Morgunblaðið - 07.04.2003, Síða 32
32 MÁNUDAGUR 7. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
HL MBL
Kvikmyndir.is
ÓHT Rás 2
Gæti hinn rangi verið
hinn rétti?
Sýnd kl. 8. Sýnd kl. 5.30 og 10.05Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Sýnd kl. 6 og 8.
Sýnd kl.10. B.i 14.
HÖJ
Kvikmyndir.com
SV MBL
Radíó X
H.K. DV
1/2 HL Mbl
Kvikmyndir.is
1/2
Kvikmyndir.com
Sjóðheit og mögnuð stórmynd með frábærum
tæknibrellum.
Frá leikstjóranum Jon Amiel.
HILARY SWANK
AARON ECKHART
DELROY LINDO
STANLEY TUCCI
Sýnd kl. 6 og 9. B.i. 12.
3 Besti leikari íaðalhlutverkiAdrien Brody BestileikstjóriRomanPolanski BestahandritÓSKARS-VERÐLAUN
Kvikmyndir.com
HJ MBL
ÓHT RÁS 2
Radio X
Sýnd kl. 6 og 9. B.i 14.
SG DV
HL MBL
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10. B.i. 16. / Sýnd kl. 10. B.i. 16.
Sýnd kl. 3.45, 5.50 og 8.
Kvikmyndir.com
Kvikmyndir.is
SV MBL
Radíó X
SG DV
Gæti
hinn rangi
verið hinn
rétti?
FRÁ LEIKSTJÓRA “ROMEO MUST DIE” OG “EXIT WOUNDS” INNIHELDUR FRÁBÆRA TÓNLIST MEÐ DMX, EMINEM OG 50 CENT
SG DV
HL MBL
Sýnd kl. 10. B.i. 12.
Með hinum rauðhærða
Rupert Grint sem
leikur Ron Weasley í
HARRY POTTER
myndunum
ÁLFABAKKI / KEFLAVÍK
Kvikmyndir.is
KRINGLAN
HILARY SWANK
AARON ECKHART
DELROY LINDO
STANLEY TUCCI
Tilboð 500 kr.
Mögnuð spennumynd sem sló rækilega í gegn við opnun í Bandaríkjunum í
síðustu viku með óskarsverðlaunahöfunum
Tommy Lee Jones og Benicio Del Toro í aðalhlutverki.
sv mbl
Kvikmyndir.isi i i
ÁLFABAKKI
VIN Diesel hefur verið hampað
sem fyrstu hasarmyndahetja nýrr-
ar aldar og ekki virðist hann ætla
að setja sig upp á móti þeim bolla-
leggingum. Fyrst sló hann í gegn í
Kolsvart (Pitch Black), litlum ástr-
ölskum geimtrylli í anda Aliens,
svo kom bíladellan Fljót og fífl-
djörf (Fast and the Furious) og nú
xXx, hasarmynd sem lýst hefur
verið sem Bond fyrir nýja öld. Og
á nýrri öld eru það mynddiskarnir
sem segja sex þannig að rétt eins
og Arnold austurríski og folinn Sly
voru helstu myndbandahetjurnar á
níunda áratugnum þá virðist ým-
islegt ætla að benda til þess að
Diesel verði mynddiskahetja
fyrsta áratugar nýrrar aldar.
Hann á toppmynd Topplistans
aðra vikuna í röð, og sú næsta á
undan, Fljót og fífldjörf, er í heið-
urssætinu á Gullmolalistanum. Að
gefnu tilefni er kannski rétt að
skýra út muninn á þessum tveimur
listum. Topplistinn er listinn yfir
nýútgefna titla, jafnt gamla sem
nýja, en Gullmolalistinn inniheldur
titla sem ekki geta lengur talist til
þeirra allra nýjustu í búðunum.
Minority Report kemur nú í fyrsta
sinn nú við sögu á meðal Gullmol-
anna, eftir að hafa farið mikinn á
Topplistanum. Þannig er sú mynd
formlega ekki álitin ný lengur af
þeim sem selja mynddiska í land-
inu. Það er alltaf jafnánægjulegt
að sjá hversu vel íslensku mynd-
diskarnir seljast, en þeirra allra
söluhæstu síðan útgáfa íslenskra
mynddiska hófst, eru einmitt báðir
á Topplistanum þessa vikuna, Með
allt á hreinu í 7. sæti og Sódóma
Reykjavík í því 10.
Af Gullmolalistanum að dæma
eru menn enn í óða önn að bæta í
Bond-safnið því að þessu sinni eru
fjórar slíkar á listanum.
