Morgunblaðið - 24.04.2003, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. APRÍL 2003 B 3
NFRÉTTIR FULLTRÚAR í íslenska stýri-
hópnum segja að íslenskt atvinnulíf sé
áhugasamt, en ríkisstjórnin hefur lýst
stuðningi við verkefnið. Þá er mikill
áhugi á hugmyndinni innan Evrópu-
sambandsins. Ef af verður eru líkur á
verulegum fjárstuðingi fyrir íslensk
verkefni, þar sem sótt verður um
Evrópustyrki fyrir tilraunasamfélag-
ið.
Ingólfur Sveinsson, verkefnisstjóri
hjá Útflutningsráði, segir að ESB
hafi stöðugt vaxandi áhyggjur af því
hversu hægt gangi að innleiða raf-
ræna viðskiptahætti í Evrópu; mun
hægar en í Bandaríkjunum. Því hafi
þeirri hugmynd, að hleypa af stokk-
unum tilraunasamfélögum fyrir raf-
ræn viðskipti, í tengslum við átak
Evrópusambandsins „eEurope 2005
Action Plan“, verið ákaflega vel tekið
innan sambandsins.
Stuðlar að hagvexti
Guðbjörg Björnsdóttir og Rúnar Már
Sverrisson hjá Staðlaráði Íslands
kynntu þessa hugmynd fyrst innan
nefndar á vegum Staðlasamtaka Evr-
ópu og ESB og hafa að undanförnu
verið að vinna að framgangi hennar.
Þá hefur Jónína S. Lárusdóttir, lög-
fræðingur í iðnaðar- og viðskipta-
ráðuneytinu, unnið að verkefninu fyr-
ir hönd ráðuneytisins og verkefnis-
stjórnar um upplýsingasamfélagið,
auk Ingólfs Sveinssonar hjá Útflutn-
ingsráði.
Rúnar segir að litið sé á rafræn við-
skipti sem möguleika til aukins hag-
vaxtar. Með því að nota tölvutækni sé
hægt að auka verðmætasköpun og
minnka tilkostnað. „Evrópusamband-
ið setti sér það takmark árið 2001, að
Evrópa yrði „rafræn“ árið 2003. Það
hefur aldeilis ekki gengið eftir. Könn-
un í árslok 2002 sýndi að aðeins örlítill
hluti, eða um 6,6% evrópskra fyrir-
tækja, hafði þá tekið að fullnýta sér
tölvutækni í aðfangakeðjum,“ segir
hann. Rúnar segir að þær niðurstöður
hafi verið mikil vonbrigði fyrir ESB.
Stærsta vandamálið, að sögn Rún-
ars, er að lítil fyrirtæki hafa ekki tekið
þátt í þróuninni, en þátttaka þeirra er
talin vera grundvöllur þess að kerfið
virki. „ESB vildi því kortleggja stöðu
og lykilatriði stöðlunar í rafrænum
viðskiptum. Til þess að litlu fyrirtæk-
in geti tekið tæknina upp verður að
samræma alls konar tæknileg atriði
og auka samstarf um fjölmörg atriði,
þar á meðal stöðlun. Í þessu augna-
miði var skipuð nefnd, CEN/ISSS
eBusiness Standards Focus Group,
sem er innan evrópsku staðlasamtak-
anna,“ segir Rúnar. Hann er í þessari
nefnd, ásamt Guðbjörgu Björnsdótt-
ur.
Markmið nefndarinnar var að kort-
leggja vandamál á sviði stöðlunar sem
stæðu framþróun rafrænna viðskipta
fyrir þrifum, með það fyrir augum að
finna leiðir til að örva rafræn viðskipti
milli landa í Evrópu og með þátttöku
lítilla og meðalstórra fyrirtækja. „Við
í þessari nefnd litum verkefnið svolít-
ið öðrum augum en hafði verið gert
þangað til, enda ekki svo flækt inn í
evrópska stjórnkerfið. Við komumst
að þeirri niðurstöðu, að það sem helst
stæði í vegi fyrir rafrænum viðskipt-
um í Evrópu væri hversu hefðir væru
ríkar í viðskiptalífinu. Skipulag væri
fastmótað, völd og pólitík væru alls-
ráðandi og tengslanet væri mjög lag-
skipt, þannig að erfitt væri að ná
tengslum við rétta aðila í þeim til-
gangi að innleiða nýjungar,“ segir
Rúnar.
Þá komst nefndin að þeirri niður-
stöðu að hentugast væri að nota
smærri samfélög til að prófa sig
áfram og þróa rafræn viðskipti. „Slíkt
væri mjög erfitt í stóru samfélagi á
við Bretland, þar sem fyrirtækin
skipta eflaust hundruðum þúsunda.
