Morgunblaðið - 28.04.2003, Blaðsíða 2
FRÉTTIR
2 MÁNUDAGUR 28. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
SLYSAHÆTTA MIKIL
Félag hópferðaleyfishafa vill að
sérstök löggjöf verði sett um öku-
leiðsögumenn. Félagið telur mikla
slysahættu fylgja því að sinna sam-
tímis bílstjóra- og leiðsögumanns-
starfi líkt og ökuleiðsögumenn gera.
Þá þykir félaginu eðlilegt að þeir
sinni ekki fleiri en átta farþegum í
einu.
Víðtæk sátt um 566 metra
Jón Kristjánsson, settur umhverf-
isráðherra í málefnum Norð-
lingaölduveitu, segir víðtæka sátt í
þjóðfélaginu um 566 metra stífluhæð
veitunnar. Landsvirkjun gerir hins
vegar ráð fyrir að hæð uppistöðu-
lónsins geti farið upp í 568 metra
sem þýðir að lónið verður helmingi
stærra en ella.
Áfram her við Persaflóa
Bandaríkjastjórn vill hafa áfram
þær herstöðvar, sem hún er nú með í
Persaflóaríkjunum, og jafnvel auka
herstyrkinn. Kom þetta fram í gær
hjá þeim Donald Rumsfeld, varn-
armálaráðherra Bandaríkjanna, sem
nú er á ferð um arabaríkin, og
Tommy Franks, yfirmanni banda-
ríska herliðsins á svæðinu.
Erfðagreining á löxum
Líftæknifyrirtækið Prokaria og
Stofnfiskur hf. hafa gert með sér
samning um erfðagreiningu laxa-
stofna til þróunar á kynbótum í fisk-
eldi. Það er Prokaria sem mun sjá
um erfðagreininguna fyrir Stofnfisk.
Samkomustöðum lokað
Mörgum opinberum samkomu-
stöðum hefur verið lokað í Peking
vegna bráðu lungnabólgunnar, sem
setur sitt mark á allt líf í borginni. Í
Toronto í Kanada er 21 maður látinn
og áætlað er, að sóttin kosti borg-
arsjóð rúma tvo milljarða króna dag-
lega. Um allan heim er kostnaðurinn
farinn að nálgast 2.300 milljarða kr.
ÍR sigraði Val
ÍR-ingar lögðu Valsmenn 26:25 í
æsispennandi leik í undanúrslitum
Íslandsmóts karla í handknattleik í
Austubergi í gærkvöldi. Skoraði
Ólafur Sigurjónsson sigurmark ÍR-
inga á lokasekúndum leiksins.
2003 MÁNUDAGUR 28. APRÍL BLAÐ B
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
ANDRI SIGÞÓRSSON MEIDDUR ENN Á NÝ / B12
BÍLDSHÖFÐI 510 8020
SMÁRALIND 510 8030
SELFOSS 480 7000
WWW.INTERSPORT.IS
ÍRAKSKIR bræður með sænskt rík-
isfang, Salar Yashin og Zeid Yas-
hin, eru komnir í herbúðir 1. deild-
ar liðs Leifturs/Dalvíkur í
knattspyrnu og verða þar til
reynslu um sinn. Þeir eru með
sænskt ríkisfang og hafa verið bú-
settir í Svíþjóð um árabil. Salar
Yashin, sem er 25 ára miðjumaður,
var í röðum Örebro um skeið, á
meðan Arnór Guðjohnsen, Hlynur
Birgisson og Hlynur Stefánsson
léku með liðinu, og þeir bræður eru
einmitt komnir til landsins fyrir
milligöngu Arnórs. Zeid Yashin er
19 ára gamall sóknarmaður og þeir
bræður hafa leikið í neðri deildum í
Svíþjóð að undanförnu.
