11 boccia, kl.13-
16.30 opin smíðastofa/
útskurður, opin
handavinnustofa, kl.
13.30 félagsvist, kl. 16
myndlist.
Bólstaðarhlíð 43. Kl.
9-16 handavinna, kl.
9-12 bútasaumur, kl.
9-17 fótaaðgerð, kl.
10-11 samverustund,
kl. 13.30-14.30 söngur
við píanóið, kl. 13-16
bútasaumur.
Félag eldri borgara,
Garðabæ. Æfing hjá
Garðakórnum, kór
eldri borgara Garða-
bæ, mánudaga kl.
17.30 í safnaðarheim-
ilinu Kirkjuhvoli. Öllu
söngfólki er velkomið
að taka þátt í starfi
með kórnum. Stjórn-
andi kórsins er Krist-
ín Pjetursdóttir.
Félagsstarf eldri
borgara í Mosfellsbæ,
Kjalarnesi og Kjós.
Félagsstarfið opið
mánu- og fimmtu-
daga. Mánudagur kl.
16 leikfimi.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist
í Gullsmára 13 kl.
20.30.
Fótaaðgerð frá kl. 10.
Skrifstofan Gullsmára
9 er opin kl. 16.30-18,
s. 554 1226.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 bað, kl. 9
fótaaðgerð og mynd-
list, kl. 10-12 versl-
unin opin, kl. 13 fönd-
ur og handavinna.
Félagsstarfið Dal-
braut 18-20. Kl. 10
leikfimi, kl. 13 brids.
Félagsstarfið Dal-
braut 27. Kl. 9-16 op-
in handavinnustofan,
kl. 9-12 myndlist, kl.
13-16 körfugerð, kl.
11-11.30 leikfimi, kl.
13-16 spilað, kl. 10-13
verslunin opin.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Bað kl. 9-
12, handavinna kl. 9-
16.30, félagsvist kl.
14, kl. 9-14 hár-
greiðsla.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraun-
seli, Flatahrauni 3.
Pútt kl 10, kóræfing-
ar kl. 10.30, tréskurð-
ur kl 13, félagsvist kl.
13.30.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Brids kl. 13.
Línudans fyrir byrj-
endur kl. 18.
Danskennsla í sam-
kvæmisdönsum
framh. kl. 19 og byrj-
endur kl. 20.30. S.
588 2111.
Gerðuberg, fé-
lagsstarf. Kl. 9-16.30
fjölbreytt vetrardag-
skrá í boði hvern
virkan dag frá kl. 9-
16.30.
Á morgun er gler-
skurður og boccia kl.
13. S. 575 7720.
Gjábakki, Fannborg
8. Handavinnustofan
opin, kl. 9.30 gler- og
postulínsmálun, kl.
10.50 leikfimi, kl. 13
skák og lomber, kl. 20
skapandi skrif.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9 vefnaður, kl.
9.05 leikfimi, kl. 9.55
stólaleikfimi, kl. 10
ganga, kl. 13 brids,
kl. 20.30 félagsvist.
Hraunbær 105. Kl. 9
perlusaumur og fóta-
aðgerð, kl. 10 bæna-
stund, kl. 13.30 sögu-
stund og spjall, kl. 13
postlínsmálun og hár-
greiðsla.
Hvassaleiti 56–58. Kl.
9 föndur, kl. 9 og kl.
10 jóga, kl. 13 spilað,
kl. 14.15 spænska.
fótaaðgerðir.
Norðurbrún 1. Kl. 10-
11 ganga, kl. 9-15
fótaaðgerð, kl. 9-12
myndlist, kl. 13-16.45
opin handavinnustofa.
Vesturgata 7. Kl. 9-
16 fótaaðgerð og hár-
greiðsla, kl. 9.15-12
postulínsmálun. kl.
9.15-15.30 handa-
vinna, kl. 9.30-10.30
boccia, kl.11-12 leik-
fimi, kl. 12.15-13.15
danskennsla, kl. 13-16
kóræfing.
Vitatorg. Kl. 8.45
smíði, kl. 9 hár-
greiðsla, kl. 9.30 bók-
band, bútasaumur og
morgunstund, kl. 10
fótaaðgerð og boccia,
kl. 13 handmennt,
glerbræðsla og spilað,
kl. 15.30 jóga.
