Morgunblaðið - 10.04.2003, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 2003 B 5
NFRÉTTIR Frá hugmynd
að fullunnu verki
Fiskimjölsverksmiðjur
H
ön
nu
n:
G
ís
li
B
.
Vandaður kvöldklæðnaður
Bendum frímúrurum sérstaklega á síðuna okkar
Harvey Malcolm Clothing Co - Liverpool England
www.harvey-malcolm.co.uk
Sími 0044 151 236 0043 Fax 0044 151 236 0582
ÁRIÐ 1988 tóku nokkrir einstak-
lingar sig saman og ákváðu að setja á
stofn rannsóknarstofu með sérhæf-
ingu í efnamælingum á matvælum og
fóðri. Fyrirtækið var kallað Rann-
sóknarþjónustan hf. og voru starfs-
menn 2.
Fljótlega var ákveðið að bjóða
einnig upp á örverugreiningar í mat-
vælum og fóðri og síðar einnig ráðgjöf
við hreinlætismál og hreinlætiseftirlit
í matvælafyrirtækjum. Í kjölfar þess
komu einnig námskeið og fræðslufyr-
irlestrar um hreinlætismál fyrir
starfsfólk í matvælaiðnaði.
Árið 1993 sameinaðist Rannsókn-
arþjónustan rannsóknarstofu Sölu-
samtaka lagmetis, sem voru að breyta
starfsemi sinni, og var sameinað fyr-
irtæki nefnt Rannsóknarþjónustan
Sýni ehf. Fyrirtækið er því 10 ára um
þessar mundir og má geta þess að 3
starfsmenn, Lilja Guðrún Steinsdótt-
ir, Laufey Karlsdóttir og Ásta Guð-
mundsdóttir, eiga 10 ára starfsafmæli
hjá fyrirtækinu.
Á fyrstu árum fyrirtækisins var
mest áhersla lögð á uppbyggingu
rannsóknarstofunnar. Árið 1999 fékk
Rannsóknarþjónustan Sýni ehf. fag-
gildingu fyrir helstu aðferðir skv. EN
45001-staðlinum. Þeim staðli hefur nú
verið skipt út fyrir ISO 17025 og er
Rannsóknarþjónustan Sýni ehf. eina
einkarekna prófunarstofan á Íslandi
sem hefur fengið slíka faggildingu, að
sögn Snorra Þórissonar, fram-
kvæmdastjóra Rannsóknarþjónust-
unnar Sýnis.
Snorri segir að áður hafi þessi þjón-
usta einvörðungu verið á hendi hins
opinbera. Það hafi breyst með til-
komu þessa fyrirtækis en Sýni er í
eigu tuttugu aðila, bæði fyrirtækja og
einstaklinga. Starfsmenn Rannsókn-
arþjónustunnar Sýnis eru 19 talsins,
þar af 14 með háskólapróf í matvæla-
fræði, efnafræði og sjávarútvegsfræði
og er fyrirtækið í dag stærsti einka-
rekni vinnustaður fyrir háskóla-
menntað fagfólk í matvælaiðnaði, að
sögn Ástu Guðmundsdóttur, gæða-
stjóra Rannsóknarþjónustunnar Sýn-
is.
Traust mikilvægt
Aðspurður segir Snorri að markaðs-
starf fyrirtækis, eins og Rannsóknar-
þjónustan Sýni er, sé ekkert öðruvísi
en annarra fyrirtækja. „Við bjóðum
þjónustu á sviði gæðamála í matvæla-
og fóðuriðnaði og höfum samband við
þá aðila sem þurfa á þessari þjónustu
að halda. Það sem er mjög mikilvægt í
þessum geira er að það sé hægt að
treysta okkur. Að upplýsingar sem
við höfum fari ekki á flakk út fyrir fyr-
irtækið. Fullkominn trúnaður er því
grundvallaratriði í þjónustu okkar. Á
síðustu árum hefur verið bryddað upp
á ýmsum nýjungum varðandi ráðgjöf
og þjónustu við matvælafyrirtæki og
hefur Rannsóknarþjónustan Sýni ehf.
t.d. verið í fararbroddi við að tengja
saman starfsemi á mismunandi stig-
um þ.e.a.s. fóðurgerð, dýraeldi, slátr-
un, vinnslu, flutninga, eldun og fram-
reiðslu. Sem dæmi má nefna aðstoð
við uppsetningu innra eftirlits hjá
stærstu fóðurframleiðendum landsins
og samstarfsverkefni við Félag kjúk-
lingabænda sem skilaði góðum ár-
angri í baráttunni við camphylobacter
(sýkingum fækkaði í mönnum). Því
verkefni lauk með uppsetningu innra
eftirlits á öllum kjúklingabúum lands-
ins,“ segir Snorri.
