Morgunblaðið - 24.04.2003, Blaðsíða 2
2 B FIMMTUDAGUR 24. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
NFRÉTTIR
!
MIKLAR hræringar hafa verið í starfsmannahaldi Bún-aðarbankans og Landsbankans undanfarna daga. Ámánudagskvöld komu fjórir lykilstjórnendur Bún-aðarbankans á fund bankastjóra, Sólons R. Sigurðs-
sonar, og tilkynntu um uppsögn sína og að þeir væru að hefja
störf hjá samkeppnisaðilanum, Landsbankanum. Uppsagnirnar
komu bankastjóranum eins og þruma úr heiðskíru lofti og ekki
tók betra við daginn eftir þegar sex starfsmenn bankans til við-
bótar sögðu upp störfum. Í gær fjölgaði enn í hópnum og síðdegis
í gær voru þeir orðnir 14 alls.
Uppsagnirnar eru mikið áfall fyrir Búnaðarbankann og óvenju-
legt að eitt fjármálafyrirtæki herji með þessum hætti á annað.
Þetta er eflaust ekki gott veganesti fyrir sameiningu við Kaup-
þing. En meðal skýringa sem aðilar á fjármálamarkaði hafa nefnt
fyrir fólksflóttanum úr Búnaðarbankanum er ekki bara boð um
gull og græna skóga heldur starfsöryggi. Þrátt fyrir að ekki hafi
komið fram hversu mörgum verði sagt upp við sameiningu Kaup-
þings og Búnaðarbankans, né heldur hvort einhverjum verði sagt
upp, þá hefur það legið í loftinu að til uppsagna muni koma. Þegar
samruni bankanna var samþykktur var Árna Tómassyni, banka-
stjóra Búnaðarbankans, gert að hætta störfum og hefur ríkt
ákveðin óvissa meðal starfsmanna bankans hvort þeirra bíði svip-
að hlutskipti. Eins má telja víst að brotthvarf manna eins og Sig-
urjóns Þ. Árnasonar til Landsbankans geti skýrt uppsagnir ann-
arra. Sigurjón hefur verið lykilmaður í rekstri Búnaðarbankans
undanfarin ár og þrátt fyrir að hlutur hans hafi ekki farið hátt í
opinberri umræðu þá hefur hann ekki farið fram hjá neinum sem
fylgst hefur með íslenskum fjármálamarkaði.
Yfirleitt þegar fólk skiptir um starf þá fylgir því ákveðið óör-
yggi, að viðkomandi veit ekki að hverju hann gengur. En í þessu
tilviki ná velta því fyrir sér hvort því sé öfugt farið með þá starfs-
menn Búnaðarbankans sem hafa ákveðið að fylgja fjórmenning-
unum til Landsbankans. Þeir hafi
ekki vitað hvað biði þeirra í samein-
uðum banka en þeir viti að hverju
þeir gangi hjá Landsbankanum. En
er það svo? Í ljósi umræðna um
hugsanlega sameiningu Landsbanka
og Íslandsbanka má spyrja hvert
starfsöryggi þeirra, sem nú fara frá
Búnaðarbanka til Landsbanka,
raunverulega er. Hvað gerist ef af
sameiningu Landsbanka og Íslands-
banka verður eða ef um verður að ræða yfirtöku Íslandsbanka og
Landsbanka?
Það er ekkert nýtt af nálinni að starfsmenn fjármálafyrirtækja
færi sig um set en það sem er óvenjulegt nú er að Landsbankinn
skuli markvisst bjóða stórum hóp hjá samkeppnisaðilanum starf.
Landsbankinn, sem fyrir nokkrum árum var stærsti og öfl-
ugasti banki þjóðarinnar stendur nú frammi fyrir því að vera sá
minnsti. Engum þarf að koma á óvart, þótt nýir eigendur Lands-
bankans vilji breyta þeirri stöðu. Ljóst er að sterk tengsl hafa
verið á milli aðaleigenda Landsbankans og kjarna þess hóps, sem
nú er að koma frá Búnaðarbanka til liðs við Landsbankann. Hins
vegar hlýtur það að vekja spurningar innan Landsbankans, meðal
starfsmanna bankans, hvort í þeirra hópi hafi ekki verið hæfir
starfsmenn til þess að takast á við ný verkefni við nýjar aðstæður.
