Morgunblaðið - 11.04.2003, Síða 1
F Ö S T U D A G U R 1 1 . A P R Í L 2 0 0 3 B L A Ð B
3 TVÍBURAMÆÐUR OG 6 UPPRENNANDI BOLTADÍSIR/2 MYNDAR-
LEG KLÆÐI/2 HÚS MEÐ STÓRT HJARTA/4 KROSSFERÐ GEGN
SMEKKLEYSU/6 AÐ SAUMA PÁSKAEGG/7 AUÐLESIÐ EFNI/8
K
ONUR í hvítum kjólum
hafa vakið athygli
vegfarenda á göngum
Landspítalans að und-
anförnu. Þær sjást
helst á hátíðisdögum, hinum svo-
nefndu rauðum dögum, og ekki er
ofmælt að þær sinni þá störfum sín-
um af meiri reisn en endranær.
Þarna eru á ferðinni hjúkr-
unarfræðingar og sjúkraliðar á
gæsludeild A2 og göngudeild háls-,
nef og eyrna, en þær
vilja með kjólunum gera
sér dagamun á hátíð-
isdögum og gleðja um
leið samstarfsmenn,
sjúklinga og gesti.
„Þetta eru í raun hjúkkukjólar,
svipað og í gamla daga, en bara
miklu fallegri,“ segir Þorgerður
Þráinsdóttir, hjúkrunarfræðingur
á A2. „Þeir eru aðsniðnir með klauf
og mjög sætir – þeir vöktu að
minnsta kosti gífurlega athygli
þegar við mættum í þeim um jólin.“
Þorgerður segir hjúkrunarkon-
urnar á A2 hafa fengið hugmynd-
ina frá starfssystrum sínum á fyrr-
nefndri göngudeild háls- nef og
eyrna. „Þær byrjuðu á þessu en að
vísu vinna þær ekki á stórhátíðum –
göngudeildin er aðeins opin á virk-
um dögum. En þær klæddust kjól-
unum meðal annars á föstudögum í
desember og vöktu lukku.“
Starfsfólkið á A2 fer meira um og
út af deild sinni en starfsfólk
göngudeildarinnar og hafa því kjól-
ar þeirra að sögn vakið víðtækari
athygli. „Sjúklingunum finnst þetta
huggulegt og aðstandendurnir hafa
einnig tekið þessu mjög vel,“ segir
Þorgerður. Kjólarnir eru pantaðir
eftir lista frá heildversluninni Hexa
í Kópavogi og greiddu konurnar
fyrir þá úr eigin vasa – enda spari-
kjólar hjúkrunarfræðinga ekki á
fjárlögum!
„Það eru eingöngu
konur í þessum hópi. Að
vísu er ungur maður hjá
okkur á deildinni núna,
sjúkraliði, hann var ekki
byrjaður um jólin og
slapp því fyrir horn,“ segir Þor-
gerður og hlær. Hún segir kjólana
næst verða tekna fram um páska í
því skyni að laða fram hátíðleika
innan veggja sjúkrahússins. Ef
gustar um gangana klæðast kon-
urnar að auki látlausum, einlitum
flíspeysum sem fara fallega við
kjólana.
„Þetta lífgar óneitanlega upp á.
Venjulega erum við í hefðbundnum
buxum og jakka. Örfáar okkar hafa
tekið í notkun nýju litina, bleika og
græna, og svo er slysadeildin í
bláum búningum. En þorri starfs-
fólksins er í þessum vanabundnu,
hvítu göllum. Þeir eru kannski ekki
beint smart og það var í raun
kveikjan að þessu með kjólana.
Okkur fannst við ekki nógu flott-
ar,“ segir Þorgerður sem sjálf var á
vakt á jóladag í nýja kjólnum. Hún
bætir við brosandi að hátíðarklæðin
kalli vissulega á hátíðlegri vinnu-
brögð, en þegar nauðsyn krefji
komi búningarnir að sjálfsögðu
ekki í veg fyrir skyldur starfsins
gagnvart sjúklingum og samstarfs-
fólki.
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Þrjár af stelpunum á deild A2 í sparikjólunum: Elín Bára Birkisdóttir
sjúkraliði, Sólveig Traustadóttir Wiium sjúkraliði og Þorgerður Þráins-
dóttir hjúkrunarfræðingur.
Sparikjólar
ekki á
fjárlögum
Hvítir
kjólar
á rauðum
dögum