Gullsmárabrids.
Brids í Gullsmára.
Skráning kl. 12.45,
spilamennska hefst
kl. 13.
Félag eldri borgara
Suðurnesjum.
Bingó í Selinu, Vall-
arbraut 4, Njarðvík,
öll mánudagskvöld kl.
20.
Sjálfsbjörg, félag fatl-
aðra á höfuðborg-
arsvæðinu, félags-
heimilið Hátúni 12.
Kl. 19 brids.
Minningarkort
Minningakort Kven-
félags Neskirkju fást
hjá kirkjuverði Nes-
kirkju, í Úlfarsfelli,
Hagamel 67 og í
Kirkjuhúsinu v/
Kirkjutorg.
Í dag er mánudagur 7. apríl, 97.
dagur ársins 2003. Orð dagsins:
Allt megna ég fyrir hjálp hans,
sem mig styrkan gjörir.
(Fil. 4, 13.) Margt virðist benda tilað landbún-
aðarviðræður Doha-
lotunnar um aukið frelsi í
alþjóðaviðskiptum séu í
uppnámi. Samningamenn
höfðu gefið sér frest til
31. mars til að ljúka
samningum um landbún-
aðarkaflann en sá frestur
rann út án þess að lausn
væri í sjónmáli.
Breska dagblaðið TheTimes fjallar um mál-
ið í forystugrein sl. mið-
vikudag og bendir á að
viðræðurnar eigi sér stað
í skugga harðvítugra
deilna á alþjóðavettvangi
um átökin í Írak. Það er
þó að mati blaðsins ekki
eina ástæða þess hvernig
komið er og segir í for-
ystugreininni að hætta sé
á að viðræðurnar fari út
um þúfur með ófyr-
irsjáanlegum afleið-
ingum.
Blaðið segir m.a.: „Evr-ópusambandinu er
ekki einu um að kenna
hvernig komið er. And-
rúmsloftið versnaði til
muna á síðasta ári er
Bandaríkjastjórn setti
háa tolla á stál, lagði fram
frumvarp um að auka nið-
urgreiðslur í landbúnaði
um hvorki meira né
minna en 80% og vísaði á
bug réttmætum at-
hugasemdum ESB vegna
skattafríðinda fyrir út-
flutning bandarískra
stórfyrirtækja. Bandarík-
in hafa hins vegar haft vit
á því að breyta stefnu
sinni og bjóðast nú til
þess að fella úr gildi allar
útflutningsívilnanir og að
niðurgreiðslur í landbún-
aði nemi að hámarki 5%
af heildarverðmæti.
ESB á hinn bóginn hef-
ur verið knúið til þess af
Jacques Chirac Frakk-
landsforseta að hörfa frá
varfærnislegum áformum
um uppstokkun hinnar af-
káralegu sameiginlegu
landbúnaðarstefnu [...]
Þegar Frakkar þurftu á
stuðningi Afríkuríkja að
halda í öryggisráðinu
kom hentistefnimaðurinn
Chirac fram í gervi þess
sem vildi alþjóðlega sam-
vinnu. Doha bendir hins
vegar til annars. ESB er
nú hinn óhjákvæmilegi
skúrkur í málinu. Hendur
samningamanna eru
bundnar af frönsku
stjórninni og þeir neita að
leggja fram tilboð sem er
nálægt því að vera ásætt-
anlegt. Þetta er slæmt
fyrir ESB, slæmt fyrir
þær reglur er liggja til
grundvallar alþjóðlegum
viðskiptum og ESB
treystir á, og veldur al-
varlegri spennu í sam-
skiptunum við Bandarík-
in. Framkvæmdastjórnin
gerir sér grein fyrir því
að hún er að verja óverj-
andi stefnu. Hún ætti að
benda á Frakka og segja
þeim til syndanna í stað
þess að slá um þá skjald-
borg.“
Það væri mikið áfall ef
Doha-lotan næði sér ekki
á strik. Þá má ekki
gleyma því að helsta fórn-
arlamb þess að ekki næst
samkomulag yrðu ekki
ríku iðnríkin heldur fá-
tæku þróunarríkin er
eiga allt sitt undir því að
fá frekari aðgang að
mörkuðum iðnríkjanna.
