Morgunblaðið - 16.04.2003, Blaðsíða 6
6 B MIÐVIKUDAGUR 16. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
kvartmíla
KVARTMÍLUKLÚBBURINN held-ur sýningu í höfuðstöðvumB&L um páskahelgina. Liðin eru
tíu ár síðan síðast var haldin sýning af
þessu tagi og af þeim sökum verður
mikið lagt í sýninguna að þessu sinni.
Meðal annars verða fluttir inn nokkrir
bílar og mótorhjól að utan og aflmestu
íslensku bílarnir verða á staðnum. Að
sögn Hauks Sveinssonar, sem á sæti í
stjórn Kvartmíluklúbbsins, á sér stað
mikill uppgangur og endurnýjun innan
klúbbsins. Áberandi er að gamlir fé-
lagar, sem hafi verið á kafi í sportinu
fyrir u.þ.b. tuttugu árum, séu að hefja
leik á ný með öfluga bíla.
Búið að framkvæma við brautina
„Þetta eru strákar sem voru í þessu
áður fyrr og hafa komið sér vel fyrir í
lífinu núna og eiga peninga til að
stunda íþróttina. Þetta er rándýrt ef
maður ætlar að vera á meðal þeirra
fremstu. Það verður gríðarleg keppni í
sumar enda mikil uppsveifla í kvartmíl-
unni núna. Við erum búnir að standa í
miklum framkvæmdum við kvartmílu-
brautina. Það er búið að slétta 50
metra allt í kringum brautina, lengja
brautina og svo stendur til að malbika
þarna líka. Við ætlum líka að kaupa ljós
með skermum sem sýna tíma og
endahraða. Þessi búnaður verður
kominn upp fyrir fyrstu keppni sem
verður í endaðan maí,“ segir Haukur.
Til marks um uppganginn segir
Haukur að nokkrir bílar verði núna
með sem eru 1.000 hestafla og meira.
Einn félagi á tvo Chevrolet Vega, þar af
einn station-bíll sem var keppnisbíll í
Bandaríkjunum. Hann keypti í bílinn
nýja 540 kúbiktomma vél, nýjan for-
þjöppublásara og hún er núna að skila
um 1.300 hestöflum utan við nítró.
Fluttur hefur verið inn „dragster“ frá
Svíþjóð og svo verður einn af öflugri
bílunum Volvo kryppa sem keppt var á
íSvíþjóð. Kryppan er með titaníum-
grind sem yfirbyggingin er hengd utan
á. Haukur segir að þetta sé líklega eini
„professional“ keppnisbíllinn á landinu.
ÍSvíþjóð þarf að fá skoðun á svona öfl-
uga keppnisbíla niður í einhvern tiltek-
inn tíma. Kryppan er með skoðun nið-
ur í 7,50 sekúndur á kvartmíluna.
Íslandsmetið í stærsta bílaflokki í
kvartmílu er 9,14 sekúndur sem Einar
Birgisson frá Akureyri setti í fyrra á
Chevrolet Nova. Kristján Skjóldal er
Íslandsmeistari í dragstera“-flokki en
Ingólfur Arnarson, formaður Kvart-
míluklúbbsins, á engu að síður besta
tímann í þeim flokki, sem er 7,78 sek-
úndur.
Annar Vega var keyptur inn frá
Bandaríkjunum klár til keppni, 800-
900 hestöfl.
Ari Jóhannsson á Camaro og er að
fá nýja vél í bílinn, sem er líklega
1.000-1.200 hestöfl. Í Keflavík er ein
Nova sem var flutt inn frá Bandaríkj-
unum, með 622 kúbiktomma vél.
Chevrolet Pro-Street og AC Cobra
Mikill hugur er í kvartmílumönnum
að hefja íþróttina til vegs og virðingar
áný. Fimm kvartmílumót verða haldin
í sumar til Íslandsmeistaratitils og
tvær sandspyrnur. Hluti af starfsem-
inni er sýningin um páskahelgina. Þar
verða flottustu bílarnir sýndir og Ís-
landsmeistararnir frá því í fyrra. Einnig
verða þarna tveir bílar og tvö vélhjól
frá Svíþjóð. Annar bílanna er ’55 ár-
gerð af Chevrolet Pro-Street, sem
þýðir að hann er löglegur á götunum.
