Morgunblaðið - 09.04.2003, Blaðsíða 12
12 B MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
bílar
HÓPBÍLAR og Hagvagnar hafa ein-
sett sér að taka upp vottað umhverf-
isstjórnunarkerfi. Verður það sam-
kvæmt alþjóðastaðlinum ISO14001
en vinna við uppsetningu kerfisins
hófst fyrir rúmu ári. Umhverfis-
stjórnun er kerfisbundin aðferð til að
hafa gát á umhverfismálum á öllum
sviðum viðskipta. Það er hluti af
heildarstjórnunarkerfi fyrirtækis-
ins.
Pálmar Sigurðsson er verkefna-
stjóri og segir hann í samtali við-
Morgunblaðið að þegar farið var af
stað í þetta metnaðarfulla verkefni
hafi komið í ljós að ýmislegt hafi ver-
ið gert hjá fyrirtækjunum í umhverf-
ismálum, meðal annars eftirlit og
vöktun á þáttum sem hafa áhrif á
umhverfið. „Því var mjög jákvætt að
koma að fyrirtækjunum, endurskoða
umhverfisstefnu þeirra og leggjast í
að vinna að endurbótum og koma á
virkri umhverfisstjórnun,“ segir
hann.
Miklar kröfur á öllum sviðum
„Þegar stjórnendur höfðu síðan
lagt mat á þann ávinning sem virkt
umhverfisstjórnunarkerfi er fyrir
alla aðila sem koma að fyrirtækjun-
um, starfsmenn sem viðskiptavini,
þá var tekin sú ákvörðun að taka upp
vottað kerfi sem þýddi enn frekari
kröfur, og sér verkfræðistofan Línu-
hönnun um verkið,“ segir Pálmar.
En hvað er ISO 14001?
„ISO 14001 staðallinn er alþjóð-
legur og tilgreinir kröfur til um-
hverfisstjórnunarkerfis sem gera
fyrirtækjum kleift að marka stefnu í
umhverfismálum með hliðsjón af
lagalegum kröfum og upplýsingum
um umtalsverð umhverfisáhrif.
Hann gildir um þá umhverfisþætti
sem fyrirtækið getur stýrt og ætlast
má til að það hafi áhrif á. Í staðlinum
eru ekki settar fram einhlítar kröfur
um frammistöðu í umhverfismálum
umfram þá skuldbindingu sem fram
kemur í umhverfismálastefnunni um
að fylgja viðkomandi lögum og
reglugerðum og halda uppi stöðug-
um umbótum,“ segir m.a. í skilgrein-
ingu Línuhönnunar á staðlinum.
Pálmar segir staðalinn hannaðan
með það fyrir augum að fyrirtæki
geti fengið umhverfisstjórnunar-
kerfi sitt vottað og skráð af vottunar-
stofu sem hlotið hafi faggildingu.
En af hverju leggja fyrirtæki eins
og Hópbílar og Hagvagnar út á
þessa braut?
„Eins og áður sagði er það mat
stjórnenda fyrirtækjanna að ávinn-
ingurinn sé þess verðugur til lengri
tíma litið. Ýmis lög í landinu eru far-
in að þrýsta á um að fyrirtæki og ein-
staklingar sýni ábyrgð í umhverfis-
málum. Þetta mun leiða til þess að
þau fyrirtæki sem sýna ábyrgð, gera
sömu kröfur til viðskiptavina sinna
og beina viðskiptum sínum til þeirra
sem hafa allt á hreinu í umhverfis-
málum og þetta viðhorf er að breið-
ast út.“
Viðskiptavinir spyrja
um umhverfismál
Þorvaldur Daníelsson, sem sinnir
markaðsmálum hjá Hópbílum, segir
þetta ekki síst skipta máli í sam-
skiptum við ferðaskrifstofur. „Fólk
er farið að spyrja sífellt meira út í
stöðu umhverfismála. Viðskiptavinir
okkar spyrja til dæmis hvort bílaflot-
inn sé gamall og þar með mikill
mengunarvaldur og vilja vita hvern-
ig fyrirtækið stendur sig í umhverf-
ismálum. Hér er lagt upp með ákveð-
inn metnað enda finnum við að
markaðurinn er farinn að gera þess-
ar kröfur. Þetta kostar auðvitað tals-
verða fjárfestingu sem alls ekki er
unnt að velta beint út í verðlagið.