Til þess að rafræn viðskipti skili til-
ætluðum árangri þarf að ná til ákveð-
ins hlutfalls fyrirtækja, á að giska 70–
80%. Í svo stóru samfélagi þarf að
kynna fyrirtækjunum þróaðar lausn-
ir; tilraunastarfsemi er nánast ófram-
kvæmanleg,“ segir Rúnar.
Ísland kjörið tilraunasamfélag
Íslensku nefndarmennirnir lögðu því
fram þá tillögu að Ísland yrði eins
konar tilraunasamfélag fyrir rafræn
viðskipti. „Ísland er ef til vill kjörið til
að takast á við þetta viðfangsefni. Það
er lítið, en um leið þróað og tilbúið fyr-
ir svona verkefni.“
Tillagan var „að skapa skilvirkt,
rafrænt viðskiptaumhverfi – tilrauna-
samfélag, sem þjóni sem viðskiptalík-
an fyrir önnur Evrópulönd.“.
Að sögn Rúnars er mikilvægt að í
þessari tilraun taki stjórnvöld, staðla-
samtök, fyrirtæki og stofnanir,
menntastofnanir og hagsmunasam-
tök virkan þátt. „Auk þess viljum við
gjarnan vinna þetta með Evrópusam-
bandinu. Þar kemur tvennt til; þekk-
ingaröflun og möguleiki á fjármögn-
un,“ segir hann.
Rúnar segir að nefndin telji að til
þess að verða tilraunasamfélag verði
þjóð að búa við pólitískan stöðugleika
og sjálfstæði, vera tæknilega þróuð,
hafa lítil og meðalstór fyrirtæki, njóta
stuðnings frá laga- og menntaum-
hverfi og þátttaka stjórnvalda og fyr-
irtækja verði að vera virk. Þá sé nauð-
synlegt að tölvu- og netnotkun sé
almenn, sveigjanleiki sé mikill,
tengslanet sterkt og áhættuþol sé
mikið.
Guðbjörg segir að þátttaka stjórn-
valda og fyrirtækja sé lykilatriði.
„Baklandið verður að vera sterkt og
stuðningurinn alvarlegur. Annars
verður tilraunasamfélagið ekki til,“
segir hún.
Mikilvægir áfangar
Að sögn Guðbjargar hefur mikilvæg-
um áföngum verið náð, því texti um
tilraunasamfélög hafi verið sam-
þykktur af framkvæmdastjórn Evr-
ópusambandsins, sem hluti af skjali
sem ber heitið „Adapting e-Business
Policies in a Changing Environment“,
eða „Stefna í rafrænum viðskiptum
við breyttar aðstæður“ í lauslegri
þýðingu. „Þetta þýðir að þeim tilmæl-
um er beint til aðildarríkja ESB að
styðja þetta frumkvæði. Einnig opnar
þetta möguleikann á því að sam-
bandið sjálft verji fé til verkefnisins,
takist það vel,“ segir Guðbjörg. „Á
ríkisstjórnarfundi sl. þriðjudag sam-
þykkti svo ríkisstjórn Íslands að lýsa
stuðningi við verkefnið og að Ísland
verði þar í fararbroddi.“
Á ráðstefnu SARÍS, Samráðs um
rafrænt Ísland, þriðjudaginn 29. apríl
á Grand hóteli, verður fjallað um til-
raunasamfélagið, umhverfi og stöðu
rafrænna viðskipta á Íslandi og hæfni
til að takast á við verkefnið. Meðal
þátttakenda verða erlendir fyrir-
lesarar, m.a. frá ESB, og líklegir
erlendir samstarfsaðilar í verkefninu.
ráðstefnan verður á ensku en upp-
lýsingar um hana fást á vef SARÍS
(saris.is) og Skýrslutæknifélags Ís-
lands (sky.is), sem sér um ráðstefn-
una.
Ísland tilraunasamfélag
fyrir rafræn viðskipti?
Morgunblaðið/RAX
Ingólfur Sveinsson, Útflutningsráði, Guðbjörg Björnsdóttir, Staðlaráði Íslands, Jón-
ína S. Lárusdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti og verkefnisstjórn um upplýsinga-
samfélag, og Rúnar Már Sverrisson, Staðlaráði, vinna að því að Ísland verði í for-
ystu í evrópsku samstarfsverkefni um tilraunasamfélög fyrir rafræn viðskipti.
Fulltrúar í íslenskum stýrihópi um tilrauna-
samfélag fyrir rafræn viðskipti segja góðar lík-
ur á því að Ísland, ásamt fjórum öðrum lönd-
um, gerist slíkt tilraunasamfélag.