STAKSTEINAR
Doha í hættu
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI hefur nokkrum sinn-um gert veggjakrot í Reykjavík
að umtalsefni. Hefur hann kvartað
yfir því að húsið hans skuli ekki geta
fengið að vera í friði fyrir þeim, sem
stunda þann ósið að krota á veggi
annarra.
Hefur Víkverja hins vegar fundist
sem borgaryfirvöld teldu lítið hægt
að gera við veggjakroti í borginni.
Víkverji rak augun í viðtal í Morg-
unblaðinu sunnudaginn 30. mars við
Stephen A. Brown, sem nýverið tók
við starfi svæðisstjóra Flugleiða í
Bretlandi. Þar sagði Brown:
„Veggjakrot hefur [...] aukist mikið
og setur ljótan svip á Reykjavík. Ég
hitti nýja borgarstjórann á dögunum
og sagði við hann að ég teldi for-
gangsverkefni að mála yfir veggja-
krot í borginni. Veggjakrot er vissu-
lega þekkt í stórborgum, en
Reykjavík er það lítil að krotið virð-
ist út um alla borg, sem ekki er
gott.“
Víkverji vonar að Þórólfur Árna-
son borgarstjóri hafi tekið erindi
Browns vel og að vænta megi þess
að borgin efni, í samvinnu við íbúa,
til leiftursóknar gegn veggjakroti.
EITT er það sem setur leiðinleganblett á hina annars frábæru
Laugardalslaug. Það eru fataskáp-
arnir í búningsklefunum (nú veit
Víkverji að vísu ekki hvort skápar í
kvennaklefum eru sömu gerðar og í
karlaklefunum, en gefur sér það þó)
sem ekki er hægt að loka án sér-
staks penings, sem er afhentur við
innganginn. Víkverji er nú ekki
handlagnari en svo að honum tekst
oft og iðulega að tapa peningnum í
hinn þar til gerða bauk í skáphurð-
inni – án þess að hafa tekist að loka
skáphurðinni. Þá þarf að hafa uppi á
sundlaugarverði og fá aðstoð.
Hefur Víkverji tekið eftir því að
erlendir gestir lenda oft og iðulega í
sömu vandræðum.
Nú getur verið að Víkverji sé bara
svona mikill klaufi – en það hlýtur
fjandakornið að vera hægt að koma
málum þannig fyrir að jafnvel allra
mestu blábjánar geti lokað skáp-
hurðinni sinni án vandræða!
x x x
APRÍLGÖBB fjölmiðlanna voruekki rismikil að þessu sinni og
eiginlega telur Víkverji að fleiri
miðlar hefðu mátt að fara að for-
dæmi Morgunblaðsins og sleppa því
með öllu að reyna að gabba almenn-
ing. Það vakti hins vegar athygli
Víkverja að annar hver maður sem
hann hitti virtist hafa talið að fréttir
af bankaráni í Hafnarfirði hefðu ver-
ið aprílgabb!
Þetta var ekki aprílgabb!
Íslensk tunga
viðkvæm
NOKKUR nafnorð í ís-
lensku eru þeirrar náttúru
að vera annaðhvort í ein-
tölu eða fleirtölu. Hin talan
þekkist ekki. Eitt þessara
orða sem hefur verið tísku-
orð og haft í hávegum er
eintöluorðið keppni. Ýmsir
landar okkar átta sig ekki á
þessum eiginleikum orðs-
ins að fleirtalan er ekki til
og hefur aldrei verið til. Er
þó verið að rembast eins og
rjúpan við staurinn að
troða fleirtöluómyndinni á
orð þetta.
Nú kastar fyrst tólfunum
þegar rekur á fjörur bóka-
safnsins í Iðnskólanum í
Reykjavík veggspjald eitt,
ættað frá þeim aðilum sem
ættu að hafa fyllstu ástæðu
að vanda vel mál sitt og láta
ekkert vafasamt frá sér
fara. Annars vegar er það
Háskóli Íslands og hins
vegar menntamálaráðu-
neytið, höfuðstöðvar
kennslu og menntunar í
landinu.
Lítum betur á vegg-
spjald það sem er tilefni
þessara skrifa: Ungir vís-
indamenn á Íslandi: hug-
myndasamkeppni ungs
fólks um vísindi og tækni.