Hann er með 540 kúbiktomma vél.
Einnig verður sýnd AC Cobra sem
byggð er á stýrisgangi og bremsum úr
Corvettu og með 505 kúbiktomma
vél. Þarna verður líka Harley Davidson
Custom-hjól.
Alls verða 45–50 bílar í salnum hjá
B&L, einnig eldri bílar, jeppar, sportbílar
og mótorhjól. Þá verður haldin hljóm-
tækjakeppni á staðnum. Sýningin
verður opnuð 18. apríl kl. 11 og verður
opið til kl. 22 á kvöldin. Sýningunni
lýkur 21. apríl. Aðgangseyrir er 800
krónur.
Mikill upp-
gangur í
kvartmílunni
Ingólfur Arnarson á fullri ferð á bláu grindinni sinni.
Dæmi eru um að menn sem voru í kvartmílunni fyrir 20 árum séu að byrja aftur með miklu öflugri og betri bíla. Guðjón Guðmundsson ræðir
við Hauk Sveinsson, stjórnarmann í Kvartmíluklúbbnum, um sýninguna og íþróttina.
Maí: 3. maí, Sandspyrna KK.
17. maí, Kvartmíla KK.
Júní: 7. júní, Kvartmíla KK.
14. júní, Götuspyrna BA, Akureyri.
15.-16. júní, Sandspyrna BA, Ak-
ureyri, (enn á hugmyndastigi).
15.-16. júní, AutoX BA, Akureyri,
(enn á hugmyndastigi). 15.-16. júní,
Burn-out BA, Akureyri (enn á hug-
myndastigi).
17. júní, Bílasýning BA, Akureyri.
28. júní, Kvartmíla KK.
Júlí: 12. júlí, Kvartmíla KK.
Ágúst: 16. ágúst, Kvartmíla KK.
ágúst, Sandspyrna KK.
September: 13. september, Sand-
spyrna BA, Akureyri.
27. september, Sandspyrna BA,
Akureyri.
Október: 11. október, lokahóf BA
og KK.
Keppnisdagatal
kvartmílunnar 2003
„ÞAÐ á að
steikja allt og
alla í sumar,“
segir Jón Geir
Eysteinsson
sem ætlar að
keyra í sumar
kvartmíluna á
nýjum „dragst-
er“ sem hann
hefur verið að
smíða að und-
anförnu og er
að leggja síð-
ustu hönd á.
„Dragsterinn“ geta menn virt
fyrir sér í endanlegu útliti á
kvartmílusýningunni sem opnar
á morgun.
„„Dragsterinn“ er heimasmíð-
aður og ég hef átt hann í tvö og
hálft ár. Það er bara byrjað að
saga, slípa og sjóða. Ég pantaði
rörin í grindina í Bandaríkjunum.
Svona gerir Kaninn þetta. Á
þessu er svo bara mótorinn og
karlinn og þetta vegur 800-900
kg. Vélin vegur sitt og svo eru á
þessu stórar Dana 60 hásingar.
Það verður allt að vera skothelt
á þessu. Gengið er frá bremsun-
um út frá þyngdinni. Það nægir
því að vera bara með venjulegar
bremsur þegar bíllinn vegur ekki
meira en þetta,“ segir Jón Geir.
Jón Geir varð Íslandsmeistari í
kvartmílu í bílaflokki 1995, 1996
og 1997 á Barracuda. Reglur
segja til um að fari kvartmílu-
tæki yfir 150 mílur á klst verði
að útbúa þau með fallhlíf til að
stöðva bílinn við endimörk braut-
arinnar. Þess vegna verður að
útbúa dragsterinn með fallhlíf
sem nú er á leið til landsins.
Jón Geir vonast til þess að
fara kvartmíluna niður í átta
sekúndur. Hámarkshraðinn verð-
ur þá um 240-250 km/klst.
„Dragsterinn“ er fremur stuttur
miðað við marga aðra, 123
tommur milli hjóla, en Jón Geir
telur að hann verði léttari fyrir
vikið og meðfærilegri.
„Þetta er klikkun og snýst
bara um það að vera vel líf-
tryggður og standa síðan „flapp-
ann“,“ segir Jón Geir.