„Þeir komu til okkar á laug-
ardaginn og voru á fyrstu æfing-
unni áðan. Við ætlum að gefa okkur
góðan tíma, 10–14 daga, til að sjá
hvernig þeir reynast, og ef allt fer
að óskum verða þeir um kyrrt,“
sagði Rúnar Guðlaugsson, formað-
ur Leifturs/Dalvíkur, við Morg-
unblaðið í gær.
Leiftur/Dalvík hefur misst 10
leikmenn úr sínum hópi frá síðasta
tímabili en hefur smám saman verið
að fylla í skörðin og fékk m.a.
Gunnar Jarl Jónsson, varnarmann
úr Leikni í Reykjavík, til sín á dög-
unum. „Við sjáum til hvernig þessir
tveir standa sig og það er ekki loku
fyrir það skotið að við eigum eftir
að styrkja liðið enn frekar,“ sagði
Rúnar.
Írakskir
bræður
hjá Leiftri/
Dalvík
Finnlands. Það er geysilega mikið í
húfi fyrir Bolton að halda sæti sínu
í úrvalsdeildinni og Allardyce hafði
þegar fengið því framgengt að
Jussi Jääskeläinen markvörður
myndi ekki spila með Finnum,
Henrik Pedersen myndi sleppa leik
með Dönum og Bernard Mendy
með franska 21-árs liðinu. Hann
sagði við mig að það væri alltof
mikil áhætta að ég færi til Finn-
Guðni sagði við Morgunblaðið ígær að hann hefði fundið sig
tilneyddan til að taka þessa ákvörð-
un í ljósi stöðunnar
hjá félagi sínu, og
vegna þess að um
vináttulandsleik
væri að ræða.
„Allardyce setti mikla pressu á
mig sem fyrirliða að fara ekki og
Atli lagði líka áherslu á að fá mig til
lands þótt ég myndi ekki spila
nema annan hálfleikinn þar. Ég
féllst að lokum á þetta, enda er ég
orðinn 37 ára og þarf að fá spraut-
ur og taka bólgueyðandi töflur fyrir
alla leiki til að halda mér leik-
færum.“
Guðni sagði að eftir sem áður
gæfi hann kost á sér í leikina gegn
Færeyjum og Litháen í undan-
keppni EM í júní. „Ég held að Atli
skilji mína stöðu varðandi leikinn í
Finnlandi og ég sagði honum að ég
væri áfram tilbúinn í júní ef hann
þyrfti á mér að halda. Þetta var af-
ar erfið ákvörðun og ég vona að
menn skilji hve mikla þýðingu það
hefur fyrir Bolton að taka ekki
áhættu með sína leikmenn hvað
meiðsli varðar á þessum tíma,“
sagði Guðni Bergsson.
Atli Eðvaldsson landsliðsþjálfari
kvaðst ósáttur við hlut Allardyce í
málinu en vildi ekki ræða það frek-
ar að sinni. Allir aðrir leikmenn úr
landsliðshópnum voru tilbúnir til
Finnlandsfarar eftir leiki helgarinn-
ar.
Í gærkvöld var óskað eftir því við
Bjarna Þorsteinsson frá Molde að
hann kæmi í stað Guðna í hópinn en
hann gaf ekki kost á sér vegna
meiðsla. Hópurinn er því skipaður
17 leikmönnum að svo stöddu en
þeim átjánda verður að öllum lík-
indum bætt við í dag.
Guðni ekki til Finnlands
GUÐNI Bergsson, fyrirliði Bolton Wanderers, leikur ekki með ís-
lenska landsliðinu í knattspyrnu í Vantaa á miðvikudaginn. Sam All-
ardyce, knattspyrnustjóri Bolton, lagði hart að Guðna og Atla Eð-
valdssyni landsliðsþjálfara að fá frí fyrir fyrirliðann sinn,
sérstaklega eftir sigur West Ham á Manchester City í gær, sem
þyngdi róður Bolton í fallbaráttu ensku úrvalsdeildarinnar.
Eftir
Víði
Sigurðsson
Morgunblaðið/Sverrir
Svana Hrönn Jóhannsdóttir úr Glímufélagi Dalamanna tryggði sér Freyjumenið á laugardaginn.