Þetta getur hins vegar fært okkur
aukin viðskipti og margt í umhverf-
isstjórnunarkerfinu gengur líka út á
að ná hagræðingu og sparnaði.“
Meðal aðgerða má nefna að stuðla á
að mengunarvörnum með því að
vakta umhverfisþætti, flokka úr-
gang, hreinsa fráveituvatn frá verk-
stæðum, draga úr mengandi út-
blæstri og hávaða frá bílum
fyrirtækisins. Þá á að stuðla að sjálf-
bærri þróun með endurnýtingu, að
nota umhverfisvæn efni í allri starf-
seminni eins og kostur er og auka
umhverfisvitund starfsmanna með
fræðslu og þjálfun. Einnig er ætlun-
in að birta umhverfisstefnuna með
ársskýrslu fyrirtækisins.
Þeir Pálmar og Þorvaldur nefna
sem dæmi það markmið fyrirtækis-
ins að draga úr eldsneytisnotkun um
5% og segja tilraunir hafa sýnt að
það sé raunhæft. „Þetta gerist auð-
vitað ekki nema allir taki höndum
saman og hafi sömu markmið. Bíl-
stjórar félaganna hafa tekið mjög já-
kvætt í þetta ferli. Við höfum því að
undanförnu boðið upp á námskeið í
svonefndum vistakstri þar sem akst-
urslag og öryggismál eru höfð að
leiðarljósi,“ segir Þorvaldur. Auk
akstursmátans þurfi að sjálfsögðu
líka að gæta þess að vélarnar séu
ávallt vel stilltar og sinna öðru við-
haldi.
Eftirlit og úttektir
Pálmar vekur athygli á því að
markmið í umhverfismálum þurfi að
vera mælanleg til að menn geti metið
hvort þeir séu á réttri leið. „Það get-
ur átt við þetta atriði með eldsneytið,
endurnýtingu á ákveðnum hlutum,
sparnað í notkun margs konar
hreinsi- og leysiefna og svo mörgu
öðru. En þetta hefst ekki nema með
samstilltu átaki allra starfsmanna
eins og áður hefur komið fram.
Hópbílar og Hagvagnar eru fram-
sækin fyrirtæki og öflug sem oft hafa
verið fyrst með nýjungar. Er stefnt
að því að fá kerfið vottað um mitt ár-
ið 2003. Það að fá kerfið vottað þýðir
að margs konar eftirlit og úttektir
þurfa að fara fram og það verk ann-
ast faggildur vottunaraðili.“
Segja mikinn
ávinning af um-
hverfisstefnu
Vagnhöfða 6 - 110 Reykjavík
Sími 577 6090 - Fax 577 6095
Eigum til vatnskassa/bensíntanka
og miðstöðvar, ásamt aukamiðstöðvum
ætluðum bifreiðum/bátum og vinnuvélum.
Einnig intercoolera í vörubíla og vinnuvélar.
BÍLSKÚRS
OG IÐNAÐARHURÐIR
Eldvarnar-
hurðir
Öryggis-
hurðirÁrmúla 42 - sími 553 4236
netfang: glofaxi@simnet.is
Hurðir
til á lager
Smíðað
eftir máli
Alternatorar – Startarar
í allflesta fólksbíla, vörubíla, vinnuvélar,
bátavélar á lager og hraðpantanir.
Trumatic gasmiðstöðvar
í bíla, báta o.fl.
Bílaraf Auðbrekku 20, s. 564 0400, f. 564 0404, n.bilaraf@isl.is
umboðið umboðið
Varahlutir í vörubíla
Fjaðrir, plastbretti og verkfærakassar.
Einnig notaðir varahlutir.
Útvegum vörubíla, vagna og ýmis tæki.
Heiði rekstrarfélag, Réttarholti,
Skeiða- og Gnúpverjahreppi.
Afgreiðsla: Vélahlutir, Vesturvör 24, Kópavogi,
símar 554 6005 og 897 6510.
Klæðningar, innréttingar, yfirbyggingar,
dúklagning og sætasmíði í bíla, báta og flugvélar
Fornbílaklæðningar – Yfir 40 ára reynsla
Steypusögun
Vegg- og gólfsögun
Múrbrot
Vikursögun
Malbiksögun
Kjarnaborun
Loftræsti- og lagnagöt
Hreinlæti og snyrtimennska
í umgengni
BT-sögun
Sími 567 7544
Gsm 892 7544