Fyrirtæki geta endurnýjað sig innan frá en líka utan frá eins og
Landsbankinn er að gera nú. Vissulega getur það verið álitamál
hvor kosturinn er heppilegri.
Reuters
Innherji skrifar
Viltu vera
„memm“?
Eru það gull og
grænir skógar sem
heilla eða von um
starfsöryggi hjá
samkeppnis-
aðilanum?
innherji@mbl.is
ll VIÐSKIPTI
● LAUNAVÍSITALA í mars 2003 er 237,8 stig
og hækkaði um 0,1% frá fyrra mánuði. Síð-
astliðna tólf mánuði hefur launavísitalan
hækkað um 5,7%.
Vísitala byggingarkostnaðar, reiknuð eftir
verðlagi um miðjan apríl, er 285,6 stig og
hækkar um 0,28% frá fyrra mánuði. Vísital-
an gildir fyrir maí. Síðastliðna tólf mánuði
hefur vísitala byggingarkostnaðar hækkað
um 3,2%. að því er fram kemur í frétt frá
Hagstofu Íslands.
Árshækkun
launavísitölu 5,7%
● NORRÆNI fjárfestingarbankinn, NIB, hef-
ur boðið út skuldabréf á alþjóðlegum mark-
aði að fjárhæð einn milljarður Bandaríkja-
dala. Umsjónaraðilar útboðsins eru BNP
Paribas, HSBC og Morgan Stanley í sam-
starfi við Deutsche Bank, Citigroup, Gold-
man Sachs, Mizuho og Nordea. Útboðið er
annað útboð NIB af þessari stærðargráðu.
Það hófst 15. apríl síðastliðinn en gjalddagi
skuldabréfanna er 24. apríl 2008. Ársvextir
eru 3,125%.
Um 35% af þeim milljarði Bandaríkjadala
sem boðnir voru út fóru til Norður-Ameríku,
um 30% til Asíu, um 20% til Evrópu og um
15% til Mið-Austurlanda og Afríku.
Skuldabréfaútboð NIB
upp á milljarð dala
◆
◆
◆
● SAMRÆMD vísitala neysluverðs í EES-
ríkjum var 112,9 stig í mars sl. og hækkaði
um 0,5% frá febrúar.
Á sama tíma var
samræmda vísitalan
fyrir Ísland 125,4
stig og hækkaði um
1,1% frá fyrra mán-
uði. Frá mars 2002
til jafnlengdar árið 2003 var verðbólgan,
mæld með samræmdri vísitölu neysluverðs,
2,3% að meðaltali í ríkjum EES, 2,4% á evru-
svæðinu og 1,9% á Íslandi. Mesta verðbólga
á Evrópska efnahagssvæðinu á þessu tólf
mánaða tímabili var á Írlandi, 4,9%, og 3,9%
í Grikklandi. Verðbólgan var minnst í Þýska-
landi, 1,2% og í Bretlandi, 1,6%.
Minnst verðbólga í
Þýskalandi á EES-svæðinu
ll RÆKJA
● SÁDI-ARABAR eru
nú að hefja rækju-
eldi í stórum stíl. Bú-
ið er að reisa eld-
isstöð skammt frá
borginni Al-Laith og
nær starfsemin yfir
129 ferkílómetra.
Þegar fullum afköstum verður náð er ætl-
unin að eldið skili árlega um 30.000 tonn-
um. Náist það markmið, verður Sádi-Arabía
meðal 10 stærstu rækjuframleiðenda í
heimi.
Á fyrsta stigi verða framleidd 12.500 tonn
í 10 tjörnum sem þekja samtals 2.500 hekt-
ara. Hafizt verður handa við næsta stigið
fljótlega. Á því verða 15 tjarnir sem ná yfir
67,4 ferkílómetra og gert er ráð fyrir 17.500
tonna framleiðslu á ári.
Arabar í rækjueldi
● NÝHERJI hefur fengið vottun sem Trend
Micro Premium Partner og er eina fyrirtækið
á Íslandi sem hefur fengið hana samkvæmt
fréttatilkynningu frá Nýherja.