Hann bætir við að starfsemi fyr-
irtækisins hafi þróast mjög mikið á
þessum tíu árum frá stofnun þess. Í
byrjun hafi aðallega verið horft til
rannsókna en vegna mikillar eftir-
spurnar eftir sérfræðiráðgjöf á sviði
gæðamála í matvælaiðnaði hafi
starfssvið Sýnis verið breikkað. Nú sé
sinnt verkefnum sem lúta að uppsetn-
ingu innra eftirlits og innri úttekta,
verkefni sem tengjast hreinlæti og
þrifum, merkingum matvæla ofl. úr-
lausnum á tæknilegum vandamálum.
„Samkvæmt ISO 17025-staðlinum þá
verður að vera fullkominn aðskilnað-
ur milli ráðgjafar og mælinga. Því er
fullkominn aðskilnaður þar á milli,
m.a. vinna starfsmenn á öðru hvoru
sviðinu en ekki báðum,“ segir Snorri.
Ásta bætir við að námskeiðahald og
fræðsla sé alltaf að verða stærri og
stærri hluti af starfsemi Rannsókn-
arþjónustunnar Sýnis. „Við leggjum
áherslu á að aðlaga námskeiðin þörf-
um hvers fyrirtækis og skipuleggja
þau þannig að fyrirtækin þurfi ekki að
stöðva vinnu meðan á námskeiðunum
stendur, að einungis hluti starfs-
manna sæki námskeiðin á sama
tíma,“ segir Ásta.
Snorri og Ásta segja að námskeiðin
séu ekki einvörðungu ætluð fyrir-
tækjum á höfuðborgarsvæðinu held-
ur fari starfsmenn Sýnis út á land
með námskeiðahald. Það hafi þau
áhrif að fleiri fá fræðslu en ella og
kostnaður fyrirtækjanna minnkar
þegar þau geta fengið námskeiðin inn
til sín. Námskeiðin hafa einnig verið
haldin á nokkrum tungumálum með
aðstoð túlka til að efnið skili sér sem
best til þeirra sem ekki hafa náð full-
komnum tökum á íslensku. Þá hefur
efni, sem dreift er, verið þýtt á nokkur
tungumál. Þau segja að ekki sé van-
þörf á þar sem mjög margir starfs-
menn í matvælaiðnaði hafi einungis
búið hér á landi í fáein ár. Eðlilegt sé
að koma til móts við þetta starfsfólk
líkt og aðra starfsmenn matvælafyr-
irtækja.
Borðum betur
„Önnur nýjung sem má nefna er nám-
skeiðið Borðum betur en það er ætlað
fyrir starfsmenn mötuneyta en einnig
er boðið upp á það námskeið fyrir
starfsmannahópa. Á námskeiðunum
er ekki bara verið að horfa á hvernig
hægt er að minnka fitu- og sykur-
neyslu heldur margt annað, svo sem
skemmtilegar útfærslur í matreiðslu
því heilbrigði og velferð starfsmanna
er undirstaða gæða í hverju fyrirtæki
og þar skiptir mataræði miklu máli, “
segir Ásta.
Rannsóknarþjónustan Sýni hefur
fengið faggildingu, sem er alþjóðleg
gæðavottun, á hraðvirkar aðferðir til
greiningar á salmonellu, camphylo-
bacter og listeriu í matvælum og
fóðri. Að sögn Snorra er fyrirtækið
eini aðilinn á Íslandi sem hefur fengið
þessa viðurkenningu en með henni er
hægt að greina salmonellu, camphylo-
bacter og listeriu á einum til tveimur
dögum með sömu gæðatryggingu og
áður fékkst á allt að fimm dögum.
Þetta getur skipt sköpum fyrir fram-
leiðendur og neytendur hvað varðar
öryggi matvæla, að sögn Snorra.
Á Matvæladeginum 2002 var
Rannsóknarþjónustunni Sýni ehf.
veitt Fjöregg MNÍ en það er veitt ár-
lega með stuðningi Samtaka iðnaðar-
ins fyrir lofsvert framtak á matvæla-
sviði.
Sérfræðingar í sýnum
Rannsóknarþjónustan
Sýni ehf. er stærsti
einkarekni vinnu-
staður fyrir háskóla-
menntað fagfólk á
matvælasviði á Ís-
landi. Guðrún Hálfdán-
ardóttir hitti Ástu Guð-
mundsdóttur
gæðastjóra og Snorra
Þórisson, fram-
kvæmdastjóra fyr-
irtækisins, að máli.
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Ásta Guðmundsdóttir: Rannsóknarþjónustuan Sýni býður upp á námskeiðið „Borð-
um betur“ fyrir starfsfólk í mötuneytum og starfsmannahópa.
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Snorri Þórisson: Mikilvægt að það sé hægt að treysta okkur.
guna@mbl.is