Þótt mynddiskasala hafi farið
sérdeilis vel af stað hér á landi má
búast við að hún taki enn frekari
kipp á næstu dögum, ef hún þá er
ekki þegar búinn að gera það, því
allir helstu innflytjendur mynd-
diska hafa keppst við að lækka
verðið á mynddiskum til neytenda,
um allt frá 7% upp í 45%. Séstak-
lega eru það titlar sem teljast til
gullmola sem lækkað hafa. Afar já-
kvæð þróun þetta sem bendir til
þess að verð á mynddiskum hefur
verið fullhátt hingað til en þó einn-
ig að aukin samkeppni sé að fær-
ast í þennan bransa og að sölu-
aðilar finni fyrir greinilegri
söluaukningu á titlum sem lækk-
aðir eru í verði, eins og t.am. í
þeim titlum sem staðið hafa til
boða í söluátakinu Betra verð.
!"
# $%
&
"'%
(
&
!
))'"*+,"
",
",
",
'
",
'
-
#& . $
'
",
",
/&
'
"01213
&
4
5,
+
#+
67+
", &
+
%"& 5
8
5 +
+
"&
1
8
5
8
5 +
+
"&
1
8
5
'
6&
9
6!
: :&
&
4
(
'
1
4
+
:
:
%&
4 4&
&
",
",
",
",
",
",
",
",
",
",
!" $#%# &' Diesel drottnar
á mynddiskaöld
skarpi@mbl.is
Minority Report er formlega orðin
að gullmola, meira að segja þeim
stærsta um þessar mundir.
EKKI þurfti maður lengi að hlusta
á Pink Floyd til að átta sig á að
Roger Waters var aðalmaðurinn í
sveitinni, besti lagasmiðurinn og sá
eini sem samdi
texta af viti. Það
var líka þrá-
hyggja hans og
tilfinningaflækjur
sem kom í veg
fyrir að tónlistin
kafnaði í tilgerð,
en félagar hans í
sveitinni tryggðu
líka jarð-
sambandið sem var ekki síður mik-
ilvægt.
Ekki verður farið hér nánar út í
leiðindin í kringum það þegar Wa-
ters hætti í Pink Floyd, en í kjölfar-
ið hóf hann sólóferil sem hefur
gengið misjafnlega. Víst hefur tón-
listin sem hann hefur gefið út undir
verið veigameiri en það sem forðum
félagar hans hafa sent frá sér, en
hún hefur líka verið óaðgengilegri
og á köflum einfaldlega óspennandi.
Eitt af því sem varð til þess að
Waters hætti í Pink Floyd var and-
úð hans á tónleikastússi, sölu-
mennskunni og múgsefjuninni sem
fylgir. Það þótti því saga til næsta
bæjar þegar hann fór í heimsreisu
fyrir þremur árum, ekki síst í ljósi
þess að hann hugðist leika gömul
Pink Floyd-lög í bland við sólóefni
sitt.
Einir tónleikanna voru haldnir í
Rose Garden Arena í Portland í
Orego-fylki og kvikmyndaðir og
hljóðritaðir í bak og fyrir. Þeir
komu síðan út á geisladiski og nú á
mynddiski með auknu efni.
Alls eru á diskinum 24 lög, hálfur
þriðji tími af tónlist. Flest laganna
eru frá Pink Floyd árum Waters,
þar á meðal svo gömul lög sem „Set
Your Controls for the Heart of the
Sun“, sem er í afbragðsútsetningu.
Breiddin í lagavali er mikil og gam-
an að heyra og sjá verk Waters i
samhengi, allt frá Pink Floyd til
sólóferilsins, en kemur óneitanlega
á óvart að ekkert lag er af Radio
K.A.O.S. sem var þó þokkaleg plata.
Til viðbótar við tónleikaupptök-
urnar er stutt heimildarmynd um
undirbúning tónleikanna, sem er í
meðallagi fróðleg, slatti af ljós-
myndum, upplýsingar um lista-
mennina, búnaður til að leiðbeina
við uppsetningu hátalara o.fl.
Myndatakan er mjög vel heppnuð
og hljóðrásin er hreint frábær; nota
má diskinn til að sýna hvar hægt er
að gera á þessu sviði, en hægt er að
velja 5.1 Dolby Digital og Surround
Encoded PCM Stereo.
Valinn maður er í hverju rúmi í
hljómsveitinni sem Waters var með
í ferðinni: Andy Fairweather Low,
Doyle Bramhall II., John Carin,
sem meðal annars hefur unnið með
Pink Floyd án Waters, Graham
Broad, Andy Wallace, Snowy White
og söngkonurnar Katie Kissoon,
Susannah Melvoin og P.P. Arnold.
Söngkonurnar standa sig með af-
brigðum vel en einnig er mjög gam-
an að fylgjast með gítarleik þeirra
Snowy White og Doyle Bramhall
sem fara hreinlega á kostum, sér-
staklega sá síðarnefndi eins og hann
á kyn til.
Mjög eigulegur diskur sem gleð-
ur Pink Floyd aðdáendur ekki síður
en þá sem halda upp á Roger Wa-
ters.
Eigulegur Waters
Lifandi Waters!
Árni Matthíasson
Roger Waters – In the Flesh – Live
fæst í Bræðrunum Ormsson.