Ólafur Oddur Sigurðsson úr Héraðssambandi Skarphéðins hampaði Grettisbeltinu. Umsögn B9.
Yf ir l i t
Í dag
Sigmund 8 Þjónusta 25
Viðskipti 12 Bréf 26
Erlent 13 Dagbók 28/29
Listir 14/15 Leikhús 30
Umræðan 16/22 Fólk 30/33
Forystugrein 18 Bíó 30/33
Skoðun 22 Ljósvakar 34
Minningar 23/24 Veður 35
* * *
LÁTINN er á Akur-
eyri Gísli Konráðsson,
fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri Útgerð-
arfélags Akureyringa.
Gísli fæddist hinn 19.
október árið 1916 á
Hafralæk í Aðaldæla-
hreppi í Suður-Þing-
eyjarsýslu. Foreldrar
hans voru Konráð Vil-
hjálmsson, kennari,
bóndi og rithöfundur
og Þórhalla Jónsdóttir
húsfreyja.
Gísli varð stúdent frá
Menntaskólanum á Ak-
ureyri árið 1937. Hann starfaði sem
skrifstofumaður hjá KEA og Út-
gerðarfélagi KEA á Akureyri á ár-
unum 1937–1944 en var starfsmaður
hjá Hjálparstofnun Sameinuðu þjóð-
anna 1945–1946. Hann var deildar-
stjóri hjá KEA og framkvæmda-
stjóri Útgerðarfélags KEA og
Njarðar hf. 1946–1958. Árið 1958
varð hann fulltrúi Akureyrarbæjar
hjá Útgerðarfélagi Akureyringa og
framkvæmdastjóri þess sama ár.
Hann gegndi því starfi til ársins 1989
eða þar til hann lét af störfum fyrir
aldurs sakir.
Gísli gegndi fjölmörgum félags- og
trúnaðarstörfum. M.a. var hann end-
urskoðandi bæjar-
reikninga Akureyrar
og sat í stjórn Amts-
bókasafnsins á Akur-
eyri, Sparisjóðs Akur-
eyrar, Vinnuveit-
endafélags Akureyrar,
Kaupfélags Eyfirðinga,
Lífeyrissjóðsins Sam-
einingar, Sölumið-
stöðvar hraðfrystihús-
anna, Coldwater Sea-
food Corporation, Sam-
lags skreiðarfram-
leiðenda, Sambands
fiskvinnslustöðvanna
og Garðræktarfélags
Reykhverfinga. Þá var hann í stjórn
karlakórsins Geysis, Heklu – sam-
bands norðlenskra karlakóra og
Stúdentafélags Akureyrar. Hann
var fyrsti varamaður Framsóknar-
flokksins í bæjarstjórn Akureyrar á
árunum 1954–1962. Loks varð hann
vararæðismaður Danmerkur árið
1971 og ræðismaður árið 1974.
Árið 1979 var hann sæmdur heið-
ursnafnbótinni riddari Dannebrogs-
orðunnar og tveimur árum seinna
eða árið 1981 var hann sæmdur hinni
íslensku fálkaorðu.
Eftirlifandi eiginkona Gísla er Sól-
veig Axelsdóttir húsfreyja og varð
þeim sjö barna auðið.
Andlát
GÍSLI
KONRÁÐSSON
ÞEGAR farið var yfir meðmælendalista fram-
boða í Reykjavíkurkjördæmunum tveimur á
föstudag og laugardag kom í ljós að 13 meðmæl-
endur vantaði á lista Frjálslynda flokksins í
Reykjavíkurkjördæmi suður, 12 á lista Sjálfstæð-
isflokksins í kjördæminu og þrjá á lista Nýs afls.
Þá vantaði einn á meðmælendalista Sjálfstæð-
isflokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður.
