Morgunblaðið - 16.04.2003, Síða 1
Stríð í Írak: Sharon segir Sýrlandsforseta hættulegan
Uday haldinn fýsn í konur, áfengi og nautnalíf 16/18
STOFNAÐ 1913 104. TBL. 91. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 16. APRÍL 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
ECCOES OF THE WORLD ®
VO R / S U M A R 2 0 0 3
ECCOblaðið fylgir
Morgunblaðinu í dag
UM áttatíu fulltrúar hinna ýmsu
fylkinga í Írak – súnní-múslima,
shía-múslima, Kúrda og stjórnar-
andstæðinga sem verið hafa í út-
legð – hétu í gær að vinna að því að
koma á lýðræði í landinu. Vilja þeir
að Írak verði lýðræðislegt sam-
bandsríki. Þá lögðu þeir áherslu á
að Írakar yrðu sjálfir að kjósa eigin
leiðtoga. Bandaríkjamenn boðuðu
til fundar leiðtoganna.
Fulltrúar á fundinum, sem hald-
inn var í Ur í Suður-Írak, urðu sam-
mála um að hittast á ný eftir tíu
daga. Þeir sendu frá sér yfirlýsingu
í þrettán liðum en þar er því heitið
að lýðræðisskipan verði komið á í
Írak og að í framtíðinni skipist
menn ekki í stjórn eftir því hvaða
trúdeild þeir tilheyra.
Þá kemur fram í yfirlýsingunni
að Írak verði sambandsríki og að
lög og regla skuli gilda þar. Enn-
fremur lýstu fundarmenn þeirri
skoðun að leysa þyrfti upp Baath-
flokk Saddams Husseins, sem farið
hefur með völdin um áratugaskeið.
Zalmay Khalilzad, sendimaður
Bandaríkjastjórnar, stýrði fundin-
um. Sagði hann fundarmönnum að
Bandaríkin hefðu „alls ekki í
hyggju að stjórna Írak“ nú þegar
Saddam hefur verið steypt af stóli.
„Við viljum að þið mótið ykkar eigin
lýðræðisskipan er byggist á hefð-
um og gildum Íraka,“ sagði hann.
Enginn fulltrúi var á fundinum
frá Sameinuðu þjóðunum. Er enn
óljóst hvaða hlutverk Bandaríkja-
stjórn ætlar SÞ – ef eitthvert – við
uppbyggingarstarf í Írak.
Þá sótti Ahmed Chalabi, leiðtogi
Íraska þjóðarráðsins, ekki fundinn
en hann hefur nú lýst því yfir að
hann gefi ekki kost á sér til póli-
tískra starfa í Írak. Íraska þjóðar-
ráðið eru stærstu samtök útlægra
stjórnarandstæðinga og hafði þótt
líklegt að Chalabi yrði næsti leið-
togi Íraks.
Hafna banda-
rískum afskiptum
Stærstu samtök shía-múslima,
Íslamska byltingarráðið í Írak,
sendu ekki fulltrúa á fundinn í gær
og fóru forvígismenn þeirra hörð-
um orðum um afskipti Bandaríkja-
stjórnar. Eru þeir ósáttir við áform
stjórnvalda í Washington að skipa
hershöfðingjann fyrrverandi, Jay
Garner, yfir borgaralega bráða-
birgðastjórn í Bagdad.
„Írak þarfnast íraskrar bráða-
birgðastjórnar. Allt annað er
átroðningur á rétti írasks almenn-
ings og markar afturhvarf til ný-
lendutímanna,“ sagði Abdul Aziz
Hakim, fulltrúi samtakanna en að-
albækistöðvar þeirra hafa verið í
Íran.
Um tuttugu þúsund shía-músl-
imar héldu mótmælafund í Nasir-
iya, sem er skammt frá Ur, vegna
þess sem þeir álíta tilraunir Banda-
ríkjamanna til að hafa áhrif á
myndun nýrrar stjórnar í Írak.
„Við viljum ekki Bandaríkin, við
viljum ekki Saddam,“ hrópuðu þeir
en shía-múslimar, sem eru í meiri-
hluta í Írak, áttu undir högg að
sækja í stjórnartíð Saddams, sem
er súnní-múslimi.
