Morgunblaðið - 08.04.2003, Blaðsíða 46
46 B ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐHeimiliFasteignir
Mosfellsbær — Hjá Fasteignasölu
Mosfellsbæjar er nú til sölu ein-
býlishúsið Arnarfell þar í bæ. Húsið
er á tveimur hæðum, 292 ferm. að
stærð með tvöföldum bílskúr. Lóðin
er afar stór eða 7.481 ferm. Ásett
verð er 45 millj. kr.
„Húsið stendur á einni af betri
lóðum Mosfellsbæjar með gríðar-
miklu útsýni yfir bæinn og til
fjallanna í kring,“ sagði Einar Páll
Kjærnested hjá Fasteignasölu Mos-
fellsbæjar.
„Keyrt er að húsinu frá Reykja-
lundarvegi og beygt inn Engjateig.
Á vinstri hönd er lítill afleggjari upp
hæð, sem endar við húsið. Aðkoman
er einkar falleg og minnir einna
helzt á óðalssetur.
Aðalinngangur hússins er að vest-
anverðu. Komið er inn í litla forstofu
og úr henni er komið í forstofuhol. Á
vinstri hönd er fataherbergi, gesta-
salerni og rúmgott húsbóndaher-
bergi. Á hægri hönd úr holi er geng-
ið inn í stóra og glæsilega stofu með
miklu útsýni.
Úr stofunni er frönsk hurð fyrir
dyrum inn í borðstofu, en einnig er
gengið inn í borðstofu úr holi. Inn af
borðstofu er ágætt eldhús með
L-laga viðarinnréttingu.
Úr holi er stigi upp á 2. hæð. Þar
er gott sjónvarpshol og á hægri
hönd er lítið svefnherbergi undir
súð að hluta. Þar við hlið er er bað-
herbergi með baðkari og góðri inn-
réttingu. Við hlið baðherbergis er
ágætt barnaherbergi og inn af sjón-
varpsholi er rúmgott barnaherbergi
með góðu skápaplássi.
Við hlið borðstofu á 1. hæð er
tengibygging og forstofa fyrir heim-
ilisfólk. Inn af henni eru tvö rúmgóð
svefnherbergi, baðherbergi með
sturtu, búrherbergi og þvottahús.
Úr þvottahúsi er gengið inn í 55
ferm. tvöfaldan bílskúr með góðu
geymsluherbergi.
Úr forstofu er gengið út á stóra
timburverönd með góðri skjólgirð-
ingu í suður og á veröndinni er heit-
ur pottur.
„Þetta er sérlega vel staðsett eign
með miklu útsýni,“ sagði Einar Páll
Kjærnested að lokum. Möguleiki er
á að kaupa aukalega 5.373 ferm. að-
liggjandi lóð.
Arnarfell
Húsið er á tveimur hæðum, 292 ferm. að stærð með tvöföldum bílskúr. Lóðin er afar stór eða 7.481 ferm. Ásett verð er
45 millj. kr., en húsið er til sölu hjá Fasteignasölu Mosfellsbæjar.
Nýjar íbúðir til sölu hjá
3ja herbergja
4ra herbergja
Raðhús
Klapparhlíð - Mosfellsbæ
Við erum að reisa blandaða byggð
lítilla fjölbýlishúsa og raðhúsa.
Byggðin rís á framtíðarbygginga-
svæði Mosfellsbæjar. Mjög falleg
hönnun, gott útsýni og rými milli
húsa. Öll þjónusta, skóli og leik-
skóli í næsta nágrenni. Teikni-
stofan Úti og Inni sá um hönnun
húsanna.
Laugarnesvegur 87 og 89
Rúmgóðar íbúðir á einum eftir-
sóttasta stað í bænum (gamla
Goðalóðin). 5 og 6 hæða fjöl-
býlishús með lágmarksviðhaldi og
frábærri hönnun. Húsin eru
einangruð að utan og klædd ál-
klæðningu. Teiknistofan Úti og
Inni hannaði húsin.
5 herbergja
KLAPPARHLÍÐ – MOSFELLSBÆ
Um 100 fm íbúðir í litlum 3ja hæða
fjölbýlishúsum. Húsin eru einangruð að
utan og klædd harðviði og álklæðningu.
Sérinngangur er inn í allar íbúðirnar.
Íbúðirnar afhendast fullbúnar án gólfefna
en baðherbergis-og þvottahúsgólf verða
flísalögð. Skóli, leikskóli og öll þjónusta
í næsta nágrenni.
Verð frá 13,7 millj.
ÞÓRÐARSVEIGUR
Vel hannaðar rúmlega 100 fm íbúðir.
Íbúðunum verður skilað fullbúnum án
gólfefna að undanskildum baðherbergis-
og þvottahúsgólfum sem verða flísalögð.
Skóli, leikskóli og öll þjónusta í næsta
nágrenni.
Verð frá 14,7 millj. með sérstæði í
bílageymsluhúsi.
Söludeild okkar er að Höfðabakka 9, sími 530 4200. Einnig eru ítarlegar upplýsingar um eignirnar á
vefsíðu okkar www.iav.is.
Nánari upplýsingar
Innréttingar eru sérlega vandaðar en óski kaupandi eftir að hanna íbúðina að eigin smekk tökum við vel í slíkar
óskir. Þær þurfa þó að koma fram í tíma.
Breytingar á íbúðum
Íslenskir aðalverktakar hf. Höfðabakka 9, 110 Reykjavík, sími 530 4200, fax 530 4205, www.iav.is.
LAUGARNESVEGUR
Vandaðar tæplega 90 fm íbúðir á frá-
bærum stað í höfuðborginni. 5 hæða
fjölbýli með sérinngangi af svalagangi.