Framboð til Alþingis voru tilkynnt viðkomandi
yfirkjörstjórnum fyrir hádegi á föstudag, fimm-
tán dögum fyrir kjördag, en skv. lögum um kosn-
ingar til Alþingis, þarf að lágmarki 330 meðmæl-
endur með hverjum framboðslista í Reykjavíkur-
kjördæmunum.
Mæltu með fleiri en einum lista
Samkvæmt upplýsingum frá yfirkjörstjórnum
Reykjavíkurkjördæmanna voru nokkur brögð að
því að meðmælendur á framboðslistum kæmu úr
öðru kjördæmi en framboðslistarnir, t.d. voru
einstaklingar sem tilheyrðu Reykjavíkurkjör-
dæmi norður á meðmælendalista framboðs í
Reykjavíkurkjördæmi suður og svo öfugt. Skv.
kosningalögum verður meðmælandi að vera kjós-
andi í sama kjördæmi og sá listi sem hann mælir
með.
Að auki var eitthvað um að einstaklingar hefðu
skráð sig sem meðmælendur á fleiri en einn lista.
Slíkt er heldur ekki heimilt skv. kosningalögum
og voru því nöfn þeirra einstaklinga, sem slíkt
gerðu, strikuð út af öllum þeim meðmælendalist-
um sem þeir skráðu sig á.
Af þessum sökum vantaði nokkur nöfn upp á að
fyrrgreind framboð næðu tilskildum meðmæl-
endafjölda, eins og áður sagði, þegar búið var að
fara yfir listana og strika út nöfn sem ekki upp-
fylltu skilyrði kosningalaga.
Fulltrúum framboðslistanna var hins vegar
gefið tækifæri til að fá nýja meðmælendur og skv.
upplýsingum Morgunblaðsins náðu umræddir
framboðslistar að uppfylla öll skilyrði fyrir fund
yfirkjörstjórna á laugardag.
Heimild til að leiðrétta meðmælendalistana er
veitt í 41. gr. kosningalaga. Þar segir: „Þegar
frestur sá er liðinn sem ákveðinn er um framboð
heldur yfirkjörstjórn fund næsta dag og skal um-
boðsmönnum framboðslista veittur kostur á að
vera viðstaddir. Finnist þá gallar á framboðslista
skal hlutaðeigandi umboðsmönnum gefinn kostur
á að leiðrétta þá og má veita frest í því skyni eftir
því sem tími og atvik leyfa. Ef gallar sem yfir-
kjörstjórn hefur bent á eru ekki leiðréttir innan
tilsetts frests kveður hún upp úrskurð um hvort
listi skuli fyrir það teljast ógildur. Verði ágrein-
ingur innan yfirkjörstjórnar um úrskurð ræður
afl atkvæða úrslitum.“
Ekki í fyrsta sinn
Þórunn Guðmundsdóttir, oddviti yfirkjör-
stjórnar Reykjavíkurkjördæmis norður, segir
þetta ekki í fyrsta sinn sem gallar finnist á fram-
boðslistum. Það hafi oft gerst áður. Hún segir þó
að óvenju mikið hafi verið um það að fólk hafi
ruglast á því hvaða kjördæmi það tilheyri. Hún
tekur hins vegar fram að búast hafi mátt við slík-
um ruglingi vegna nýju kjördæmabreytinganna.
Nöfn vantaði á meðmæl-
endalista þriggja flokka
ÍSLENDINGUR um fertugt var
handtekinn á flugvellinum í Dubai í
Sameinuðu arabísku furstadæmun-
um sl. fimmtudag fyrir vopnaburð og
hefur setið í fangelsi síðan.
Tildrög málsins eru þau að mað-
urinn kom á skipi til landsins en ver-
ið var að sigla því til nýs eiganda.