Lýstu mótmælendur því m.a. yf-
ir að þeir kærðu sig ekki um að
Chalabi fengi leiðtogahlutverk, en
jafnan er talið að hann njóti ein-
dregins stuðnings bandaríska varn-
armálaráðuneytisins til slíkra
starfa.
AP
Shía-múslimar mótmæla íhlutun Bandaríkjamanna í írösk stjórnmál á fundi í Nasiriya í gær. Um 20 þúsund manns tóku þátt í mótmælunum.
Írak verði lýðræðis-
legt sambandsríki
Leiðtogar fylkinga í Írak áttu fund – hittast aftur að tíu dögum liðnum
Ur, Nasiriya. AFP, AP.
AÐ minnsta kosti tólf óbreyttir borgarar
eru sagðir hafa fallið og um sextíu til við-
bótar særst þegar bandarískir hermenn
hófu skothríð á hóp fólks sem hafði komið
saman í borginni Mosul í norðurhluta Íraks
í gær.
Atburðurinn átti sér stað þar sem
Mashaan al-Juburi, sem Bandaríkjamenn
hafa skipað héraðsstjóra í Mosul, var að
ávarpa hóp fólks. Gerðist fólkið smám sam-
an fjandsamlegt í garð al-Juburis en hann
er hlynntur veru Bandaríkjahers í Írak.
Talsmaður Bandaríkjahers sagði að skotið
hefði verið á hermennina, þeir hefðu ekki
skotið á mannssöfnuðinn.
Tólf falla
í Mosul
Mosul. AFP.
ABU Abbas, palestínskur hryðjuverkaleið-
togi sem skipulagði rán á farþegaskipi á
Miðjarðarhafi árið 1985, hefur verið hand-
tekinn í Bagdad, höfuðborg Íraks.
Háttsettur banda-
rískur embættismaður
greindi frá þessu í gær-
kvöldi og kvað Abbas,
sem heitir réttu nafni
Mohammad Abbas, í
vörslu bandaríska her-
liðsins í borginni.
Fjórir vopnaðir menn
rændu ítalska farþega-
skipinu Achille Lauro er
það var á siglingu á Miðjarðarhafi í októ-
bermánuði árið 1985.
Hryðjuverkamennirnir höfðu skipið á
valdi sínu í tvo daga. Þeir myrtu einn far-
þeganna, 69 ára gamlan Bandaríkjamann
sem bundinn var við hjólastól, og vörpuðu
líkinu fyrir borð. Loks féllust þeir á að
halda frá borði gegn því að fá að fara frjáls-
ir ferða sinna. Bandaríkjamenn neyddu
þotu sem átti að flytja mennina frá Egypta-
landi til Túnis til að lenda á Ítalíu. Þar voru
mennirnir dæmdir. Abu Abbas var dæmd-
ur að honum fjarstöddum og fékk fimm-
faldan lífstíðardóm.
Abu Abbas
handtekinn
Washington. AFP.
Abu Abbas
COLIN Powell, utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, sagði í gær að ráðamenn vestra
hefðu ekki uppi áform um frekari hernað
gegn ríkjum í Mið-Austurlöndum.
Powell sagði á blaðamannafundi að
Bandaríkin vildu tryggja að lýðræði fengi
að blómstra í Mið-Austurlöndum. Það væri
hins vegar hverrar þjóðar að velja sér leið
að þessu markmiði. Enginn „listi“ væri til í
Bandaríkjunum yfir þau ríki sem réttlæt-
anlegt þætti að fara með hernaði gegn. Vís-
aði ráðherrann á þennan veg til Sýrlend-
inga sem Bandaríkjamenn saka um að hafa
aðstoðað hátt setta menn að flýja frá Írak
og að ráða yfir gereyðingarvopnum. Í
arabaríkjum og víðar óttast margir að
Bandaríkjamenn hyggi á hernað gegn Sýr-
lendingum og jafnvel Írönum.
George W. Bush, forseti Bandaríkjanna,
sagði í gær að með falli Íraksstjórnar hefðu
„hryðjuverkaöflin misst bandamann“.
Bush lýsti ekki yfir sigri í stríðinu og kvað
mikið verk óunnið. Byggja þyrfti samfélag-
ið upp og skapa grundvöll fyrir því að
íraska þjóðin gæti sjálf ráðið framtíð sinni.
.
Áforma ekki
frekari hernað
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