Lyftublokk með bílageymsluhúsi.
Íbúðirnar afhendast fullbúnar án gólf-
efna en baðherbergi verða flísalögð.
Stutt í laugarnar og miðbæinn.
Verð frá 15,6 millj. með sérstæði í
bílageymsluhúsi.
KLAPPARHLÍÐ – MOSFELLSBÆ
63 til 67 fm íbúðir í litlum 3ja hæða
fjölbýlishúsum. Húsin eru einangruð að
utan og klædd harðviði og álklæðningu.
Íbúðirnar afhendast fullbúnar án
gó l fe fna en baðhe rbe rg i s -og
þvottahúsgólf verða flísalögð. Skóli,
leikskóli og öll þjónusta í næsta
nágrenni.
Verð frá 10,4 millj.
ÞÓRÐARSVEIGUR
Vel hannaðar rúmlega 70 fm íbúðir.
Íbúðirnar skilast fullbúnar án gólfefna
að undanskildum baðherbergis- og
þvottahúsgólfum sem verða flísalögð.
Skóli, leikskóli og öll þjónusta í næsta
nágrenni.
Verð frá 11,2 millj. með sérstæði í
bílageymsluhúsi.
2ja herbergja
Þórðarsveigur – Grafarholti
Skemmtilegar hannaðar 2ja, 3ja
og 4ra herbergja íbúðir í 4ra og
5 hæða lyftuhúsi á skjólgóðum og
fallegum stað. Sérinngangur af
svalagangi eða beint af jarðhæð
í hverja íbúð. Vandaðar innrétt-
ingar. Þvottahús er í öllum íbúð-
um. Mjög stutt er í alla þjónustu
og er leikskóli steinsnar frá húsinu.
Húsið er steinsallað að utan og
þarfnast því lítils viðhalds. Kanon
arkitektar hönnuðu húsin.
Borgartún 30 A og B
Stórglæsilegt sex hæða lyftuhús
með stórum og björtum lúxus-
íbúðum sem hannaðar eru með
þægindi íbúa í huga af Ingimundi
Sveinssyni arkitekt. Sérlega
vandaður frágangur úti sem inni,
viðhald í lágmarki. Húsið er ein-
angrað að utan og klætt álklæðn-
ingu. Brunaviðvörunarkerfi er í
húsinu, sérstaklega er hugað að
hljóðeinangrun, loftskiptakerfi,
mynddyrasími, lyfta opnast beint
inn í íbúðir, sólskáli til suðurs,
tvennar svalir með endaíbúð-
um, tvö baðherbergi o.m.fl.
LAUGARNESVEGUR
Vandaðar 110 til 130 fm íbúðir á
frábærum stað í höfuðborginni. 5 eða
6 hæða fjölbýli með sérinngangi af svala-
gangi. Lyftublokk með bílageymsluhúsi.
Íbúðirnar afhendast fullbúnar án gólfefna
en baðherbergi verða flísalögð.
Stutt í laugarnar og miðbæinn.
Verð frá 15,9 millj. með sérstæði í
bílageymsluhúsi.
KLAPPARHLÍÐ - MOSFELLSBÆ
82 til 88 fm íbúðir í litlum 3ja hæða
fjölbýlishúsum. Húsin eru einangruð að
utan og klædd harðviði og álklæðningu.
Sérinngangur er inn í allar íbúðirnar.
Íbúðirnar afhendast fullbúnar án gólfefna
en baðherbergis- og þvottahúsgólf verða
flísalögð. Skóli, leikskóli og öll þjónusta
í næsta nágrenni.
Verð frá 12,2 millj.
ÞÓRÐARSVEIGUR
Vel hannaðar rúmlega 84 til 88 fm íbúðir.
Íbúðirnar skilast fullbúnar án gólfefna
að undanskildum baðherbergis- og
þvottahúsgólfum sem verða flísalögð.
Skóli, leikskóli og öll þjónusta í næsta
nágrenni.
Verð frá 12,6 millj. með sérstæði í
bílageymsluhúsi.
BORGARTÚN
Sérlega vandaðar 130 til 170 fm íbúðir
á frábærum stað í höfuðborginni, mitt
á milli Laugardals og miðbæjarins. Öllum
íbúðum fylgir sér stæði í bílageymslu-
húsi sem innangengt er í. Íbúðirnar eru
afhentar fullbúnar án gólfefna að
undanskildum baðherbergjum og þvotta-
húsgólfum. Svalir eru yfirbyggðar að
hluta með gleri.
Verð frá 19,0 millj. með sérstæði í
bílageymsluhúsi.
KLAPPARHLÍÐ – MOSFELLSBÆ
Um 113 fm endaíbúðir í litlum 3ja hæða
fjölbýlishúsum. Húsin eru einangruð að
utan og klædd harðviði og álklæðningu.
Sérinngangur er inn í allar íbúðirnar.
Íbúðirnar afhendast fullbúnar án gólfefna
en baðherbergis-og þvottahúsgólf verða
flísalögð. Skóli, leikskóli og öll þjónusta
í næsta nágrenni.
Verð frá 15,0 millj.
KLAPPARHLÍÐ – MOSFELLSBÆ
Um 170 fm tveggja hæða raðhús með
innbyggðum bílskúr. Tilbúið að utan
og fokhelt að innan. ATH. Húsin verða
klædd að utan að hluta með harðviði og
að hluta með litaðri bárumálmklæðningu,
gluggar eru álklæddir og þarfnast húsin
því lágmarksviðhalds.
Verð frá 14,8 millj.
Fjórar staðsetningar í boði