Leiðin lá um svæði þar sem sæfar-
endur óttast sjórán og tók maðurinn
með sér riffil í varnarskyni. Þegar til
landsins kom ákvað hann að taka
riffilinn með sér í flugi til Danmerk-
ur og lagði vopnið fram á flugvell-
inum, en var þá umsvifalaust hand-
tekinn. Að beiðni íslenska sendi-
ráðsins í Kaupmannahöfn, hefur
norska sendiráðið í Sameinuðu arab-
ísku furstadæmunum fylgst með
málinu. Sendiráðsmenn hafa talað
við manninn þótt ekki sé staðfest
hvort þeir hafi hitt hann, og auk þess
hefur maðurinn talað við fjölskyldu
sína. Ekki er vitað hvenær málið
verður tekið fyrir hjá yfirvöldum.
Í fangelsi
í Dubai
HRINGEKJAN í Fjölskyldu- og
húsdýragarðinum í Reykjavík svík-
ur engan sem hana prófar, allra síst
þessa glöðu stúlku sem naut lífsins
á baki hins fríðasta fáks. Og sólar-
glenna kórónaði stemmninguna
þótt hitastigið hafi ekki verið neitt
til að hrópa húrra fyrir.
Spáð er heldur kólnandi veðri
næstu daga um land allt. Vind herð-
ir af austri og norðri og verður hiti
yfir frostmarki í dag en fer síðan
niður fyrir frostmark á miðvikudag
og út vikuna.
Víða á heiðum austanlands var
slydda, hálka og hvassviðri í gær.
Laugardaginn fyrir páska var hátt í
20 stiga hiti á Austurlandi og því
um miklar veðurbreytingar að
ræða. Talið er að sumar fuglateg-
undir hafi verið farnar að verpa og
margar gróðurtegundir byrjaðar
að færa sig í vorskrúðann, að vísu
ekki birkið. Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Á fáki
fríðum
INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir,
talsmaður Samfylkingarinnar, segir
ekki tímabært að setja fram eitthvert
ákveðið stjórnarmynstur sem fyrsta
kost Samfylkingarinnar eftir kosn-
ingar. Í viðtali við Morgunblaðið sl.
sunnudag sagði Steingrímur J. Sig-
fússon, formaður Vinstrihreyfingar-
innar – græns framboðs, að tækist
stjórnarandstöðunni að fella ríkis-
stjórnina væri það fyrsti kostur VG
að stjórnarandstöðuflokkarnir tækju
við. Gagnrýndi hann Samfylkinguna
fyrir að taka ekki jafnskýra afstöðu
til stjórnarsamstarfs eftir kosningar.
„Aðalatriðið er inntakið í stjórnar-
stefnunni hjá nýrri ríkisstjórn, en
ekki endilega hverjir það eru sem
sitja í henni,“ segir Ingibjörg Sólrún
spurð um ummæli Steingríms. „Það
er ekki stjórnarmynstrið, heldur inn-
takið sem skiptir meginmáli.
Það sem skiptir máli er að tryggja
stöðugleika í efnahagsmálum og eyða
ekki um efni fram og ná síðan fram
umbótum í þágu þess fólks, sem við
teljum að helst þurfi á þeim að halda.
Við viljum ekki fyrirfram selja öðrum
flokkum sjálfdæmi um okkar örlög
eftir kosningar,“ segir hún.
Ingibjörg Sólrún um stjórnarmyndun
Seljum ekki öðr-
um sjálfdæmi
SKÁLDSAGAN 101 Reykjavík, eft-
ir Hallgrím Helgason fær góða
dóma í bókarumfjöllun í New York
Times í gær. Sagan hefur nýlega
verið gefin út í Bandaríkjunum í
enskri þýðingu Brians FitzGibbons
og í ritdómi rithöfundarins Sams
Lipsytes í New York Times segir
hann skáldsöguna afburðagóða á
köflum, yndislega lostafulla og oft á
tíðum ergilega.
Í ýtarlegri umfjöllun sinni fjallar
Lipsyte um sögusvið, persónur og
lýsingar bókarinnar en segir að
bestu hlutar frásagnarinnar séu þó
ekki prenthæfir í blaðinu, sem sé
miður, því Hallgrímur Helga kunni
þá list að baða sig upp úr svaðinu.
101 Reykjavík á köflum
„yndislega lostafull“