Morgunblaðið - 07.04.2003, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. APRÍL 2003 31
Nýr og betriHverfisgötu 551 9000
www.regnboginn.is
Sýnd kl. 10.20. B.i. 16. Sýnd kl. 8.Sýnd kl. 5.30. B.i. 12.
HK DV
ÓHT Rás 2
Kvikmyndir.com
6 ÓSKARSVERÐLAUNM.A. BESTA MYNDIN
SV MBL
HJ MBL
HK DV
Kvikmyndir.com
NICOLE KIDMAN BESTA LEIKKONA Í
AÐALHLUTVERKI
2 ÓSKARS-VERÐLAUN
ÓHT Rás 2
kvikmyndir.com
Sýnd kl. 5.20, 8 og 10.40. B.i 14.
Epísk stórmynd í anda The English
Patient. Frá leikstjóra Elizabeth. Með
stórstjörnunum Kate Hudson og
Heath Ledger. Missið ekki af þessari!
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.20. B.i 12. Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. B.i 12
www.laugarasbio.is
RADIO X
KVIKMYNDIR.COM
SG DV
ÓHT RÁS 2
Sýnd kl. 10. Sýnd kl. 5.30.
Þegar röðin er komin að þér
þá flýrðu ekki dauðann!
SV MBL
Jackie Chan og Owen Wilson eru mættir aftur ferskari
en nokkru sinni fyrr í geggjaðri grínspennumynd.
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10. 15.
Sýnd kl. 6, 8 og 10.15.
ÞÓTT menn kunni að deila um hvort hægt er
að keppa í fegurð, þá dylst engum að Inga
Gerða Pétursdóttir er, eins og reyndar ak-
ureyrskar konur upp til hópa, sérlega snotur
stúlka. Dómendur hafa eflaust átt úr vöndu að
ráða, en úr varð að Inga hlaut titilinn Ungfrú
Norðurland 2003, og keppir hún ásamt öðrum
þokkadísum um titilinn Ungfrú Ísland en að-
alkeppnin verður haldin á Broadway 23. maí.
Inga Gerða er nemi á málabraut við
Menntaskólann á Akureyri, og segist ekki
hafa verið neinn sérstakur aðdáandi fegurð-
arsamkeppna: „Auðvitað hefur mér þótt viss
sjarmi yfir þessu frá því ég var lítil stelpa, en
ég hugsaði mig lengi um áður en ég ákvað að
taka þátt. Ég hef ekki verið neinn sérstakur
talsmaður fegurðarsamkeppna, en heldur
ekki haft neitt á móti keppnunum heldur,
langaði að prufa og kynnast þessari upplifun.
Ég átti alls ekki von á að vinna, – varð mjög
hissa.“
Tólf stúlkur tóku þátt í keppninni sem fram
fór á Sjallanum á föstudag. Fyrst komu stúlk-
urnar fram í tískufötum, þá í sundfatnaði og
loks í kvöldkjólum. Að keppninni lokinni voru
þátttakendur leystir út með gjöfum.
Inga Gerða sagðist ekki vita hvort þetta
hefði einhverjar breytingar í för með sér fyrir
hana. Hún hyggur ekki á að leggjast í stífar
æfingar eða slíkt fyrir keppnina. Var ekki
hægt að greina annað á henni en að hún tæki
þessu með miklu jafnaðargeði, eins og sæmir
sannri fegurðardrottningu.
Menntaskóla-
mær fegurð-
ardrottning
Morgunblaðið/Jón SvavarssonÞátttakendur í keppninni Ungfrú Norður-
land 2003. Fyrir miðju er Inga Gerða Pét-
ursdóttir sem varð hlutskörpust.
Inga Gerða Pétursdóttir er Ungfrú Norðurland 2003
FJÖLDI fólks kom saman í Ráðhúsi
Reykjavíkur á föstudag þegar borg-
arstjórinn, Þórólfur Árnason, bauð til
gleðskapar af því tilefni að Samtökin ’78,
félag homma og lesbía á Íslandi, eru í ár
25 ára, og einnig – og ekki hvað síst – í
tilefni af frumsýningu nýrrar heimild-
armyndar um reynslu samkynhneigðra
ungmenna í íslensku samfélagi.
Mikið var um gleði í Ráðhúsinu, og
skemmt með söng og dansi á milli þess
sem fyrirmenni tóku til máls.
Tilefni var til að fagna ærlega, enda
hefur, á þeim aldarfjórðungi sem Sam-
tökin hafa starfað, ómetanlegt starf ver-
ið unnið í þágu landsmanna allra, með
því að auka umburðarlyndi, fjölbreytni,
víðsýni og náungakærleik, og hópi sam-
félagsins sem áður var að ósekju útskúf-
aður og litinn hornauga gert kleift að
bera með réttu höfuðið hátt og vera
hreykinn af sérstöðu sinni, í samfélagi
jafningja.
Á afmælisárinu verður mikið um dýrð-
ir, meðal annars tónleikar og málfundir
haldnir, en fljótlega er væntanleg í hillur
verslana bók sem segir sögu samkyn-
hneigðar á Íslandi. Nánari upplýsingar
um viðburði á afmælisári má finna í sér-
stökum afmælisbæklingi Samtakanna og
á heimasíðu þeirra.
Sýningar á heimildarmyndinni Hrein
og Bein, sem segir á hreinan og beinan
hátt frá reynslu samkynhneigðra ís-
lenskra ungmenna, verða í Regnbog-
anum fram til miðvikudags.
Morgunblaðið/Ómar
Gellurnar í Rokkslæð-
unni héldu uppi fjörinu
eins og þeim einum er
lagið þegar afmæli Sam-
takanna ’78 var fagnað.
Félagarnir Otto Schnelzer frá
Bæjaralandi, Jean Francois
Tessier frá Québec og Heimir
Már Pétursson. Heimir var á
dögunum kjörinn varaforseti
InterPride, samtaka hátíða sam-
kynhneigðra um heim allan.
Það var hýrt yfir Þórólfi
Árnasyni borgarstjóra
þegar hann ræddi við Felix
Bergsson leikara og Þor-
vald Kristinsson, formann
Samtakanna ’78.
25 ár eru liðin frá stofnun Samtakanna ’78
Afmælismóttaka í Ráðhúsinu