Vill einhver tryggja ykkur?
„Já, já, þeir gera það en ið-
gjöldin er vissulega miklu hærri.“
Vélin í „dragsternum“ er 452
Mopar og Jón Geir vonast til
þess að ná 550-600 hestöflum
út úr vélinni með nítrói. „Hún er
voðalega þægileg en ég þarf að
fara að „tjúna“ hana meira.“
Jón Geir Eysteinsson við „dragsterinn“.
Morgunblaðið/Golli
Steikir allt og alla í sumar
EITT flottasta hippahjólið á land-
inu verður meðal gripa á sýningu
Kvartmíluklúbbsins í höf-
uðstöðvum B&L um páskana.
Þetta er Harley Davidson hjól,
„custom“-byggt, sem þýðir að
það er hannað af öðru fyrirtæki
en framleiðandanum sjálfum.
Ýmsir hlutir í hjólinu eru ekki
einu sinni smíðaðir af Harley
Davidson. Eigandi hjólsins er
Björgvin Ólafsson, 27 ára tré-
smiður. Hjólið verður skráð sem
2003 árgerð en er í raun árgerð
1996-2003. „Ég er búinn að
vera í ein sex ár að safna í hjólið
og er að klára að setja það sam-
an núna. Það er Harley Davidson
SOS 1600 kúbika vél. Það er því
komið afl í hjólið, jafnvel þótt
maður noti ekki svo mikið allt
aflið. Þetta er „krúser“ en engin
kvartmílugræja. Ég held að þetta
hljóti að verða eitt flottasta hjólið
á götunni. Það er alla vega ekkert
til sparað og ég hef verið lengi að
safna í það. Ég keypti grindina
1996 og síðan hafasmám saman
safnast hlutir í það. Það vantar
bara í það bremsuslöngu en að
öðru leyti er hjólið tilbúið núna,“
segir Björgvin.
– Hvað kostar svo hjólið?
„Úff, ég veit það ekki. Ég hef
flutt allt inn sjálfur svo það hefur
ekki kostað mig jafn mikið og ef
ég hefði keypt allt af umboðinu.
Ég er örugglega búinn að eyða
góðum fjórum milljónum króna í
þetta. Ég hef aðeins látið jólavísa-
reikninginn sitja á hakanum,“
segir Björgvin.
Morgunblaðið/Árni Torfason
Hjólið er sýnt í fyrsta sinn á kvartmílusýningunni.
Eitt flottasta hippahjólið
ÞEIR sem eru komnir til vits og ára muna eftir kvik-
myndinni American Graffiti sem gekk út á stelpur, ung-
lingabólur og bíla. Bílarnir voru svokallaðir „hot-rod“; sjóð-
heit rör eða hvað? Nei, heimasmíðuð tryllitæki með
svakalegum vélum og svölum töffurum undir stýri. á einn
slíkan sem smíðaður er úr Ford ’34 árgerð. Hann er með
plastyfirbyggingu og Jón Trausti keypti hana frá Banda-
ríkjunum fyrir nokkrum árum og hann hefur verið að setja
bílinn saman.
Undir vélarhlífinni er 250 hestafla Ford-vél en það
stendur ekki til að keppa á bílnum; hann er meira fyrir
„lúkkið“. Það eru ekki margir slíkir bílar til á landinu. Þó er
vitað um Ford ’37 árgerð í Hafnarfirði.
Hægt er að segja að þetta sé hálfgerður „kit“-bíll og
hægt að kaupa hann á ýmsum stigum.
„Það er heilmikið möndl að setja hann saman. Amerík-
aninn er með hann brettalausan og þess vegna fylgja þau
ekki með í „kittinu“. Brettasett að framan og aftan og
gangbretti þarf að panta sérstaklega. Þeir eru að sporta
sig á svona bílum í Kaliforníu þar sem aldrei rignir. Grindin
fylgir hins vegar ekki með. Hann er á McPherson fjöðrun
að framan og hann er á hásingum að aftan.“
Morgunblaðið/Árni Torfason
Ford hot-rod Jóns Trausta verður meðal sýningargripa á kvartmílusýningunni.
Sjóðheitt rör í Graffiti-stíl