Morgunblaðið - 28.04.2003, Page 1
STOFNAÐ 1913 . TBL. 91. ÁRG. MÁNUDAGUR 28. APRÍL 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Í tygjum við
Saddam
Leyniskjöl í Bagdad sýna fram á
tengsl við Osama bin Laden 13
Guðni situr
heima
Guðni Bergsson fer ekki með landsliðinu
til Finnlands Íþróttir 1
Eltast
ekki við ímynd
Rakel McMahon varð hlutskörp-
ust í Ungfrú Ísland.is Fólk 31
BRESKA stjórnin ætlar að skera upp
herör gegn ofurháum forstjóralaunum
og starfslokasamningum, sem oft eru
gerðir án nokkurs tillits til gengis við-
komandi fyrirtækja.
Patricia Hewitt, talsmaður iðnaðar- og
viðskiptaráðuneytisins, staðfesti þetta í
gær í samtali við BBC, breska rík-
isútvarpið, og frá því var einnig greint í
blaðinu The Observer. Þar kom fram, að
fyrirhugað væri að skylda fyrirtæki til að
tengja laun til forstjóra og annarra
stjórnenda við rekstrarafkomuna. Þá
ætla stjórnvöld einnig að koma í veg fyrir
ofurháa starfslokasamninga, sem hafa
vakið reiði og hneykslun í Bretlandi. Pet-
er Hain, sem fer með málefni Wales í
bresku stjórninni, sagði í gær, að þessi of-
urlaun og ofurstarfslokasamningar væru
„viðurstyggð“.
Atlaga að
ofurlaunum
„ÞAÐ er alveg skýrt af úrskurð-
arorðum setts umhverfisráðherra
að skilyrðið er að lónið fari ekki inn
fyrir friðlandsmörkin,“ segir Þor-
steinn Hilmarsson, upplýsinga-
fulltrúi Landsvirkjunar. Hann segir
að tillaga sérfræðinga VST um lón í
566 metra hæð hafi verið sett fram
sem dæmi um hvernig hægt væri að
útfæra þessa framkvæmd miðað við
skilyrði úrskurðarins. Lands-
virkjun sé ekki bundin af þessu
enda sé dæmi VST ekki hluti af úr-
skurði Jóns Kristjánssonar. Sú út-
færsla sem Landvirkjun vinnur að á
grundvelli hans uppfylli eftir sem
áður öll skilyrði sem þar eru sett og
sé unnin í samráði við stjórnvöld og
sveitarfélög á svæðinu.
Þorsteinn bendir á að samkvæmt
úrskurðinum geti Landsvirkjun
staðsett væntanlegt stíflustæði
hvar sem er á eins og hálfs kíló-
metra kafla eftir árfarveginum og
valið heppilegustu leiðina fyrir
vatnið úr lóninu yfir í Þórisvatn eða
Kvíslaveitu.
Hægt að lækka í 566 metra
„Við höfum engan áhuga á að
hafa lónið stærra en þörf er á en við
þurfum að vega saman annars veg-
ar stærð og hins vegar rekstrarör-
yggi. Við höfum verið að skoða og
kynna hugmyndir um lón sem fer
upp í 568 m.y.s. en hægt verði að
lækka það niður í 566 metra til þess
að varna því að það hafi áhrif inn í
friðlandið við ákveðnar aðstæður
sem upp koma. Hugmyndin er sú að
reist verði steypt stífla í 566 metra
hæð en hún verði síðan hækkuð um
tvo metra með uppblásnum gúmmí-
belgjum, sem hægt verði að hleypa
úr ef svo ber undir. Sams konar
búnaður er á Sultartangastíflu en
þar var lónið hækkað um tvo metra
með þessari tækni.“
BANDARÍSK yfirvöld vilja halda þeim
herstöðvum, sem þau hafa nú í Persaflóa-
ríkjunum, og segjast ekki munu flytja her-
inn þaðan í fyrirsjáanlegri framtíð. Kom
það fram hjá Tommy Franks, yfirmanni
Bandaríkjahers á Persaflóasvæðinu, en
hann og Donald Rumsfeld, varnarmála-
ráðherra Bandaríkjanna, áttu í gær við-
ræður við stjórnvöld í Sameinuðu arabísku
furstadæmunum.
Bandaríkjamenn eru nú með herlið í
Sameinuðu arabísku furstadæmunum,
Katar og Kúveit auk þess herliðs, sem nú
er í Írak. Sagði Rumsfeld, að Bandaríkja-
stjórn ætlaði sér að tryggja öryggi í þess-
um heimshluta og Franks sagði, að hugs-
anlega yrði bandarískur herstyrkur
aukinn á meðan verið væri að glíma við eft-
irhreytur átakanna í Írak og Afganistan.
Efnavopnafundur?
Bandaríkjamenn hafa fundið 14 tunnur
með efni, sem virðist við fyrstu athugun
blanda taugagass og sinnepsgass. Er nú
verið að kanna það betur en að auki fundu
þeir tvo bíla með efnarannsóknastofum.
Bandaríkjamenn tilkynntu í gær, að
þeir hefðu handtekið í Bagdad Hossam
Mohammad Amin hershöfðingja, sem ann-
ast hefði samskipti Íraksstjórnar við
vopnaeftirlitsmenn Sameinuðu þjóðanna,
og hafa þá handtekið 13 af þeim 55 mönn-
um, sem þeir lýstu eftir. Þá handtóku þeir
einnig Mohammed Mohsen al-Zubaidi,
sjálfskipaðan borgarstjóra í Bagdad.