Fyrsta málsgrein hefst
með þessari setningu: Hug-
myndasamkeppnin Ungir
vísindamenn er hluti af
samfélagsáætlun Evrópu-
sambandsins og byggist
annars vegar á lands-
keppnum (svo!) sem haldn-
ar eru í þátttökulöndunum
og hins vegar á árlegri
samkeppni ungra vísinda-
manna í Evrópu …
Nú er ekki nema sjálf-
sagt að hvetja ungt fólk til
dáða enda þarf að hagnýta
góðar hugmyndir í þágu
lands og lýðs.
Íslensk tunga er sem
fögur jurt en viðkvæm sem
fegurstu náttúruperlur
landsins. Ef henni er ekki
sýnd sú nærgætni sem þörf
er á er veruleg hætta að
hún visni og jafnvel hverfi.
Guðjón Jensson,
bókfræðingur og
leiðsögumaður.
Frábær þjónusta
MIG langaði til að vekja at-
hygli á aldeilis frábærri
þjónustu sem ég uppgötv-
aði fyrir skemmstu ef vera
skyldi að fleiri vissu ekki
um hana.
Hún heitir Halló Norður-
lönd og er að sögn starfs-
manns hjá þeim rekin af
Norræna félaginu fyrir
Norrænu ráðherranefnd-
ina. Starfsmaðurinn upp-
lýsti mig um að þjónust-
unni væri ætlað að veita
upplýsingar til þeirra sem
eru að flytja á milli Norður-
landanna.
Ég er nýflutt til Svíþjóð-
ar og þurfti á upplýsingum
að halda áður en ég flutti.
Ég byrjaði á að hringja í
sænska sendiráðið en þar á
bæ vísuðu menn mér á
þessa þjónustu. Ég hringdi
og ræddi við starfsmann
þar sem leysti greiðlega úr
flestum spurningum mín-
um, en bað mig um að
senda sér nokkrar af
spurningunum í netbréfi
þar sem hún þyrfti að leita
að svörum við þeim þannig
að ég fengi réttar upplýs-
ingar.
Stuttu seinna fékk ég
svörin sem hjálpuðu mér
mikið og er nú öllu fróðari
og öruggari með stöðu
mína.
Ég segi nú bara húrra
fyrir Norrænu ráðherra-
nefndinni sem ég hef ekki
orðið svo vör við, að sé að
þjónusta okkur almenna
borgara fyrr, húrra fyrir
Norræna félaginu að taka
að sér að sjá um svona
þjónustu og ekki síst húrra
fyrir þessum frábæra
starfsmanni sem ég talaði
við hjá þeim sem var svo
einstaklega elskuleg og ljúf
og ótrúlega vel inni í þessu
mikla skriffinnskukerfi
sem maður er nú svosem
misánægður með.
Það er greinilega alltaf
eitthvað til sem kemur
manni ánægjulega á óvart.
Með bestu þökkum fyrir
mig.
María Jónsdóttir,
Malmö.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
Morgunblaðið/Ómar
Í Leikskólanum Sæborgu í vesturbænum.
LÁRÉTT
1 peningaupphæð, 4
vextir, 7 írafár, 8 mettar,
9 söngrödd, 11 bragð,
13 fjarski, 14 nói, 15 asi,
17 biblíunafn, 20 bók-
stafur, 22 púði, 23 gufa,
24 hlaupa, 25 ránfuglinn.
LÓÐRÉTT
1 dýr, 2 hárflóki, 3 tóma,
4 skorið, 5 afkomandi, 6
ákveð, 10 höndin,
12 þvaður, 13 leyfi, 15
hestur, 16 ávöxtur, 18
búa til, 19 húsdýrið, 20
una, 21 læra.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 skynsemin, 8 tólið, 9 gamla, 10 jór, 11 grafa,
13 afrek, 15 pláss, 18 slóði, 21 tík, 22 plagi, 23 álkan, 24
slagharpa.
Lóðrétt: 2 kólga, 3 niðja, 4 eigra, 5 ilmur, 6 stag, 7 rask,
12 fis, 14 fól, 15 pípa, 16 áfall, 17 sting, 18 skána, 19
ósköp, 20 inna.
Krossgáta
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16