Morgunblaðið - 10.04.2003, Blaðsíða 6
6 B FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
NVIÐSKIPTI ATHAFNALÍF Hvort gæði tónlistar hafa dregist saman er erfitt að fullyrða um
en lítil gæði á saltfiski hafa dregið úr áhuga neytenda í Portúgal.
Sú skýring hefur verið gefin að um tvenns konar þorsk sé að ræða.
Lífið er saltfiskur en samt er sam-
dráttur í sölu á saltfiski og tónlist
UM 715 milljónir manna ferðuðust milli landa á
árinu 2002. Aukningin frá fyrra ári var um 22 millj-
ónir, eða um 3,1%, en sé miðað við árið 2000 þá var
aukningin um 19 milljónir. Mesti vöxturinn var í Norð-
austur-Asíu, um 11,9% milli áranna 2001 og 2002. Í
Norður-Evrópu, þ.e. á Norðurlöndunum, Bretlandi og
Írlandi, var aukningin um 2,4% á sama tíma. Frá árinu
1990 hefur árlegur vöxtur í ferðaþjónustunni í Evrópu
verið um 3,6% en um 4,3% í heiminum öllum. Þessar
upplýsingar koma fram í nýjustu ársskýrslu Samtaka
ferðaþjónustunnar, SAF, og byggja á mælingum World
Tourist Organization í Madríd á Spáni, WTO.
Ferðamenn í Norður-Evrópu voru um 42,5 milljónir
á árinu 2002. Þar af komu um 278 þúsund erlendir
ferðamenn til Íslands, eða um 0,65%. Þetta er um 8%
fækkun frá árinu 2000, sem var metár, en þá heim-
sóttu um 303 þúsund erlendir ferðamenn Ísland. Frá
árinu 1990 til 2002 fjölgaði erlendum ferðamönnum
hér á landi hins vegar um 96%.
Þó svo að erlendum ferðamönum sem heimsóttu Ís-
land hafi fækkað milli áranna 2000 og 2002 á það
sama ekki við um gistinætur þeirra á hótelum og
gistiheimilum, því þeim fjölgaði á sama tíma. Þetta
gefur vísbendingu um að ferðamenn sem hingað
koma dvelji nú lengur en áður. Það eru því ekki alfarið
slæm tíðindi fyrir ferðaþjónustuna hér á landi þó að
nokkuð hafi dregið úr komum erlendra ferðamanna á
síðasta ári.
Fjölgun ferðamanna
ll FERÐAÞJÓNUSTA
Ú
TLIT er fyrir að það vori seint í ár.“
Þannig komst blaðamaður nýlega að
orði í grein í New York Times í um-
fjöllun um ferðamannaiðnaðinn og
áhrif stríðsins í Írak á hann. Stríð
hræða ferðamenn, sagði í greininni, en eflaust koma
þau sannindi fáum á óvart.
Það eru ekki nýjar fréttir að það séu sterk tengsl
milli stríðs og ferðalaga fólks, þá að sjálfsögðu þannig
að úr ferðalögunum dragi á stríðstímum. Væntanlega
munar mest um áhrifin af stríðinu í Írak fyrir ferða-
þjónustuna nú, en margt fleira hefur hins vegar einn-
ig áhrif í þessum efnum og er óhætt að segja að að-
stæður séu nú frekar á móti ferðaþjónustunni, þegar
á heildina er litið. Til viðbótar við stríðið í Írak veldur
lungnabólgufaraldurinn, sem upprunninn er í Guang-
dong-héraði í Suður-Kína, mikilli óvissu. Ekki hefur
enn tekist að hefta útbreiðslu sjúkdómsins en alls
hefur fólk í yfir tuttugu löndum smitast af völdum
hans. Þá má nefna óttann við hryðjuverk, sem veru-
lega hefur aukist á undanförnum árum. Fréttir af
ferðamönnum sem lenda í slíkum aðstæðum eru farn-
ar að berast með nokkuð reglulegum millibili, en þeir
eru alla jafna auðveld bráð ef viljinn til að nýta það er
fyrir hendi.
Vegna alls þessa og ýmissa annarra þátta er af-
koman í hinum ýmsu þáttum ferðaþjónustunnar á
heimsvísu ekki með besta móti. Þannig eiga flugfélög
víða í miklum erfiðleikum, pantanir á gistingu á hót-
elum og öðrum gististöðum eru með minnsta móti,
ferðaskipuleggjendur hafa þurft að draga saman
seglin og svo mætti áfram telja.