Nýherji fær vottun
BANDARÍSKA
lágvöruverðskeðj-
an Kmart, sem
fékk greiðslustöðv-
un fyrir rúmu ári,
mun losna undan
henni tveimur
mánuðum fyrr en
áætlað var. Haft
var eftir Julian
Day, forstjóra fyr-
irtækisins, á vef-
miðli BBC í gær, að
stjórnendur fyrir-
tækisins væru
mjög ánægðir með
endurskipulagn-
ingu fyrirtækisins.
Eftir u.þ.b. tvær vikur hefst
starfsemi keðjunnar aftur að
fullu með 600 færri verslunum
en áður auk þess sem skuldir
hafa lækkað um 80%.
Hluthafar í Kmart
tapa því sem þeir áttu
í fyrirtækinu en
bankar og eigendur
skuldabréfa sem fyr-
irtækið gaf út munu
fá ný hlutabréf í
hendur.
Samdráttur í sölu
og auknar skuldir
urðu til þess að farið
var fram á greiðslu-
stöðvun fyrir Kmart í
janúar á síðasta ári.
Tap fyrirtækisins í
fyrra nam um 3,2
milljörðum Banda-
ríkjadala, jafnvirði
rúmra 240 milljarða íslenskra
króna. Í tilkynningu frá fyrir-
tækinu segir að gert sé ráð fyrir
að það muni skila hagnaði á
næsta ári.
Kmart að losna
úr greiðslustöðvun
fyrr en áætlað var
Skuldir lækka um 80% og verslunum fækkað
Áætlanir gera ráð fyrir að
Kmart skili hagnaði á
næsta ári.
ll VOTTUN
◆
STRAUMUR
hagnaðist um 408
milljónir króna á
fyrstu þremur
mánuðum ársins,
samanborið við
812 milljóna hagn-
að á sama tímabili
fyrir ári. Inn-
leystur hagnaður
fyrir skatta var
316 m.kr., samanborið við 530 m.kr. hagnað á sama tíma 2002.
Óinnleystur hagnaður nam 152 m.kr., samanborið við 453
m.kr. óinnleystan hagnað fyrir sama tímabil 2002. Arðsemi
eiginfjár var 21,7% eftir skatta á ársgrundvelli.
„Skilyrði á verðbréfamörkuðum voru félaginu almennt hag-
stæð á fyrstu þremur mánuðum ársins og leiddu til verðhækk-
ana á verðbréfaeign félagsins,“ segir í tilkynningu frá félag-
inu.
Heildareignir Fjárfestingarfélagsins Straums hf. voru
11.824 m.kr. þann 31. mars 2003, samanborið við 7.986 m.kr. í
árslok 2002. Eigið fé félagsins var 8.509 m.kr., samanborið við
7.760 m.kr. í árslok 2002. Eiginfjárhlutfall félagsins var 72% í
lok tímabilsins, en var 97% í árslok 2002. Skuldir voru samtals
3.315 m.kr. þann 31. mars 2003.
Straumur hagnast
Morgunblaðið/Golli
Mun minni hagnaður en á sama tímabili í fyrra
KAUPÁS hf. og
Bakarameistarinn
ehf. hafa undirritað
samkomulag um að
Bakarameistarinn
opni og reki veit-
ingaaðstöðu og bak-
arí á fyrstu hæð
Húsgagnahallarinn-
ar við Bíldshöfða. Í
veitingaaðstöðu
Bakarameistarans
verður sæti fyrir 80
manns og verður
þar boðið uppá smá-
rétti og kaffimeð-
læti auk annars
baksturs.
Umfangsmiklar breytingar
standa yfir á Húsgagnahöllinni,
einkum í húsgagnaversluninni
sem er sú stærsta á landinu. Í
næsta mánuði verður opnuð
900 fm. lágvöruverðsverslun
Krónunnar í Húsgagnahöllinni
en í húsinu eru fyrir verslanir
Intersports og Nevada Bob.
Bakarameistarinn opn-
ar í Húsgagnahöllinni
Vigfús Kr. Hjartarson, framkvæmdastjóri Bak-
arameistarans, og Sigþór Sigurjónsson, eigandi,
Ingimar Jónsson, forstjóri Kaupáss, og Friðbert
Friðbertsson, framkvæmdastjóri sérvörusviðs,
skrifuðu undir samninginn.