Fundist hafa írösk leyniskjöl, sem virð-
ast sýna, að tengsl hafi verið með stjórn
Saddams Husseins og al-Qaeda, hryðju-
verkasamtökum Osama bin Ladens.
Herstöðvar
verði áfram
við Persaflóa
Abu Dhabi. AP, AFP.
Áttu fund/13
Donald Rumsfeld og Tommy Franks á
blaðamannafundi í Abu Dhabi.
YFIRVÖLD í Peking létu loka í
gær leikhúsum, kvikmyndahúsum,
netkaffihúsum og öðrum opinber-
um samkomustöðum til að draga úr
útbreiðslu bráðu lungnabólgunnar.
Síðasta sólarhring varð hún 12
mönnum að bana í Hong Kong en
það vekur vonir, að ný sjúkdómstil-
felli voru aðeins 16 og hafa ekki áð-
ur verið færri á einum degi.
Gro Harlem Brundtland, yfir-
maður WHO, Alþjóðaheilbrigðis-
stofnunarinnar, sagði í gær, að enn
væri unnt að koma í veg fyrir al-
heimsfaraldur en til þess þyrftu
ríkisstjórnir um allan heim að
starfa saman og grípa strax til við-
eigandi ráðstafana. Eru aðgerðirn-
ar í Peking í þeim anda en þar að
auki vinna hundruð manna á vökt-
um allan sólarhringinn við að koma
upp 1.000 rúma einangrunarstöð
fyrir sjúklinga í einu úthverfa
borgarinnar. Segja má, að daglegt
líf í borginni sé meira eða minna
lamað vegna sjúkdómsins.
Lungnabólgan hefur valdið
dauða á fjórða hundrað manna um
allan heim og eru dauðsföllin lang-
flest í Kína og Hong Kong.
Julie Gerberding, yfirmaður
bandarísku sjúkdómavarnastofn-
unarinnar, sagði í gær, að að
minnsta kosti eitt ár myndi líða áð-
ur en unnt væri að framleiða bólu-
efni við lungnabólgunni.
Bandaríska tímaritið Time sagði
í gær, að kostnaður vegna lungna-
bólgunnar væri kominn í um 2.300
milljarða ísl. kr. um allan heim.
Sem dæmi var nefnt, að Toronto
tapar um 2,2 milljörðum kr. dag-
lega en WHO hefur varað fólk við
að fara til borgarinnar.
Daglegt líf í Peking lamað
Kostnaður vegna lungnabólgunnar
kominn yfir 2.000 milljarða kr.
Peking, Washington. AP, AFP.
„ÞAÐ er víðtæk sátt í þjóðfélaginu
um 566 metra stífluhæð og allir út-
reikningar um hagkvæmni voru við
það miðaðir,“ segir Jón Kristjáns-
son heilbrigðisráðherra, en hann
kvað upp úrskurð um Norðlinga-
ölduveitu í lok janúar sl. sem settur
umhverfisráðherra. Landsvirkjun
hefur við útfærslu framkvæmda við
Norðlingaölduveitu gert ráð fyrir
að vatnsborð uppistöðulónsins geti
farið í allt að 568 metra yfir sjáv-
armáli með sérstökum búnaði á
stíflunni.
Þegar úrskurðurinn var kveðinn
upp var samhliða lögð fram tillaga
um lónhæð í 566 m.y.s. sem Verk-
fræðistofa Sigurðar Thoroddsen,
VST, vann fyrir ráðherra.
Lónið myndi stækka
úr 3,4 í 7,4 ferkílómetra
Mikill munur er á flatarmáli
væntanlegs lóns eftir því hvort mið-
að er við 566 m.y.s. eða 568 metra
hæð. Í fyrra tilvikinu yrði flatarmál
lónsins um 3,4 ferkílómetrar en
verði stíflan 568 m.y.s. stækkar lón-
ið í um það bil 7,4 ferkílómetra.
Jón bendir á að í úrskurðinum
sjálfum hafi verið kveðið á um að
fyrirhugað miðlunarlón færi al-
gjörlega út úr friðlandi Þjórsár-
vera en stífluhæðin hafi þar ekki
verið tilgreind sérstaklega. „Hins
vegar voru allir útreikningar mið-
aðir við að þetta gæti gengið með
566 metra stífluhæð, sem var
kynnt þegar úrskurðurinn var
kynntur og um það virðist vera
mjög víðtæk sátt í þjóðfélaginu,“
segir Jón.
Jón Kristjánsson um hugmyndir um stíflu í 568 m hæð við Norðlingaölduveitu
Víðtæk sátt í þjóðfélag-
inu um 566 metra hæð
HUNDRUÐ máva hópuðust að sanddæluskipinu Sól-
eyju, þar sem það var við Álftanesið að dæla fylling-
arefni upp á land. Efnið verður síðan nýtt í húsa-
grunna á nesinu á vegum verktakafyrirtækisins
Loftorku á næstunni.
Að sögn Sigurðar R. Helgasonar, forstjóra Björg-
unar ehf. sem á og rekur Sóleyju, eru verkefni við
sanddælingu næg um þessar mundir og því unnið
alla daga vikunnar.
Mávarnir kunnu vel að meta heimsóknina í blíð-
viðrinu, enda næsta víst að í fyllingarefninu hafi
leynst sandsíli og e.t.v. annað góðgæti sem þeir gátu
vel hugsað sér að gæða sér á.
Morgunblaðið/Ómar
Sílaveisla í sandinum
♦ ♦ ♦
Uppfyllir
skilyrði
úrskurðar