Í áðurnefndri grein í New York Times segir að
Francesco Frangialli, framkvæmdastjóri World
Tourist Organization í Madríd á Spáni, WTO, sé þrátt
fyrir allt bjartsýnn fyrir hönd ferðaþjónustunnar í
heiminum. Í bréfi sem hann sendi nýlega til fulltrúa
aðildarþjóða samtakanna, segir að hryðujuverka-
árásirnar á Bandaríkin 11. september 2001 hafi haft í
för með sér verstu lægð sem nokkru sinni hafi komið í
ferðaþjónustunni í heiminum. Þrátt fyrir það hafi
þessi iðnaður náð sér aftur á strik í fyrra. „Þörfin fyr-
ir að ferðast, hvort sem er í viðskiptalegum erindum
eða sér til skemmtunar, er svo sterk, að mikið þarf að
koma til, til að áhrifin þar á verði varanleg,“ segir
New York Times að Frangialli hafi skrifað.
Af hálfu WTO hefur því verið lýst að stríð og ferða-
lög fari engan veginn saman, séu algjörar andstæður.
Enda vonuðust samtökin eftir því, eins og fleiri, að til
innrásar í Írak
ið heppilegra f
Ástandið he
Ástandið í he
þjónustuna ha
tugum. Þannig
um fólks í kjö
ekki eins miki
hafði þar áður
uðum, seinni
landi, Falklan
anon. Eftir þe
sér og ferðal
Persaflóastríð
byrjun tíunda
áhrif á ferðam
aldar kom efn
urðu til að drag
frá þeim heim
inn við sé en þá
Áhrifin af h
september 20
voru mjög mik
var mikil en gr
sumra. Horfur
ið 2002, þrátt
Túnis, á Balí í I
við Mombasa í
Samkvæmt
heiminum öllu
áður. En þá k
faraldurinn frá
Öryggi fjarri
Hótel í Mið-A
lægðin við Íra
Bandaríkjama
en í nágranna
Egyptaland, N
fréttir af ferða
Vorar sei
Ferðaþjónustan í heiminum mun skaðast vegna
stríðsins í Írak, a.m.k. í vor, en verulega hefur
dregið úr bókunum með flugfélögum, hjá hót-
elum og víðar
Stríð, lungnabólgufaraldur og hugsanleg hryðju-
verk hafa dregið úr ferðalögum fólks. Grétar Júníus
Guðmundsson kannaði stöðuna í þessum málum og
sá að þrátt fyrir svart útlit á ýmsum sviðum eru
þeir þó til sem eru bjartsýnir fyrir hönd ferða-
þjónustunnar. Þeir vísa til þess hve þessi iðnaður
hafi fljótt tekið við sér eftir verstu lægðina sem
hann hefur lent í eftir hryðjuverkaárásirnar á
árinu 2001. Þörfin fyrir að ferðast er sögð vera
sterk.
NEYZLA á saltfiski hefur dregizt saman í
Portúgal á undanförnum misserum. Skýring-
ar á því eru ýmsar, en mestu ræður hátt verð
og lítil gæði á hluta fisksins. Húsmóðir, sem
verður fyrir því að kaupa dýran, en lélegan
saltfisk veigar sér við því að kaupa saltfisk
aftur af ótta við að verða fyrir vonbrigðum á
ný.
Þetta kemur fram í portúgalska blaðinu
Diário de Aveiro. Antonio Maia, sem er inn-
flytjandi og rekur saltfiskþurrkun, rekur
þessi mál í viðtali við blaðið.
Maia segir að greina verði gæðafisk og lak-
ari fisk í sundur við sölu og bendir á að eftir
þrjá daga í salti eigi þorskur lítið sem ekkert
sameiginlegt með þorski, sem hefur verið í
salti í 90 daga eins og vera ber til að ná réttri
verkun.
„Við getum ekki horfið frá hefðinni við sölt-
un á þorski. Fólk veit vissulega hvernig á að
meta gæði saltfisks, en því miður er mikið
framboð af slökum fiski á háu verði. Verði
kaupandinn fyrir því að fá vondan fisk kaupir
hann helzt ekki saltfisk aftur.
Góður saltfiskur er dýr, af því að verkunar-
tími hans er langur. Neytendur geta freistazt
til að kaupa lakari og ódýrari fisk, en stund-
um verða smásalarnir að selja slaka fiskinn á
háu verði til að ráða við hátt innkaupsverð.
Vandamálið er að mikið af ódýrum fiski kem-
ur á markaðinn, en ég efast um að hann skili
sér til neytenda á eðlilegu verði, heldur sé
hann allt að því eins dýr og gæðafiskurinn,“
segir Maia.
Hann bendir á eðlilegt sé að saltfiskurinn
sé dýr. Eitt kíló af saltfiski svari til þriggja
kílóa af ferskum fiski. Sé tekið dæmi af því að
sardínur séu keyptar á 4 evrur, sé kílóverðið
orðið hærra en á þorski, þegar búið sé að
hausa þær, slægja og þurrka eða salta. Það
sér rýrnunin í saltfiskinum frá því hann er
ferskur og þar til hann er kominn á markað
sem geri hann svona dýran.
Hann segir að annað vandamál sé innflutn-
ingur á frystum saltfiski, sem sé ekki einu
sinni þornaður. Hann sé þíddur upp í vatni og
við það aukist vatnsinnihald hans mikið.
Þannig sé hægt að auka þyngdina um 30% og
það sé viðskiptavinurinn sem borgi fyrir vatn
að einum þriðja hluta.
Antonio Maia bendir á að um sé að ræða
tvenns konar þorsk sem komi á markaðinn.
Þorskur úr Norður-Atlantshafi og frændi
hans úr Norður-Kyrrahafi. Atlantshafs-
þorskurinn sé mun betri en fyrir venjulegt
fólk geti verið mjög erfitt að þekkja tegund-
irnar í sundur, þegar búið sé að salta þær. Þá
sé einnig hægt að fela muninn til að koma í
veg fyrir að fólk komist að hinnu sanna um
upprunann. Loks megi nefna þorsk úr eldi,
sem komi á markaðinn eftir aðeins þrjá daga í
salti. Saltinnihald sé aðeins 12,7%, í stað þess
að uppfylla kröfur um 17 til 18% saltinnihald
og þess vegna sé geymsluþol minna og hann
úldni miklu fyrr.
Maia bendir á að nauðsynlegt sé að upp-
runavottorð fylgi fiskinum. Saltfiskur sé dýr
matur og fólk eigi rétt á því að fá góða vöru á
því háa verði sem saltfiskurinn sé seldur á.
Upprunavottorð sé skylda við innflutning og
þegar fiskurinn sé seldur í pakkningum. Það
eigi hins vegar ekki við „lausasölu“ og úr því
þurfi að bæta.
„Upprunavottorð verður að fylgja fiskin-
um, svo kaupendur séu ekki blekktir. Þegar
fiskurinn kostar um 70 evrur, nærri 6.000
krónur kílóið út úr búð, hugsar kaupandinn
sig tvisvar
um. Hafi hann haft slæma reynslu af salt-
fiskkaupum, er hætt við að hann þori ekki að
kaupa hann af ótta við að fá slæman fisk,“
segir Antonio Maia.
Síðasta ár var eitt hið erfiðasta í útflutningi
á saltfiski í langan tíma. Það er greinilega að
ýmsu að huga fyrir okkur Íslendinga í þeim
efnum. Gæði íslenzka saltfisksins þykja ótví-
ræð, en verðið er ekki hvetjandi fyrir neyt-
endur.
ll SJÁVARÚTVEGUR Hjörtur Gíslason
Hátt verð og lítil gæði
draga úr neyzlu
hjgi@mbl.is
Verð á saltfiski út úr búð í Portúgal allt að 6.000 krónur
GEISLADISKAR virðast ekki freista neyt-
enda sérlega mikið á þessum síðustu og net-
væddustu tímum. Sala geisladiska dróst sam-
an um 6% á árinu 2002 og sala á smáskífum er
í enn verri málum, dróst saman um 16% í
fyrra. Hljóðsnældur, sem reyndar eru nánast
að verða úreldar, seldust í 36% minna magni í
fyrra árið áður, samkvæmt tölum frá Alþjóða-
samtökum tónlistariðnaðarins (IFPI).
Í heildina dróst tónlistarmarkaðurinn í
heiminum saman um 7,2% og velti 32,2 millj-
örðum dollara á árinu 2002.
Hugbúnaði sem leyfir fólki að skiptast á
tónlistarskrám á Netinu er jafnan kennt um.
Ekki eru þó allir á því að sú skýring dugi.
Nú velta menn því fyrir sér, ef marka má
BBC, hvort sala geisladiska hafi ef til vill ver-
ið óeðlilega mikil á síðari hluta níunda áratug-
arins og nokkuð fram á þann tíunda.
Ástæðan? Tónlistarunnendur keyptu
óvenju mikið af geisladiskum til að skipta út
gömlu vinylplötunum. Nú er það tímabil liðið,
skiptunum er lokið og minna er keypt af
geisladiskum.
Í það minnsta skýrir netvæðingin það ekki
hvers vegna hinn geysivinsæli rappari 50
Cent gat selt 4 milljónir geisladiska á tveimur
mánuðum, þrátt fyrir að líklega hafi verið
skipst á tvöfalt fleiri eintökum á Netinu.
ll GEISLADISKAR ll Eyrún Magnúsdóttir
Eðlilegur samdráttur
í sölu á tónlist
eyrun@mbl.is
◆